Norðurslóð - 17.04.1991, Qupperneq 3

Norðurslóð - 17.04.1991, Qupperneq 3
NORÐURSLÓÐ - 3 Stjómmálufundur á Dalvík lO.apríl 1991. Ég var að koma af pólitískum kosningafundi, sem haldinn var í Víkurröst kl 8-11 að kveldi. Trúlega er þetta fjöl- mennasti kosningafundur, sem haldinn hefur verið á Dalvík frá öndverðu. Salurinn var þéttskipaður fólki úr bæ og nágrenni. Reyndar voru fram- bjóðendur sjálfír býsna fyrir- ferðamikir því listsarnir eru 8, sem hér eru á boðstólum, og voru fulltrúar þeirra allra mættir, hver hópur við sitt borð svo flokksiínurnar brengluðust ekki. Svarfdælaflokkur Einn ræðumanna, Arni Steinar Jóhannsson. fyrsti maður á lista Pjóðarflokksins - Flokks ntannsins, lét þess getið, að lík- lega hefði mátt búa þarna til nýj- an flokk , Svarfdælaflokkinn, úr þeim Svarfdælingum og Dalvík- ingum, sem væru á listunum, því auk hans voru meðal ræðumanna kvöldsins þau Arna Jóhannsdótt- ir á Dalvík, 6. maður á lista Alþýðufiokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands, Elín Antonsdóttir frá Dalvík, 5. mað- ur á lista Samtaka um kvenna- framboð, Jóhann Ólafsson Ytra- Hvarfi, 9. maður á lista Heima- stjórnarsamtakanna og Svanhild- ur Arnadóttir. 3. maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Og að auki eru á samanlögðum listunum ein- ir 6 Svarfdælir, sem ekki létu Ijós sitt skína á þessum fundi. Pessa hugmynd er mjög athug- andi fyrir næstu kosningar. Fund- arstjóri var bæjarstjórinn á Daivík, Kristján Þór Júlíusson og ritari Helgi Þorsteinsson. Menningarlegur fundur Fundurinn fór skipulega fram, tvær umferðir og hafði hver listi 10-12 mínútur til umráða og mátti skipta ntilli tveggja. Notaði einhver listinn meira eða ntinna en skammtinn sinn þá galt hann þess eða naut í seinni umferð. Að lokinni fyrri umferð var spurningatími og komu fjölmarg- ar spurningar frá fundarmönn- um, munnlegar eða skriflegar ýmist beint til ákveðins fram- bjóðanda eða til þeirra allra. Sfð- an hófst seinni lotan og svöruðu listafulltrúar þá í sömu röð og áður. Þetta er víst ósköp venjulegt fyrirkomulag og gafst vel. Hér er ekki ætlunin að leggja dóm á mál einstakra manna þótt vissulega sé það hægt. Ekki eru allir jafn vel máli farnir eða snjallir að semja ávörp. Ekki eru allir jafn vanir og fimir að taka móti fljúgandi skeytum og senda til baka. Og ekki hafa allir flokk- ar jafngóðan málstað að verja. En það verður að segjast, og það er gott, að undantekningarlítið að minnsta kosti héldu ræðu- menn sig við efnið, töluðu skynsamlega og hófsamlega og reyndu ekki að neinu ráði að slá sér upp á kostnað annarra með útúrsnúningum og aulafyndni og það var óvenjulega lítið af mjög lélegum málflutningi. Sem sagt menningarlegur fundur, öllum hlutaðeigandi til sóma. Þetta er nokkuð mikið sagt, en látum mcnn njóta sannmælis. Annað mál er það, að það er dálítið sorglegt, að sjá þessa litlu flokka, sem eru að berjast við að þekkja sjálfa sig og skapa sitt eig- ið andlit svo aðrir geti þekkt þá. Ég er hræddur urn að fleirum en greinarhöfundi gangi illa að greina sundur t.d. lista frjáls- lyndra, lista heimastjórnar- samtakannna, og lista Þjóðar- flokksins-Flokks mannsins. Og hvar eru fólgnar leifarnar af bor- garaflokki eða samtaka um jafn- rétti og félagshyggju. En látum svo vera, fyrirfram veit maður aldrei „af hvaða barni gagn verður" eins og máltækið segir. Það er þó hætt við, að við eigum eftir að upplifa mikinn barnadauða á þessum vettvangi. En svo rná bæta við orðum skáldsins, sem sagði: Og samt sem áður er alltaf verið að deyja, og undarlegt, að það hendir jafnt snauða sem ríka. Menn kváðu jafnvel deyja frá hálfbyggðum húsum, - og hinir? þeir deyja víst líka. T.G. EFSTU MENN Á LISTUM í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA A-listi Sigbjörn Gunnarsson. B-listi Guöinundur Bjarnason. Halldór Blöndal. F-listi Ingjaldur Arnþórsson. Steingrímur J. Sigfússon. H-listi Bcnidikt Siguröarson. Þ-listi V-listi Árni Steinar Jóhannsson. Máhiifríöur Siguröardóttir. Frænka Charleys - enn einu sinni Inga María Stefánsdóttir t.v. og Unnur María Hjálmarsdóttir til hægri í hlut- vcrkum sínum. 