Norðurslóð - 26.05.1993, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 26.05.1993, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær 17. árgangur Miðvikudagur 26. maí 1993 5. töiubiað Skipstjóraefni af II. stigi ásamt Þórunni skólastjóra. Mynd: Bæjarpóstur/hk Dalvíkurskóli: Sjávarútvegs- deildinni slitið sem er fyrsta ár á fiskvinnslubraut meðal annars. I námi á skipstjóm- arbraut voru 23, þar af tólf á öðru stigi en ellefu á fyrsta stigi. Þá luku sjö prófi af þriðja árs námi á fisk- vinnslubraut. Fimm stunduðu nám á öðru ári fiskvinnslubraut. Ýmsar viðurkenningar voru veittar nemendum. Þótt saga deild- arinnar sé ekki löng hafa skapast ýmsar venjur varðandi viðurkenn- ingar. Skipstjómarfélag Norðlend- inga veitir árlega viðurkenningu fyrir bestan árangur í siglingar- fræðum þau hlutu nú Stefán Geir Jónsson og Þórður Birgisson af öðru stigi og Amar Bragason af fyrsta stigi. Útvegsmannafélag Norðurlands veittir verðlaun fyrir hæstu meðaleinkun í stýrimanna- deild þau hlutu nú Sigurður Ægir Birgisson á öðru stigi og Amar Bragason fyrsta stigi. Sparisjóður Svarfdæla veittir verðlaun fyrir góðan árangur í verklegri frystingu en þau hlutu Ingólfur Hjaltalín, Dagný Harðar- dóttir og Þórey Eiríksdóttir. Einnig fengu Geir Stefánsson af öðm stigi og Skafti Atlason af fyrsta stigi verðlaun frá Sparisjóðnum. En frá skólanum fengu eftirtalin viður- kenningu af fiskvinnslubraut Ing- ólfur Hjaltalín og Valborg Stefáns- dóttir og af strýrimannabraut Guð- mundur Freyr Guðmundsson, Þórður Birgisson, Guðbjartur H. Kristjánsson og Bergur Einarsson. Það vom þau Hulda Amsteins- dóttir deildarstjóri sjávarútvegs- deildarinnar á Dalvík og Bemharð Haraldsson skólameistari VMA sem afhentu nemendum prófskír- teini og útskrifuðu nemendur. I lokin var síðan þjóðsöngurinn leik- inn. JA Ferðafélagið komið á ról Eins og fram kom í síðasta blaði er nýtt líf hlaupið í starf- semi Ferðafélags Svarfdæla og hefur nú sumaráætlun félags- ins verið kynnt í fjölmiðlum hér á svæðinu. En sjaldan er góð vísa of oft kveðin og því birtum við hér áætlunina svo menn megi festa hana sér í minni eða upp á vegg eftir hentugleikum. Hafnasamlagið loks að veruleika / / - Stefnt að því að sveitarstjórnir Dalvíkur, Olafsfjarðar og Arskógshrepps afgreiði stofnsamninginn í júnímánuði Laugardagur 8. maí - Gönguferð í Stekkjarhús Mánudagur 21. júní - Kvöldferð upp í Lokugamir (Ofan við Hámundarstaða- háls) Laugardagurinn 3. júlí - Gengið á Kerlingu Sunnudagurinn 25. júlí - Rútu- og gönguferð í Austurdal í Skagafirði ásamt Ferða- félaginu Hörgi í Hörgárdal Helgin 14.-15. ágúst - Gönguferð á Tungnahrygg. Unnið að viðhaldi skálans og gist þar eina nótt Eins og glöggir lesendur ef- laust sjá hefur ein ferðin þegar Það var annasamt við Dalvíkurhöfn á uppstigningardag. Verið var að landa rækju úr Náttfara sem er í viðskiptum við Söltunarfélagið og utar var verið að hífa frystigáma um borð í Reykjafoss. Mynd: -ÞH Dalvíkurskóla verður slitið næstkomandi föstudag 28. maí það er að segja grur.nskólanum. Hins vegar var sjávarútvegs- deildinni slitið sunnudaginn 16 maí sl. Athöfnin fór fram í Dal- víkurkirju og hófst með því að nemendur úr Tónlistaskólanum léku nokkur lög. Þórunn Bergs- dóttir skólastjóri bauð síðan nemendur og gesti velkoma en gaf svo Gunnari Ragnars for- stjóra ÚA orðið sem flutti ræðu og lýsti sinni sýn á málefni sjáv- arútvegsins. Þessu næst flutti Þórunn skóla- stjóri skólaslitaræðu þar sem hún rakti það helsta sem einkenndi starf sjávarútvegsdeildarinnar. Nemendur vom 65 í vetur, þar af 30 á fyrsta ári í framhaldsskóla Nú sér fyrir endann á stofnun hafnasamlags þar sem hafnar- sjóðir Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Arskógshrepps verða sameinað- ir. Stofnsamningur var að mestu leyti frágenginn á sl. hausti, en þá var ákveðið að bíða með stofnun samlagsins þar til hafna- málaáætlun fyrir árin 1993-96 yrði frágenginn. Nú liggur hún fyrir í grófum dráttum og kom stofnsamningurinn til fyrri um- ræðu í bæjarstjórn Dalvíkur í gærkvöldi, þriðjudag. Gert er ráð fyrir að sveitar- stjómimar þrjár afgreiði stofn- samninginn í júnímánuði og tekur samlagið þá strax til starfa. Bók- hald hafnanna verður með óbreytt- um hætti til áramóta en þá öðlast samlagið sjálfstæðan fjárhag og rekstur þess verður aðskilinn frá sveitarsjóðunum. Fyrirhugað er að ráða hafnarstjóra fyrir samlagið en það mun hafa skrifstofu á Dalvík. