Norðurslóð - 28.09.1989, Qupperneq 5
NORÐURSLÓÐ - 5
Dalvíkurskóli:
Viðtal við skólastjórann
- Þórunni Bergsdóttur
Nú þegar komið er hrímkalt
haust taka skóla landsins til
starfa á ný, í septemberbyrjun
í bæjunum en 2-3 vikum seinna
í mörgum skólum dreifbýlisins
svo að börn og unglingar geti
tekið þátt í annríki haustsins.
Fréttamaður Norðurslóðar
lagði leið sína upp á skrifstofu
skólastjóra Dalvíkurskóla,
Þórunnar Bergsdóttur, þar
sem hann átti pantað smávið-
tal. Að gömlum og þjóðlegum
sið er Þórunn beðin að gera
grein fyrir sjálfri sér, ætt sinni
og uppruna.
Eg er 42 ára gömul, fjögurra
barna móðir, fædd á Akureyri
dóttir hjónanna Jónínu Sveins-
dóttur frá Steindyruni á Látra-
strönd og Bergs Pálssonar skip-
stjóra á Akureyri, en hann er
næstyngsti sonur hjónanna Svan-
hildar Jörundsdóttur og Páls
Bergssonar í Hrísey, sent margir
Svarfdælir þekkja til og muna
eftir. Páll afi ntinn var fæddur á
Atlastöðum. en alinn upp á
Hæringsstöðum, elstur af 7 son-
unt hjónanna þar, Guðrúnar
Pálsdóttur og Bergs Bergssonar.
Páll afi minn var Möðruvellingur
og kenndi unt skeið börnunt á
Böggvisstaðasandi og eitthvað í
niðursveitinni hér fyrir aldamótin
Páll Bergsson.
áður en hann flutti til Ólafsfjarð-
ar og gerðist þar kaupmaður og
síðar í Hrísey. Eg er þannig ey-
firsk í báðar ættir og svarfdælsk
að einum fjórða.
Eg var í Kennaraskólanum í
Reykjavík 1966-67 cn lauk ekki
nántinu þá. Eg vann í Búnaðar-
bankanum í Reykjavík í nokkur
ár. Pá flutti ég til Akureyrar, fór
að kenna og kenndi þar í tólf ár.
Eg eignaðist börnin mín 4 og þá
loks var ég tilbúin að ljúka
kennaranáminu. Og prófið tók
ég ekki fyrr en vorið 1981.
Til Dalvíkur fluttist ég haustið
1987 og varð yfirkennari við skól-
ann hér þangað til nú í ár að ég
tók við skólastjórastöðunni af
Trausta Porsteinssyni þegar hann
gerðist fræðsjustjóri NA-kjör-
dæniis. Svona er nú lífshlaupið í
sent allra skemmstu máli.
- Hvað viltu segja um Dalvík-
urskóla í stuttu máli?
Þetta er grunnskóli með fram-
haldsdeildum tengdum sjávarút-
vegi. I grunnskólanum (skyldu-
náminu) eru nemendur 262 en á
framhaldsstiginu 45 eða alls 307.
Við höfum stýrimannadeild 1. og
2. stig (byrjaði 1981) og svo fisk-
vinnsludeild 1. og 2. stig. Við
skólann starfa alls um 40 manns,
aðallega auðvitað kennarar ým/st
í fullu starfi og vel það eða í
hlutastarfi. Það hefur gengið
greiðlega að manna skóiann að
kennaraliði þótt reyndar séu fáir
með kennsluréttindi sent kenna
við framhaldsdeildirnar, en þeir
Bræður og kollegar, séra Jón Helgi
Þórarinsson t.v. og séra Pétur Þór-
arinsson í skóginum.
„Kirkjugestir" þiggja veitingar að
inessu lokinni.
Ljósm: Hallgr. E
Ljósm: Hallgr. E.
eru einkurn menntaðir í Stýri-
mannaskólanum í Rcykjavík og
Fiskvinnsluskólanum í Hafnar-
firði og eru alveg frábærlega vel
fallnir til þessarar kennslu.
- Þessi fiskvinnslubraut. Er
hún eitthvað sérstakt fyrir ykkur
hér á Dalvík?
Já. það er a.m.k. ekki um slíkt
nám að ræða á Akureyri. Pað er
um það samkomulag milli okkar
og Verkmenntaskólans þar, að
þeir séu ekki með þetta, sem við
sérhæfunt okkur í hér viö
skólann. Og við vonum að við
getum útskrifað héðan fiskiðnaö-
armenn eftir 3. námsáfanga vorið
1991. Svo á að veröa hægt að
taka eitt ár í viðbót og verða þá
fisktæknir, en framtíðin sker úr
því, hvort við getum einnig tekið
það að okkur hér.
Við höfum ntikinn áhuga á að
byggja upp verulcga góðan sjáv-
arútvegsskóla hér á Dalvík og
okkur þykir það bara mjög eðli-
legt þar sem Háskólinn á Akur-
eyri er að setja í gang sjávarút-
vegsbraut hjá sér og hefur ein-
mitt sýnt áhuga á þessu starfi hjá
okkur. Héðan myndi hann m.a.
fá nemendur þó með eitthvert
viðbótarnám í Verkmennta-
skólanum.