21. mars sl. frumsýndi Leikfé- lag Dalvíkur hinn sívinsæla gamanleik; Frænku Charleys eftir Brandon Thomas í sam- komuhúsinu á Dalvík. Þegar þetta er ritað eru sýningar orðnar tíu talsins og hefur aðsóknin verið mjög góð. Frænka Charleys er án efa það leikrit sem hvað oftast hef- ur verið sett á svið hér á landi og hefur það tvívegis áður ver- ið fært upp hjá L.D. Hér er því ekki verið að bera á borð nein nýmæli og líklega er það þess vegna sem óvenju margir hafa lagt leið sína niður í Ungó að þessu sinni og skemmt sér kon- unglega. Það sem gerir sýningar hjá L.D. ólíkaröllum öðrum leiksýn- ingum fyrir okkur heimamenn er þessi einstaka upplifun að sjá kunningja sína og sveitunga skyndilega umbreytta í algerlega nýju hlutverki og nýju ljósi, strákurinn í sparisjóðnum er orð- inn að pempíulegum skólapilti í Oxford og húsfreyja úr sveitinni breytt í forríka hefðarkonu frá Suður Ameríku svo dæmi sé tekið. Þennan þátt ánægjunnar við að fara í leikhús hafa áhuga- leikfélögin alltaf framyfir atvinnuleikhúsin og þess vegna finnst mér oftast nteira gaman í leikhúsi á Dalvík en annars staðar. En svo byrjað sé á byrjuninni í þessum verðandi leikdómi er best að rekja ögn gang leiksins fyrir þá sem ekki komust á hann. Leikurinn fer fram á stúdenta- garði Saint Olde’s College í Oxford og fjallar í stuttu máli urn það þegar tveir skólapiltar (leikn- ir af Pálma Finnbogasyni og Þór- arni Gunnarssyni) hyggjast ná ástum tveggja ungmeyja (Yrsu Harnar Helgadóttur og Heiðu Bjasrkar Sturludóttur). Það er þó ýmsum vandkvæðum bundið. M.a. eru þær undir ströngu eftir- liti fjárhaldsmanns síns (Stein- þórs Steingrímssonar) sem hefur gróðahyggjuna að leiðarljósi í sínu starfi. Þegar fréttist af því að forrík frænka annars piltsins (Unnur María Hjálmarsdóttir) sé á leið í heimsókn frá S.-Ameríku ákveða félagarnir að beita henni fyrir sig sem átyllu til að ná fund- um ungmeyjanna. Þegar henni síðan seinkar er ungur lávarður (Sigurbjörn Hjörleifsson), skóla- félagi piltanna dubbaður upp sem frænkan. Þar með er hrundið af stað allfiókinni atburðarás sem annars vegar stjórnast af hams- lausri ást ungu mannanna og hin- svegar af peningaást fjárhalds- mannsins sem vægast sagt rennir hýru auga til fölsku frænkunnar eða öllu heldur peninganna hennar/hans. Fleiri persónur koma við sögu. Faðir annars stráksins (Albert Ágústsson) sem fyrrum var von- biðill hinnar réttu frænku, afskaplega lúinn þjónn (Björgvin Hjörleifsson) og ung munaðar- laus fylgikona frænkunnar (Inga María Stefánsdóttir) sem áður var í tygjum við lávarðinn unga í dulargerfinu. Þetta er eins og allir sjá alger farsi fullur af skringilegum ástar- flækjum sem allar ganga þó upp í endinn eins og nærri má geta. En það er erfitt að leikstýra ærslaleikjum svo vel fari. Eink- um þarf að gæta þess að „halda tempóinu“ eins og sagt er á leikhúsmáli, þ.e. að allan tímann sé nóg að gerast á sviðinu og leikurinn detti aldrei niður í neina lognmollu. Þetta virðist mér leikstjóranum; Birni Inga Hilmarssyni, hafa tekist með ágætum. Leikurinn fór hægt af stað en sótti stöðugt í sig veðrið og náði hámarki í hamslausum eltingaleik fjárhaldsmannsins og