Norðurslóð - 26.05.1993, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 26.05.1993, Blaðsíða 6
TímamóT Hjónavígsla 22. maí voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Katrín Sigurjónsdóttir og Haukur Snorrason (frá Krossum). Heimili þeirra er að Lokastíg 1, Dalvík. Fermingarbörn í Dalvíkurkirkja, hvítasunnudag, 30. maí 1993. Árni Rúnar Jóhannesson, Hjarðarslóð 2 d Ásta Sóley Sigurðardóttir, Hófgerði 4, Kópavogi Berglind Björk Stefánsdóttir, Böggvisbraut 6 Brynjar Þór Eggertsson, Böggvisbraut 13 Dana Rún Albertsdóttir, Dalbraut 1 Egill Einarsson, Sunnubraut 4 Einar Logi Vilhjálmsson, Ægisgötu 2 Erlendur Vilberg Pálmason, Stórhólsvegi 4 Eygló Sveinbjörnsdóttir, Dalbraut 14 Guðný Hólm Þorsteinsdóttir, Jarðbrú, Svarfaðardal Guðrún Inga Hannesdóttir, Karlsrauðatorgi 26 Guðrún María Jónsdóttir, Ægisgötu 1 Halla Björg Davíðsdóttir, Karlsbarut 20 Harpa Þorvaldsdóttir, Mímisvegi 5 Inga Lára Óladóttir, Goðabraut 4 Ingvar Hermannsson, Brimnesbraut 11 Jónas Tryggvi Jóhannsson, Sognstúni 4 Kolbrún Einarsdóttir, Karlsbraut 8 Kristinn Kristjánsson, Hringtúni 4 Lárus Ingi Antonsson, Sunnubraut 10 Logi Sigurjónsson, Karlsbraut 7 Marinó Heiðar Svavarsson, Skíðabraut 11 Rut Berglind Gunnarsdóttir, Svarfaðarbraut 4 Sólveig Dögg Jónsdóttir, Dalbraut 8 Steingrímur Sigurðsson, Dalbraut 2 Sturla Már Bjarnason, Sunnubraut 2 Sunna Björk Bragadóttir, Svarfaðarbraut 2 Sædís Þorsteinsdóttir, Böggvisbraut 4 Þorleifur Kristinn Árnason, Dalbraut 4 Fermingarbörn í Tjarnar-, Valla- og Urðasóknum, fermd 13. júní 1993 Ella Vala Ármannsdóttir, Laugasteini, Svarfaðardal Gísli Davíð Sævarsson, Völlum, Svarfaðardal Hallur Geir Heiðarsson, Skíðabraut 3, Dalvík Linda Geirdal, Hreiðarsstaðakoti, Svarfaðardal Sandra Björk Marteinsdóttir, Skeiði, Svarfaðardal Norðurslóð ámar heilla. Andlát 26. apríl lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri, Vilborg Andrea Guðmundsdóttir, Kambhóli, Dalvík. Vilborg fæddist á Raufarhöfn 11. júní árið 1937 dóttir Guðmundar Jónassonar og Fann- eyjar Jóhannesdóttur. Hún var yngst í hópi sex systkina, en þau eru auk hennar: Þorbjörg, Karl Hermann, Halldóra, Haraldur og Magnús. Eftir að æskuárunum á Raufarhöfn lauk fór Vilborg að vinna fyrir sér og vann næstu árin við ýmis störf bæði til sjávar og sveita. Árið 1961 flutti hún til Dalvíkur og hóf búskap með eftirlifandi eigin- manni sínum Jóni Sölva Stefánssyni frá Miðbæ í Svarfaðadal. Keyptu þau Kambhól á Dalvík það ár og þar hefur verið heimili þeirra síðan. Þau hjón eignuðust þrjár dætur, Fanneyju, er býr í Ólafsfirði, Sigurlínu, er býr á Akureyri, og Þómnni, er býr á Akureyri. Vilborg annaðist fjölskyldu sína og heimili að mestu leyti fyrstu búskaparár sín á Dalvík en fyrir um tveimur áratugum hóf hún einnig að vinna á Frystihúsinu. Gegndi hún því starfi meðan hún gat, eða þar til veikindi hennar komu í ljós, fyrstu