Norðurslóð - 27.01.1993, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær
17. árgangur
Miðvikudagur 27. janúar 1993
1. tulublað
Fjölmenni var í Stekkjarhúsum í SkÍÐADAL 2. janúar sl. þegar hópur fólks á tveimur jafnfljót-
um lagði leið sína þangað, flestir lausfættir á harðfenninu. Einnig var þung umferð jeppa og vélsleða um afréttinn
þennan dag. Mynd: hjhj.
Fólksfækkun í Svarfaðardal
í janúarblaði Norðurslóðar fyrir
ári síðan voru birtar fólksfölda-
tölur fyrir Dalvík og Svarfaðar-
dal frá 1. des. 1991. Kom þar í
ljós gífurleg fjölgun í sveitinni
svo talað var í því sambandi um
„fólksfjöldasprengingu“ í æsi-
fréttastíl. Hafði hreppsbúum
fjölgað um 12 manns eða 4,44%.
En Adam var ekki lengi í para-
dís. Nú eru nýjar bráðabirgðatölur
komnar frá Hagstofunni frá því I.
desember 1992 og kemur þá í ljós
að Dalvíkingum liefur fjölgað lítil-
lega, eða um 0,6% úr 1495 í 1504.
Það eru samtals 9 manns (Fjölgaði
um 14 árið áður). En íbúum Svarf-
aðardalshrepps hefur hins vegar
fækkað úr 282 í 271 eða um 11
manns. Það er 3,9% fækkun! Til
samanburðar má geta þess að þjóð-
inni allri fjölgaði um 1,01% árið
1992. Þetta ætti að kenna manni að
sjaldan er flas til fagnaðar og ekki
er sopið kálið þó í ausuna sé kom-
ið. O, sei sei.
hjhj
Urkoman á Tjörn einu
sinni mælst meiri en 1992
Arsins 1992 minnast menn lík-
lega lengst sem kreppuárs í þjóð-
arbúskapnum sem einkenndist
af samdrætti í framleiðslu til
lands og sjávar samfara atvinnu-
leysi.
Veðurfarið sýndi þó ekki á sér
nein kreppumerki. Guðimir brugg-
uðu fjölbreytilegt tíðarfar með
ríkulegri úrkomu í bland. Hún
reyndist 678 mm að magni til en
það er næst mesta úrkoma sem
mælst hefur á Tjöm síðan athugan-
ir hófust þar árið 1969. Árið 1983
hefur vinningin með 688 mm.
Meðalársúrkoman hefur verið um
490 mm svo hér er um að ræða nær
200 mm umfram meðallag.
Mánuður Úrkoma Úrkomu-
mm dagar
janúar 95,5 17
febrúar 55,9 17
mars 38,5 21
apríl 14,4 12
maí 18,1 11
júní 63,1 16
júlí 12,6 9
ágúst 69,6 15
september 83,3 14
október 16,4 13
nóvember 93,3 18
desember 117,1 23
Alls 677,8 186
Það er sjaldgæft að mánaðarúr-
koman nái 100 mm en það gerðist
þó í desember. Þá mældist ofan-
koman 117 mm. Þetta er þó langt
undir desembermetinu, sem var
sett 1975, en þá var úrkoman
hvorki meiri né minni en 170 mm.
Þeir dagar sem mælanleg úrkoma
fellur kallast úrkomudagar. Oft
verður vart úrkomu sem þó er svo
lítil að hún mælist ekki. Slíkir dag-
ar tcljast ekki úrkomudagar. Úr-
komudagarnir í Tjöm 1992 urðu
186 eða annan hvem dag að jafn-
aði. Það er nálægt meðallagi.
Mesta sólarhringsúrkoman
mældist að morgni 14. jan. 27,3
mm og næsta morgun mældist hún
24,2. Þama féllu því rúmir 50 mm
eða drjúgur helmingur þess sem
mánuðurinn gaf. Janúar var raunar
allur mjög óvenjulegur. Á þrett-
ándanum gerði norðan hvell með
stormi og snjókomu. Eftir það var
skíðafæri gott í tvo daga en þá
gekk hann til sunnanáttar með 10-
12 stiga hita og stórrigningu þeirri
sem áður er nefnd. Vöxtur hljóp í
læki og ár svo vegaskemmdir urðu
af flóðuni og aurskriðum. Hlýindi
héldust svo út mánuðinn með auðri
jörð á láglendi. Veturinn var síðan
snjóléttur fram til vors.