- Eg sé að þetta er allt nijög
inerkilegt mál og mikils vert fyrir
skólann og staöinn að vel takist
til með framhaldiö. En hvað um
nemendurna, hvaðan koma þeir?
Nentendurnir eru úr ýmsum
landshlutum, Reykjavík, Ólafs-
vík. Fáskrúðsfirði. Stöðvarfirði.
En mest eru það þó Norðlending-
ar, t.d. frá Hofsósi, Skagaströnd,
Húsavík, Akureyri og auðvitað
líka frá Dalvík. Petta fólk býr hér
í heimavistinni, en hún er nú orð-
ið tnjög lítið notuð af grunn-
skólanemum úr nágrenninu þó
að hún væri upphaflega einkum
ætluð þeim. Pó eru þar fáeinir
krakkar úr Svarfaðardal, frá
Hrísey og úr Grímsey. Og
nemendur frá Árskógsströnd
hafa þar athvarf og gista við og
við einkunt þegar eitthvað er um
að vera í félagslífi skólans.
- En hvað viltu segja um starf-
ið í hinum almenna grunnskóla.
Eru þið með einhverjar nýjungar
þar?
Ég gæti kannski nefnt nýja val-
grein í 9. bekk, sem við erum að
byrja á núna og köllunt sjálfs-
mennskubraut. Mér finnst að
unglingar úr stað á borð við Dal-
vík þurfi kannski dálítið annan
og meiri undirbúning undir inn-
göngu í framhaldsskóla heldur en
unglingar á stóru stöðunum þar
sem framhaldsskólarnir eru. Ég
hugsa mér þessa braut sem undir-
búning undir það að standa á eig-
in fótum. Þcir þurfa að standa í
því að afla sér húsnæðis, ráðs-
mennskast í peningamálum. jafn-
vel að elda ofan í sig o.s.frv.
o.s.frv.
>—
FISKVINNSLUDEILDIN
DALVÍK
Þórunn Bcrgsdóttir skólastjóri.
I.jósm. HEÞ.
Líka ætlum við að bjóða
nemendum 7. og 8. bekkjar upp
á tölvunámskeið, sent verður þá
núna fram að jólum fyrir þá. sem
áhuga hafa. Svo er það nýtt. að
viö bjóðum nemendum 8. og 9.
bekkjar að velja um hraöferð eða
hægferð í íslensku og stærðfræði.
Pá velja þeir um hvort þeir vilja
fara dýpra ofan í námið og hægar
yfir eöa hvort þeir vilja heldur
fara hraðar og taka meira efni.
- Og þá velja þau sein meira
liafa sjálfstraiistið og dugnaðinn
auðvitað hraöferöina?
Pað er nú allur gangur á því,
þetta fer mikið eftir persónuleika
hvers og eins, hvað hann vill
leggja mikið á sig eða hvað pass-
ar honum. Petta vona ég að ýti
undir sjálfsþekkingu nemend-
anna fyrr en ella. Petta hefur ver-
ið prófaö í Reykjavík a.m.k. og
kannski víöar og þykir hafa gefist
vcl.
- Að lokiim Þórunn. Er gnm-
an að vera skólastjóri við Dalvík-
urskóla?
Ég hef nú ekkcrt velt því fyrir
mér, hvort þaö sé gaman eða
ekki gantan. Frekar hef ég spurt
sjálfa mig að því livort ég standi
mig í starfi eða ekki. Jú. víst þyk-
ir mér það skemmtilegt vegna
þess að ég hef áhuga á skólamál-
um og hef gaman af að takast á
við hluti og reyna að koma þeint
áfram. svo er nú ekki amalegt að
vera skólastjóri með svona gott
kennaralið, sem hér er. Og svo
eru nemendurnir líka ágætisfólk
upp til liópa.
Norðurslóð þakkar Þórunni
spjallið og óskar licnni og Dal-
víkurskóla góös gengis.
HEÞ
Nokkrir nemendur Húsaliakkaskóla hjá skólabílnum
Húsabakkaskóli
Húsabakkaskóli hóf vetrarstarf
sitt 19. sept. sl. í 1.-8. bekk verða
43 nemendur á komandi vetri, en
þeir dvelja allir í heimavist. Að
auki verða 8 nemendur í for-
skóladeild.
Starfslið skólans er óbreytt frá
sl. vetri og má segja að óvenju-
legur stöðugleiki hafi vcrið í
starfsmannahaldi skólans síðustu
árin.
Vegna þess hve fátt er í sumunt
árgöngum nemenda verður
óvenju mikið um samkennslu
tveggja til þriggja árganga að
þessu sinni. Það leiöir til þess að
stundaskrá nemenda verður nteð
flóknara móti. Á móti kentur, að
tekist hefur að þjappa saman
vikulegri stundatöflu þannig að
allir bekkir hafa lokið starfi um
hádegi á föstudögum. Yngstu
deildir skólans hefja sitt starf eft-
ir hádegi á þriðjudögunt.
Til þess að bæta upplýsinga-
streymi frá skólanum til foreldra
er nú unnið að gerð starfsáætlun-
ar, sent send verður á hvert heim-
ili. Par í verða allar nauðsynleg-
ustu upplýsingar um skólann og
starfsemi hans.
Tónlistarskóli Dalvíkur verður
að venju með kennslu að Húsa-
bakka og ríkir mikill áhugi á tón-
listarnáminu meðal nemenda
skólans. BÞ.