Norðurslóð - 24.10.1990, Side 6
Tímamót
Skírnir:
29. september var skírð í Dalvíkurkirkju Eva Björg. Foreldrar
hennar eru Eyrún Kristín Júlíusdóttir (Eiðssonar Flöfn) og Ósk-
ar Haukur Óskarsson, Tjarnarlundi 8 g, Akureyri.
29. september var skírður í Dalvíkurkirkju Sindri Rafn. For-
eldrar hans eru Matthildur Aradóttir og Sindri Már Heimisson
(Kristinssonar), Engihlíð 12, Reykjavík.
21. október var skírður á Dalbæ, heimili aldraðra Dalvík,
Máni. Foreldrar hans eru Hafdís Helgadóttir (Jakobssonar) og
Magnús Hilmarsson, Túngötu 35 Reykjavík.
Afmæli:
Þann 13. október varð 85 ára
Gunnlaug Magnúsdóttir á
Atlastöðum.
Þann 13. október varð 75 ára
Anna Kristjánsdóttir frá
Klængshóli, Karlsrauðatorgi 11,
Dalvík.
Þann 28. október verður 80 ára
Jónas Hallgrímsson fyrrv.
verkstæðisformaður Bjarkar-
braut 1, Dalvík.
Andlát:
11. október andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
Kristján Eldjárn Jóhannesson, hreppstjóri.
Kristján var fæddur í Syðra-Holti, svarfaðardal 21. desember
1898, sonur hjónanna Jóhannesar Þorsteinssonar og Guðrúnar
Gísladóttur. Kristján átti fjögur alsystkini og einn hálfbróður
sem nú eru öll látin en þau hétu Dagbjört, Arngrímur, Gísli,
Þorsteinn og Kristinn.
Kristján fór ungur til sjós, var mótoristi á mörgum bátum frá
Dalvík og nágrenni og gerði út sjálfur um tíma. Hann hafði
snemma afskipti af félagsmálum og var gjarnan valinn í forystu-
sveit sem lýsir vel mannkostum hans. Var hann einn af stofn-
endum Verkalýðsfélags Dalvíkur og einn af forystumönnum um
stofnun sjúkrasamlags hér.
Þegar Kristján hætti á sjónum hóf hann störf hjá Kaupfélag-
inu og var m.a. frystihússtjóri um árabil. Þá gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið hér, var sýslunefndarmaður
um árabil en hæst ber að hann var hreppstjóri Dalvíkurhrepps
frá árinu 1946 til ársins 1972.
1920 kvæntist Kristján eftirlifandi konu sinni, Önnu Björgu
Arngrímsdóttur og eignuðust þau hjón 4 börn, Þórarin, sem nú
er látinn, Hrönn, Ingunni Guðrúnu og Birnu Soffíu. Þá ólu þau
einnig upp frá unga aldri Guðlaugu Hólmfríði Þorbergsdóttur.
Kristján og Anna bjuggu í Brekku á Dalvík frá árinu 1925 þar
til þau fluttu í Dalbæ fyrir tæpum átta árum.
Kristján var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 20. október.
JHÞ
Gunnlaug á Atlastöðum.
Leiðrétting
í þættinum Má ég kynna í síðasta
blaði Norðurslóðar var farið
rangt með nafn læknisfrúarinnar.
Hún heitir Sigrún Bjarnadóttir,
ekki Sigríður eins og þar stóð.
Ennfremur sagði þar, að litla
dóttirin Anna Elvíra, væri 2'/i
árs. Það er ekki rétt. Hún er IV2
árs og biðst blaðið velvirðingar á
mistökunum.
Þingeyski kvennakórinn. Margrét Bóasdóttir stjórnar og Guðrún A. Krist-
insdóttir leikur undir.
Má ég kynna
Má ég kynna Omar Karlsson
nýráðinn deildarstjóra sjávar-
útvegsdeildar Dalvíkurskóla.
Norðurslóð fór á stúfana til að
afla sér upplýsinga um manninn
og hitti hann sjálfan fyrir á skrif-
stofu sinni.
