Norðurslóð - 17.04.1991, Qupperneq 6

Norðurslóð - 17.04.1991, Qupperneq 6
Svarfdælsk byggð & bær Tímamót Skírnir 25. febrúar voru skírðir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri tvíburarnir Arni og Hjörtur. Foreldrar þeirra eru Rósa Baldurs- dóttir og Fljörlcifur Hjartarson Laugahlíð. Sr. Lárus Halldórs- son skírði. 28. mars var skírð í Dalvíkurkirkju Dagný. Foreldrar hennar eru Jónína Vilborg Björgvinsdóttir og Davíð Stefánsson (Stefánssonar), Karlsbraut 20, Dalvík. 28. mars var skírð í Dalvíkurkirkju Brynja. Foreldrar hennar eru Rakel María Óskarsdóttir (Valtýssonar) og Gunnar Guðm- undsson, Flyðrugranda 6, Reykjavík. 29. mars var skírður í Dalvíkurkirkju Karl. Foreldrar hans eru Jóninna Gunnlaug Karlsdóttir (Sævaldssonar) og Guðmundur Áskelsson, Mímisvegi 4, Dalvík. 30. mars var skírður í Dalvíkurkirkju Stefán. Foreldrar hans eru Svala Karlsdóttir og Bragi P. Stefánsson, læknir, Svarfaðarbraut 20, Dalvík. 31. mars var skírð að Ásvegi 4, Dalvík, Kolbrún Kara. Foreldr- ar hennar eru Harpa Hrönn Zophoníasdóttir og Páll Sigurþór Jónsson (Finssonar), Bjarmastíg 3, Akureyri. Fermingarbörn í Dalvíkurkirkju hvítasunnudag, 19. maí, kl. 10.30. Aðalbjörg Þórey Ólafsdóttir, Brimnesbraut 21 Anton Örn Ingvason, Karlsrauðatorgi 22 Birna Rut Willardsdóttir, Svarfaðarbraut 30 Birgir Már Hannesson, Karlsrauðatorgi 26 Dagur Óskarsson, Svarfaðarbraut 11 Friðrikka Björg Antonsdóttir, Bjarkarbraut 19 Halla Ingvarsdóttir, Lönguhlíð 21, Ak. Hallgrímur Hrafnsson, Sognstúni 4 Hafdís Heiðarsdóttir, Svarfaðarbraut 17 Heiðar Sigurjónsson, Reynihólum 10 Heiðdís Þorsteinsdóttir, Böggvisbraut 4 Heiðveig Nanna Halldórsdóttir, Sunnubraut 1 Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Ásvegi 14 Jón Már Jónasson, Öldugötu 8 Margrét Magnúsdóttir, Hjarðarslóð 2e Ólafur Helgi Rögnvaldsson, Dalbraut 8 Ólafur Ingi Steinarsson, Karlsbraut 9 Rakel Friðriksdóttir, Böggvisbraut 9 Rán Aðalheiður Lárusdóttir, Hólavegi 11 Stefán Friðrik Stefánsson, Böggvisbraut 25 Sveinn Arndal Torfason, Stórhólsvegi I Sylvía Ósk Ómarsdóttir, Ægisgötu 3 Þorgerður Kristín Guðmundsdóttir, Böggvisbraut 11 Fermingarbörn í Svarfaöardal 26. maí 1991 Gunnlaugur Einar Sævarsson, Völlum Karl Ingi Atlason, Hóli Sigrún Árnadóttir, Ingvörum Veggskjöldur Fyrir síðustu jól var gerður veggplatti með mynd af Urða- kirkju í Svarfaðardal, teiknaður af Lenu Zacharíassen í Dæli. Til að auðvelda brottfluttum Svarfdælingum í Reykjavík og nágrenni, sem áhuga hafa að eignast þessa platta, skal bent á að þeir eru nú til sölu hjá Valde- mar Óskarssyni formanni Svarf- dælingasamtakanna. Getur fólk hringt í hann í síma 680402 og mun hann þá koma þeim til þeirra sem þess óska. Einnig get- ur fólk heimsótt hann á skrifstofu hans að Skipholti 50 b, þar sem þeir eru til sölu. Kostar stykkið kr. 1200. Þá var einnig gefið út póstkort af Urðakirkju (og jólakort) og eru bæði plattar og kort