Norðurslóð - 27.01.1993, Side 8

Norðurslóð - 27.01.1993, Side 8
Svarfdælsk byggð & bær Sæplast skráð á Verðbréfaþingi TIMAMOT Síðastliðinn föstudag tók gildi skráning hlutabréfa Sæplasts h/f á Verðbréfaþingi íslands. Þingið er hluti af þeim hlutabréfamark- aði sem hefur þróast upp á und- anförnum árum. Verðbréfaþinginu er ætlað að skapa meira traust á hinum veik- burða markaði því skráning á þing- inu er háð mun strangari upplýs- ingagjöf fyrirtækjanna en þau þurfa að sæta á opnum hlutabréfa- markaði. Sæplast var 12. fyrirtæk- ið til að fá skráningu. Fyrir voru nokkrir hlutabréfasjóðir ásamt Eimskip, Flugleiðum, Granda, Olís, Marel, Skagstrendingi og Þonnóði Ramma. Verðbréfaþingið áskilur að til þess komi allar upp- lýsingar um þau mál sem varða rekstur og stöðu fyrirtækja áður en tilkynnt er um slíkt til dæmis í fjöl- miðlum. Einnig skuldbinda fyrir- tækin sig til að senda ársuppgjör og að minnsta kosti sexmánaða uppgjör árlega. Almennt er gert ráð fyrir að hlutabréf fyrirtækja haldist í hærra verði ef þau eru skráð á Verðbréfa- þingi og að þeir sem fjárfesta í hlutabréfum geti betur treyst áreið- anleika upplýsinga um fyrirtækin. Sem dæmi um þetta er reiknað með að lífeyrissjóðir muni fyrst og fremst kaupa hlutabréf sem skráð eru þama. JA Skírnir A aðfangadag, 24 desember, var Auður Sif skírð í Dalvík- urkirkju. Foreldrar hennar eru Bryndís Brynjarsdóttir og Jón Heiðar Sveinsson, Skíðabraut 3, Dalvík. Á jóladagi 25. desember, var Anna Margrét skírð á Skáldalæk. Foreldrar hennar eru Guðný Hallsdóttir og Baldur Lárus Jónsson, Ægisbyggð 4, Ólafsfirði. Annan dag jóla, 26, desember, var Helena Rut skírð á Dal- bæ. Foreldrar hennar eru Ámý Hólm Stefánsdóttir og Kristmundur Sigurðsson, Karlsrauðatorgi 18, Dalvík. Annan dag jóla, 26. desember, var Hugrún Hanna skírð í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hennar eru Júlía Linda Ómars- dóttir og Stefán Jóhannesson, Steinahlíð 1 I, Akureyri. Á gamlársdag voru skírð í Dalvíkurkirkju systkinin Anna Elvíra og Vilhjálmur. Foreldrar þeirra eru Sigrún Bjama- dóttir og Þórir Vilhjálmur Þórisson, Hjarðarslóð 3 d, Dal- vík. 17. janúar var Alex Freyr skírður í Dalvíkurkirkju. For- eldrar hans eru Kristín Amgrímsdóttir, Goðabraut 23, Dal- vík og Douglas Odell búsettur í Connecticut í Bandaríkjun- um. Andlát 9. desember 1992 lést á Dalbæ, dval- arheimili aldraðra, Dalvík, Helga Vil- hjálmsdóttir frá Bakka. Helga fæddisl í Ölduhrygg í Svarf- aðardal 11. febrúar árið 1902, dóttir Vilhjálms Einarssonar og Kristínar Jónsdóttur. 8 af bömum þeirra hjóna komust til fullorðinsára og einnig elsta bam Vilhjálms. Þau em nú öll látin. Árið 1904 flutti fjölskyldan í Bakka, þar sem Helga ólst upp og við Bakka kenndi hún sig alla tíð. Fljótlega kom í Ijós að Helga lét fátt aftra sér í að láta það verða að veruleika er hún ætlaði sér, enda fékk hún til slíks stuðnings úr föðurhúsum. 1925 fór hún utan til náms, var fyrst í Danmörku og síðar í Noregi, þar sem hún nam m.a. handavinnu og fata- sauni. Eftir að heim kom kenndi hún í tvö ár í Ólafsfirði en dvaldi næstá áratug í Svarfaðardal þar sem hún hélt sauma- námskeið og saumaði einnig fyrir sveitungana. 