árin hluta úr degi en hin síðari ár í fullu starfi. Þeir sem kynntust Vilborgu þekktu að þar fór kona með ríka réttlætiskennd, sem átti og auðvelt með að setja sig í spor þeirra er þörfnuðust aðstoðar af einhverju tagi eða voru minni máttar. Mörgum liðsinnti hún með ýmsu móti og til hennar var ætíð gott að leita. Gagnvart sjálfri sér var hún á hinn bóginn mjög nægjusöm og veitti sjálfri sér næsta lítið um ævina en hugsaði þeim mun meira um að gefa öðrum af því er henni hlotnaðist. Fyrir um ári síðan greindist Vilborg með þann sjúkdóm er ekki reyndist unnt að lækna en hún barðist við hann af viljafestu og einurð með hjálp síns fólks. Vilborg var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 4. maí. FréttahorniÐ Fráfarandi formaður Sambands eyfirskra kvenna, Ragnheiður Sigvalda- dóttir, býður nýja stjórn velkomna til starfa, en í henni eru frá vinstri: Þórdís Olafsdóttir ritari, Guðbjörg Ragnarsdóttir formaður og Svana Halldórsdótt- ir gjaldkeri. Þann 30. apríl sl. voru formlega sameinuð tvö kvenfélagasam- bönd í Eyjafirði, Samband ey- firskra kvenna með 6 kvenfélög norðan Akureyrar og Héraðssam- band eyfirskra kvenna með 3 kvenfélög. Sameiningarfundurinn var haldinn hátíðlegur á Fiðlaran- um á Akureyri þar sem mættar voru 80-100 konur af svæðinu öllu. Meðal gesta var formaður Kvenfélagasambands íslands, Stefanía María Pétursdóttir sem ávarpaði samkomuna. Stjómendur þessa hátíðarfundar voru fráfar- andi formenn sambandanna tveggja, Gerður Pálsdóttir Hrafna- gili og Ragnheiður Sigvaldadóttir Dalvík. Sambandið hlaut nafnið, Samband eyfirskra kvenna, og í því em nú á fjórða hundrað konur. Stjóm sambandsins skipa Guð- björg Ragnarsdóttir, Hauganesi, formaður, Þórdís Ólafsdóttir, Hranastöðum í Eyjafjarðarsveit, ritari, og Svana Halldórsdóttir á Melum í Svarfaðardal, gjaldkeri. Húsabakkaskóla var sagt upp þann 15. maí s.l. við hátíðlega athöfn að vanda. Síðastliðið skóla- ár vom 47 nemendur í skólanum og var skólastarfið með svipuðu sniði og undanfarin ár. I skólaslita- ræðu sinni upplýsti Helga Hauks- dóttir skólastjóri að næsta skólaár yrði starfstími skólans átta og hálf- ur mánuður í stað átta mánaða eins og verið hefur. Þá kynnti Helga hugmynd sem hún hefur um nokk- urt skeið gengið með í kollinum en er nú ásamt Þóru Rósu Geirsdóttur byrjuð að undirbúa framkvæmd á. Hugmyndin gengur út á nokkurs konar fullorðinsfræðslu í skólan- um þar sem boðið verður upp á lengri eða skemmri námskeið að margvíslegum toga fyrir alla sem áhuga hafa. Er þá hugmyndin að nýta þá aðstöðu sem fyrir hendi er s.s. kennslustofur, bókasafn og hvers kyns kennslugögn og jafnvel kennara auk þess sem fengnir yrðu utanaðkomandi kennarar til að halda námskeið. Eftir skólaslitin var foreldmm og öðmm gestum að vanda boðið í kaffi og að skoða sýningu á handavinnu nemenda ásamt öðrum sýnishomum af vinnu þeirra við skólann í vetur. Vertíð knattspymufólks er að hefjast og þótt fylgismenn 3. deildarliðs Dalvíkur hafi ekki haft ýkja mikla ástæðu til að fagna árangri sinna manna síðasta sumar þá vekur upphafsleikurinn í ár vonir um betri tíð með blóm í haga. Dalvíkingar tóku á móti liði Borg- nesinga, Skallagrími, sl. föstudag og lögðu þá að velli með sannfær- andi hætti. