Norðurslóð - 29.09.1993, Qupperneq 6
6 — NORÐURSLÓÐ
íþróttir:
Lokaspretturinn olli vonbrigðum
- En dalvískt íþróttafólk getur borið höfuðið hátt eftir sumarið,
segir Björn Friðþjófsson formaður UMFS
I*á cr fótholtinn hættnr að rúlla í
bili. Lokasprctturinn hjá dal-
vísku knattspyrnufólki hefði
niátt vcra ögn snarpari, cinkum
hcfði vcrið gaman cf kvenfólk-
inu hcfði gcngið bctur því þar
munaði cngu að mcistaratlokk-
urinn ynni sér sæti í 1. dcild að
ári. Karlarnir voru rólegri í tíð-
inni, cn unglingarnir cru að
sækja í sig veðrið og ljóst að
framtíðarhorfurnar eru góðar
fyrir dalvíska knattspyrnu.
Það var beinlínis grátlegt að
verða vitni að því þegar stúlkurnar
í meistaraflokki urðu af 1. deildar-
sætinu. Þær voru afar óheppnar í
fyrsta leik úrslitakeppnimiar þegar
þær gerðu jafntefli viö Rcyni úr
Sandgerði í leik sem fór að mestu
fram í vítateig Reyiús. Sá leikur
átti að vinnast, enda heföi eftir-
leikurinn þá orðið auðveldari. Eftir
tvö jafntefli þurftu stúlkurnar að
sigra lið Hattar frá Egilsstöðum í
síðasta leiknum til þess að vera
öruggar með 1. deildarsæti. Það
gekk ekki eftir því liðin skildu
jöfn, 1:1, og eflaust hafa stúlkurnar
nagað sig í handarbakið yfir að
sigra ekki því til þess höl'ðu þær
alla burði í síðari hálfleik. Heppmn
var ekki meö þeirn og kannski hafa
þær ekki trúað því fyllilega að þær
gætu áunnið sér sæti í 1. deiíd í
fyrsta simi í sögu dalvískrar knatt-
spymu.
Strákamir í meistaraflokki áttu
heldur slakan endasprett sem lauk
með ósigri fyrir Magna. Það nægði
þó ekki nágrönnunum handan
fjarðar því þeir féllu í 4. deild á
óhagstæðum markamun. Dalvík-
ingar enduðu í 6. sæti 3. deildar-
imiar.
Sáttir við frammistöðuna
En hvað sem því líður þá geta for-
ráðamenn UMFS verið nokkuð
ánægóir með árangur sumarsins á
íþróttasviöinu. Og þeir eru það,
eöa er ekki svo, Bjöm Friðþjófs-
son formaður?
Jú, við emm alveg sáttir við
frammistöðu íþróttafólksins í sum-
ar. Því gekk betur á fleiri vígstöðv-
um en áður. Einkum á það við um
þrjá flokka í knattspyrnu: meist-
araflokk kvemia og 3. og 4. flokk
drengja. 4. flokkur komst í úrslita-
keppm Islandsmótsins í fyrsta sinn
og 3. flokkur var hársbreidd frá því
að ná sama árangri. Þá má hcldur
ekki gleyma vaxandi áhuga yngstu
aldursflokkanna á knattspymu. I
surnar sendum við 30 stráka úr 7.
flokki á Króksmótið en í hitteð-
fyrra náðum við með herkjum að
senda átta. Alls tóku 70 krakkar í 7
liðurn þátt í rnótinu og komust öll
liðin í verðlaunasæti.
Frjálsar íþróttir em í föstum
skoröum hjá okkur, en þar var
ánægjulegt að sjá 30 fullorðna í
reglulegu heilsubótartrimnú á vell-
inum. Arangur Snjólaugar Vil-
helmsdóttur stóð upp úr á sviði
frjálsra íþrótta í ár, en hún vann
átta Islandsmeistaratitla á árinu og
tekur stöðugum framförum. Hún
er að fara til Bandaríkjanna til
nárns um næstu áramót og ætlar að
stunda íþróttir meðfram námi. Það
verður gaman að fylgjast með
heiuii.