1942 fór Helga til Blönduóss og kenndi þar við Kvennaskólann í 5 ár er hún fór að Húsmæðraskólanum að Varmalandi í Borgarfirði þar sem hún kenndi í tvo áratugi. Helga var mjög lipur í höndum og virtist sama hvers konar handavinnu hún snerti við. Margt er hún gerði má telja til listaverka, t.d. þjóðbúningana er hún saumaði. Helga eignaðist ekki börn en batt mörg tryggðarbönd, enda nutu jafnt ættingjar sem vandalausir hjálpsemi henn- ar, ekki síst ungviðið er hún kom nálægt. Hún sá að all nokkru leyti um uppeldi Gunnars Mostí, sem nú er látinn, og undir hennar vemdarvæng ólust fleiri upp. 1966 flutti Helga til Sauðárkróks, sá um föndur fyrir aldraða, þar til hún hætti allri kennslu 75 ára að aldri. Hún var á annað ár á Ellideild Sjúkrahússins á Sauðár- króki þár til hún kom á dvalarheimili aldraðra á Dalvík í júní 1992. Þar lést hún 90 ára að aldri. Helga var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 19. desember og jarðsett í Tjamarkirkjugarði. Annan dag jóla, 26. desember, lést á Landspítalanum í Reykjavík séra Stefán Snævarr fyrrverandi sóknar- prestur Vallaprestakalls. Stefán Erlendur Valdemarsson Snævarr fæddist á Húsavík 22. mars 1914 en ólst að mestu upp á Neskaup- stað. Foreldrar hans voru Valdemar V. Snævarr, skólastjóri, og kona hans Stefanía Erlendsdóttir. Stefán varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1936 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla íslands 1940. Vorið 1941 lét séra Stefán Kristinsson af embætti sóknarprests í Vallaprestakalli og var Stefáni Snævarr veitt kallið frá 1. júní það ár. Hlaut hann vígslu 15. sama mánaðar. Á þessum árum náði Vallaprestakall yfir sóknirnar þrjár í Svarfaðardal, Vallasókn, Tjamarsókn og Urðasókn; einn- ig Upsasókn, er hið vaxandi þorp Dalvík tilheyrði; sem og Árskógsströnd og Hrísey. Þetta var því umfangsmikið prestakall og vegalengdir miklar og má rétt geta sér þess til að annríki hefur oft verið mikið hjá sóknarprestinum ekki síst á hátíðum þegar messa þurfti á mörgum kirkjum og hvorki vegir né bílar eins góðir og við þekkjum nú. Hrís- eyjarprestakall var stofnað 1952 og tilheyra því bæði Hrís- eyjarkirkja og Stærri-Árskógskirkja. Stefán Snævarr þjón- aði þessum kirkjum þó síðar í aukaþjónustu sem og kirkj- um Möðruvallaprestakalls. Töluvert lengur og oftar þjón- aði hann í aukaþjónustu nágrönnum sínum í Ólafsfjarðar- prestakalli og lætur nærri að sú þjónusta hafi staðið hátt í þrjú ár frá árinu 1968 þegar allt er talið saman. Voru að- stæður oft erfiðar til ferða fyrir Múlann en þessa þjónustu taldi Stefán ekki eftir sér að inna af hendi eins og vel og kostur var. Prófastur Eyjafjarðarprófastsdæmis var Stefán skipaður frá 1. nóvember 1968 og gegndi því embætti þar til hann lét af starfi sóknarprests. I stjóm Prestafélags Hóla- stiftis var hann frá árinu 1968. 1. júní 1947 kvæntist Stefán eftirlifandi konu sinni, Jónu Magneu Gunnlaugsdóttur frá Sökku í Svarfaðardal og eignuðust þau þrjú börn, Stefaníu Rósu, Gunnlaug Valde- mar og Ingibjörgu Amfríði. Þau hjón bjuggu á Völlum næstu tvo áratugina og ráku þar ágætt kúabú. Stefán gegndi trúnaðastörfum fyrir sitt sveitarfélag og tók þátt í félags- málum, söng með karlakórnum og var einn af stofnfélög- um Lionsklúbbs Dalvíkur. Síðla árs 1968 fluttu Stefán og Jóna til Dalvíkur og áttu heimili að Hólavegi 17 næstu 16 árin. 30. september 1984 lét Stefán af embætti sóknarprests Dalvíkurprestakalls, sjötugurað aldri eftir43 ára farsæla þjónustu. Margt kemur upp í hugann þegar litið er til baka, stórar hátíðarstundir, eins og vígsla Dalvíkurkirkju, sem og fjölmargar stundir í gleði sem sorg. Fyrir allt starf sr. Stefáns þakka sóknar- böm í Svarfaðardal og Dalvík af hlýhug. Það var ætíð gott að koma til þeirra hjóna, bæði hlý í viðmóti og gestrisin og margir heimsóttu þau, einnig eftir að þau fluttu suður. Áttu þau hjón síðast heimili að Valhúsabraut 17. Stefán var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík 6. janúar. 