til sölu hjá Hallgrími á Urðum í síma 96- 61538 og Margréti á Göngustöð- um í síma 96-61533. Sóknarnefnd Urðakirkju vill þakka öllum þeim sem fært hafa kirkjunni gjafir og áheit á s.l. ári og einnig þeim sem stutt hafa hana með kaupum á plöttum og kortum. Hafið þökk fyrir. Sóknarncfnd Urðakirkju. Bréf úr Vesturheimi Svavar Tryggvason og sonurinn Bjarni geimfari. Mikið lifandi skelfíng var spenningurinn og eftirvænting- in eftir bréfi að vestan mikil hérna á öldinni sem leið, þegar fólkið flykktist til Ameríku, reif sig upp frá vinum og vandamönnum og hvarf vestur um haf, þaðan sem það mundi trúlega aldrei eiga afturkvæmt. Enn flyst fólk til Ameríku og enn berst eitt og eitt bréf að vestan, þótt allt sé nú orðið breytt. Meðal þeirra sem farið hafa til Ameríku nýlega til lengri eða skemmri dvalar eru Dalvík- ingar, hjónin Sturla Kristjáns- son og Ingigerður Snorradótt- ir. Þau dvelja nú á vestur- strönd Canada.í Bresku Kól- umbíu. Blaðið hefur fengið bréf frá Ingu, skrifað í Vancouver 19. mars. í lok bréfsins þakkar hún kærlega fyrir blaðið og biður fyrir kveðjur heim og er þeim hér með komið á framfæri. Ekki var þetta þó aðalinntak bréfsins að vestan. Heldur er það löngun hennar til að minna á aldraðan Svarfdæling, Svavar Tryggvason, sem býr ekki langt frá þeim hjónum og þau hafa gott samband við. Margir af eldri kyn- slóðinni hér í byggð muna eftir Svavari Tryggvasyni, sem ólst hér upp bæði í sveitinni og á Dalvík, skemmtilega, sífjöruga fríðleiks- piltinum, sem allir vildu eiga að vini og félaga. Undirritaður man hann best „í sundinu" fram við Sundskála, eins og það var orðað í gamla daga. Þar var Svavar hrókur alls fagnaðar. Svo var hann allt í einu horfinn úr byggð- arlaginu og mun lítið hafa komið hér upp frá því. En hvert fór hann og livað varð um hann? í bréfi sínu lætur Inga þess getið, að Svavar verði 75 ára þann 24. apríl en segir svo orðrétt: Hann er fæddur í Reykjavík en kom tæplega 7 ára til Dalvíkur (sjá Dalvíkursögu II bls. 433-451 um Trýggva Valdimarsson) og bjó á Hnjúki hjá Árna og Stein- unni og á Dalvík til 17 ára aldurs. Hann var við nám í Laugaskóla og Verslunarskóla íslands og lauk einnig prófi frá Stýrimanna- skóla íslands árið 1943. Bjó í Reykjavík og stundaði sjó- mennsku til ársins 1953, en flutti þá með konu sinni, Sveinbjörgu Haraldsdóttur, og sex börnum til Kanada. Þau eignuðust 7. barnið í Kanada og eru þau öll á lífi, en Sveinbjörg er látin. Meðal barna þeirra er Bjarni Tryggvason (Svavarsson), sem meðfyigjandi ljósrit af grein í tímaritinu Mann- líf er um. Svavar hefur búið f Kanada frá 1953 og stundað sjómennsku á meðan heilsan leyfði, en unnið við ýmis störf eftir að liann fór í land. Hann býr nú á heimili fyrir aldraða, hefur litla íbúð út af fyr- ir sig og hugsar alveg um sig sjálfur. Hann talar íslensku eins og hann hefði aldrei farið út fyrir landsteinana en hefur þó aðeins einusinni