Norðurslóð - 25.09.1991, Síða 6
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
20. júní var skírð í Dalvíkurkirkju Sóley Inga. Foreldrar hennar eru
Halla Steingrímsdóttir og Guðbjörn Gíslason, Böggvisbraut 21,
Dalvík.
30. júní var skírður í Dalvíkurkirkju Vilhelm. Foreldrar hans eru
Ingibjörg María Ingvadóttir og Friðrik Vilhelmsson, Reynihólum 14,
Dalvík.
13. júlí var skírður á Kóngsstöðum Hans Friðrik. Foreldrar hans eru
Valgerður María Jóhannsdóttir og Guðmundur Freyr Hansson,
Bragagötu 36, Reykjavík.
20. júlí var skírður í Urðakirkju Kjartan Atli. Foreldrar hans eru
Lovísa Jónsdóttir og Oskar Þór Halldórson (frá Jarðbrú), Tjarnarlundi
17 e, Akureyri.
24. júlí var skírður í Dalvíkurkirkju Jóhann Björgvin. Foreldrar hans
eru Steinunn Jóhannsdóttir og Leifur Kristinn Harðarson, Hjarðarslóð
6 c, Dalvík.
26. júlí var skírð í Svæði, Dalvík, Iða. Foreldrar hennar eru Sigrún
Halla Halldórsdóttir og Þorri Hringsson, Asvallagötu 16 a, Reykjavík.
28. júlí var skírð í Dalvíkurkirkju Þorbjörg. Foreldrar hennar eru
Dóróþea Guðrún Rcimarsdótlir og Viðar Kristmundsson, Steintúni 3,
Dalvfk.
3. ágúst var skírð að Böggvisbraut 19, Dalvík, Jóna Bergrós. Foreldrar
hcnnar eru Gunnlaug Osk Sigurðardóttir, Böggvisbraut 19, Dalvík og
Þorsteinn Vignisson, Rauðumýri 22, Akureyri.
25. ágúst var skíður í Vallakirkju Stefán Geir. Foreldrar hans eru
Unnur Sæmundsdóltir (Stefánssonar, Völlum) ' og Sveinn Þór
Stefánsson, Sæbraut 7, Seltjarnarnesi.
I. ágúst var skfrð í Dalvíkurkirkju Ingibjörg Osk. Foreldrar hennar eru
Kolbrún Gunnarsdóttir, Lækjarstíg 3, Dalvík og Víkingur Arnar
Arnason (Oskarssonar), Smáravegi 8. Dalvík.
22. seplember var skírð í Vallakirkju Stcinunn Osk. Foreldrar hennar
eru Sigríður Pálrún Stefánsdóttir (Hofi) og Eyþór Matthíasson,
Melasíðu 5 b, Akureyri.
Hjónavígslur
29. júní voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Þórarinn Geir
Gunnarsson (Þórarinssonar) og Ólöf Gunnlaugsdóttir (Sig-
valdasonar). Heimili Þeirra er að Svarfaðarbraut 16, Dalvík.
6. júlí var systkinabrúkaup í Dalvíkurkirkju. Gefin voru saman í
hjónaband Valur Björgvin Júlíusson (Eiðssonar) og Ester Margrét
Öttósdóttir (Jakobssonar), Lokastíg 1, Dalvík, og Svanur Bjarni
Ottósson (Jakobssonar) og Sigrún Júlíusdóttir (Steingrímssonar)
Hjarðarslóð 3 b, Dalvík.
20 júlí voru gelin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Oskar
Aðalsteinn Óskarsson (Valtýssonar) og Anna Hafdís Jóhannes-
dóttir. Heimili þcirra er að Reynihólum 2, Dalvík.
27. júlí voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Hafþór Ingi
Heimisson og Jenný Valdimarsdóttir (Snorrasonar). Heimili þeirra
er að Klingstrupvænget 69, 1 tv, 5230, Odense M, Danmörku.
Andlát
3. júlí lést á Dalbæ, Dalvík, Anna Björg
Arngrímsdóttir.
