Norðurslóð - 17.04.1991, Síða 5
NORÐURSLÓÐ - 5
Samkomuhús Svarfdæla - hvar - hvenær?
Þinghús hreppsins - aldarafmæli 1992
Mikið er um gestkomur í hann
Svarfaðardal vetur, sumar vor
og haust. Fannafjöllin, gróður-
inn, byggðin, allt dregur fleiri
og fleiri gesti, sem fara
„hringinn“ og þeir skynsöm-
ustu taka sér hliðarvink fram í
dalina. Menn koma í hópum til
að halda fund, dansleik eða
ættarmót. Allt blessað og gott,
því hér er allt svo fínt og fágað
hjá okkur eða er nokkurstaðar
snöggan blett að finna? Jú, til
eru þeir og þarf ekki langt að
leita.
Þinghús Svarfaðardalshrepps
var fyrst byggt á Tungukoti ytra á
því herrans ári 1892. 1912 var
það flutt niður að Grund og not-
að þar sem funda- samkomu- og
skólahús til 1955, síðan sem
funda- og samkomuhús til dags-
ins í dag. Það er alveg óhætt að
fullyrða, að hvergi kemur fleira
fólk í þessari sveit en einmitt á
þennan stað. Og einmitt þetta
aldna hús er eitt hið hrörlegasta í
allri sveitinni. M. a. s. eru sterkar
líkur til, að Þinghúsið okkar
fengi 1. verðlaun í samkeppninni
hrörlegasta hreppssamkomuhús
á íslandi.
Nú er ekki ætlunin hér, að
rekja þá umræðu, sem verið hef-
ur í sveitinni um nýtt samkomu-
hús síðustu 30-40 árin. Hún hefur
hvort eð er engan árangur borið
og má skýra það með ýmsu inóti.
Hreppsnefnd Svarfaðardals og
stjórn ÚMF Porsteins Svarfaðar,
sem á hluta í „Grundinni" eins og
krakkarnir segja, hafa hvor í sínu
lagi rætt málið enn á ný upp á síð-
kastið. Það síðasta, sem hefur
verið stungið upp á, er að byggð
verði álma vestur úr gamla Húsa-
bakkahúsinu norðanverðu. Það
yrði samkomuhús hreppsins og
allra þess félaga en jafnframt
íþróttahús skólans, geymslurými
fyrir hann og e.t.v. íbúð fyrir
húsvörð staðarins, Staðarráðs-
- m
Sr
Gömul og ný hugmynd
Þetta er athyglisverð hugmynd en
ekki alveg ný af nálinni. Það var
nefnilega gert ráð fyrir svona
vesturálmu strax á frumteikning-
um Húsabakkaskóla, eldra
hússins, (sem var byggt á árunum
1950-1955). Þessvegna eru nánast
engir gluggar á norðurhluta bygg-
ingarinnar. Þetta átti að vera
íþróttahús með meiru. Eftir
sömu teikningu voru byggð ein
þrjú önnur skólahús (í Vopna-
firði, við Ljósafoss í Arnessýslu
og á Steinsstöðum í Lýtingstaða-
hreppi, Sagafirði) og sum ef ekki
öll fengu sína íþróttaálmu. Þessi
teikning skólahúss hefur fengið
sinn skammt af gagnrýni, en það
er nú önnur saga.
Á þesssum löngu liðnu dögum
milli 1950 og 70 var það næstum
því sáluhálparatriði hjá skólayfir-
völdum, ekki síst skólaíþrótta-
fulltrúa ríkisins, að ekki mætti
leiða saman á nokkurn hátt
heimavistarskóla og almennt
samkomuhús. Hugmyndir manna
hafa breyst síðan og nú er þetta
talinn sjálfsagður hlutur þar sem
það hentar.
Samt var það svo, að hugmynd-
in um sambyggingu var rædd hér
og teikningar gerðar af heima-
mönnum og m.a.s. fengið ’sam-
þykki íþróttafulltrúans þótt treg-
ur væri. Málið komst ekki langt
áfram, því ýmsir hér innansveitar
Ljósm. S.H.
voru þegar til kom algjörlega
andvígir þessari lausn.
Hvort þetta heföi orðið til
heilla þá skal ósagt látið. Síðan
kölluðu að sveitarfélaginu önnur
viðfangsefni hvert af öðru, sem
hafa hcimt til sín alla fram-
kvæmdagetu þess og er ekkert
viö því að segja.
En nú er þessi gamla hugmynd
sem sagt aftur kornin á kreik. Og
hér skal því haldið fram, að lík-
lega sé þetta þegar allt kemur til
alls skynsamlegasta og trúiega
eina færa leiðin til þess að sveit-
arfélagið og félagssamtök innan
þess getir eignast skammlaust
þak yfir höfuðið í náinni framtíð.
Þinghús hreppsins
að Grund
Allt er þetta sagt með fullri virð-
ingu og hlýjum hug til góða,
gamla Þinghússins, þar sem fleiri
kynslóðir Svarfdælinga hafa
skemmt sér, numið í skóla og
rætt á fundum héraðsins gagn og
nauðsynjar allt frá árinu 1892.
