Norðurslóð - 22.09.1988, Qupperneq 2

Norðurslóð - 22.09.1988, Qupperneq 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvík Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn Sími 96-61555 Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun: Dagsprent Samviniia sveitarfélaga Lengi hefur verið talað um nauösyn þess að sameina og stækka sveitarfélögin og gera þau þar með færari að sinna verkefnum sem þeim eru ætluð. Þó margt hafi verið sagt gáfulegt um þessa hluti hefur minna gerst. Margt hefur verið rætt og ritað um fallandi gengi lands- byggðar í samanburði við höfuðborgarsvæðið. Harma- grátur okkar landsbyggðarfólks hefur farið út í öfgar og vafalaust orðið til þess að ýta ýmsum fyrr á mölina en efni stóðu til. Veikburða sveitarfélög eru án efa nokkur skýring á því að ekki hefur tekist að búa fólki það umhverfi út á Iandi sem þykir í dag eðlilegt miðað við lífsmynstrið sem borgríkið hefur skapað. Með þessum orðum er ekki átt við að æskilegt sé að búa til smækkaðar myndir af Reykjavík hér og hvar um landið, síður en svo. Sérstaða sérhvers byggðarlags atvinnulega og menningarlega er það mikil að eftiröpun á lífsstíl fólks á Reykjavíkursvæðinu fellur ekki inn í landslagið. Einmitt þetta tryggir fjölskrúðugra mannlíf í landinu sem er jú keppikefli í sjálfu sér. Hitt er svo annað að mörg verkefni eru óleyst sem tryggt gæti búskap hér og hvar og einmitt varðveitt menningarlega sérstöðu byggðanna. Þó tína megi til mörg góð verkefni í þessu sambandi er vert að benda á að smæð sveitarfélaganna kemur í veg fyrir að færa til þeirra ákvörðunartöku og umsjá ýmissa verka svo það líðst að hafa ótrúlega mikla fjarstýringu frá Reykjavík á smáu sem stóru. Slík fjarstýring virkar lamandi fyrir þá sem við hana búa og fólk fær vanmáttartilfinningu og finnst það ekki ráða yfir sjálfsögðum hlutum í umhverfinu næsta sér. Samvinna sveitarfélaga hefur aukist um ýmis verk- efni. Virðist hér í mörgum tilfellum kominn góður vett- vangur sem kemur ef til vill í staðinn fyrir sameiningu sveitarfélaganna. Það virðist vera breytilegt eftir verk- efnum og svæðum hvernig þessi samvinna ætlar að þróast og enn hefur ríkisvaldið ekki viðurkennt nema í litlu gildi slíkrar samvinnu og engin formleg verkefni hafa flust frá Reykjavík til þessara samstarfshópa þó það geti auðveldlega gerst. Fjórðungssamböndin njóta nokkurrar viðurkenning- ar sem samstarfsvettvangur sveitarfélaga en svæða- skipting er þannig að útilokaö er að afhenda þessum samtökum nokkurt formlegt vald. Það er nauðsynlegt að auka valddreifíngu í landinu færa ákvörðunartöku nær fólkinu. Til þess þarf að búa til vettvang, hugsa upp hluti að nýju. Líklegasta leiðin til að ná sæmilegri sátt um leiðir í þessum efnum er að skipta landinu upp í atvinnu- og þjónustusvæði og treysta samstarf sveitar- félaganna á svæðunum og afhenda þeim í sameiningu verkefni. J.A. Frá Sundskála Svarfdæla Frá og með mánudeginum 26. sept. verður skál- inn opinn sem hér segir: Miðvikudaga kl. 20.30-22.30, almenningstími (aldurstakmark 14 ár). Fimmtudaga kl. 21.00-23.00, karlatími. Sunnudaga kl. 10.00-12.00, almenningstími. Sunnudaga kl. 20.30-22.30, kvennatími. Sundskálanefnd. Dagbók Jóhanns á Hvarfí - Anno 1893 - 1. janúar. Fór allt fólk héðan af heimili til kirkju. 