Anna fæddist í Brúarlandi, Deildardal í
Skagafirði, 10. janúar 1898 dóttir Arn-
gríms Jónssonar og Ingigerðar Sigfús-
dóttur. Hún var næst elst af sjö börnum
þeirra hjóna. Látin eru Jón, Bjöm
Zóphonías, Svanbjörg, Snorri Arngrímur,
og Guðrún Rósa en Kristín býr á Dalvfk.
Foreldrar Önnu voru báðir úr Svarf-
aðardal og hingað í dalinn tlytur hún með
foreldrum sínum á fyrstu árum sínum.
1920 giftist hún Kristjáni Eldjárn Jóhann-
essyni frá Ytra-Holti síðar hreppstjóra Dalvíkurhrepps. Þau keyptu
Brekku á Dalvík árið 1925 og bjuggu þar í tæpa sex áratugi. Anna og
Kristján eignuðust Ijögur börn, Þórarinn, sem er látin, Hrönn, Ingunni
Guðrúnu og Birnu Soffíu. Þá ólu þau upp sem eigin dóttur Guðlaugu
Hólmfnði Þorgbergsdóttur. Fyrir rúmum átta árum fluttu þau á Dalbæ,
heimili aldraðra þar sem Kristján lést í október á síðasta ári. Anna lést
þar 3. júlí og var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 13. júlí.
5. júlí lést á Dalbæ, Dalvík, Guðlaug
Ingibjörg Þorvaldsdóttir.
Guðlaug fæddist í Argerði, Svarfaðardal,
6. júní 1903 dóttir Þorvaldar Jóns
Baldvinssonar og Sigríðar Sigurðardóttur.
Hún fluttist ung með foreldrum sínum að
Tungufelli og ólst þar upp. Þau hjón
eignuðust níu böm og af þeim eru nú sjö
látin en þau voru auk Guðlaugar, Þóra,
Baldvin, Sigurður, Kristín, Hartmann og
Rósa. Þau tvö systkinanna sem lifa eru
Jóhann og Elíngunnur. 1924 giftist
Guðlaug Kristjáni Hallgrímssyni frá Ytra
Garðshorni. Þau byrjuðu búskap í Syðra-Holti, en fluttu 1931 til
Dalvíkur. Fyrst bjuggu þau í Höfn, þá í Bárugötu 8 en luku
búskaparárum sínum að Karlsrauðatorgi 19 og lést Kristján þar 1968.
Þau eignuðust fimm börn. Kristín Sigríður og Þórhallur Sigurpáll eru
látin en eftir lifa Birgir, Páll og Hartmann. Guðlaug flutti á Dalbæ fyrir
rúmum tveimur árunt þar sem hún lést 5.júlí. Hún var jarðsungin frá
Dalvíkurkirkju 12. júlí. Framhald á bls. 5.
Fréttahomið
Steypt undirstaða undir miölunartankinn. Fjöröurinn í haksýn: Ljósm. J.A.
Senn verður miðlunartankur
vatnsveitunnar tekinn í
notkun. Framkvæmdir við tank-
inn hafa staðið yfir í sumar og eru
nú á lokastigi. Um síðustu helgi
var verið að hleypa vatni á tank-
inn til reynslu. Tankurinn getur
tekið um 960 tonn af vatni og
safnast í hann það sem dælt er
umfram notkun veitukerfisins.
Við tankinn verður settur stýr-
ibúnaður sem tengdur verður
dælum vatnsveitunnar á eyrunum
fram í Svarfaðardal. Þegar vatnið
er komið í ákveðna hæð í tankn-
um minnkar dæling. þannig verð-
ur um sjálfvirka stýringu að ræða
sem mun spara rafmagn við dæl-
ingu talsvert.
s
Aður en vetur sest að verður
gerður vegur í framhaldi af
Mímisveginum fram hjá gamla
fjárhúsahverfinu og upp í hólana
að bílaplaninu meðan við skíða-
lyftuna. Þar með er komin fram-
tíðar tenging skíðasvæðisins og
raunar fólkvangsins í fjallinu við
gatnakerfi bæjarins. Fjárhúsa-
hverfið sem er neðan við Stórhól-
inn verður rifið í haust og næsta
vor. Syðstu húsin í hverfinu ná
inn á vegastæðið svo þau þurfa að
hverfa um leið og vegurinn verð-
ur lagður. Allt búfjárhald bæjar-
búa mun flytjast í Ytra-
Holtsland. Raunar er hér nær
eingöngu um hesta að ræða því
fjárhúsin gömlu voru orðin að
hesthúsum.
