Norðurslóð - 20.11.1991, Page 2
2 - NORÐURSLOÐ
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgóarmenn:
Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaöardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Umsjón, dreifing og innheimta:
Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555
Prentun: Dagsprent hf. Akureyri
Að rækta ódyggðimar
Það er með blendnum tilfinningum, sem þjóðin með-
tekur fréttirnar af frestun, ef til vill langri frestun, á
framkvæmdum við áformaða álbræðslu á Keilisnesi á
Vatnsleysuströnd syðra. Prinsipandstæðingar ál-
bræðslu á íslandi svo sem kvennalistakonur fagna ákaf-
lega, margir umhverfisverndarmenn anda léttara og
það gera ýmsir fleiri góðir borgarar, sem óttast aukin
tök erlends auðvalds á hinni dvergsmáu íslensku þjóð.
Á hinn bóginn er sá stóri hluti þjóðarinnar, sem stað-
fastlega trúir á stóriðju sem bót flestra meina og óttast
hvorki pólitísk og efnahagsleg áhrif hennar né heldur
og þaðan af síður umhverfisáhrifin. Þeir menn hafa nú
orðið fyrir miklum vonbriðum. Fyrir mestum vonbrigð-
um liafa þeir þó orðið sem búa í nánd við fyrir-
hugaðan verksmiðjustað og sjá nú drauma sína um yfir-
fljótanlega atvinnu og uppgrip auðs fjarlægjast og
hverfa út í móðu óvissrar framtíðar. Það fólk á áreiðan-
lega mjög bágt þessa dagana og er það vel skiljanlegt.
Svo er til þriðji hópurinn, sem að vísu hefur verið
reiðubúinn til að samþykkja aðra álbræðslu hérlendis í
von og trú á heiðarlega viðsemjendur og á getu tækn-
innar til að koma í veg fyrir skaðlega mengun, en sættir
sig ekki við staðarvalið á þenslusvæðinu suðvestan-
lands. Þennan hóp fylla margir landsbyggðarmenn og
trúlega ekki síst Eyfirðingar, sem lifðu lengi í voninni
um að fá slíkt kröftugt atvinnutæki í hendurnar til að
berjast með gegn óheillastraumi fólks okkar og fjár-
muna suður yfir heiðar. Þetta fólk getur trauðla af heil-
um hug hryggst yfir því bakslagi, sem nú er komið í
álmálið.
Nú munu margir, sem þessi orð lesa, stökkva upp úr
sæti sínu og hrópa upp nokkur Ijót orð: „Ofund, mein-
fýsi, minnimáttarkennd, músarholusjónarmið, norð-
lenskur smásálarskapur af verstu tegundu.
Allt getur þetta átt við hér og að allar þcssar ódyggð-
ir sýni hér sitt Ijóta smetti.
En við hverju er að búast eins og þróun hefur verið
og ástand er í byggðamálum. Héruðin til lands og sjáv-
ar tæmast af mannfólki og yfirvöld í Stór-Reykjavík
búa sig undir að taka á móti þúsundunum, sem strcyma
inn hvaðanæva. Og ofan á þetta óheillaástand var og er
enn áformað að setja niður nýja álbræðslu knúða raf-
orku frá Norður- og Austurlandi.
Öfund og meinfýsi eru andstyggilegar systur, en þær
eiga sér samt geymdan stað í hver manns brjósti og geta
hreiörað þar um sig þegar skilyrðin eru hagstæð. Sá
sem staðhæfir, að öfund gæti aldrei bærst í sínu brjósti
er annaðhvort einfeldningur eða hræsnari, nema hvor-
tveggja sé.
Og er það bara norðlenskur smásálarskapur og
sveitamannaþröngsýni að vera ósáttur við þá ráðs-
mennsku, sem svo mjög mismunar landsfólkinu og ögr-
ar breiðum byggðum landsins?
Við höldum ekki, og unum ekki þeim illu örlögum í
gervi stjórnaraðgerða, sem ala upp í fjölda landsins
barna þær illu kenndir, sem að ofan voru nefndar. Það
er vond iðja að rækta ódyggðir. HEÞ
Röskva
meö
mömmu
sinni.
Við Dalvíkurhöfn
- Yörumagn rúmlega tvöfaldast á fimm árum
um á einn stað í stað þess að koma
við á öllum höfnum.
Landfræðilega liggur Dalvík-
urhöfn vel við hér á Eyjafjarðar-
svæðinu. Dalvík er miðsvæðis
hér við utanverðan Eyjaförð.
Sigling inn til Akureyrar tekur
umtalsverðan tíma fyrir flutn-
ingaskipin svo það getur beinlínis
borgað sig að safna vörum saman
á Dalvík frekar en á Akureyri. í
öðrum löndum er algengt að
aðalhafnir eru ekki í stærstu
borgunum heldur í bæjum í ná-
grenninu. Þó ekki sé ráðlegt að
líkja þessu algjörlega sarnan þá
er engu að síður ástæða að gefa
gaum að þessari staðreynd.