3. janúar. Fékk Upsabyttan kippað út hjá Nesinu. 5. janúar. Afli rýr í dag. Þetta kallast samsig en ekki ganga. 11. janúar. Hrútar settir í ærhúsin. 12. janúar. Gistu Júlli í Hver- hóli og Sigurður á Kóngsstöðum, færðu séra Emil á Kvíabekk smjörleigur af ábýlisjörðum sín- um sem nú tilheyra Kvíabekkjar- brauði til eftirgjalds. 23. janúar. Kom Hallgrímur á Melum, fór ég með honum til fundar að Höfða við hittum Baidvin á Böggvisstöðum á Háls- inum hann fór með okkur að Krossum, sendum þaðan ofan á Litla-Árskógssand að fá far yfir- um en gistum á Krossum. 22. janúar. Fórum við frá Krossum og Þorvaldur þaðan með ofan á Litla-Árskógssand, Gunnlaugur þar bættist við og fór á sínum bát. Vorum 5 og héldum á Kljáströnd í logni og blíðviðri, gistum á Höfða: Baldvin, Gunn- laugur og ég, en Grímsi og Þor- valdur fóru að Grýtubakka. Komu fundarmenn úr öllum deildum Kaupfélags Svalbarðs- eyrar og gistu í Höfða. 23. janúar. Aðalfundur kaup- félagsins haldinn á Höfða af bræðrunum Baldvin og Þórði ásamt deildarstjórum og ýmsum fleiri, fundarmenn um 20. Ný deild myndaðist á Árskógsströnd eru þá 2 deildir vestan fjarðar, Svarfdæladeild og Árskógsdeild og 5 austan fjarðar. 8. febrúar. Kom Flóvent Jóns- son frá Skriðulandi. hefir verið 19 ár í Ameríku. Kom til íslands næstliðið sumar, réri til fiskjar í Arnarnesi í haust. Hann sagði margt og þekkti sveitunga héðan sem eru í Nýja íslandi þar hefir hann búið í 13 ár, lét fremur vel af mörgu þar vestra. 12. febrúar. Fór margt til kirkju, Tryggvi litli spurður í fyrsta sinn með börnum í kirkju. 20. febrúar. Almennur fundur á þinghúsinu, rædd sveitarmál 10 mál á dagskrá: Um samastaði ómaga eftirleiðis, Búnaðarfélag Svarfdæla, afréttarmál, Lestrar- félag, fiskveiðimál, vegabætur,’ brúarmál, heyásetningur, skýrsl- ur sparisjóðs og um markað. 22. febrúar. Fór ég að láta nið- ur ýms skjöl sem ég þarf með á sýslufund líka lét ég niður 26 pör heilsokka, 9 pör hálfsokka, 16 pör vettlinga. 23. febrúar. Komu Jakob Björnsson, Björn Lárusson, og Thorarensen frá Akureyri, gista hér, ætla í Klaufabrekknakot. 2. mars. Drógust nokkur há- karlagot upp um ís á pollinum (Akureyrarpolli). Annar dagur sýslufundar og nefndarstörf fram á nótt. Fréttir með manni úr Reykjavík um frost óvenju mikil erlendis, hafði teppt flestar sjó- leiðir frá því fyrir jól. Póstskip ókomið, en bréf og blöð komu með Vaagen gufuskipi Watnes til Reykjavíkur frá Stafanger. 4. mars. Fram haldið sýslu- fundi til kvölds, þá lokið, 60 málefni rædd svo sem: Brúarmál, gufubátsmál, um Hólaskóla, kvennaskóla auk hins almenna, einnig reglugerð um kynbót hrossa sem ekki varð útrædd. 