Norðurslóð - 28.09.1989, Síða 2

Norðurslóð - 28.09.1989, Síða 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefendur og abyrgðarmenn: Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvík Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn Sími 96-61555 Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun: Dagsprent Við ráðum því sjálf I’áttaskil má mcrkja í umræðu um stöðu landsbyggðar- innar. Uni nokkurt árabil hefur samanburðarf'ræðin við höfuðborgarsvæðið verið í algleymingi þegar slík mál ber á góma. Stundum hefur mátt skilja niáinutning manna sem svo að öll vandræði séu þeim fyrir sunnan að kenna. Síðan hefur verið spurt hvað þessir háu herr- ar þarna fyrir sunnan ætli nú að fara að gera í þessu. háttaskilin felast í því að nú spyr fólk hvernig eigum við sjálf að liaga málum svo við getum bætt stöðu okkar héraðs og gert uinhverfið í atvinnu- og menningarleg- um skilningi sem best úr garði. Biðin eftir lausnunum að sunnan er vonandi á enda. Það verður að meta ýnisa hluti upp að nýju ekki livað síst í atvinnumálum. Sókn- arfærin þar liggja fyrst og fremst hjá fólkinu sjálfu, hyggjast á dugnaði og útsjónarsemi einstaklinga. A Fjórðungsþingi Norðlendinga sem lialdið var á Akureyri í hyrjun þessa mánaðar mátti einmitt merkja þennan hreytta tón. I>ar var livatt til í crindum að skoða hlutina áð nýju og skilgrcinn upp á nýtt. Venja okkur á að liugsa miðað við breytta verölcl og nýta okknr þá ávinninga sem þegar liafa náðst. Þetta kom einmitt vel fram í crindi Péturs Reimars- sonar framkvæmdastjóra Sæplasts en þar segir liann meðal annars: „Ég held að hljóti að verða að koma til sameining og stækkun sveitarfélaga. Það virðist ekki mikil skynsemi í að við Eyjafjörð séu liátt í tvo tugi sveitarfélaga. Það getur varla verið að hagsmunir íhúanna hér við fjörðinn séu svona óskaplega dreifðir. Það er líka liægt að spyrja sig hve mikil skynseini er að byggja 6-7 liafnir við þenn- an sama fjörð þar sem samgöngur eru að verða þannig að nánast er góð færð á milli allra þéttbýliskjarna árið um kring á bundnn slitlagi. Með færri og stærri sveitar- félögum er áreiðanlega hægt að taka meira á í atvinnu- máluni en við núverandi skilyrði. Lykilatriði við alla byggðaþróun eru góðar samgöng- ur. Það veröur auðveldara fyrir fólk aö sækja vinnu og jijónustu milli byggðarlaga og sama á við uin atvinnu- reksturinn. Við híjótum að styðja Austfirðinga og Vestfiröinga og hugmyndir þeirra uni jarögöng milli helstu hyggðarlaga. Með greiöum samgöngum og markvissri uppbyggingu á |)jónustu, menningu og list- um sem verður þó mest í fjölmennustu byggðarliigun- um getum við tryggt lífskjör í víðum skilningi sem eru fyllilega sambærileg við það sem annars staðar gerist.“ Lokaorð Péturs í þessu erindi vill Norðurslóð gera að sínum: „Möguleikarnir eru nægir fyrir Norðlendinga alla. Spurningin snýst um það hvernig okkur tekst að nýta tækifærin. Við ráðum því sjálf hvernig framtíðin verður.“ .I.A. I sumar voru hér Vesturíslendingar á ferð eins og oft áður. Meðál þcirra voru Edwin Stephanson og kona hans Enida. Edwin er sonarsonur Klettafjalla- skáldsins Stephans G. og hefur búið á landsnámsjörð afa síns. en er nú hættur búskap fyrir aldurs sakir. Ljósin. HEI3. Dagbók Jóhanns á Hvarfi - Anno 1897 3. .jiiní. Réru 7 för í dag, beitt síld af íshúsi. Fórum við Nonni héðan, og Gísli á Hvarfi ofan. og í Böggvisstaði að brúarverki Brimnesár. Dregið fyrir á Sand- inum og l'engust 4 strokkar spik- síld. 5. júní. Farið yfir með hross og fleira. Brúin 14 álna löng og 3 álnir á breidd, grindur til hliöa, eigi annað yfirbyggð. 14. jiíní. Kom Jói á Reistará, enginn við sund vegna illviðris. 17. jiíní. Ómarkað enn vegna kulda og illviðris, muna ekki elstu menn jafn vont vor. Róið á hverjum degi, afli ágætur hjá öllum. íshúsið hjálpar mikið. 24. júní. Rákum saman. loks- ins markað, gelti 28. Úrkomu- laust. 