s
Isstöðin hf. hóf starfsemi sína
í byrjun júní sl. Framleiðsla
fyrirtækisins hefur verið mikil
alveg frá byrjun. Þar hafa verið
framleidd og seld um 2000 tonn
af ís. í áætlunum sem gerðar voru
áður en fyrirtækið var stofnsett
var gert ráð fyrir 5000 tonna árs-
framleiðslu. Reynslan af fyrstu
mánuðum starfseminnar gefa vís-
bendu um að sú áætlun hafi verið
raunhæf og kannski frekar í lægri
kantinum. Vorið og sumarið eru
aðal framleiðslutíminn en minna
er selt af ís yfir veturinn. Loka-
frágangur við hús fyrirtækis ins er
enn eftir og einnig að setja upp
blásturskerfi þannig að ísnum
verði blásið um borð í skip sem
liggja við norðurgarðinn. Frá
þessu verður gengið í vetur og
næsta vor.
/
Ilok októbermánaðar er reikn-
að með að bensínstöð Olís
verði frágengin og tekin í
notkun. Nú um helgina varð hús-
byggingin fokheld og fljótlega
verður farið að innrétta hana.
Afgreiðsluhúsið er 150 fm. að
grunnfleti og verður því skipt
nokkurn vegin til helminga milli
hefðbundinna Olísvara og
sjoppu. OLís er með auk hefð-
bundinnar olíuvöru, verkfæri,
hreinsiefni og pappírsvörur. í
sjoppunni verður hægt að fá kaffi
og meðlæti, pylsur, hamborgara
og franskar kartöflur auk sæl-
gætis. Borð og stólar verða í
sjoppu nni. Utanvið verður með-
al annars þvottaaðstaða fyrir þrjá
fólksbíla.
Um næstu mánaðarmót verð-
ur lokið uppfyllingu lónsins
sem myndaðist milli gamla
norðurgarðsins og nýja brim-
varnargarðsins sem gerður var á
síðastliðnu ári. Að vísu verður
uppfyllingin ekki komin í endan-
lega hæð allstaðar. Eimskipafé-
lag íslands hefur sótt um og feng-
ið lóð á uppfyllingunni en síðustu
fréttir lierma að ekki hafi enn
verið ákveðið í smáatriðum um
bygginguna eða hvenær fram-
kvæmdir hefjast. Uppfyllingin
var fyrst fengin með dýpkun
smábátahafnarinnar og síðan var
efni tekið austan af sandi. Þá er
einnig verið að nota efni sem tek-
ið er úr bakkanum á lóð milli
gamla „Allahúsins" og Blika h/f
og myndast þá þar mjög góð
byggingarhæf lóð. Samtals verð-
ur búið að flytja um 25.000 m3 í
lónið á þessu sumri og er þá eftir
að setja um 10.000 m3 til viðbótar
t il að hægt verði að ganga frá
öllu þessu svæði. Með fram-
kvæmdunum er sem sagt verið að
útbúa góðar lóðir á besta stað við
höfnina.
ú er starfsemi skólanna haf-
in eftir árvisst sumarfrí og
allt ungviði sest á skólabekk
aftur. Eins og vant er hafa ein-
staka kennarar og starfsmenn
hætt og aðrir tekið við. Að vanda
reynir Norðurslóð að halda les-
endum sínum vel upplýstum um
þetta efni og leitaði upplýsinga
hjá forráðamönnum skólanna.
í Grunnskóla Dalvíkur hafa
tvær kennslukonur snúið aftur til
starfa eftir nokkurra ára stúss í
öðru. Það eru þær Svanfríður
Jónasdóttir og Guðbjörg
Ringsted. Aðrar tvær eru alveg
nýjar af nálinni; þær Katrín
Guðmundsdóttir og Elísabet
Vala Guðmundsdóttir.
í Sjávarútvegsdeildinni hafa
komið til starfa Elín Björk
Gunnarsdóttir, Kristján Önund-
arson og Þorsteinn Egilsson.
