Fréttablaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 8
1 6 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð
BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI
ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
LAND ROVER Discovery 4 SE
Nýskr. 07/13, ekinn 75 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 7.790 þús. kr.
NISSAN Pulsar Tekna
Nýskr. 09/16, ekinn 2 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ 3.250 þús. kr.
TOYOTA Corolla SOL
Nýskr. 07/14, ekinn 23þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 2.950 þús. kr.
RENAULT Captur Dynamic
Nýskr. 04/15, ekinn 34 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.390 þús. kr.
RENAULT Kadjar Expression 4wd.
Nýskr. 12/15, ekinn 71 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 3.390 þús. kr.
VW Up!
Nýskr. 12/15, ekinn 14 þ.km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ 1.690 þús. kr.
Rnr. 370549
Rnr. 370579
Rnr. 370489
Rnr. 320958
Rnr. 370511
Rnr. 121244
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
2
0
6
2
B
íl
a
la
n
d
T
il
b
o
ð
2
x
3
8
1
6
m
a
í
JEmEN Neyðarástandi hefur verið
lýst yfir í Jemen eftir að kólerufar-
aldur braust út. Tæplega 200 hafa
látist á síðustu tveimur vikum og á
níunda þúsund hafa smitast af sjúk-
dómnum.
Jemen er alls ekki í stakk búið
til að takast á við faraldur af þessu
tagi enda landið lamað eftir borg-
arastyrjöld síðustu tveggja ára.
Þar hafa uppreisnarmenn húta,
studdir af Írönum, barist gegn
stjórnvöldum sem njóta stuðnings
Sádi-Araba.
Í yfirlýsingu frá heilbrigðisyfir-
völdum kom fram að þeim væri
ókleift að halda faraldrinum í
skefjum. Kölluðu þau eftir því
að alþjóðasamfélagið kæmi til
bjargar. Þá hefur heilbrigðisstarfs-
fólk í höfuðborginni San’a sagt að
það ráði ekki við þann gríðarlega
fjölda sjúklinga sem bætist við á
degi hverjum.
„Við setjum fjóra sjúklinga í hvert
rúm og höfum komið auka rúmum
fyrir í tjöldum og undir trjám í
garðinum,“ segir Nabeel aj Najjar,
sjúkrahússtarfsmaður í Sana’a.
Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO) kom fram
að tæplega 45 prósent spítala
landsins væru í starfhæfu ástandi.
Þá áætlar stofnunin að um 70 pró-
sent vanti upp á nauðsynleg lyf. Að
auki eiga tveir þriðju hlutar íbúa
ekki greiðan aðgang að hreinu
drykkjarvatni.
Frá því að stríðið braust út í
mars 2015 hafa rúmlega 10 þúsund
manns látið lífið. Milljónir til við-
bótar eru á vergangi eða glíma við
skort vegna styrjaldarinnar. – jóe
Neyðarástand vegna kólerufaraldurs
Spítalar í Sana’a, höfuðborg Jemens, eru yfirfullir. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
tÆKNI Grunur leikur á að tíu íslensk-
ar tölvur hafi lent í gagnagíslatöku á
síðustu dögum en það hefur enn
ekki verið staðfest. Ekki liggur fyrir
hvort um sé að ræða tölvur í eigu ein-
staklinga, fyrirtækja eða opinberra
stofnana.
„Við erum að fá betri mynd af þess-
um vírus og hvernig hann hegðar sér
og breytist frá stund til stundar. Það
er talsvert breytt hegðun nú frá því
að hann var fyrst sendur af stað,“
segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar.
Að sögn Hrafnkels fólst breyt-
ingin í því að áður fletti veiran upp
ákveðnu veffangi og ef það var
óskráð þá dreifði hann sér á fullu. Ef
það var hins vegar skráð hætti hann
að dreifa sér. Menn brugðust við
með því að skrá vefföng en hönnuðir
veirunnar svöruðu með því að laga
þennan galla.
„Þetta sýnir bara hve ofboðslega
staðfastur brotavilji er fyrir hendi hjá
þessum glæponum,“ segir Hrafnkell.
Þrátt fyrir að grunur sé uppi hjá
Póst- og fjarskiptastofnun um að
veiran hafi náð hingað til lands getur
stofnunin ekki séð nákvæmlega hvar
hún lét á sér kræla.
„Við sjáum hjá okkur að ákveðnar
IP-tölur hegða sér undarlega en við
vitum ekki hver er með hvaða IP-
tölu. Til þess þyrftum við dómsúr-
skurð. Við getum hins vegar afhent
viðeigandi þjónustuaðila töluna og
hann getur þá kannað málið nánar
og gert viðskiptavininum viðvart,“
segir Hrafnkell.
Guðfinnur Sigurvinsson, verk-
efnastjóri samskiptamála hjá
Vodafone, segir að enn sem komið
er kannist enginn við slíkt hjá
Vodafone. „Ef slíkt mál kemur
upp þá fer í gang ferli til að gera
viðskiptavininum viðvart. Ef um
er að ræða fyrirtæki þá fer það í
gegnum viðskiptastýringuna en
einstaklingar fá upplýsingar frá
þjónustuverinu.“
„Síminn er í góðu samstarfi við
netöryggissveit yfirvalda sem mun
örugglega gefa okkur nánari upp-
lýsingar um málið ef hún telur það
þess eðlis,“ segir Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans. johannoli@frettabladid.is
Ekki enn vitað hverjir
eiga smituðu tölvurnar
Grunur leikur á að tíu tölvur hér á landi hafi lent í gagnagíslatöku. Sá möguleiki
er fyrir hendi að eigendurnir viti ekki af því sjálfir. Veiran hefur ráðist á meira en
200 þúsund tölvur víðsvegar um heim. Íslensku fjarskiptafélögin á varðbergi.
Þrjótarnir krefjast þess að eigandi tölvunnar greiði andvirði 30 þúsunda íslenskra króna í lausnargjald. Upphæðin tvö-
faldast sé hún ekki greidd innan tveggja daga. Ekki er vitað til þess að Íslendingur hafi greitt gjaldið. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Vírusinn á upptök sín í Bandaríkjunum
Samkvæmt tölum frá Europol hafa yfir 200 þúsund tölvur frá 150
löndum verið teknar yfir. Flest bendir til þess að gagnagíslatökuveiran
eigi rætur að rekja til gagnaleka WikiLeaks í síðasta mánuði. Þar var
skjölum frá Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) lekið en þar var
að finna kóða og forrit til að njósna um eða taka yfir tölvur. Talið er að
þrjótarnir hafi nýtt sér þessa kóða og átt við þá til að hægt sé að nýta þá
á þennan hátt.
„Tölvuveirur þróast með eða án hjálpar bandarískra stjórnvalda. Þau
eru heldur ekki eina landið sem býr til slík tól,“ segir Hrafnkell. Aðspurður
um hvort það væri ekki ákjósanlegra að ríki heimsins sameinuðust í
baráttunni gegn slíkum forritum, í stað þess að herja hvert á annað, segir
Hrafnkell að „það sé margt í heimsbyggðinni sem mætti betur fara“.
Þetta sýnir bara hve
ofboðslega stað-
fastur brotavilji er fyrir
hendi hjá
þessum
glæponum.
Hrafnkell V. Gísla-
son, forstjóri Póst-
og fjarskiptastofnunar
1
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:3
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
C
-8
2
B
C
1
C
D
C
-8
1
8
0
1
C
D
C
-8
0
4
4
1
C
D
C
-7
F
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K