27. júní. Fór Sveinn inneftir. Verður viö Gránuverzlun fram á áriö. 30. júní. Fessi mánuður hefir verið mjög kaldur og úrfellasam- ur með snjó og krapahriðjum, gróður hefur eigi þróast, og skepnur liðið illt. 1. júlí. I liti 8 stig. Jói byrjaði í m'orgun að hjálpa til við afhend- ing í Consúlsskipi. Rákum saman og rúðum. 28 meiga heita vel fylgdar (filldar). Góður afli. 4. júlí. Fært frá. 12. júlí. Hiti 4 slig að morgni, hvass eftir hádcgi fór í 16-20 stig ár fóru að vaxa fjaska, sótti kýr á bakkana, flæðir yfir mýrar og bakka hér. 13. júlí. Kont prófastur séra Jónas á Hrafnagili að Völlum, sína fyrstu kirkna vitjun, varsett- ur í stað séra Davíðs sem fékk lausn lrá prófaststarfa eftir 30 ára þjónustu. 17. júlí. Byrjað að slá. Kom Jói heim úr Consúlsskipi. Piltar héð- an hafa róiö í 6 vikur, aldrei beituskortur. Fóru allir heim frá sjó í dag, en ennþá róa mörg smá för, margir eru komnir heim til sláttar. 24. júlí. Fór Jón, Jói, Solla og Stína (Stefánsdóttir Hofsárkoti) að þvo út fisk. 24.-29. júlí. Slegið, fengnir ntenn til þess með heimamönn- um. 12. ágúst. Fór ég ofan á Sand, réðist í róður. 13. ágúst. Réri ég með Gunn- laugi í Kofa út á Mígindi fékk 60 í hlut þar af 40 ýsur. 14. ágúst. Réri ég með Gunn- laugi út að Vogum fengum kipp- að aftur og framá kvika utan og hvass með pörtum. Kom Tryggvi ofan fluttum heim þungt á tveim hestum, eftir á aðra tvo fullkom- iö yfir báða daga, fékk ég 80 ýsur. 27. ágúst. í rnorgun kastaði Rauðka bleiku folaldi yfir á Hólmum, þaö mun vera hestur. 10. september. Sólveig fór í veislu. Giftu sig Agúst og Rósa á Hóli á Upsast. 19. sept. Reknir pöntunar- sauðir, vigtaðir þann 17. Kom fjöldi Norðmanna riðu fram að brú. Vigtað hér fé að kvöldi til Oddeyrar verzlunar. 20. sept. Vigtaðir sauðir til Gránu og Consúls. Rekið 122 kindur, sumt ýmsra eign. 23. sept. — komu rekstrar- menn allir í nótt, segja þeir gufu- skip það sem kom með pöntunar- vörur hér til lands hafi strandað við suðaustur hornið. mannbjörg varð en vörur allar fórust og skip- ið sökk. 17. október. Kom Gunna heim frá Höfða, hefir verið þar til lækninga hjá Sig. Hjörleifssyni, var matvinnungur, en læknis- hjálp og meðul kosta 18 krónur. Var Sigurður sóttur til Önnu á Grund í morgun, liggur hún á Brimnesi mjög þungt. 20. okt. Dó Anna Björnsdóttir ekkja Sigfúsar sál á Grund (móð- ir Ingigerðar Vegamótum, amma Önnu Arngrímsdóttur). 27. okt. Fór ég með 2 hesta ofan, tók fisk á þá og missti þá svo út í myrkrið nteð klifjum. 28. okt. Var í Ytra-Holti til dags, fann hestana eigi, fór heim og rak saman en Jói litli fann hestana í Böggvisstaðalautum, kom meö þá og allt sem þeim fylgja bar. Vantaði margt af kindum, þoka talsverð. 3. nóv. Enti Gísli við smíði á baðkeri og hlemm (kindabað- ker). 6. nóv. Kom Jói vinnumaður heim frá sjó, líklega alfarinn. Allir komu heilir á húfi úr rok- róðrinum 4. þcssa mánaðar. Hamars bátur seint í gærkvöldi, var að leita að línu í Austurál, fann hana unt síðir var nóttina í Grímsnesi. 7. nóv. Kom Þóra frá Hálsi, hefir verið að prjóna á maskínu bæöi fyrir Guðrúnu og aðra. 10. nóv. Fórum við Stefán í Hofsárkoti til kaupstaðarferðar að fá baðefni. réðist svo að Por- lcifur í Syðra-Holti fór á bát sín- um að kvöldi kl. 10. 13. nóv. Vorum viö teftir í dag. Fór ég að sjá tóvinnuvélar við Glerána er það orðið dýrt verk við vatnsstokk og hús og árangur óséður. 15. nóv. I dag sótti Jói 2 gimbr- ar sem hér liafa vantað í 3 vikur í Dýjafjall á Blængshólsdal, kom að kvöldi. 