13. janúar 1993 lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri Jónas Hall- grímsson, Bjarkarbraut 1, Dalvík. Jónas fæddist á Melum í Svarfað- ardal 28. október árið 1910, yngstur fimm bama Hallgríms Halldórssonar og konu hans og Soffíu Baldvinsdótt- ur. Hann lærði bílaviðgerðir á Akur- eyri, stofnaði verkstæði eftir það og rak sjálfur til 1947 er Kaupfélagið keypti verkstæðið af honum. Starfseminni stýrði hann þó áfram til ársins 1978. Starf Jónasar við smíðar og viðgerðir tengist mjög atvinnuuppbyggingu á Dalvík og í Svarfaðar- dal því verkstæði hans liðsinnti jafnt sjómönnum og út- gerðum sem bændum eða bæjarbúum. Vart var það nokk- uð sem Jónas gat ekki bjargað enda var útsjónarsemi hans og verklagni einstök. Ungur fór hann að aka bíl og ferðað- ist hann mikið um landið. Myndasafnið hans er stórt í sniðum, landslagsmyndir er hann tók í ferðum sínum eða göngutúrum um næstu fjöll, eða þá mannamyndir og myndir af atburðum á Dalvík og Svarfaðardal. Prýða margar þeirra Sögu Dalvíkur og eru mikilsverð heimild um liðna tíð. Jónas hafði næmt eyra fyrir tónlist, spilaði sjálfur á harmoniku og fleiri hljóðfæri. Ætíð hafði hann nóg fyrir stafni, léttur í lundu og þakklátur og sáttur með sitt hlut- skipti í lífinu. 1937 kvæntist Jónas Hrefnu Júlíusdóttur frá Sunnuhvoli og eignuðust þau þrjú böm; Þóru Nönnu, Höllu Soffíu og Júlíus Óskar sem búsett eru í Reykjavík. Hrefna lést árið 1990 en Jónas bjó áfram í Bjarkarbraut 1, er hann byggði á sínum tíma, og átti þar heimili til æviloka. Jónas var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 22. janúar. 14. janúar lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, Dalvík, Óskar Kristinn Júl- íusson, Kóngsstöðum. Óskar fæddist 8. maí árið 1892 á Hverhóli í Skíðadal sonur Júlíusar Hallssonar og Kristínar Ágústu Rögn- valdsdóttur. Hann var yngstur í hópi fjögurra alsystkina en eldri þeim var hálfbróðir. 1916 byrjaði hann búskap í Hver- hóli ásamt konu sinni Snjólaugu Aðalsteinsdóttur frá Hreiðarsstöðum. Þar áttu þau heima í 9 ár er þau hófu bú- skap á Kóngsstöðum hvar þau bjuggu til 1949. Við þann bæ kenndi ðskar sig ætíð síðan og átti þar lögheimili til dauðadags. Óskar og Snjólaug eignuðust 6 böm en þau eru: Aðal- steinn Sveinbjörn, Kristín, Valdemar, Friðrikka Elísabet, Ástdís Lilja og Ámi Reynir. Smíðar stundaði Óskar töluvert jafnhliða búskapnum enda var fátt til af aðkeyptum áhöldum hér á landi fyrri hluta þessarar aldar. Voru margir sem leituðu til hans um aðstoð í þessum efnum. En auk þess að stunda búskap á sinni jörð var Óskar vegaverkstjóri í áratugi og minntist stundanna frá þeirri vinnu með mikilli gleði. Hann kom víða við í félagsmálum sveitarinnar, var stofnfélagi tveggja ungmennafélaga, var í hreppsnefnd og ýmsu fleiru. Minnistæðar eru samferðar- mönnum samkomumar á Kóngsstöðum til styrktar braut- arlagningu um sveitina. Minnisgóður var Óskar svo ein- stakt var alla sína ævi og kunni hann geysimargar vísur sem hann gladdi samferðarfólk oft með í samræðum. Eftir að Óskar og Snjólaug flutti til Dalvíkur vann Óskar ýmsa almenna vinnu, heyjaði þó á sumrin á Kóngsstöðum og hafði skepnur á Dalvík. 