haft tækifæri til að fara til íslands. Hann sendir innilegar kveðjur heim í dalinn. Þetta voru orð Ingu. En af við- talinu í Mannlífi má lesa það, að Bjarni sonur Svavars er þjálfaður geimfari og lærdómsmaður mikill í þar að lútandi fræðum, þó ekki hafi hann enn fengið tækifæri til að skutlast út í geiminn. Svo er þó að skilja, að enn sé ekki vonlaust að það tækifæri komi áður en það er um seinan. Og því má bæta við, að annar sonur Svavars, Haraldur, hefur verið mjög virkur í samtökum Islendinga á vesturströnd Kanada og stóð m.a. fyrir samsæti til heiðurs forseta (slands í heim- sókn hans til Kanada scint á átt- unda áratugnum. Við birtum hér eina eða tvær myndir upp úr ljósriti af Mannlífi í von um, að þær verði ekki algjörlega mislukkaðar. Að lokum sendir Norðurslóð, sem Svavar fær og líkar vel. hon- um innilegar afmæliskveðjur og þakkar Ingigerði Snorradóttur fyrir tilskrifið. Ritstj. Fréttahomiö / Itogaradeilunni um páskana þar sem sjómenn á ísfisktogur- um Útgeröarfélags Akureyrar lögðu niður vinnu vegna deilna við stjórn útgeröarinnar um auk- ið heimalöndunarálag kom upp einkennileg staða hér á Dalvík. Á togurum Útgerðarfélags Dal- víkinga var ekki einhugur um hvort fylgja ætti dæmi Akureyr- inga eða ganga að tilboði útgerð- arfélagsins um 41% heimalönd- unarálag. Mál þróuöust þannig að sjó- menn á Björgúlfi lögðu niður vinnu og gerðu kjarakröfur Akureyringa að sínum en áhöfn- in á Björgvin gekk að tilboði útgerðarfélagsins og lét togarinn úr höfn við kaldar kveðjur Björg- úlfsmanna og sjómanna frá Akureyri sem fjölmenntu á bryggjuna með blóm í kveðju- skyni! Endir mála varð síðan sá að samningar tókust milli stjórnar Ú.A. og sjómanna eftir mikið þóf. Heimalöndunarálagið var lagt niður en í staðinn ákveðið að verðleggja 15 % afla með hliö- sjón af fiskmarkaðsverði. En að fast verð yrði greitt fyrir 85% afla eftir aflasamsetningu. Þennan samning samþykktu og Björg- úlfsmenn þannig að nú gilda tveir afar ólíkir samningar á togurum Ú.D. Ákveðið hefur verið að endurskoða samninginn á Björgvin til samræmis við Akur- eyrarsamninginn þegar færi gefst. Minnisvarði stórhríðar hjá Ytra- Hvarfi sbr. síðasta tbl. Norðurslóð- ar. Ljósm. S.H. Kvenfélagið Tilraun í Svarf- aðardal verður með kaffi- sölu í Mötuneyti Húsabakka- skóla á kosningadaginn 20. apríl milli klukkan 2 og 5 e.h. Leiðrétting í fréttahorni Norðurslóðar í síð- asta blaði var sagt frá gjöfum til Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík. Þar var sagt að Kvenfé- lagið Vaka á Dalvík hefði gefið stöðinni eyrnasmásjá, þetta er ekki rétt, það voru Lionessur á Dalvík sem gáfu smásjána með aðstoð Lionsmanna. Kvenfélagið Vaka hafði áður gefið Heilsu- gæslustöðinni tæki til heyrnmæl- inga. Þetta leiðréttist hérmeð, og beðist er velvirðingar á missögn. Græningjarnir Björgvin og Björgúlfur snúa skutum saman.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.