Norðurslóð - 17.11.1992, Side 5
NORÐURSLÓÐ —5
Anton Angantýsson (t.v.) ræðir málin við Bjarka Elíasson, fyrrverandi yfir-
lögregluþjón í Reykjavík. Myndir; arh
Flæmingjarnir*
skemmta sér
- Vel heppnuð árshátíð Samtaka Svarfdælinga sunnan
heiða í veitingahúsinu Artúni í Reykjavík
Arshátíð Samtaka Svarfdæl-
inga sunnan heiða var haldin í
veitingahúsinu Artúni í
Reykjavík laugardaginn 7.
nóvember sl. Borðhaldið átti að
hefjast um kl. 19.30, en ákveðið
var að bíða eftir Beisa, Idda og
Sigga. Loks er vonir manna
voru farnar að dvína undir
hálfníu um að þeir myndu
mæta var matur fram borinn.
Kvöldverðurinn sá var vel úti
látinn og er ekki annað vitað en
hann hafi bragðast bærilega.
Nokkrir fullyrtu að villikryddað
lambið hefði jamiað af ánægju
eftir að hafa verið hesthúsað. Til
dæmis heyrðist Stjána á
Böggvisstöðum sitt lamb jarma
um óttubil:
vistin er mýkri í svarfdœlskum
maga
en mórautt að reika um sunnlenska
haga.
En það er ekki til neins að spyrja
Stjána um þetta núna.
Formaður stjómar Samtakanna
setti samkomuna og heyrðist ein-
staka feginsandvarp er hann sté úr
pontu. Við veislustjóm tók Atli
Rúnar Halldórsson og mátti ei á
milli sjá hvort hann naut þess eður
galt. Fyrstan á fjalimar boðaði
hann Þórarin Gullbringubónda
Eldjám sem minntist föðurtúna
sinna og var öllum ljóst er í Artúni
sátu að hann er sáróánægður með
að hafa þurft að eyða obbanum af
æsku sinni í að norpa í útsynningi
við sjoppur og Sundlaug Vestur-
Kolbrún Arngrímsdóttir les frétta-
pistil að norðan, en mikil leynd hvílir
yfir faðerni hans.
bæjar í stað þess að trítla berlærað-
ur um grænar grundir á Tjöm eða
taka sundsprett í skálanum í
Laugahlíð. Bót er þó í máli að nú
er ei til Gullbringu leiðin löng að
stökkva á gírstöng.
Guðrún Lóa Jónsdóttir heillaði
viðstadda með söng sínum og ekki
virtist baga hana undirleikur Kára
Gestssonar sem einnig lék á slag-
hörpuna „undir borðum“ ásamt
Dagmanni Ingvasyni og var það
allt rafmagnað. Fréttapistil að
norðan flutti Kolbrún Amgríms-
dóttir og var það bara magnað.
Dulnefni höfundarins verður birt í
Norðurslóð 7. nóvember árið 2042
og skírnamafn hans réttum fimm-
tíu árum þar í frá í sama biaði.
Verslunin Sogn ásamt versluninni
Það var dansað ótæpilega í Ártúni þótt marsinn þætti eitthvað snubbóttur.
Svanhildur Árnadóttir afhendir Gunnari Stefánssyni verðlaun í skyndihapp-
drætti kvöldsins, Atli Rafn Kristinsson, formaður félagsins, fylgist með.
Spaðanum á Dalvík lögðu sitt af
mörkum til hátíðarinnar með því
að gefa vinninga í skyndihapp-
drætti kvöldsins. Mættur var á
staðinn þingmaður Svarfdælinga
við Austurvöll nú um stundir,
Svanhildur Ámadóttir, og var
þingmaðurinn fenginn til þess að
draga í happdrættinu svo tryggt
væri að hann gerði eitthvert gagn
meðan hann dveldist sunnan heiða.
Kirkjukórinn okkar fyrir norðan
lét svo lítið að líta inn og „taka lag-
ið“ og eru kórfélögum færðar hér
bestu þakkir, ekki síst Guðrúnu frá
Þverá, Jóhanni frá Ytra-Hvarfi og
þeim söngstjórum Jóni Helga Þór-
arinssyni og Hlín Torfadóttur. Til
marks um sönginn má geta þess að
Magnús Ingimarsson sást nokkr-
um sinnum standa upp eins og í
leiðslu.
Á miðmunda miðnættis og óttu
var búist við því að Kristján Hjart-
arson stjómaði svarfdælskum
marsi. Hann mætti ekki sem gerði
kannski ekkert til því Haraldur
Hjaltason, varamaður hans, var til-
búinn með 29 afbrigði af marsin-
um. Hann kom þó ekki að nema
hálfu afbrigði þar sem dansgólfið í
Ártúni nær ekki 1.000 fermetrum.
Hin tuttugu og átta og hálfa af-
brigðið verða stigin á næstu árshá-
tíð í eilítið samþjöppuðu formi.
Segja má að hátíðinni hafi endan-
lega lokið er Jóhann Daníelsson,
alþýðutenór, tók lagið í anddyri
skemmtistaðarins er tvær stundir
lifðu eftir til miðs morguns.
CORVUS
* Aths. „Flæmingjar" er nafngift á
þeim sem flust - eða flæmst - hafa
burt úr Svarfaðardal og er ættað frá
Bimi Þórleifssyni. Það er ma. not-
að um árleg þorrablót brottfluttra á
Grundinni. Ritstj.
KOSTABOK
1. kostur:
2. kostur:
3. kostur:
4. kostur:
5. kostur:
Innstæða er alltaf laus.
Nafnvextir eru 3,75% eða
hærri, ef verðtrygging reynist
betri.
Innstæða án úttektar í24 mán. ber 5,75% nafnvexti.
Vextir færast tvisvar á ári.
Leiðréttingarvextir af úttekt
eru aðeins 0,3%.
Leyfðar eru tvær úttektir á
ári án vaxtaskerðingar.
KOSTABÓK er góður kostur
INNLANSDEILD KEA DALVIK
LfóóAcivei*tí(HJi/
e/*
. I œstu ot////' /oma (/uy/yo ó/ ma/ryar a/y'ar
/œ/ar
■ 7/ 'ö// á/ayao cr/ra /ó/a gy yar /omúui
^ ' Je /ó/m a/ay/ýstjœr/ //m /yó o/Aur
*$* A/e/um ó/oeya/í /œ/ur ár/'/a/Jar /JZö//m///m,
ejýau/aá e/' meáyyóá/unjyrt'roa/u
VNss /a/n'n r focj/t