Þar stunda nú nám 50-60
nemendur og einnig má geta þess
að nokkrir bæjarbúar sitja þar í
einstaka áföngum, einkum
ensku, og er það afar ánægjulegt
að sögn Þórunnar Bergsdóttur
skólastjóra.
Annars hefur framhaldsedeild-
in æ meira verið að færast undan
valdsviði Þórunnar og verða
sjálfstæðari nteð hverju árinu
sem líöur. Deildin er nú til húsa
bæði á lofti Ráðhússins og Kaup-
félagsins.
Nýr áfangi Grunnskólabygg-
ingarinnar var tekinn í notkun í
haust og fer nú allt bóklegt nám
fram í nýja skólanum en verk-
greinar eru kenndar í gamla
skólanum auk þess sem Tónlist-
arskóli Dalvíkur er korninn þang-
að með starfsemi sína. Nemend-
ur Grunnskólans eru nú 254 tals-
ins og hafa óvenju margir nýir
nemendur komið í skólann þetta
haustið. Að sögn Þórunnar hefur
öll aðstaða til náms og kennslu
batnað til mikilla muna eftir að
nýbyggingin er komin í gagnið og
eru allir hlutaðeigandi í sjöunda
himni yfir því.
Frá Húsabakkaskóla er það
helst að frétta að einn nýr kenn-
ari er þar tekinn til starfa. Sá
heitir Aðalsteinn Hjartarson. Af
nýbreytni í starfseminni er þess
helst að geta að nemendur í
fyrsta bekk sem áður hét núll-
bekkur mæta nú þrisvar í viku í
skólann en ekki tvisvar eins og
áður var. Þá er það nýlunda að
nú komast nemendur skólans
einu sinni í viku í íþróttatíma í
íþróttahúsinu á Dalvík þar sem
bæði er hátt til lofts og vítt til
veggja.
I sumar var lagt brunavarnar-
kerfi í allar kompur skólans, settar
upp eldvarnarhurðir og allt gert
löglegt gagnvart Eldvarnareftir-
liti Ríkisins.
Biskup Islands vísiterar
Eyj afj arðar pr ófastsdæmi
Dagana 22. september til 3. október vísiterar biskup Islands, herra
Ólafur Skúlason, söfnuði Eyjafjarðarprófastdæmis. Hann kemur á
liverja kirkju, skoðar ástand kirkjuhúss og eignir sem og kirkjugarða.
Þá ræðir hann við sóknarpresta, sóknarnefndir, messar á hverjum stað
og ræðir við sóknarbörn. Biskup íslands hefur ekki vísiterað
Eyjafjarðarprófastsdæmi síðan 1965 er Sigurbjörn Einarsson biskup
kom hér. Sóknarbörn eru hvött til að fjölmenna til guðsþjónuslu og
taka þannig vel á móti biskupi. Með biskupi cr kona hans frú Ebba
Sigurðardóttir og prófastur Eyjafjarðarprófastsdæmis sr. Birgir
Snæbjömsson og kona hans Rósa Garðarsdóttir.
Biskup vísiterar söfnuði Dalvíkurprestakalls eftirfarandi daga:
Vallakirkja, föstudagurinn 27. september. Kl. 20 kirkjuskoðun, kl. 21
messa, kl. 22 kaffi á Völlum fyrir alla kirkjugesti.
Tjarnarkirkja, mánudagurinn 30. september. kl. 13 kirkjuskoðun, kl.
14 messa, kl. 15 kaffi að Tjöm fyrir alla kirkjugesti.
Urðakirkja, mánudagurinn 30. september. Kl. 20 kirkjuskoðun, kl. 21
messa, kl. 22 kaffi á Urðum fyrir alla kirkjugesti.
Biskupinn hefur helgistund á Dalbæ miðvikudaginn 2. okóber kl.
16.30.
Dalvíkurkirkja, miðvikudagurinn 2. október. Kl. 18 kvöldverður í
boði sóknarnefndar. Kl. 19.30 kirkjuskoðun, kl. 20.30 messa. kl.21.30
kaffisopi í safnaðarheimili fyrir alla kirkjugesti.
Sóknarprestur