Það voru sem sagt ýmis hag-
stæð ytri skilyrði sem ýttu undir
þróunina sem hófst hér á árinu
1986. Hins vegar er rétt að benda
á að ekkert gerist af sjálfum sér.
Bæjaryfirvöld gerðu sér grein fyr-
ir möguleikunum og hafa nreð
ýmsu móti reynt að ýta undir eða
örfa þessa þróun. Nýr afgreiðslu-
maður, Valdimar Snorrason,
réðist til Eimskips hér á Dalvík
seinnihluta árs 1986 og hefur
hann manna mest stuðlað að aukn-
um umsvifum hér í vöruflutning-
um með útsjónasemi og góðri
þjónustu. Þetta kemiir greinilega
fram í töflu 1. Þar sést að fá skip
Eimskips komu hér við á árunum
fyrir 1986 en þá verður aukning
og á árinu 1987 verða algjör
umskipti. Jafnframt sést á töflu I.
að fjölgun komu skipa Samskipa
hefur einnig verið talsverð á þess-
um tíma.
Á árinu 1985 konru hér flutninga-
skip tæplega þriðja hvern dag að
meðaltali en á síðasta ári nálgast
að hér sé eitt skipa á dag og ef
ferjan Sæfari er talin með er hér
meira en eitt skip að meðaltali.
Samkvæmt upplýsingum hafnar-
varðar hefur skipakomum fjölg-
að enn á þessu ári miðað við
sama tíma í fyrra.
flutt út héðan af skreið sem safn-
að var frá ýmsum stöðum hér á
Norðurlandi. Reyndar var svo
einnig um saltfisk. Með bættum
landsamgöngum þótti hagkvæm-
ara að safna saman með bílum og
skipa út hér í stað þess að láta
skipin koma við á mörgum stöð-
um og sækja smá slatta.
Norðurgarðurinn, en þar er
athafnasvæði fyrir flutningaskip-
in. var í slæmu ástandi svo erfit
var að veita góða þjónustu
aðstöðunnar vegna. Hins vegar
Tafla 1 - Skipakomur (flutnlngaskip) í Dalvíkurhöfn
Samtais Ríklsskip Eimskip Samsklp Olíusklp Önnur
1982 93 16 11 22 11 33
1983 114 30 15 21 12 36
1984 98 31 5 17 14 31
1985 110 34 4 17 14 41
1986 180 63 18 18 18 63
1987 205 54 60 32 17 42
1988 258 60 73 42 35 48
1989 242 46 74 46 32 44
1990* 270 53 88 48 37 44
* Á árinu 1990 kom Eyjafjarðarferjan Sœfari 156 sinnumtil Dalvíkur, svo í raun voru skipakomur426
það ár.
Dalvíkurhöfn hefur lengst af
veriö dæmigerö höfn í sjávar-
byggö út á landi. Aö langmest-
um hluta byggð upp til þjón-
ustu fyrir fiskiskipaflotann og
til að skipa út afurðum sem
framleiddar eru í fiskverkunar-
stöövunum. En á þessu hefur
nú oröiö mikil breyting.
Undanfarin ár hefur umferð
fiutningaskipa aukist mjög
mikið og vörumagn sem hér
fer um höfnina sömuleiðis.
Flest bendir til að þessi þróun
haldi áfram og Dalvíkurhöfn
verði megin höfn á Eyjafjarð-
arsvæðinu og þá á Norðurlandi
um leið.
Það var á árinu 1986 sem
breytingar á þjónustunni við
var garðurinn endurbyggður á
árunum upp úr 1980 og lauk
endurbyggingunni snemma árs
1986. Aðstæður allar breyttust
mikið við þessar famkvæmdir. A
þessum árum var einnig öll flutn-
ingatækni að breytast. Gáma-
flutningar voru að aukast. Til-
koma gámanna opnaði einmitt
fyrir möguleika á þeirri þróun
sem síðar var hér við höfnina.
Gámanotkun við flutninga
breytti í raun öllum aðstæðum í
skipaflutningi. Sérbyggð flutn-
ingaskip fyrir gáma voru keypt
sem meðal annars hafði þau áhrif
að skip stoppa mun skemur í
hverri höfn. Mun skemmri tíma
tekur að koma vöru um borð
þegar hífa þarf einungis gáma
Uppfyllingin milli norðurgarðs og nýja brimgarðsins.
höfnina byrjuðu fyrir alvöru. Af
þeim töflum sem birtast hér í
blaðinu má lesa þessa þróun.
Fyrir 1986 breyttust skipakomur
og vörumagn lítið frá ári til árs.
Engu að síður mátti þá strax sjá
fyrir um að mál mundu þróst í þá
átt sem síðan hefur orðið. Á
árunum upp úr 1980 var talsvert
um borð í stað þess að koma
vörunum fyrir hverri fyrir sig í
skipunum eins og áður var. Hag-
kvæmi í sjóflutningum jókst
einnig við þetta. Hagkvæmnin
byggðist einnig á því að skipin
séu sem fljótust í förum. Það
leiðir af sér að betra er að safna
saman vörum af ákveðnum svæð-