í byrjum maí var snjór horfinn í
byggð en þó kom dálítill kulda-
kafli með snjóföl aðra viku mánað-
arins. Eftir20. maí varkomin sum-
artíð. Hitinn fór upp fyrir 20 stig í
nokkra daga svo tré laufguðust og
tún urðu iðjagræn á skömmum
tíma. I júní hélt blíðan áfram til
þess 20. Þá gerði stormatíð og síð-
an sannkallað hrakviðri sem náði
hámarki um Jónsmessu þegar jörð
varð alhvít um Norðurland. Fuglar
urðu fyrir þungum búsifjum og
ætla menn að ungar hafi misfarist í
stórum sífl. Mánuðurinn í heild er
úrkomusamasti júnímánuður sem
mælst hefur frá upphafi athugana á
Tjöm.
Sumarið leið síðan stórtíðinda-
lítið, heyfengur nægur, þokkaleg
uppskera í görðum og berjaspretta
góð. Fyrstu næturfrost komu ekki
fyrr en í október en það er fátítt.
Vetur var góður fram í desember
en þá gerði hríðarkafla mikinn sem
náði hámarki með fjögurra daga
grenjandi stórhríð um miðjan mán-
uð og ófærð. Um jól var tíðin góð
og síðan kvaddi árið með hátíðar-
brag og heiðum himni á gamlárs-
kvöld.
Allir þekkja þennan litla máv? Hann heitir á latínu Rissa
tridactyla, þ.e. með þremur tám. Almennt nefnd rita, enn
hér um slóðir oftast kölluð Skeggla.
Fuglar á vetri
✓
- Ovenjufáir fuglar sáust við árvissa
fuglatalningu í Svarfaðardal
Fuglatalning var gerð hér að
vanda á milli jóla og nýárs á
vegum Náttúrufræðistofnunar.
Dagurinn var 27. desember
1992. Teljarar voru þeir sömu
og fyrr og talningarsvæði þau
sömu.
Steingrímur Þorsteinsson í
Vegamótum lýsir veðrinu svo:
„Veður SV 3-4 vindstig, úr-
komulaust en skýjað. Hiti 3
gráður. Ár og vötn voru ísi lögð,
enda svellalög með meira móti og
allmikill snjór á jörðu. Ládauður
sjór, gott veður til talningar."
1. Steingrímur
Þorsteinsson
Svæði: Mynni Svarfaðardalsár- Brimnesá.
Stokkönd 22
Hávella 2
Straumönd 2
Æðarfugl 120
Toppönd 2
Sendlingur 12
Silfurmávur 33
Svartbakur 15
Hvítmávur 11
Auðnutittlingur 7
Hrafn 2
Ógreindir mávar 9
2. Haraldur
Guðmundsson
rafvirki, Dalvík
Svæði: Brimnesá-Sauðanes.
Stokkönd 3
Hávella 7
Straumönd 8
Æðarfugl 15
Sendlingar 18
Dílaskarfur 1
Stormmávur 2
Svartbakur 2
Bjartmávur 1
Langvía 5
Teista 1
Snjótittlingur 5
ógreindir mávar 4
3. Kristján E. Hjartarson
Tjörn
Svæði: Laugahlíð-Reiðholt-Há-
nefsstaðaskógur-Húsabakki.
Rjúpa 7
Auðnutittlingur . 5
Snjótittlingur 34
Eins og tölumar sýna hafa fugl-
ar verið venju fremur tegundafáir
og fáliðaðir hér að þessu sinni.
Líklega hefur staðið eitthvað ó-
venjulega á í náttúrunnar ríki,
dauðu og lifandi, um það leyti, sem
talning fór fram. Víst er, að nú,
þremur vikum síðar, er miklu
meira af fugli á sjónum, segja telj-
arar. Svo er t.d. um svartfugl, sem
skyttur drepa nú unnvörpum, svo
er um hávellu og svo er um æðar-
fugl.
Fyrir jólin sást brandugla nærri
Árgerðisbrúnni, músarrindlar hafa
sést og 27. nóvember sá Sigurjón í
Hlíð 2 fugla í skurði, sem hann tel-
ur hafa verið keldusvín. Hann sá
þau líka nokkrum sinnum á sumr-
inu sem leið. Ef það fengist stað-
fest væri það stórfrétt. Hver vill
fara á stúfana og freista þess að ná
mynd?
Tjörn 14.jan. 1993.
HEÞ.
Mánaðarleg úrkoma og fjöldi úrkomudaga
á Tjörn í Svarfaðardal árið 1992
120
100
80
60
40
20
0