Og taki menn eftir því, að á
næsta ári verður það í rauninni
100 ára gamalt. Þá vaknar spurn-
ingin: ER ekki hægt að gefa því
einhverja afmælisgjöf t. d. ný
klæði í formi fallegrar málningar
og þesssháttar, svo það þurfi ekki
að standa þarna í þjóðbraut í
veslings gömlu tötrunum sínum?
Síðan, þegar komið væri nýtt
samkomuhús t.d. á 40 ára afmæli
Húsabakkaskóla 1995, þá væri
búið að finna því nýtt hlutverk
þar sem það nú stendur, þ.e.a.s.
ef heilsu þess cr ekki svo illa
komið, að því verði ekki bjargað.
Júlíus Daníelsson í Reykjavík
ber framtíð Þinghússins mjög fyr-
ir brjósti og hefur stungið upp á
því, að Golfklúbburinn Hamar
fái húsið til eignar og afnota þeg-
ar þar að kemur. Fleiri hafa víst
stungið upp á þessu, enda ér það
góð tillaga, því þessir frísku og
ríku kylfingar væru vísir til að
reisa staðinn úr öskunni t.d.
græða skóg á lóðinni, sem er enn
ein gömul hugmynd, sem aldrei
varö að veruleika.
En að sjálfsögðu er ekki hægt
að neyða einn eða neinn til að
taka við húsinu til eignar. Það er
bara í ljóðum, að hægt er að
segja líkt og skáldið:
Eigðu Hof á Höfdaströnd
hvort þú vilt eða ekki. HEÞ.
Enn um stjömumerkin
Nú er að komast botn í minnis-
vísurnar um stjörnumerkin {
Dýrahringnum svokallaða. 1 síð-
asta tölublaði var því slegið
föstu, að það væru til tvær útgáf-
ur eða úrlausnir á málinu: Önnur
þar sem öllum nöfnunum 12 er
komið fyrir í cinni vísu og farið
mjög svo frjálslega með þau t.d.
Hængur og Hremsufreyr í stað-
inn fyrir Dreki og Bogmaður.
Hinsvegar er svo hin lausnin, þar
sem stökurnar eru tvær og hin
vejulegu nöfn notuð að mestu
leyti.
Síðan þetta birtist í blaðinu
kont að máli við ritstjóra Vilhelm
Þórarinsson á Dalvík og kvaðst í
æsku hafa heyrt farið með síðari
útgáfuna, þ.e. tveggja vísna
útgáfuna, en dálítið öðruvísi þó
heldur en stæði í blaðinu. Vil-
helm mundi ekki alveg seinni vís-
una, en í sameiningu tókst þess-
um tveimur glöggu mönnum! að
setja vísurnar saman. Og þetta er
niðurstaðan, og hún er áreiðan-
lega sú eina rétta:
Hrútur. tarfur, tvíburar,
tel ég þar næst krabba og Iján.
mey og vog og vitum, þar
vorri birtist dreki sjón.
Bogmaður, steingeit standa næst,
stika vatnsberi og fiskar nær.
Svo eru merkin sólar læst
í samhendur þessar litlar tvær.
Þetta skyldu menn nú læra vel.
því þetta eru praktísk fræði eins
og fleiri slík t. d. „ap. jún. sept.
nóv. þrjátíu hver" o.s.frv.
En áður en skilist er við
stjörnufræðina er ekki úr vegi að
benda á reikistjörnuna Venus,
sem er nú glóbjört kvöldstjarna
og sest, frá Dalvík séð, bak við
fjöllin við Böggvisstaða/Upsadal.
Menn skulu grípa færið meðan
gefst og horfa vel á fegurstu
stjörnu himinhvolfsins. Það er
bráðum of seint að sjá ástastjörn-
una fyrr en aftur í haust, <?f guð
þá lofar.
Gömul þula
Norðurslóð fékk senda frá Ytra-
Hvarfi þessa gömlu þulu, ásamt
með vísunni um stjörnumerkin,
sem birtist í síðasta blaði.
Hrútur, boli, o.s.frv. Þessi þula
er aftur á móti um gömlu nöfnin í
mánuðunum.
Gormánuð þann gumar kalla
sem gerir byrja veturinn
Ýlir miskunn veitir varla
vondan tel eg Mörsuginn.
Pá er von á þorra tetri.
Penki eg Góu lítið betri.
Einmánuður gengur grár.
Gaukmánuður þar næst stár.
Eggtíð honum eftir rólar,
allvel lifir jörðin þá.
Minnist eg á mánuð Sólar
mun svo fleiru segja frá.
Miðsumar og Tvímán tel.
tek svo Haustmánuði vel.
KEA Dalvík
sendir starfsfólki og
viðskiptavinum sínum bestu
kveöjur og óskir um
glebilegt sumar
Þökk fyrir viðskiptin á iiðnum vetri
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
ÚTIBÚIÐ Á DALVÍK