Norðurslóð - 26.04.1988, Qupperneq 6
Tímamót
Hjónavígsla.
14. apríl voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Jón
Sigvaldi Hreinsson og Vilborg Guðrún Friðriksdóttir. Heimili
þeirra er aö Böggvisbraut 25, Dalvík. JHI3
Hér á dögunum var „Noröur-
slóö“ stödd á fremsta bænum í
dalnum. Þaö var hörkufrost og
skafrenningur og vcgurinn illfær
litlum bílum. Sem nú gesturinn
situr yfir kaffibollanum viö eld-
húsborðið er óvænt ekið bíl í
hlaðiö. Þaö er R-bíll traustlegur
og búinn snjókeöjum á öllum
hjólum. Hver getur þetta vcrið?
segir bóndi. Svariö birtist strax í
líki manns, sem snaraði sér út úr
bílnum með plastpoka í höndum
og arkaði upp að útidyrum og
hringdi bjöllunni. Bóndi fór til
dyra og kastar kveðju á komu-
mann að sveitasið. Komumaður
veifar pokunum að bónda og seg-
ir formálalaust: „Má ekki bjóða
þér vinnufatnað og vinnuvettl-
inga?"
Þarna var þá á ferðinni einn
hinna fórnfúsu farandsala, sem
höfuðborgin sendir okkur út á
landsbyggðina til að tryggja hag
okkar í verslunarmálum. Þetta cr
nýjasta dæmið unt heimsókn
þessarar hvimleiðu stéttar, sem
viröist vera býsna fjölmenn.
Flestir eru þeir þó á sumrin
„meðan allar götur eru greiðar"
eins og þar stendur. En þessi
brýst hingað norður mitt í vetrar-
ríkinu og treðst m.a.s. fram í dal-
abotna f von um að afskekkt
sveitafólkið gíni við vörunni.
Mikil er sú þjónustulund.
Það er staðreynd að verslun í
dreifbýli, alvöruverslun, á í vök
að verjast. Varla hjálpa þessi
aðskotadýr upp á sakirnar. En
meðal annarra orða: Er þetta
lögleg verslunarstarfsemi og
hvernig skyldi söluskatturinn af
henni skila sér í kassann til Jóns?
Séð niður Skíðudal. F.v. Vuldiinar Bru|<uson. I rna Björnsdóttir og Gunnsteinn Þor-
gilsson. Ljósm. K.G.
Sumardugurinn tyrsti 1988. Tjarnarkirkja bak við snjófjall. Ljósm. HEI*
Skákþing 1988
Skákþing Norðlendinga 1988
var háð á Dalvík dagana 21.-
24. apríl sl. Keppt var í þrem
flokkum, opnum flokki, ungl-
ingaflokki og barnaflokki.
Keppendur voru alls 55
manns, 22 í opnum flokki, 16 í
unglingaflokki og 17 í barna-
flokki.
I opnum flokki voru tefldar 7
umferðir eftir Monrad kerfi, en 9
í hinum. Efstur í opnum flokki
og þar með Skákmeistari Norð-
lendinga varð Arnar Þorsteins-
son Ak. sem hlaut 6 vinninga, 2.
varð Gylfi Þórhallsson Ak. með
5'/2 vinning. 3. Smári Ólafsson
UMSE með 5 vinninga. Jafnir í
4.-6. sæti uröu Rúnar Búason Dl.
Ingimar Jónsson Dl. og Jón Árni
Jónsson Ak.
í unglingaflokki varð efstur
Magnús Tcitsson Ak. með 8'/2
vinning. 2. Rúnar Sigurpálsson
Ak. með 8 vinninga, og jafnir í
3.-4. sæti Sigurður Gunnarsson
Blönduósi og Örvar Arngríms-
son Ak.
í barnaflokki sigraði Þórleifur
Karlsson Ak. með 8'/á vinning, 2.
varö Ásmundur Stefánsson Sval-
barðseyri með 7'/2 vinning, 3.
varö Páll Þórsson Ak. einnig með
IVi vinning.
í opnum flokki tefldi Arnfríð-
ur Friðriksdóttir Dl. og hlaut hún
titilinn skákmeistari Norðlend-
inga í kvennaflokki.
Á sunnudag fór svo fram hrað-
skákmót Norðlendinga, og var
keppt í tveim flokkum, opnum
flokki og unglingaflokki. Efstur í
opnum flokki og hraðskákmeist-
ari Norðlendinga, varð Rúnar
Sigurpálsson, hann hlaut 12*/2
vinning af 18 mögulegum. Jafnir
að vinningum í ööru sæti urðu
Ingimar Jónsson Dl. og Þór Val-
týsson Ak. nteð 12 vinninga.
I unglingaflokki sigraði Örvar
Arngrímsson Ak. sem hlaut 17
vinninga af 19 mögulegum. í 2.-
3. sætu uröu Sigurður Gunnars-
son og Páll Þórsson með 16 vinn-
inga.