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á starfsmannahaldi til að byrja með, en starfslýsingar endurskoðaðar og störfín endurmetin í ljósi breyttrar starfsemi. Stjóm samlagsins verður skip- uð tveim fulltrúum frá hverju sveitarfélagi, en sjöundi maðurinn verður til skiptis fulltrúi Ólafs- fjarðar og Dalvíkur. Formaður verður frá þeim kaupstaðnum sem á tvo fulltrúa í stjóm og færist for- mennskan milli kaupstaðanna á miðju kjörtímabili stjómar sem verður fjögur ár. Þessi skipan kem- ur þó ekki til framkvæmda fyrr en að afstöðnum sveitarstjómarkosn- ingum næsta vor, fram að þeim verður samlaginu skipuð bráða- birgðastjóm. Eins og fram kom hér í blaðinu í vetur hljóp nokkur snurða á þráð þessa hafnasamlags þegar þing- menn tóku til við að útdeila fjár- magni til framkvæmda við hafnir landsins næstu árin. Þá var útlit fyrir að hlutur Dalvíkur, eins og hann var skilgreindur í fram- kvæmdaáætlun samlagsins, yrði fyrir borð borinn. Þann 18. maí sl. var hafnaáætl- un fyrir árin 1993-96 rædd í ríkis- stjóm. Þar var ákveðið að fresta endanlegri ákvörðun til haustsins en þó teknar þær ákvarðanir sem nægðu til þess að eyða óvissu um framkvæmdir á Dalvík. En hvað hefur breyst, Kristján Þór Júlíus- son bæjarstjóri? „Það sem breyttist var að við sjáum núna betur fyrir starfsemi þessara hafna næstu fjögur árin, ekki bara héma heima heldur einn- ig samvinnu sveitarfélaganna inn- byrðis og við samgönguráðuneyt- ið. Eins og málin litu út í vetur var ekkert á dagskrá í hafnarfram- kvæmdum hér á Dalvík fyrr en í fyrsta lagi árin 1995-96. Nú er ljóst að gerðar verða líkantilraunir með brimvamargarð á þessu ári og haf- ist handa við hann næsta sumar. Á Árskógssandi verður bryggjan lengd um 70 metra á þessu ári og lokið við þverbryggjuna í Ólafs- firði. Á ámnum 1995-96 verða steyptar þekjur á Ólafsfirði og Árskógssandi og rekið niður stálþil við Norðurgarðinn á Dalvík.“ - Hver er ávinningiirinn af þessu samlagi? „Hann er fyrst og fremst sá að til lengri tíma litið sparar þetta í fjárfestingum í höfnunum öllum auk þess sem það auðveldar sveit- arfélögunum að reka hafnimar með sem minnstum tilkostnaði. Sá spamaður á svo að koma notend- um hafnanna til góða.“ Dalvíkurhöfn er þegar farin að virka sem útflutningshöfn fyrir sveitarfélögin þrjú og þá vaknar spumingin hvort Dalvík sé ekki komin í bullandi samkeppni við Akureyrarhöfn um flutninga til og frá Eyjafjarðarsvæðinu öllu. „Nei, ég held ekki að það verði mikil samkeppni þama á milli,“ segir Kristján Þór. „Þvert á móti held ég að næsta umhugsunarefni eftir að við sjáum hvemig hafna- samlagið virkar ætti að vera sam- starf við Akureyrarhöfn, jafnvel hafnasamlag. Dalvíkurhöfn getur aldrei komið í staðinn fyrir Akur- eyrarhöfn. Hins vegar er það kjam- inn í þeirri umræðu sem nú á sér stað um sameiningu sveitarfélaga að sameinuð eigi þau að fá að ann- ast þá þætti sem þau em fær um. Við eigum ekki að þurfa að flytja vömr héðan til Akureyrar til þess að flytja þær þaðan út, né heldur að sækja aðföng okkar þangað. Á þessu hefur sem betur fer orðið mikil breyting til batnaðar undan- farin ár og hún mun halda áfram.“ Eins og áður segir er ætlunin að afgreiða stofnsamninginn áður en sveitarstjómimar þrjár'fara í sum- arfrí. Með plöggunum sem nú em til umræðu er yfirlit yfir rekstur og fjárhagsstöðu hafnanna þriggja á síðasta ári. Þar kemur í ljós að tekj- ur hafnanna voru samtals 41,6 milljónir króna, þar af voru tekjur Dalvíkur rétt tæpar 22 milljónir, Ólafsfjarðar 13,4 milljónir og Ár- skógshafnar 6,2 milljónir króna. -ÞH Fyrsta ferð hins nýendurreista Ferðafélags Svarfdæla var farin 8. maí oglá ieiðin fram í Stekkjarhús í Skíðadal. Mynd: hjhj verið farin. Var það hressandi göngutúr í hlýjum hnjúkaþey fram í Stekkjarhús nokkru áður en vetrarríkið helltist yfir okkur. 28 manns á öllum aldri vom mættir til leiks. Var á göngufólk- inu að heyra að þetta hefði verið hin ánægjulegasti túr. Næsta ferð verður þá einskonar miðnætur- sólaferð upp í Lokugamir á Jóns- messunni ef ekki snjóar. hjhj

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.