Fréttablaðið - 16.05.2017, Side 6

Fréttablaðið - 16.05.2017, Side 6
 • Víetnam, Kambódía og Laos • Indland og Bútan FERÐAKYNNING Tvær glæsilegar sérferðir VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS Kynningin verður hjá VITA, Skógarhlíð 12, og hefst kl. 19:30. Gengið er inn neðan við húsið, á endanum, gegnt Hlíðarenda. Héðinn Svarfdal Björnsson og sr. Þórhallur Heimisson kynna ferðirnar á morgun, miðvikudaginn 17. maí. Fatboy Original púðinn H E I L S U R Ú M A R G H !!! 1 60 51 7 Verð frá 23.650 kr. YFIR 30 LITIR Þjónustumiðstöð tónlistarfólks Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is LögregLumáL Sérsveit ríkislögreglu- stjóra fór í 76 verkefni á fyrstu fjórum mánuðum ársins vopnuð skotvopn- um. Þetta sýna tölur ríkislögreglu- stjóra. Það jafngildir því að farið hafi verið að meðaltali í 4,5 útköll á viku. Allt árið 2016 fór sérsveitin í 108 útköll með skotvopn. Fréttablaðið hefur ekki fengið skýringar á því hvort búast megi við auknum fjölda vopnaðra útkalla í ár eða hvort ein- hverra hluta vegna fari sérsveitin helst í vopnuð útköll á fyrsta þriðj- ungi ársins. Hins vegar blasir við að vopnuðum útköllum hefur fjölgað verulega undanfarinn áratug, en árið 2006 voru þau 42 og árið 2007 voru þau 53. Önnur sértæk verkefni sérsveitarinnar eru miklu fleiri auk þess sem sérsveitarmenn sinna líka almennum löggæslustörfum. Helgi Gunnlaugsson, afbrota- fræðingur og prófessor í félagsfræði, leggur áherslu á að sérsveitin hafi ekki misnotað vopn. „Ef við skoðum söguna  í þessu þá hefur lögreglan ekkert beitt vopnum frá upphafi. Þetta er eitt skipti sem þeir hafa gripið til vopna þannig að þeir hafa beitt þessu af hógværð,“ segir Helgi. Hann vísar þar í atvik í Hraunbæ árið 2013. Hann leggur áherslu á að lögreglan hafi ekki ofnotað eða misnotað vopn. „Eða að upp komi tilfelli sem hafa orðið að dómsmáli eða þar sem menn hafa séð lögregluna fara offari. Við erum ekki að sjá tilfelli af því tagi. Maður hugsar til tilfella í Bandaríkj- unum og að einhverju leyti í Evrópu en ekki hérna hjá okkur. Þeir virðast hafa sýnt ábyrgð og fagmennsku í verki,“ segir Helgi og bætir við að þjálfun sérsveitarmanna sé mikil. Ekki bara í upphafi heldur sé þjálf- unin stöðug. jonhakon@frettabladid.is Að jafnaði fjögur vopnuð útköll á viku Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur nýlega tekið nýja bíla í notkun. Sé rýnt í tölur sést að vopnuðum útköllum þeirra er að fjölga. Fréttablaðið/anton Viðskipti  Tæknifyrirtækið Twig- kit sem stofnað var af Hirti Stefáni Ólafssyni og Bjarka Hólm hefur verið keypt af Lucidworks sem stað- sett er í Kísildalnum í San Francisco í Bandaríkjunum. Norðurskautið greindi fyrst frá þessu. Twigkit var stofnað árið 2009. Félagarnir tveir munu starfa hjá Lucidworks í framhaldinu. Ekki er vitað hvert kaupverðið var. Lucidworks stendur að baki Apache Solr, sem er vinsæl leitarvél, að því er fram kemur í tilkynningu frá Twigkit. Þetta er eitt af fáum fyrirtækj- um stofnuðum af Íslendingum sem keypt hafa verið til Kísildalsins, þeirra á meðal eru Clara, sem Gunn- ar Hólmsteinn Guðmundsson stofn- aði, og Emu Messenger sem Google keypti. – sg Íslenskt fyrirtæki selt í Kísildalinn Örfá íslensk fyrirtæki hafa verið keypt yfir í Kísildalinn síðastliðin ár. Fréttablaðið/aFP BretLand Launaþróun í Bretlandi verður hægari á árinu  en mælst hefur í þrjú og hálft ár samkvæmt nýrri könnun meðal atvinnurek- enda. Business Insider greinir frá því að könnunin sem náði til yfir 1.000 fyrirtækja sýni að atvinnurekendur reikni einungis með að hækka laun að jafnaði um 1 prósent á árinu. Ef þær spár ganga eftir er um að ræða minnstu launahækkun milli ára í þrjú og hálft ár. Líklega mun þetta leiða til þess að Bretar upplifi minni kaupmátt þar sem vöruverð er að hækka mikið vegna lágs gengis pundsins. Verðbólga mælist nú 2,3 prósent og reiknar Englandsbanki með 3 pró- senta verðbólgu á árinu. Haft er eftir Gerwyn Davies, sér- fræðingi hjá stofnuninni sem fram- kvæmdi könnunina, að raunveruleg hætta sé á því að stór hluti bresks vinnuafls muni upplifa verri lífskjör á árinu. – sg Spá því að lífskjör Breta versni Íbúar london gætu haft minna milli handanna á næstu mánuðum en áður. nordicPhotoS/Getty Það sem af er ári hefur sérsveit ríkislögreglu- stjóra farið í 76 vopnuð útköll. Það samsvarar 4,5 útköllum á viku. Vopn- uðum útköllum hefur fjölgað á síðastliðnum áratug. Afbrotafræðingur segir lögreglu hafa notað vopn af hógværð. Fjöldi vopnaðra verkefna sérsveitarinnar 2016 108 2015 104 2014 79 2013 83 2012 72 2011 63 2010 63 2009 68 2008 48 2007 53 2006 42 Þeir virðast hafa sýnt ábyrgð og fagmennsku í verki. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við HÍ 1 6 . m a í 2 0 1 7 Þ r i ð J u d a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :3 9 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D C -9 6 7 C 1 C D C -9 5 4 0 1 C D C -9 4 0 4 1 C D C -9 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.