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Dalvík. Þetta veit vonandi á gott fyrir sumarið. Næstu stórátök dal- vískra knattspymumanna af karl- Mynd: SH kyni voru í gær þegar þeir mættu 2. deildarliði Tindastóls í 1. uinferð Mjólkurbikarkeppninnar, en úrslit þess leik þekkjum við ekki. Kon- umar hefja keppni í 2. deild B á laugardaginn þegar Völsungur frá Húsavík kemur í heimsókn. Þjálf- ari karlaliðsins hefur verið ráðinn Eiríkur Eiríksson en Þómnn Sig- urðardóttir þjálfar meistaraflokk kvenna. Nú er að ganga eftir það sem Norðurslóð spáði í síðasta tölublaði, sem sé að Dalvíkurbær myndi kaupa hús undir einkarek- inn leikskóla. Gengið hefur verið frá kaupum á húsinu Hólavegi 1 sem liggur að gæsluvelli bæjarins. Og fyrir bæjarstjómarfundi í gær- kvöld lá útboðslýsing vegna leik- skóla. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að skólinn geti tekið við 25 bömum í heilsdagsvistun. Tilboð- um á að skila fyrir miðjan júní, en reksturinn á að hefjast 1. septem- ber. Sparisjóður Svarfdæla: Sameiningin staðfest Formleg sameining Sparisjóðs Hríseyjar, Árskógsstrandar og Svarfdæla átti sér stað hinn 1. maí sl. Þann dag var haldinn há- tíðarfundur í Víkurröst þar sem lokið var aðalfundarstörfum Sparisjóðs Svarfdæla og sérstök dagskrá var í tilefni sameining- arinnnar. Á fundinum var kosið í fulltrúaráð Sparisjóðssins. Fulltrúaráðið kom síðan saman 15. maí sl. og kaus nýja stjórn fyrir hinn sameinaða sparisjóð Sparisjóð Svarfdæla. Eins og fram kom í síðasta tölu- blaði Norðurslóðar var í mars ákveðið af öllum stjómum spari- sjóðanna að leggja til við aðalfundi þeirra að sameina þá. Aðalfundim- ir samþykktu síðan sameininguna 3. apríl og þurfti þá að ganga frá ýmsum formsatriðum, svo sem nýjum samþykktum fyrir sparisjóð Svarfdæla sem em samþykktir fyr- ir hinn sameinaða sjóð. Þá þurfti að fá samþykki viðskiptaráðherra fyrir sameiningunni. Oll forms- atriði vom frágengin 1. maí og var þá haldinn fundur sem jafnframt var fyrsti fundur hins sameinaða sparisjóðs. Fundurinn var haldinn í Víkur- röst sem var í hátíðarbúningi þenn- an dag. Lúðarsveit Tónlistaskóla Dalvíkur tók á móti fundarmönn- um í forstofu Víkurrastar með ljúf- um tónum. Lúðarasveitin lék síðan þar til fundur byrjaði og setti þegar í upphafi hátíðarblæ á samkom- una. I upphafi fundar var aðalfund- arstörfum Sparisjóðs Svarfdæla sem hófust á fundinum 3. apríl lokið með því að kosnir vom 15 úr hópi stofnfjáreigenda í fulltrúaráð Sparisjóðsins. Síðan var dagskrá