Norðurslóð - 24.10.1990, Qupperneq 1

Norðurslóð - 24.10.1990, Qupperneq 1
Svarfdælsk byggð & bær 14. árgangur Miðvikudagur 24. október 1990 8. tölublað Yetiir gengur í garð - Litið upp tíl stjamanna Eftir nokkurra vikna leiðindatíð með langvarandi norðanþræsu og votviðri er nú, kringum 20. októ- ber, komin sú stillta haustveðr- átta sem alla dreymir um. Snjó- laust er á láglendi en snjóhrafl til fjalla. Nú er tími til að undirbúa vetrarkomuna, sem er 27. þ.m. dytta að húsum, binda upp tré og runna, og í sveitinni að aka skít á völl og sinna öðrum skemmti- störfum. Þegar dimmir að kvöldi og stjörnur kvikna sést stór og fögur stjarna á austurloftinu. Þetta er nágranni okkar jarðarbúa, plán- etam Mars, rauða stjarnan stund- um kölluð eftir litnum. Rómverj- ar völdu henni Marsnafnið eftir herguði sínum. Rauði liturinn minnti þá á blóð og styrjaldir. Mars er núna í merki Nautsins. í því merki er stærsta stjarnan Aldebaran, en þar er líka Sjö- stirnið, sem allir þekkja. Mars er nú aðeins neðar og vinstra megin. Og nú skyldu menn hafa auga með þessari fallegu störnu. Hún færist smátt og smátt til á festingunni eins og reikistjarna er siður og verður skærari og fegurri síðar í vetur. Stóllinn í haustbúningi. Ljósm. Ari Gunnursson. Lömbín koina, lömin koma! - Bæði að austan og vestan Gæsir og Mðland Að undanförnu hefur gæsa- veiðitíminn staðið sem hæst. Reyndar hefur ekki viðrað sem best til veiða en engu að síður hafa gæsaskyttur farið víða um sveitir, einkum síðla nætur, og skotið grimmt svo vart hefur verið svefnsamt á bæjum þegar mest hefur gengið á. Alla jafna eru þetta prúðir menn og kurt- eisir sem skríða eftir bráð sinni um skurði og mýrasund með fullu leyfi landeigenda eins og lög og almennar kurteisisvenj- ur segja til um. Þó hefur upp á síðkastið nokkuð borið á því að gæsabanar hafa í veiði- hamnum skriðið fulllangt og haft sína hentisemi á lendum bænda sem aldrei voru beðnir leyfis eða jafnvel innan frið- lýsts svæðis þar sem öll veiöi- mennska er bönnuö. Hér í Svarfaðardal neðanverð- um er nefnilega friðlýst svæði sem kallað er „Friðland Svarf- dæla“. Þetta vita raunar flestir enda svæðið vandlega merkt með skiltum á fjórum stöðum við þjóðveginn þar sem bæði koma fram mörk friðlandsins og eins það hvað í friðlýsingunni felst. En fyrir þær gæsaskyttur sem þetta hefur einhverra hluta vegna farið fram hjá fylgir hér uppdrátt- ur af friðlandinu. Á skiltunum stendur meðal annars: „Hér má ekki raska landi ekki spilla gróðri ekki granda fugli ..." I yfirlýsingu sem allir landeig- endur sem friðlandið nær til skrif- uðu undir samfara friðlýsingunni 1971 stendur m.a. í 4 grein: „Bannað er að granda fuglum á friðlandinu. Eigi má héídur skemma hreiður þeirra eða taka egg úr þcim. Öllum sem um land- ið fara ber að varast að skerða gróöur á því.“ Og þar höfum við það. Sumum kann aö finnast ádrepa þessi full seint á ferðinni. gæsamenn hafi nú þegar skotið nægju sína og nær hefði verið að grípa gæsina meðan hún gafst. Rétt er það, en það kemur haust eftir þetta haust og þá er þetta atriði á hreinu eins og sagt er. En fyrst minnst var á veiöi- mennsku og almenna kurteisi henni samfara er ekki úr vegi að minna rjúpnabana á að einka- lönd eru ekki aðeins afgirt lönd heldur gjarnan heilu fjalls- hlíðarnar eða dalirnir. Menn þurfa því að afla sér heimildar hjá landeigendum áður en farið er til rjúpna þó svo fjær sé byggð. Slík leyfi eru alla jafna auöfengin og auðvelda auk þess öllum við- komandi að fylgjast með því hvernig þcssi náttúruauðlind; rjúpnastofninn, er nytjuð. Grágæsir á beit. Það var réttarstemmning á planinu fyrir neðan frystihúsið á Dalvík laugardagsmorguninn 29. sept. sl. Þar var þá búið að skipa upp 456 lömbum í gám- um sem komið höfðu sjóleið- ina vestan úr Arneshreppi á Ströndum þá um nóttina. Lömb þessi hafa svarfdælskir bændur fest kaup á og voru þeir þarna mættir á dráttarvél- um með vagna að taka á móti þessari kærkomnu sendingu. Einnig dreif að fjöldi fólks til að njóta samvista við þessa dýrðlegu ferfætlinga sem verið hafa næsta fáséðir hér undan- farin ár. Einhver hafði á orði að þetta væru einu almenni- legu réttirnar þetta haustið. En þar með er ekki öll sagan sögð. 9. okt. komu tveir trukkar fulllestaðir lömbum austan úr Þistilfirði og síðan aftur laugar- daginn 12. okt. Alls komu 442 lömb að austan, úr Svalbarðs- hreppi og Sauðaneshreppi og fjölgaði því sauðfé sveitarinnar um ca. 900 lömb í haust. Lömbin voru væn og vel á sig kornin. Reyndist meðalvigt vest- firsku lambanna ívið hærri en þeirra sem að austan komu eða 39,28 kg á móti 38,92 kg. En það er annar munur á þeim og meira áberandi; austfirsku lömbin eru hyrnd en þau vestfirsku kollótt undantekningalítið. Fjórða hvert lamb var dökkleitt eða mislitt þannig að vænta má fjölbreytni í litum og hornafari sauðahjarða Svarfdæla í framtíðinni. Að sögn Jóns Þórarinssonar fjallskilastjóra á Hæringsstöðum munu flestir þeir sem voru með sauðfé taka aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þó eru nokkr- ir bændur sem gerðu samning um þriggja ára fjárleysi og verða því að bíða frant á næsta haust. Næstu ár verða því fjallskil með sama móti og áður og verða réttir þær sem rifnar voru við niðurskurðinn endurreistar á sömu stöðum og áður. Fyrstu árin verður þó fátt fé í sveitinni og raunar engar líkur á að sauð- búskapur verði stundaður hér í sama mæli og áður þegar best lét. Þar kemur til samdráttur í lamba- kjötsneyslu íslendinga sem enn sér ekki fyrir endann á. Vitað er um nokkra bændur í sveitinni sem mikinn hug hafa á að skipta á sauðfjárkvóta fyrir mjólkurkvóta. En eins og málin standa er lítillar aukningar að vænta á framleiðslurétti mjólkur og því ekki auðvelt um vik fyrir þá sem vilja skipta.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.