Norðurslóð - 25.09.1991, Síða 4
4 - NORÐURSLÓÐ
Ljósm. ZJ.
Stebbi fór í humátt á eftir á
Peilodernum og þurfti aðeins að
ýta aftaná vagninn í síðustu
brekkunum. Annars gekk ferðin
vel og tók um þrjá og hálfan
tíma.
Áður en lengra er haldið er
rétt að geta nokkurra áhuga-
manna til viðbótar sem staðið
hafa í þessu með þeim tví-
menningum. Skal þar nefna Óla
Þór Ragnarsson apótekara,
Sigurð Kristjánsson, Guðmund
Jónsson hjá Olís og Sigurð Lúð-
víksson tannlækni. Auk þeirra
voru með í ferðinni tveir hand-
langarar, þeir Magnús Marinós-
son Búrfelli og Hlyni Jón Gísla-
son Hofsá. Þess má og geta í
framhjáhlaupi að þessi óformlegi
félagsskapur hefur í sumar einnig
staðið í húsbyggingu ásamt vél-
sleðamönnum á Akureyri í svo-
nefndu Landakoti á Sprengi-
sandi inn af Þormóðsstaðadal í
Eyjafirði.
Greiðlega gekk að lyfta húsinu
upp af vagninum og koma því
niður á undirstöðurnar. Er þá
bara eftir að ganga endanlega frá
festingum fyrir veturinn. .
Að sögn Zóphónías var húsið
áður vinnuskúr við Krötluvirkjun
og fékkst fyrir 75 þúsund krónur.
Annað eins hafa þeir félagar lagt
í endurbætur og undirbúning svo
varla er hægt að tala um dýrt
fyrirtæki í þessu sambandi.
Skálinn er 2.40 x 5.40 að utan-
máli, einangraður í hólf og gólf
og þiljaður niður í forstofu og
betri stofu. I betri stofuna er
komið borð og stólar og nú er
hægt að drekka þar kaffi með
töluvert mikilli ánægju.
Ekki hefur skálinn enn verið
formlega vígður né heldur ákveð-
ið hvað barnið á að heita . Eru
lesendur hér með hvattir til að
hugsa upp eitthvert gott nafn og
koma hugmyndinni á framfæri
við einhvern hlutaðeigandi.
Að endingu sagði Soffi að
skálinn væri öllum opinn sem leið
ættu um Heljardalsheiði hvort
heldur á vetri eða sumri, gang-
andi, akandi eða ríðandi, svo
fremi að þeir gengju almennilega
um og tækju til eftir sig.
Að lokum skal hér rifjuð upp
gömul draumvísa eftir ónefndan
draug sem vissulega hefði þegið
að vélsleðamenn hefðu verið
nokkrum öldum fyrr á ferðinni
með húsið.
Lykkja varð a leiðinni.
Langar voru stundir.
Heijardais á heiðinni
hvíli eg snjónum undir
Hj.Hj.
P.S.
Hér kemur 1. tillagan: Helja skal
barnið heita, hvað annað?
Ritstj.
Hús á Helju
- Yaskir vélsleðamenn
Heljardalsheiði er eins og allir
vita gömul þjóðbraut úr Svarf-
aðardal yfír í Kolbeinsdal í
Skagafírði. Öldum saman var
hún ein helsta umferðaræð
manna og hesta yfír hálendi
Tröllaskagans og hefur vart
liðið sá dagur yfir sumartím-
ann, að ekki ætti einhver Ieið
um heiðina. Með tilkomu bfls-
ins og bílvegar yfir Öxnadals-
heiði Iagðist hinsvegar umferð
um heiðina af að mestu Þó að
alltaf hafí þó nokkrir gert það
að gamni sínu að fara þessa
leið ríðandi eða gangandi.
Árið 1988 stóð Póstur og Sími
að lagningu ljósleiðara vítt og
breitt um landið og var honum
valin leið um Heljardalsheiði
(eins og Landsímanum 1906). í
sambandi við þær framkvæmdir
var ruddur jeppavegur yfir heið-
ina og fór þá umferð manna þar
að aukast að nýju. Vegur þessi er
enn vel fær jeppum og töluvert
ekinn þann skamma tíma árs,
sem snjólaust er á fjöllum.
Vélsleðagæjar
En það eru líka annarskonar vél-
knúin farartæki, sem í stór- aukn-
um mæli eiga leið um heiðina, og
það einkum þegar snjór er
mestur. Það eru vélsleðar - og að
sjálfsögðu vélsleðamenn þar ofan
á.
Skulu nú tveir slíkir nefndir til
sögunnar: þeir Zóphónías Jón-
mundsson á Hrafnsstöðum og
Stefán Árnason frá Hæringsstöð-
um Þessir menn hafa árum saman
gert sér það að leik að bruna á
sleðum sínum þvert og endilangt
yfir fjallgarðinn og raunar yfir
þvert og endilangt ísland ef svo
ber undir.
Fyrir einhverjum árum byrj-
uðu þeir að ræða þá hugmynd, að
gaman væri að geta staldrað við á
Helju og komist þar í húsaskjól
með kaffisopann og nestið á
köldum vetrardögum.
Hús á leið til heiða.
Varðar mestu að allra orða/undirstaða sé réttleg fundin.
Stefán var síðan fenginn til að
ryðja umræddan vegaslóða á ýtu
sinni í tengslum við ljósleiðarann
og í hjáverkum steyptu þeir
félagar undirstöður í 9 olíutunn-
ur um 50 m. norð-vestan við
Stóruvörðu sem margir kannast
við.
Það var svo 25. ágúst s.l. að
ekið var með húsið á vagni aftan
í traktornum hans Soffa sem leið
liggur upp á heiðina.
Nokkrir vélsleðamenn. F.v. Stefán, Guðmundur, Sigurður, Magnús, ÓIi Þór
og Hlyni Jón.
Sparisjóður Svarfdæla Dalvík
Daivíkingar - Svarfdælingar - Gestir
AUir eigq erindi í sparisjóðinn
Sparis j óðurinn
Ráðhúsinu • Dalvík • Sími 61600
Haldreipi í heimabyggð