í tilefni smeiningarinnar. Formaður stjómar Sparisjóðs Svarfdæla, Guðríður Olafsdóttir, lýsti aðdraganda sameiningarinnar og tilkynnti að öll tilskilin leyfi væru fengin og því teldust spari- sjóðimir nú sameinaðir. Vera Sig- urðarsóttir frá Hrísey og Sveinn Jónsson Árskógsströnd fiuttu ræðu og ámaðaróskir úr sínum byggðar- lögum í tilefni sameiningarinnar. Sérstakur heiðursgestur fundarins var Baldvin Tryggvason formaður Sambands íslenskra sparisjóða og flutti hann ræðu þar sem hann fagnaði þessum atburði sérsaklega og taldi hann merkan í sögu spari- sjóðanna hér á landi. Þá flutti bæj- arstjórinn á Dalvík Kristján Þór Júlíusson ávarp og ámaðaróskir frá sveitarstjómunum á starfssvæði sparisjóðsins. Tjamarkvarttetinn söng síðan nokkur lög og að því loknu var öll- um viðstöddum boðið til kaffi- drykkju. Þar flutti Bjöm Jónasson sparisjóðsstjóri á Siglufirði ávarp og flutti kveðjur og ánaðaróskir frá sparisjóðunum hér við Eyjafjörð. Meðal gesta vom fulltrúar flestra nærliggjandi sparisjóða. Fulltrúaráð Sparisjóðsins kom síðan saman 15. maí síðastliðinn og kaus nýja stjóm Sparisjóðs Svarfdæla. Fulltúaráðið er ný stofnun í kringum sparisjóðinn. Það var sett á laggimar núna við sameiningu sjóðanna sem vett- vangur til að kjósa stjóm. Áður kaus aðalfundur þrjá í stjóm og síðan sveitarstjómimar hvor sinn fulltrúann meðan aðeins vom tvær sveitarstjómir á starfssvæði spari- sjóðsins. Nú em sveitarstjómimar fjórar og þess vegna breyttist formið. Ný stjóm sparisjóðsins er þann- ig skipuð: Guðríður Ólafsdóttir Dalvík formaður, Jóhann Antons- son Dalvík, Gunnar Jónsson Svarf- aðardal, Sveinn Jónsson Árskógs- strönd og Sigmar Halldórsson Hrísey. Til vara eru: Bragi Jónsson Dalvík, Óskar Jónsson Dalvík, Bjöm Daníelsson, Svarfaðardal, Sigurður Konráðsson Árskógs- strönd og Mikael Sigurðsson Hrís- ey. Fyrstu vikuna í maí var banka- stjóm og bankaráð Seðlabanka ís- lands á ferðalagi hér á Eyjafjarð- arsvæðinu og heimsóttu þeir Spari- sjóð Svarfdæla sérstaklega í tilefni sameiningar sparisjóðanna. Þar var rakinn saga sparisjóðsins og sér- staklega sagt frá sameiningunni. Seðlabankastjórum var afhent minnispeningar sem slegnir vom í tilefni 100 ára afmælis Sparisjóðs- ins 1984. Jóhannes Nordal Seðla- bankastjóri flutti ávarp þar sem hann meðal annars fagnaði sam- einingu sparisjóðanna. Tjamar- kvartettinn söng síðan nokkur lög og í lokin þakkaði Ólafur B. Thors bankaráðsmaður móttökumar fyrir hönd gestanna. Afgreiðslustaðir Sparisjóðs Svarfdæla eru nú þrír og bera þeir hver sitt nafn. Afgreiðslustaðurinn í Hrísey heitir Sparisjóðurinn Hrísey, Sparísjóður Svarfdæla. Af- geiðslustaðurinn á Árskógsströnd heitir Sparisjóðurinn Árskógs- strönd, Sparisjóður Svarfdæla og afgreiðslustaðurinn Dalvík heitir Sparisjóðurinn Dalvík, Sparisjóður Svarfdæla. JA

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.