Fréttablaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 20
Djúpavogshreppur Auglýsing um skipulagsmál Aðalskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 1. Breytt landnotkun í landi Teigarhorns og Djúpavogs - hrepps við Eyfreyjunes, og færsla Hringvegar nærri bæjarstæði á Teigarhorni og fyrir Eyfreyjunesvík Hluti jarðarinnar Teigarhorns hefur notið friðlýsingar sem náttúruvætti síðan 1975 en frá 2013 hefur öll jörðin notið friðlýsingar sem náttúruvætti og fólkvangur. Gerð er tillaga að breytingu á takmörkun vegna friðlýsingar svo hún nái yfir alla jörðina í stað einungis hluta hennar neðan Hringvegar. Vegna uppbyggingar í þágu ferða - þjónustu, verndar, fræðslu og útivistar er gert ráð fyrir afþreyingar- og ferðamannasvæði nærri bæjarstæði í stað landbúnaðarsvæðis. Jafnframt er gerð tillaga um færslu Hringvegar nærri bæjarstæði á Teigarhorni og fyrir Eyfreyjunesvík til að skapa rými fyrir uppbyggingu innviða nærri bæjarstæði. Deiliskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi: 2. Deiliskipulag vegna uppbyggingar ferðaþjónustu á Blábjörgum Deiliskipulagssvæðið er 3030 m2 að stærð og er staðsett skammt austan við núverandi íbúðarhús. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir þremur lóðum. Innan hverrar lóðar verður heimilt að reisa allt að 70 m2 hús, sem ætlað er til reksturs gistiþjónustu. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi á skrifstofu Djúpavogshrepps, Bakka 1, Djúpavogi og eru einnig að- gengilegar á heimasíðu Djúpavogshrepps: www.djupivogur.is undir liðnum Aðalskipulag. Tillaga 1 liggur jafnframt frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Skipulagstillögurnar eru í kynningu frá 16. maí til 27. júní 2017. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasem- dum skal skila skriflega til sveitarstjóra Djúpavogshrepps, Bakka 1, 765 Djúpavogi eða á sveitarstjori@djupivogur. is, eigi síðar en 27. júní 2017. Vinsamlegast gefið upp nafn, kennitölu og heimilisfang sendanda innsendra ábendinga og athugasemda. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan gefins frests telst vera henni samþykkur. Sveitarstjóri Djúpavogshrepps Útboð Fallorka óskar eftir tilboðum í verkið Glerárstífla II Um er að ræða jarðvinnu og uppsteypu stíflumannvirkis. Stíflan er u.þ.b. 100 m löng og 6 m há. Um miðbik hennar er steinsteypt yfirfall, botnrás, inntaksmannvirki og um 20 m2 lokahús en til beggja hliða eru fyllingarstíflur með steyptum þéttivegg í miðjunni. Gert er ráð fyrir að efni í fyllingar komi úr lónstæði. Helstu verkliðir eru: • Fleygun/sprenging rásar undir stíflu • Uppsteypa á stíflumannvirki, þ.m.t. yfirfall, botnrás, inntaksmannvirki, lokahús og þéttiveggir • Hlaða stíflur að þéttiveggjum • Fullnaðarfrágangur lokahúss að utan og innan Helstu magntölur eru: • Fylling 10 000 m3 • Mót 2 300 m2 • Steypa: 1 200 m3 • Járnbending 81 000 kg Tilboðum skal skila til Fallorku ehf, Rangárvöllum, 603 Akureyri eigi síðar en: kl. 12:00 þann 7. júní 2017. Útboðsgögn verða afhent þeim sem þess óska frá og með miðvikudeginum, 17. maí 2017 kl. 12:00. Ósk um útboðsgögn skal senda á netfangið aej@verkis.is Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. maí 2017, virðisauka­ skattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2017 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2017, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiða­ gjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjár­ málaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing­ og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysa­ trygg ingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýslu­ skattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkis­ sjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrir­ vara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. maí 2017 Tollstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Úlfarsárdalur Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 10. maí 2017 og borgarráði Reykjavíkur þann 11. maí 2017 var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi sem felst í uppbyggingu og stækkun Úlfarsárdalshverfis. Gert er ráð fyrir um 1300 íbúðum í dalnum. Nýtt hverfi verður reist við Leirtjörn. Reykjavíkurborg mun standa fyrir opnu húsi í hverfinu og kynna tillögurnar enn frekar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Lambhagavegur 12 og 14 Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 3. maí 2017 og borgarráði Reykjavíkur þann 11. maí 2017 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegur-Hallar vegna Lambhagavegar 12 og 14. Í breytingunni felst m.a. að fyrirkomulagi byggingareita á lóðum 12 og 14 við Lambhagaveg er breytt og heimilt byggingarmagn minnkað og nýtingarhlutfall því samhliða. Jafnframt er lóð spennistöðvar færð innan skipulagssvæðis og innkeyrslur á lóðir færðar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Hlíðarendi 20-26 Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 5. apríl 2017 og borgarstjórn Reykjavíkur þann 2. maí 2017 var samþykkt að endurauglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna fjölgunar íbúða á lóð nr. 20-26 við Hlíðarenda. Í breytingunni felst m.a. að hámarksfjöldi íbúða eykst úr 137 í 178.. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar er einnig hægt að fara yfir á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 16. maí 2017 til og með 27. júní 2017. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 27. júní 2017. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 16. maí 2017 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Auglýsing um tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Reykjavík. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi 1 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :3 9 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C D C -A 5 4 C 1 C D C -A 4 1 0 1 C D C -A 2 D 4 1 C D C -A 1 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.