Skákstjórar voru Albert Sig-
urðsson Ak. og Jón Stefánsson
Dl. Mótsslit voru í Víkurröst á
sunnudagskvöld og verðlaun
afhent í hófi sem Bæjarstjórn
Dalvíkur bauð til.
Hugsað djupt. F.v. Aðalsteinn Grímsson, Smári Ólafsson.
Fréttahomið
Aflabrögö netabáta hafa verið
rýr á vetrarvertíðinni. Stærri
bátarnir hafa farið suður með
Austfjörðum til að leita á feng-
sælli mið en hér hafa verið í ná-
grenninu. Bliki, Sænes og Haf-
steinn fóru á mið Hornafjarðar-
báta og komu með 40 til 60 tonn
hver eftir nokkra útilegu. Smærri
bátarnir hafa eitthvað sótt lengra
til líka, bæði austur að Langanesi
og vestur í Húnaflóa. Hins vegar
hafa togararnir aflaö mjög vel i
vetur og hefur talsvert gengið á
þorskkvóta þeirra.
Nokkur síðustu ár helur af-
koma í saltfiskverkun verið
mjög góð. Nú hefur orðið verð-
lækkun á saltfiski i Portúgal í bili.
Afskipanir á saltfiski eru nú einn-
ig hægari en verið hefur. svo
heldur hefur hallað undan fæti í
þessari grein. Hins vegar stendur
saltfiskverkun ekkcrt mjög illa
mun betur en frystingin. Nú er að
fara í hönd aðal verkunartíminn
fyrir skreið á Ítalíu og eru menn
bara bjartsýnir með verö á
skreiðinni þar. Skreiðarverkun
Norðmanna gekk illa í ár svo
framboð frá þeim verður ekki
mikið öfugt við saltfiskinn. Mikið
framboð frá Norðmönnum hefur
valdið verðfallinu á honum.
tflutningur á skreið til Ítalíu
hefur verið mjög mikill frá
Dalvík. Skreiðarverkun hefur
líklega verið mest hér af einstök-
um stað á landinu. Yfir helming-
ur allrar skreiðar til ftalíu kom
frá Dalvík eitt árið. Það er stað-
reynd sem ekki heyrist oft, að
meðal skreiðarkaupenda á Ítalíu
eru verkendur á Dalvík og hér
við Eyjafjörð virtustu fram-
leiðendur á landinu. Menn þakka
hagstæðri veðráttu á vorin að
hvernig tekst til um verkun. Ey-
firsk vorveðrátta virðist henta
skreiðarverkun vel. Vafalaust
ræður miklu líka mikil verkkunn-
átta þeirra sem þetta stunda og
einstök natni. Á sumum liggur
það orð að þeir klappi daglega
hverjum fiski og séu allan sólar-
hringinn í hjöllunum og sofi þar
meira að segja.
Byggingarlóðir eru og verða
alltaf mis eftirsóttar, því
ræður bæði staðsetning og hvort
dýrt er að byggja á lóðinni.
Vegna þessa eru ein og ein óút-
hlutuð lóð við annars fullbyggðar
götur. Ein slík hefur verið við
Sunnubraut. Nú hefur þessari lóð
verið úthlutað undir einbýlishús.
Þá úthlutaði byggingarnefnd á
síðasta fundi sínum Viðari hf.
tveim lóðum við Lokastíg undir
parhús. íbúðabyggingar verða
sjáanlega meiri í sumar en í
fyrra. Voru þær þó meiri þá en
nokkru sinni fyrr.
Viðar hf. afhenti Dalvíkurbæ
leiguíbúðir þær sem bærinn
keypti í fjölbýlishúsinu við Loka-
stíg. Samkvæmt samningi átti að
afhenda íbúðirnar 1. apríl sl.
Afliendingin fór fram 31. mars og
var meðal annars öll bæjarstjórn-
in viðstödd. Hilmar Daníelsson
afhenti Trausta Þorsteinssyni
forseta bæjarstjórnar lykla að
íbúðunum. í máli þeirra kom
fram gagnkvæm ánægja með við-
skipti og samanskipti Dalvíkur-
bæjar og Viðars hf. íbúðirnar
sem bærinn keypti eru þrjár
tveggja herbergja.
Nokkur togstreita hefur verið
í kerfinu um sjálfstæði skip-
stjórnarbrautarinnar við Dalvík-
urskóla. Það var hugmynd sumra
að próf yrðu gerð af kennurum
Stýrimannaskólans í Reykjavík
og nemendur sem útskrifast héð-
an í fyrsta sinn í vor með full
skipstjórnarréttindi á öll fiskiskip
teldust útskrifast frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík. Nú er
þetta deilumál útkljáð á þann
hátt að nemendur munu útskrif-
ast frá Dalvíkurskóla og fá sín
prófskírteini frá honum sem að
sjálfsögðu verða jafn rétthá og
frá öðrum. Kennarar hér við
skólann munu ganga frá og semja
sín próf, svo segja má að fullu
sjálfstæði sé náð.
Ítalíuskreiö á Hálsárskriöu.