14. mars. Þæfði Jóhannes í Skriðukoti í dag. í dag komu skaflar og fyllti í öll skjól. Stefán í Hofsárkoti að rekja fyrir mig. Sveinn óf 4 álnir af þrískeftu í dag. 20. mars. í dag sigldu hér út Vonin, Draupnir og Brúni, ætla öll austur fyrir Horn. 31. mars. í 'dag er ég mjög lasinn, þó skrifaði ég Ólafi á Syðri-Bakka og sendi honum vísu. Fréttist að Guðrún, sem þessum hrepp hefur verið þyngst byrði, væri dáin vestur í Húna- vatnssýslu. 6. apríl. í 3 daga hefir Nonni verið að hefla orf, sköft og gera við taðvél - þetta gert hér heima. 7. apríl. Fór Nonni og Gísli út í Sökku að búa yndir og svo þilja upp í loftinu á Vallakirkju það sem ógert var. Þorgils hefir náð 12 borðum flutt þau heim og flett. 10. apríl. Halldór í Dæli minnt- ist á skilnað við konu sína Stefan- íu Jónsdóttur (Foreldrar Elíasar og Jóns í Ártúni). 15. apríl. Kom Jón í Sigríðar- staðakoti og Anna frá Heiði utan úr Fljótum í dag, gista. 20. apríl. Fórum í húsin (hann og Sólveig alltaf á Sumardaginn fyrsta) - Geldingar 31, gimbrar 27, hrútar 3, (veturgamalt) þar af 1 með marki Jóns á Þverá sem Sólveig gaf mér í sumargjöf. 22. apríl. Haldin forlíkun á Völlum milli hjóna, Halldórs Jónsonar og Stefaníu Jónsdóttur frá Klængshóli, var ég þar stadd- ur sem forlíkunarmaður með presti. gekk ekki sætt svo við skrifuðum sýslumanni, að Hall- dór óskaði eftir skilnaði með dómi. 30. apríl. Fór Eiríkur í Uppsöl- um með prjónavél sína eftir að hafa dvalið hér yfir viku og prjónað fyrir okkur. 2. inaí. Var Nonni að setja saman borðapall yfir forina. Kýr lálnar út á Bakka, það fyrsta hér í sveit. 3. inaí. Borðapallur settur hér á forina og salerni þar með. Syntu drengir í ánum töluvert. 8. maí. Fór Páll ofan á Strönd að sækja grásleppu: Til Þorleifs á Hóli 50, Gunnlaugs á Karlsá 15, og Jóns gamla á Hóli 14, (Jón yngri) alls 79. í dag þéttur jarð- skjálfti. 9. maí. Fór Páll ofan í Hól eftir því sem hann eftir skildi í gær. Nú var byrjað á sundkennslu í pollinum, 14 piltar syntu í dag. Borið saman vetrartað. 12. maí. Fór ég og Stefán í Hofsárkoti ríðandi í kaupstað. 13. maí. Fann sýslumann, tók stefnu Halldórs í Dæli upp á hjónaskilnað. 14. maí. Fór Nonni héðan að Hnjúki sem lausamaður (hann byggði síðan nýbýlið Hlíð. Giftist Sigríði dóttur Jóns og Sesselju í Hrafnsstaðakoti, flutti að Þór- oddstöðum í Ólafsfirði. Faðir til dæmis Sveinbjörns iðnrekanda og Þórðar bónda á Þóroddstöð- um). 19. maí. Komu þeir af strönd- inni (Upsaströnd) heim með 14 til 20 nóraseli alls um 70 sem veiddust hér á Upsaströnd. 20. maí. Kom Jórunn með Arngrím litla (sonur þeirra A. listmálari og prentari Reykja- vík). 2. júní. Rekið saman, rúið, drengir kornu heim frá sundpolli og hjálpuðu okkur, lokið fyrir háttatíma. 3. júní. Ár litlar, gróður nógur. Páll gelti 2 fola frá Völlum og Holti fram á Vesturárdal. 