1979 fluttu þau hjón inn á Dalbæ, heimili aldraðra. Lést Snjólaug þar 1980. Öskar hélt þar upp á 100 ára afmæli sitt á síðasta ári og var hann staðráðinn í að ná þeim merkis- áfanga þrátt fyrir að líkaminn væri farinn að gefa sig. En hugurinn var skýr, minnið einstakt og gamansemin sem fyrr þrátt fyrir aldurinn. Óskar var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 23. janúar. 15. janúar lést að heimili sínu, Hjarðarslóð 4e, Dalvík, Ingvi Björn Antonsson. Ingvi fæddist á Dalvík 5. febrúar árið 1928, sonur Antons Antonssonar frá Hamri og Sólveigar Hallgríms- dóttur frá Ytra-Garðshorni. Var hann yngstur í hópi fimm systkina. Móður sína missti hann ungur og ólst upp hjá frændfólki sínu á Hrísum frá 6 ára aldri ásamt systkinum sínum. Hugur Ingva stóð til búskapar, að hirða skepnur og rækta, og fór hann til Noregs í búnaðamám og lauk þaðan prófi eftir tveggja ára nám. Vann hann um tíma eftir það í Danmörku. Eftir að hann kom aftur hingað til íslands hóf hann störf við búið á Vífilsstöðum. Þar var hann í eitt ár þar til hann réðst sem bústjóri að Bessastöðum á Álftanesi og var þar í tólf ár. 1957 kvæntist Ingvi eftirlifandi konu sinni Valgerði Guðmundsdóttur frá Seljabrekku í Mosfellssveit. Eignuð- ust þau fjögur böm Guðmund, Petru, Anton og Bjamveigu auk þess sem Magnea Þóra Einarsdóttir ólst upp hjá þeim. 1968 flutti fjölskyldan norður í Svarfaðardal og keyptu jörðina Hrísa þar sem þau hjón höfðu búskap í 7 ár. Þá seldi þau jörðina, fluttu til Dalvíkur og fór Ingvi að vinna hjá bænum. Var hann um tíma verkstjóri þar, uns hann tók að sér starf vigtarmanns sem hann gegndi allt til síðustu stund- ar. Sumarbústað kom hann sér upp í landi Hamars, sem hann vann við af þeim dugnaði og kappi er einkenndi öll hans störf. Þar fékk hann einnig útrás fyrir þörf sína að vera í tengslum við náttúruna og vera úti við, og þar gat hann ræktað og sáð. Ingvi var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 23. janúar. JHÞ 30. desember 1992 lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri Friðrika Ár- mannsdóttir. Skíðabraut 6, Dalvík. Friðrika Sigríður fæddist í Botni í Þorgeirsfirði 23. september 1913. Hún fluttist með foreldrum sínum, Ár- manni Sigurðssyni og Elínu Sigur- hjartardóttur, í Urðir í Svarfaðardal árið 1916 þar sem hún ólst upp í hópi systkina, en þau vom Anton, Marta, Hjörtur, Sigurður og Soffía. Friðrika fór í Kvennaskólann á Laugalandi í Eyjafirði þegar sá skóli var endurvakinn og útskrifaðist með fyrsta hópnum þaðan vorið 1938. Árið 1944 giftist Friðrika Gunnari Jónssyni, síðar hafn- arverði á Dalvik. Þau bjuggu lengst í húsinu Björk, Skíða- braut 6, og var alla tíð mjög gestkvæmt á því heimili, enda húsráðendur með afbrigðum gestrisin og höfðingjar heim að sækja. Friðrika og Gunnar eignuðust 3 böm. Þau eru Ármann, dýralæknir í Laugasteini, kona hans er Steinunn P. Hafstað og eiga þau 4 dætur; Ottó, stýrimaður á Dalvík, kona hans er Friðbjörg Jóhannsdóttir, þau eiga 3 böm; Elín Jóhanna, fulltrúi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, hennar maður er Sævar Ingi Jónsson lögreglumaður, Elín á 2 syni. Friðrika var jarðsungin frá Dalvikurkirkju 9. janúar síð- astliðinn. Séra Þórhallur Höskuldsson jarðsöng.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.