Norðurslóð - 28.09.1989, Page 3
NORÐURSLÓÐ - 3
Fcriiiingarliöriiin. I'.v.: Jiilíus J. Oaníclsson S~Garöshorni, Sólvcig I*. Kggcr/ Háncfsstööuni, GuöiniiiHlur Guö-
mundsson Gullbringu, Kristín Stcfánsdóttir Miöbæ, Margrét Sigurpálsdóttir Stcindyrum, Jóhanna M. Gestsdóttir
Bakkageröi. Friörika Óskarsdóttir Kóngsstöðum, Jóna Gunnlaugsdóttir Sökku og Halldór Arason Sökku. Á mynd-
ina vantar Jón Hallgríinsson Uppsölum. Fjarstödd voru Baldur Ingimarsson Tjarnargarðshorni, Gísli Jónsson Holi,
Pálmi Pétursson Hofi og Sigurjón Jóhannsson Hlíð. Dáin eru ur hópnum Guöjón Stcingrímsson Hjaltastöðum og
Soflía Þorsteinsdóttir Hálsi. Ljósm. Jón, Hallgr.
Fermingarböm
í Vallakirkju 1939
Svarfdælsk fermingarbörn seni
séra Stefán Kristinsson próf-
astur fernidi í Vallakirkju á
hvítasunnu 1939 minntust þess
atburöar með því að hittast á
heimaslóðum sunnudaginn 10.
september sl.
Þann dag var messað á Völlum
og voru 11 af 16 úr upphaflega
fermingarharnahópnum viðstödd
guðsþjónustuna. Séra Jón Helgi
Þórarinsson minntist þessa tilefn-
is í ræðu sinni og flutti m.a. stutta
kafla úr fermingarræðu séra Stef-
áns Kristinssonar frá 1939. Séra
Jón Helgi minntist líka mannvin-
arins og kennarans góða, Þórar-
ins á Tjörn sem kenndi í Svarfað-
ardal í nær hálfa öld, en ferming-
arbarnahópurinn fyrrnefndi var
meðal nemenda hans. Kirkjukór-
inn söng sálma sem Þórarinn
kenndi nemendum sínum, og tók
söfnuðurinn vel undir. Meðal
kirkjugesta var séra Stefán V.
Snævarr. fyrrum prófastur. og
Helgi Símonarson fyrrum bóndi
og skólastjóri, en hann á 80 ára
fermingarafmæli á þessu ári.
I tilefni af hálfrar aldar ferm-
ingarafmælinu gaf hópurinn
fermingarkirkju sinni tvo skírn-
arkjóla. Fyrr um daginn höfðu
nokkur úr hópnum heilsað upp á
gamlan og ástsælan kennara sinn.
Dagbjörtu Asgrímsdóttur í
Lambhaga, er áður var lengi hús-
freyja á Grund. Hún hafði kennt
þeim á Þinghúsinu, aðallega í
unglingaskóla, stundum í barna-
skóla og oft var hún prófdómari.
Að messu lokinni bauð Frið-
rika Óskarsdóttir í Arnarhóli á
Dalvík fermingarsystkinum sín-
um til rausnarlegra kaffiveitinga í
hinum glæsilega sumarbústað
Ijölskyldunnar á Kóngsstöðum.
Næst hélt hópurinn niður á
Þinghús, dvaldi þar góða stund,
rifjaði upp gamíar minningar frá
fornum skóladögum hjá Þórarni
og söng gamalkunna söngva. Og
enda þótt margt af þessu fólki
hefði sjaldan hist frá því á ferm-
ingardaginn. bar ekki á öðru en
hópurinn væri vel samæföur, því
lengi býr að fyrstu gerö: Lagðut'
\ar blómvöndur á leiðín Þórarins
í Tjarnarkirkjugaröi.
Þessu næst var ekið til Akur-
eyrar. Ein úr hópnum, Sólveig
Pétursdóttir Eggerz (Dollý). list-
málari frá Hánefsstööum, var um
þessar mundir með undurfallega
málverkasýningu í Gamla Lundi
og skoðaði hópurinn sýninguna í
boði listakonunnar. Þar gat m.a.
að Iíta margar eigulegar myndir
úr Svarfaðardal.
Deginum lauk með því að
snæddur var góður kvöldverður á
Hótel KEA. Kvöldið leið við
skemmtilegar samræður í þægi-
legu umhverfi. Og þar með lauk
þessu ánægjulega fermingar-
barnamóti. J.J.D.
Sólveig P. Eggcrz. Mynd úr Svarfaöardal í baksýn. Ljósm. Jón llullgr.