4. júní. Fór margt kvenfólk fram að polli. Sumar fóru í gjörð í fyrsta sinn og mun slíkt sjaldgæft. Nú var í fyrsta sinn hleypt úr Skriðukotslæk í Kúabolla sem drengir gerðu far- veg til, lítur vel út að þar verði ágætur sundpollur. 6. júní. Manntalsþing á þing- húsi, var þar tekið fyrir málið Halldór Jónsson Dæli og Stefanía Klængshóli til algerðs hjóna- skilnaðar með dómi, sem ekki var uppsagður af sýslumanni til fullnaðar. 7. júní. Sund hér seinast í dag, þá búið að standa yfir mánaðar tíma og nær 40 notið tilsagnar. 9. júní. Fór Páll í Klaufa- brekknakot og út í Garðakot til Önnu, hún er veik af bólgu mein- semd. 11. júní. Fóru drengir báðir í fyrsta sinn til róðra, samferða. 14. júní. Jói réri hjá Guðjóni fékk 12 í hlut, Sveinn á Jóa bát (nú Jóa í Árgerði) 14 í hlut, svo 50 í hlut á nótabátinn eftir hina 2 dagana, var lagt í salt í félagi. 18. júní. Pöntunarfiskur fluttur úr nótabát. 19. júní. Vorum í kaupstað. Farið úr kaupstað inn í Árnar- nesvík. Besta veður. Dregið fyrir í Arnarnestjörn, fékkst ekki síld, biðum til kvölds og reyndm aftur og fékkst svo sem á 2 köst, fórum heimleiðis eftir háttatíma. 2. júlí. Gránufélagið byggir nýtt salthús á Böggvisstaðasandi og Eggert Laxdal og Jóh. Christ- ensen annað í Láginni nú á þessu vori. 3. júlí. Kom Arngrímur á Hvarfi frá Hamri. Hann sagði Ólaf þaðan kominn frá Ameríku (Ó. Árnason) eftir 10 ára dvöl. Fóru margir ofan í Lukkuna. Fórum að kvöldi. Lágum við Sól- veig nóttina á Sandinum. 3. ágúst. Kom bréf frá Consúl, ég á að koma með bola 4.-5. ágúst. Fór Páll í nótt út í Garða- kot og sótti konu sína, sjúkling- inn Önnu, og flutti hingað. 4. ágúst. Bárum upp efra-hús- heyið, svo fórum við Tryggvi litli á stað með nautið inn á Akureyri. Komum fyrst að Lóni klukkan 6, fengum mjólk og kaffi. Á Akur- eyri kl. 11 eftir miðdag. Gistum hjá Ólafi vert og fengum hús handa bola var ég þá staðþreyttur orðinn. 5. ágúst. Kl. 8 kom slátrari úr Díönu herskipi danskra, rotaði bola og gerði til kjöt 230 pund. Slátur seldi ég Snorra. (Alltaf sami Snorrinn Jónsson frá Holár- koti, trésmíðameistari og kaup- rnaður á Akureyri.) Fórum að kvöldi á stað kl. 9. Gistum á Hallgilsstöðum. Reiddi ég húð- ina heim. 7. ágúst. Páll rakaði húðina að kvöldi. 9. ágúst. Sólveig fór með Jór- unni í Bakka, útgerð kaup á kú 90 krónur, fór Sveinn ofan og lagði inn fisk minn 305 pund og sinn 205 pund, fór svo á færi og fékk 13 smáfiska kom kl. 3 að nóttu. 10. ágúst. Fór Hjörtur á Urð- um og Jón á Hóli (Hjörtur afi Hjartar á Tjörn Jón langalangafi Atla á Hóli) með sinn uxann hvor til Akureyrar. 12. ágúst. Fór Þórður á Hnjúki (afi Kristins á Hnjúki) með naut inneftir og með honum fleiri laus- ir. 17. ágúst. Einar Pálsson kom frá Melum, gisti þar í nótt hefir verið að vigta saltfisk á Sandinum og heimta skuldir fyrir Gránu. Afli rýr, ógæftir. Framhald

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.