Fyrst af öllu langar okkur að
vita einhver deili á manninum:
„Ég er Reykvíkingur, stýri-
maður að mennt og hef starfað
undanfarin 6 ár hjá landhelgis-
gæslunni. Raunar er eg nú í árs-
leyfi frá gæslunni en ég á ekki
von á að ég fari þangað strax
aftur. Áður starfaði ég lengi sem
háseti á fiskibátum og hef líka
verið í siglingum. Hjá landhelgis-
gæslunni hef ég starfað sem stýri-
maður bæði í lofti og á sjó. Menn
flakka rnikið á milli skipa og flug-
véla hjá gæslunni en lengst hef eg
verið á Öðni.
- Hvernig vildi það svo til að
þú komst hingað?
„Við vorum hérna í fyrra á
Ægi með skólastrákana í æfinga-
siglingu og þá barst þetta í tal á
milli okkar Júlíusar (Kristjáns-
sonar, innsk.). Eiginlega gengum
við frá málinu þarna á staðnum.“
Og nú er Ómar sem sagt sestur
að á Dalvík ásamt eiginkonunni
Jónheiði Haraldsdóttur og son-
unum Steini Daða 15 ára og
Guðna Rúnari 8 ára og kunna
þau mjög vel við sig hér að sögn.
Sjávarútvegsdeild
- En snúum okkur þá að sjáv-
arútvegsdeildinni. Er þetta stór
deild?
„Núna eru hér 53 nemendur
við nám, 28 í stýrimannadeild og
25 í fiskvinnsludeild. Ekki er þó
alveg víst að allur hópurinn út-
skrifist héðan. Nokkrar stelpur
fara væntanlega í framhaldsskóla
eftir eitt ár hér og svo eru hér
tveir nemendur úr meistaraskóla
byggingariðnaðarmanna sem taka
áfanga hjá okkur.“
- Hvernig er kynskiptingin í
deildinni?
„Því miður eru hér allt of fáar
stelpur. í það heila eru þær 6 en
ekki nema 2 sem eru í fullkomnu
fagnámi.“
- Segðu okkur eitthvað frá
náminu.
„Fiskvinnsludeildin tekur 3 ár,
þ.e. forskóli plús 2 ár. Þaðan út-
skrifast menn sem fiskiðnaðar-
menn með full réttindi og fara þá
gjarnan í verkstjórn eða frysti-
hússtjórn. Á skipstjórnarbraut er
2ja ára nám og þaðan koma
menn með skipstjórnarréttindi á
öll fiskiskip og farskip undir 400
tonnum. Deildin hér er einstök
hvað það varðar að hafa þessar
tvær greinar undir sama hatti.
Þetta er eitthvað sem hefur þró-
ast hér á staðnum þennan tíma
sem deildin hefur starfað. Hing-
að koma menn alsstaðar að af
landinu, bæði af Vestfjörðum,
Austfjörðum og af Reykjavíkur-
svæðinu. Deildin heyrir að nafn-
inu til undir Verkmenntaskólann
á Akureyri en það er raunar
nafnið eitt. Hún er undir stjórn
skólastjórans hér við grunnskól-
ann og kennarar skólans kenna
við deildina. Hún er einnig í
miklum og góðum tengslum við
atvinnulífið hér á staðnum.
Raunar höfum við notið ómælds
stuðnings fyrirtækja hér á
Dalvík. Bæði hafa þau gefið ýmis
kennslutæki og svo fáum við inni
t.d. í frystihúsinu með verklegt
nám. Sjálfsagt hefði þetta allt
verið óhugsandi án þessa
almenna velvilja og stuðnings
sem deildin hefur notið af hálfu
bæjarbúa.“
- Eru einhverjar nýungar á
döfinni hjá ykkur í vetur?
„Ja við höfum bætt markaðsfræði
við námið í fiskvinnsludeildinni.
Við erum búin að fá siglinga-
hermi sem kemur að mjög góð-
um notum. Nú geta nemendur
æft sig í að sigla krappan sjó við
strendur Jamaica, Englands eða
Noregs bara inni í skólastofu.