gervifrænkunnar í kring um borð og bekki, inn og út af sviðinu, sem nálgaðist að verða einum og hainslaus en varð það samt aldrei alveg. Framsögn leikaranna var yfirleitt mjög góð en það er veik- ur hlekkur sem oft er til vand-' ræða hjá áhugafólki. Þá þótti mér ánægjulegt að sjá hvað mikið var gert úr smærri hlutverkunum ekki síður en þeim stærri. Þjónn- inn sem fer með minnsta textann í leikritinu var t.d. fyrir vikið í einni aðalrullunni, þökk sé frá- bæru látbragði og þjónslegum töktum Björgvins Hjörleifssonar. Sömuleiðis náði Albert að gera sinn mann skemmtilega roskinn og viðkunnalegan. En þá er ég víst byrjaður að tala um frammistöðu einstaka leikara og best að ég haldi því áfram enn um stund. Einn helsti kostur sýningarinn- ar frá sjónarhóli gagnrýnandans var hversu leikur var jafn. Meðal leikaranna var enginn veikur hlekkur sem veikti alla keðjuna svo tekin sé líking í anda ung- mennafélaganna. Stjörnur sýningarinnar voru þeir Sigurbjörn og Steinþór cnda bjóða hlutverk þeirra tæpast upp á annað. (Raunar þótti mér Björgvin einnig sýna stjörnutakta á sinn hógværa hátt). Þeir tví- menningar eru báðir reyndir á sviði og það skilar sér. Sigurbjörn hefur áður leikið í kvenmanns- gervi enda sveiflar hann blævæng, setur á sig snúð og and- varpar af sönnum kvenlegum þokka sem mörg glæsipían gæti verið stolt af. Steinþór í hlutverki Spettigue's fjárhaldsmanns var sömuleiðis drepfyndinn einkum þegar hann var kominn í ham og farinn að mæðast af eltingaleikn- um við meinta frænku Charleys. Skólapiltarnir tveir, Pálmi og Þórarinn, skiluðu sínum rullum ágætlega. Hlutverkin eru að sönnu ekki eins spaugileg og hin tvö en þó tókst þeim að gera sína menn býsna hlægilega á köflum, Þórarinn með aulalegri ófrant- færni en Pálmi með hástemmdum ástarbríma. Þá eru það ungpíurnar. Það má raunar segja um öll kvenhlut- verk í leikritinu að þau eru skrif- uð nánast til uppfyllingar, til að karlarnir geti leikið í kringu urn þær ef svo má að orði komast. Með það í huga er óhætt að segja að þær Yrsa og Heiða hafi gert sér góðan mat úr litlu, Heiða þóttafull og matrónuleg til mót- vægis við aulahátt elskhugans en Yrsa treg í taumi og stríðin í réttu hlutfalli við ákefðina í kær- astanum. Unnur María var sann- færandi rík ektafrænka í ótrúlega rauðum kjól og Inga María svo saklaus og hrein í hlutverki mun- aðarleysingjans. Þar með eru vonandi allir upp taldir. Sviðsmynd Kristjáns Hjartar- sona ver einkar sannfærandi enda varð hún leiklistargagnrýnanda Dags tilefni helmings umfjöllun- ar sinnar um leikinn og hef ég engu við það að bæta. Sömuleiðis var lýsing Kristjáns greinilega unnin af fagmennsku. Búningar Þórunnar Þórðardóttur voru sannfærandi og féllu vel að anda verksins, einkum rauði kjóllinn. Og þá er mér að lokum skylt að þakka fyrir einkar vandaða, fróð- lega og fallega leikskrá sent Heiða Hilmarsdóttir og Þröstur Haraldsson áttu veg og vanda að. Þá tel ég að leikdómurinn sé . fullkomnaður og öllu gerð þau skil sem því ber. Einhverjir kunna að spyrja hvort virkilega ekkert hafi verið við sýninguna að athuga. Sjálfsagt mætti tína eitt og annað til ef grannt væri leitað og hátíðlega á málum tekið. En hér er á ferðinni gam- anleikur sem síst af öllu er ætlað að vekja áhorfandann til umhugsunar um eitt eða neitt. Tilgangurinn er sá einn að vekja hlátur áhorfenda og það tókst leikfélaginu svo sannarlega að gera í þetta skiptið. Uppskrúfuð listgagnrýni í vandlætingartón væri hreinlega úr takt við eðli leiksins. Leikfélag Dalvíkur. Takk fyrir skemmtunina og til hamingju með leikinn. Hjörleifur Iljartarson

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.