Norðurslóð - 29.03.1988, Síða 6
6 - NORÐURSLÓÐ
Aðalfiindur Búnaðarfélags Svarfdæla
og Ræktunarsambands Svarfdæla
Fimmtudaginn 17. mars voru
haldnir aðalfundir Búnaðarfc-
lags Svarfdæla og Ræktunar-
félags Svarfdæla í Þinghúsinu á
Grund.
Á Búnaðarfélagsfundinum
mætti Guðmundur Steindórsson
ráðunautur BSE og gerði grein
fyrir nautgriparæktinni, sér í lagi
mjólkurframleiðslunni í héraðinu
1987. Þar kom fram að skýrslu-
haldarar í deildinni (Svarfaðardal
og Dalvík) voru 25 og kúafjöldi
þeirra 462. Þessar kýr mjólkuðu
að meðaltali 3955 lítra, sem er 56
Itr. meira en 1986. Meðalkjarn-
fóðurgjöfin var sú sama og þa,
575 kg. í Eyjafirði öllum var
meðalnytin 4114 lítrar en fóður-
bætisgjöfin 496 kg.
Þess skal að lokum getið, að
hæsta meðalnyt í deildinni hafði
Syðra-Holtsbúið, 4957 ltr. á
árskú, en næst var Sökkubúið
með 4697 lítra.
Á fundinum gekk úr stjórn
félagsins Þorgils Gunnlaugsson á
Sökku, sem verið hefur formaður
undanfarin ár. í hans stað var
kosinn Óskar Gunnarsson í Dæli.
Fyrir í stjórninni voru Gunnar
Jónsson í Brekku og Símon
Helgason á Þverá.
Á aðalfundi Ræktunarfélagsins
kom það helst fram, að á síðast-
liðnu ári seldi sambandið Jarð-
verki hf. þ.e. Klaufnabrekkna-
bræðrum, jarðýtu sína, en jarð-
ýturekstur hefur verið helsta
verkefni þess frá öndverðu.
Kaupverð var 1,4 milljónir.
Kaupendur skuldbinda sig til að
vinna venjuleg jarðýtustörf fyrir
félaga í búnaðarfélögunum næstu
5 árin fyrir sama gjald og verið
hefur að teknu tilliti til verðlags-
hækkana.
Með þessu má líta svo á, að
lokið sé merkum kafla í svarf-
dælskri félagssögu. Ræktunar-
sambandið hefur starfað í yfir 40
ár og skilið eftir sig stórkostleg
verksummerki í ræktun, vega-
gerð og mörgu fleiru, sem of
langt væri upp að telja. Þeirri
spurningu var varpað fram á
fundinum hvort dagar þessa
félagsskapar væru ekki hér með
taldir eða hvað verða ætti af eign-
um þess. Stjórnarmenn svöruðu
því til, að engin ákvörðun hefði
verið tekin um framtíðina. Vel
mætti bíða í nokkur ár og sjá
hverju fram yndi áður en sam-
bandið yrði lagt niður eða sam-
einað Búnaðarfélaginu. Þess ber
Það er opinber stefna ríkis-
valdsins, og reyndar Sambands
íslenskra sveitarfélaga einnig,
að stuðla að fækkun og stækk-
un sveitarfélaga í landinu.
Ekki er hægt að segja að hratt
miði í þeirri viðleitni og er víða
mikil andstaða gegn þróun í
þessa átt. Þó er hreyfíng á mál-
inu og skal hér talið upp það
sem gerst hefur undanfarið.
Fyrstir riðu á vaðið ísfirðingar
og Hnífsdælir þar sem hét Eyrar-
hreppur. Þeir sameinuðust ísafj-
arðarkaupstað og urðu eitt sveit-
arfélag. Næstir til að sameinast
urðu Hvammshreppur og Dyr-
hólahreppur í V-Skaftafellssýslu
og heita nú, Mýrdalshreppur.
Fyrir tveimur árum síðan var
Klofningshreppur í Dalasýslu
lagður niður og bæjunum skipt
upp milli nágrannanna, Skarðs-
strandarhrepps og Fellsstrandar-
hrepps. Er nú á dagskrá meiri
sameining hreppa í sýslunni jafn-
vel sameining allra 8 hreppanna
þar í eitt sveitarfélag.
Það gerðu allir 5 hrepparnir í
A-Barðastrandasýslu á síðast-
liðnu ári, þeir sameinuðust undir
að geta að Búnaðarfélag Dalvík-
ur er aðili að Ræktunarsamband-
inu og flækir það málin nokkuð.
nafninu Reykhólahreppur með 5-
600 manns. Síðasta dæmið er frá
þessu ári þegar Holts- og Haga-
neshreppur í Skagafjarðarsýslu
sameinuðust nú nýverið undir
nafninu Fljótahreppur með um
170 íbúa. Þetta gerðist að undan-
genginni kosningu um sameining-
una eins og lög gera ráð fyrir og
var mikill meirihluti samþykkur í
báðum gömlu hreppunum. Nú á
dögunum var mynduð þar ný
hreppsnefnd án kosninga þar eð.
aðeins einn listi kom fram.