Við erum nú að hugsa um að fara
út í síldarsöltun. Síldarsöltun er
hluti af fiskvinnslunáminu og það
er verið að kanna hvort ódýrara
er að fara með nemendur þangað
sem síldin er eða hreinlega fá síld
hingað til söltunar. Það yrðu nú
samt aldrei í stórum stíl.“
- Hvernig sérðu svo framtíð-
ina Ómar?
„Ég sé þetta fyrir mér sem
sjálfstæðan sjávarútvegsskóla þar
sem menn geta náð sér í full rétt-
indi til skipstjórnar en þurfi ekki
að fara til Reykjavíkur í því
skyni.“
Með það kveðjum við Ómar
Karlsson og óskum honum og
fjölskyldu hans velfarnaðar hér á
norðurslóð.
Fréttahomið
Dalvíkurkirkja. Safnaðarheimili í smíðum.
Kvennakórinn Lissý úr Suð-
ur-Þingeyjasýslu hélt tón-
leika á Dalvík á sunnudagskvöld-
ið. Stjórnandi kórsins er Margrét
Bóasdóttir, undirleikari Guðrún
A. Kristinsdóttir. Einsöngvarar
með kórnum voru Hildur
Tryggvadóttir, Þuríður Baldurs-
dóttir og Gunnfríður Hreiðars-
dóttir. Kórinn var stofnaður fyrir
5 árun og skipa hann nú um 60
konur úr kvenfélögum í sýslunni
en þau eru 14 talsins.
Það er næstum því ótrúlegt að
hægt skuli vera að kalla saman
svo stóran og dreifðan hóp til
söngæfinga í misjöfnum veðrum
og færð. Það sýnir einstakan
áhuga og dugnað og það er ljóst
að þær koma ekki á æfingar til að
raula saman hver með sínu nefi,
heldur hafa þær sett markið hátt,
ráðið til sín fyrsta flokks söng-
stjóra og undirleikara og fengið
til liðs við sig þekkta ein-
söngvara.
Söngskemmtunin á sunnudags-
kvöldið var mjög skemmtileg,
efnisskráin var vönduð og metn-
aðarfull. Það var sérstaklega
ánægjulegt að sjá og heyra konur
á öllum aldri syngja svona vel
saman.
Tónleikarnir voru vel sóttir og
undirtektir áheyrenda góðar.
Bygging safnaðarheintilis við
Dalvíkurkirkju gengur
ágætlega en er samt nokkuð á eft-
ir áætlun. Húsið verður gert fok-
helt innan skamms. Þá verður
næstu daga byrjað á að einangra
og ganga frá tengiálmu að innan.
Hið nýja pípuorgel er væntan-
legt nú um mánaðarmótin og er
áætlað að uppsetning hefjist 5.
nóvember. Uppsetning orgelsins
og stilling á pípum tekur tæpan
mánuð og er gert ráð fyrir vígslu
hljóðfærisins og hátíðarguðs-
þjónustu í tilefni af 30 ára afmæli
kirkjunnar í byrjun desember
(væntanlega 9. desember) en það
verður auglýst nánar síðar.
Orgelið er danskt, frá verksmiðju
sem heitir P. Bruhn & Sön orgel-
byggeri, og er 13 raddir sem
skiptast í tvö hljómborð og
pedal.
Helgihald í Dalvíkurkirkju
kann eitthvað að raskast í nóvem-
ber vegna þessara framkvæmda.
Um 100 börn frá Húsavík
komu í heimsókn til Dal-
víkur s.l. sunnudag. Var þar á
ferð sóknarprestur Húsvíkinga
og annað starfsfólk barnastarfs
kirkjunnar þar sem komu með
börnin auk nokkurra foreldra.
Barnamessa var í Dalvíkurkirkju
kl. 14 og var kirkjan þéttsetin.
Dagskráin var fjölbreytt m.a.
kórsöngur og hljóðfæraleikur.
Eftir messu fengu kirkjugestir
kakó með kringlum og pönnu-
kökum í Víkurröst í boði sóknar-
nefndar sem sá um veitingarnar.
Alls komu þar um 170 manns.
Húsvíkingar gerðu góðan róm að
þessari ferð enda var veður
einnig hið besta. Barnastarfið á
Dalvík og Svarfaðardal mun síð-
ar endurgjalda þessa heimsókn.