Fcriningarbörn frá Upsakirkju 1939 ásanit kcnnuruni. Frcmri röö f.v.: Ásgeir P. Sigurjönsson kcnnari, scm átti
sjötíu ára fcriningaralinæli, V'aldís Jóliannsdóttir, Stcininuni, Hrönn Kristjánsdóttir Brckku, Kunnvcig Stclánsdótt-
ir, kcnnari, Hclgi Símonarson skólastjóri, sem átti áttatíu ára fcrmiiigarafmæli. Pálrún Antonsdóttir Hrisiim Aftari
föö f.v.: Óskar Jónsson Ártúni, Rósa Siguröardóttir Kambliaga, Bjiirn Klíasson Víkurbóli, Hildur Jóliannsdóttir
Hruna, Friöjón Kristinsson li jalla, Kilja Siguröardóttir Mói, Höröur Sigfússon, Bjargi og Baldvina (iuölaiigsdóttir
Bcssastööum. Fjarstaddir voru Birgir Kristjánsson Höfn, Baldvina Gunnlaugsdóttir Sæbóli, Jóna Árnadóttir
Haukafclli og Þórdís Sigurjónsdóttir Laxamýri.
Fermingarböm Upsasóknar 1939
Tveir liópur feriiiingarharna úr
Vallaprestakalli frá árinii 1939
koniti saman og niinntust þessa
alinælis síns á liönu siimri. Sr.
SteTán Kristinsson á Völlimi
fermdi.
Á Dulvík (Upsakirkju) lermd-
ust 15 börn og eru þau öll á lífi.
11 þeirra mættu og héldu upp á
50 ára fermingarafmæliö ásamt 3
kennurum frá bttmttskóhiárun-
um. Það voru l lelgi Símonarson.
sem sjállur átti 80 árti fermingar-
afmæli en htinn er nú 94 ára.
Asgeir Pétursson sem átti 70 ára
fermingarafmæli og Rannveig
Stelánsdöttir.
Almælisbörnin færðu Dalvtk-
urkirkju að gjöf kr. 75.000 í
tileliii tifmælisins. sem var vel
lukkað í alla staði.
Á skíðum í júlílok
Ekki er það algengt liér að
menn gangi á skíðuin iini fjöll-
in á síðsumri. En einhvcrn tím-
ann verður allt fyrst og um
helgina 29.-30. júlí var farin
skíðaferð á Gljúfurárjökul.
2 ungir og vaskir piltar frá
Akurcyri bjuggu sig út með nesti
og nýja skó, skíði og talstöð og
óku fram í Stekkjarhús.
Þessir ungu og vösku menn eru
báðir svarfdælskrar ættar, Tómas
Júlíusson (Björnssonar í Lauga-
hlíð) og Kári Magnússon (Frið-
rikssonar á Hálsi).
Þaðan gengu þeir yfir í Al-
menning á brúnni utan og ncöan
við Sveinsstaði og þaöan eins og
leið liggur upp á Gljúfurárdal
(Litladal) og fram að jökli. Þeir
gengu upp með jöklinutn vestan-
Frá vinstri Kári og Tónias.
verðum þar til kom þar að sem
hann er mjög flatur. Þar tjölduðu
piltarnir á jöklinum og áttu ágæta
nött í svefnþokum sínum. Á
þessum stað er jökullinn sprung-
inn og eru þar „jarðföll" stör eða
katlar og engum hollt að detta
niður í.
Á sunnudagsmorguninn 30.
jú 11 stigu þeir félagttr á skíöi sín
og gengu upp jökuTinn vestan viö
Hnjúkinn eða hamarinn Blekkil,
sem ber yfir Gljúfurárjökul miðj-
an og blasir við sjónum ncðan úr
sveitinni 1200? metra hár. Þaðan
höföu þeir ágætt talsamband við
Björgunarsveitina á Dalvík (Stef-
án Gunnarsson).
I.jósni. SIJ.
Heimferðin niður jökulinn var
létt og skcmnitileg því nýsnævi
var enn á honum öllum og skíða-
færi ágætt nema á fremstu tot-
unni þar sem er bláís og grjót og
sprungur miklar.
Til að segja alla söguna má
bæta því viö. að á heimleiðinni
frá Stekkjarhúsi óku þeir félagar
fram á 3 fálkaunga, scm voru á
vappi við vegbrúnina og voru svo
spakir að næstum var hægt að
klappa þeim um bakið. Gott er til
þcss að vita að fálkar ungast út
hér í dalnum og munu þessir hafa
alist upp í gljúfri einu ónefndu í
Skíðadalnum.
Y0GA
Yogatímar mínir byrja 2. okt. í Zontahúsinu,
Aðalstræti 54 á Akureyri.
Fáið nánari upplýsingar í síma 61430.
Steinunn.