Oddviti mun verða Ríkharður
Jónsson bóndi á Brúnastöðuin.
Að lokum skal þess getið að í
gangi eru umræður um samein-
ingu sveitarfélaga á Reykjanes-
skaga og ennfremur sameining
Skarðshrepps í Skagafirði og
Sauðárkrókskaupstaður. Skarðs-
hreppur er fámennur hreppur,
sundurskorinn í tvennt af kaup-
staðnum. í hreppnum eru skiptar
skoðanir á þessu sameiningar-
máli og óvíst hvað úr verður þó
að fríðindi séu í boði svo sem
skuldbinding um lagningu hita-
veitu á sveitabæina o.fl.
Þetta var skráð hér til fróðleiks
og umhugsunar.
Til sölu fjórhjól
Yamaha YFM 225 swm nýtt. Ekið 200 km. Hátt og lágt
drif. Bakkgír og dráttarkrókur.
Gott verð.
Upplýsingar í síma 91-76145.
Aðalfundur Svarfdæladeildar kaupfélags Eyfirðinga
verður haldinn í Samkomuhúsinu Grund fimmtudag-
inn 14. apríl kl. 13.00.
Aðalfundur Dalvíkurdeildar verður haldinn í Víkur-
röst fimmtudaginn 14. apríl kl.20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Deildarstjórnir.
Fasteignir
til sölu
Til sölu eru hús á jörðinni Hrísum, Dalvík.
Óskað er tilboða í húseignirnar, allar eða hverja fyrir
sig.
Tilboðum skal skilafyrir 15. apríl 1988 til undirritaðs,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn Dalvík.
Saiueining
sveitarfélaga
.... áfram miðar samt
Dalvíkurbær óskar að ráða vélamann. Ennfremur
fólk til almennrar verkamannavinnu í sumar.
Upplýsingar gefa bæjartæknifræðingur og bæjar-
verkstjóri.
Dalvíkurbær
Vinnuskóli Dalvíkur óskar eftir flokkstjórum til starfa
í sumar.
Umsóknir skulu sendar til íþrótta- og æskulýðsfull-
trúa, Ráðhúsinu, Dalvík, sem gefur jafnframt frekari
upplýsingar.
Vinnuskóli Dalvíkur.
Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra við útibú Kaupfélags Ey-
firðinga á Dalvík er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Upplýsingar veitir Rögnvaldur Friðbjörnsson útibús-
stjóri í síma 96-61200 og heimasími 96-61415.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Mér er spum?
Fleiri en einn hafa beðið blaðið
að koma á framfæri fyrirspurn
um samanburð á kostnaði við
upphitun húsa á Dalvík eftir að
rennslismælakerfi var tekið upp í
stað hins eldra fasthemlakerfis.
Blaðið snéri sér til Guðmundar
Árnasonar veitustjóra, sem gaf
eftirfarandi upplýsingar.
SVAR
Fyrir breytinguna var mínútulíter
seldur á kr. 328 og fast gjald kr.
51 á mánuði miðað við bygging-
arvísitölu 200 stig. Byggingarvísi-
tala var í desember 1987 344 stig
og eftir þeirri hækkun yrði mín-
útul. á kr. 564 og fastagjald kr.
88.
Samkvæmt athugun á 20 hús-
um um það bil 400 rúmmetra eft-
ir síðustu áramót kom í ljós að
meðaltalsnotkun yfir árið 87 var
1010 rúmm. af vatni per hús, en
sömu hús voru með að meðaltali
4,2 lítra á mínútu fyrir breytingu.
Með gamla fyrirkomulaginu
hefði því verið borgað á árinu
1987 kr. 29.482 en eftir nýja lag-
inu (miðað við verðlag á vatni í
des. ’87 kr. 21 rúmmetrinn og kr.
225 á mánuði) kr. 23.910.
í janúar og febrúar greiða
menn um 22% af ársnotkun og
því er greiðsla notenda þyngst nú
en verður þeim mun léttari yfir
sumarið, en tölurnar að ofan eru
að sjálfsögðu miðaðar við allt
árið.
Opminartími um bænadaga
og páska
fimmtud. 31.3. kl. 10-19 - Lúgu lokað í hádeginu.
Verslunin verður opin laugard. 2.4. - Lúga frá kl.
3.30-19.00.
Lokað Páskadag.
Mánud. 4.4. lúga frá kl. 10-19
lokuð í hádeginu.