2. des. —alls baðað hér á heimili 173 kindur, vorum búnir kl. 3 eftir miðdag. Fórum með kerið í Syðra-Hvarf, ætlaði ég að gista þar og átti að baða þar næsta dag ef veður leyföi, en kl. 9 að kvöldi kom það upp á áð Björn Snorrason sem hér hefir dvalið sem sveitarþurfi rúmt hálft fjóröa ár oft mjög skertur og geggjaður á sönsum varð án nokkurra orsaka óður svo á svipstund að hann stökk upp þreif gæruhníf upp í sliðrum og í snarkasti brá honum á háls konu minnar Sólveigar, sent þá hrökk undan og greip um hönd hans samt varð áverki 2-3 þumlunga langur skinnsprettuskurður þvert yfir kverkina undir hökunni en sú Itönd er hún tók á hnífnum skarst stórlega í þumalfingur greip og þvert yfir löngutöng allt á vinstri hendi, í þessum svifum kom Jón vinnumaður og vildi stilla til bóta, æðisgenginn snéri Björn sér við honum og skar allmikinn skurð aftan vinstri kjálkabarðs sent flakti sundur. Síðan braut Björn baðstofuhurðina og hljóp burtu á sokkununt. Eftir áorðið níðings skelmirí var sent til mín. Fór Gísli með mér heim. voru áminnst sár flakandi og sollin blóði að vonum. Af því nokkuð var til sem þurfti í bráð tókst að stöðva blóðrásina og binda um. Gisti Stefán í Hofsárkoti hér og Gísli. 3. desember. Vestan hríðar stormur. Fór Gísli í Mela svo í Tjörn. Kom Halldór hreppstjóri og séra Kristján, réðust til að skrifa sýslumanni og leita ltans úrslita hvað helst gert væri í slíku tilfelli. Kom Björn hér heim, hélt ég honum í hlööunni og hann þorði eigi neitt að fara, þó hann vissi hvað hafði gerst. Tók hrepp- stjóri hann tali og tjáði honum að ég gæti eigi liýst liann framar vegna hrakfalls þess er hann haföi hent. (ekki verður meira sagt frá Birni Snorra- syni hér, en vísa ég í Jólablað Norðurslóðar -Aí Birni Ógæfumaöurinn Snorrasyni" eftir Bjurn Snorrason. Oskar Halldórsson. 6. des. Fór ég í Hvarf, böðuð- um við 116 kindur. Hefi ég þá verið við böðun á hverri sauð- skepnu milli Hofsár og Ytri-Sælu alls 565, þar með hefi ég lokið því verki. hver kind hefir verið höfð niðri í creolín baðlegi (kláða- baði) í 2 mínútur og hafður 30 gráöu hiti á celsíus og lítið eitt meira. Gerði ég sent fyrr að sár- um Sólveigar og Nonna. (Nonni vinnumaður er Jón Jóhann. Fæddur 1874 sonur Jóns bónda Hofsá. Hann drukknaði 1904 þegar hákarlaskipið Kristján fórst með allri áhöfn var þá vinnumaður á Ytra-Hvarfi.) 15. des. Friðleifur í Háagerði sótti mig, kýr lögst, reyndi við hana í 2-3 tíma, var skorin út dauð. Síðan fór ég í Hól, sá þar veika kú. Gisti á Upsum. 17. des. Komu allir heim úr kaupstað. 19. des. Kom Friðleifur með kú er hann keypti á Þverá í Skíðadal. 21. des. í kvöld kom Jói heim frá Friðbirni Steinssyni. kostaði hans vera 28 kr. allt, bókbands- kennsla fæði og rúm, eftir mán- aðar dvöl. 25. des. Gisti Símon dalaskáld hér í nótt, er ntjög gengið vegna hjartveiki og taugaslappleika. 27. des. Ég fylgdi Símoni yfir á brú út og niður af Hreiðarsstöð- um. 31. des. Kom Gísli. Sigurður og Þorgils, ent við sparisjóðs- teikninga, Jói yndirbjó og strik- aði í gær. Fór ég á aftansöng á Völlum. Bjart af tungli. Kom Stcfán og Lilja, sagöi Stefán að gufuskip hefði farið inn í morgun, allir telja vst að það sé með pöntunarvörur þær sem ekki hafa enn komiö frá Englandi í haustpöntun sökum þess að skip það sem þær flutti og átti að koma í haust, hefir hvergi komið fram og ekkert orðið vart við nokkurn hlut úr því. hvorki við lönd eða sjó. Talið er víst að það hafi sokkið með öllunt mönnum og farmi. Skipið hét Viktoría. Árið 1897 var framar misfella- samt. —í lok apríl var jörð auð aö mestu, 1. maí gerði stórhríð og uppúr því gerði snjó svo mik- inn að ófært varð að komast bæja á milli og skepnur máttu standa í svelti meðan heyi var náð þaðan sem það var fáanlegt. 36 létu hey úti. nokkrir björguðust af eigin efni, í Skíðadal urðu fáir uppi- skroppa — ég hef aldrei orðið eins hræddur um bráðan felli hér í sveit, en samt mátti heita að fram úr tækist bærilega og eigi varð skepnutap. Þilskip fórustu 3 með öllum mönnum. Stormur. Gestur og Draupnir, 2 strönduðu Elliði og Hannes og aflir björguð- ust af þeim. Byrjað 2. júní að róa og vertíð hin besta. Kíghósti gekk framan af árinu og dóu börn úr honum og lagðist á fullorðna talsvert. Haustvertíð telst í með- allagi til 1. nóvember en þá tók fyrir afla. Haustið var áfallalaust og hagi fyrir skepnur. Heilsufar bærilegt seinnipart árs og fátt dáið.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.