Aðstaðan til íþróttaiðkunar hér
á Dalvík er orðin mjög góð og það
hefur aukið verkefni félagsins. Við
emm ánægð með það enda setur
það mikinn svip á bæjarlífið þegar
hundruð unglinga eru hér í heim-
sókn eins og verið hefur nokkrum
sinnum í sumar á okkar vegurn. Eg
held að allir séu sáttir við aðstæður
hér og framkvæmdir okkar, að því
frátöldu að veðurguðimir virðast
alltaf þurfa að reyna í okkur þol-
rifin þegar eitthvað stendur til.“
Vetrarstarf og
sjónvarpsbolti
- Og nú er vetrarstarfið að hefjast.
„Já, viö erum að byrja með
körfuboltaæfingar í þremur flokk-
um, meistaraflokki sem keppir í 2.
deild Islandsmótsins og tveimur
yngri flokkum. Það verða líka æf-
ingar innanhúss í frjálsum íþrótt-
um og knattspymu. Við erum búin
að semja við Dalvíkurbæ um að
hafa íþróttahúsið til afnota frá kl
17 á föstudögum fram á sunnu-
dagskvöld og þurfum ekki að
greiða leigu á þeim tíma. Vió
reynum því að færa okkar starf
sem mest á þann tíma.“
- Eitthvað kostar reksturinn á
félaginu.
„Já, við fnmum að það er
erfiðara að ná endum saman nú en
áður, við fömm ekki varhluta af
efnaliagsástandinu. Kostnaðuriim
Sparisjóður
Dalvík - Árskógsströnd - Hrísey
/ /
I Ut-Eyjafirði er litadýrð haustsins óviðjafnanleg.
Hlíðar og lautir eldrauðar af bliknandi berjalyngi,
móar af blómstrandi beitilyngi. Melar og mýrarsund
skærgul affölnandi víði. Tún og grænar grundir.
Hnjúkar og fjallabrúnir faldaðar hvítu trafi, forboða
komandi vetrar. Blcír himinn hvelfist yfir haustlygnan
fjörð og strendur.
Hver á sér fegra föðurland?
Sparisjóður Svarfdæla á vík, strönd og ey samgleðst
börnum byggðarlagsins meðfegurð haustsins um haf
og hauður og óskar öllum góðs komandi vetrar.
Sparisj óðurinn
® 61600 Dalvík ^ 61880 Árskógi ® 61785 Hrísey
vió rekstur félagsins var um 6
milljónir króna árið 1992 og verð-
ur eitthvað svipaður í ár, en nú er
mun erfiðara að ná iim tekjum á
móti.
Við reynum að hafa öll spjót úti
í fjáröflun og nú síðast hafa nokkrir
áhugamenn um fótboltagetraunir
sett upp getraunaþjónustu í Víkur-
röst. Félagið fékk sjónvarpstæki að
gjöf og keypti síöan móttökudisk
fyrir gervihnattasjónvarp. Þaó er
opið á föstudagskvöldum og laug-
ardagsmorgnunt í tengslum við get-
raunimar, og svo er opió hús þegar
einhverjir leikir em á dagskrá. Þetta
hefur mælst vel fyrir því sunnu-
daginn 19. september mættu 75
marms til að fylgjast með Man-
chester United og Arsenal í enska
boltanum. Við getum náð í þýska
leiki, landsleiki og Evrópuleiki.
Þessi starfsemi getur gefið okk-
ur talsverðan pening því vió fáum
25% af andvirði seldra getrauna-
raða hér á Dalvík. Við bjóðum líka
til kaups svonefnd hlutabréf sem
eru hlutir í stórum getraunapottum
þar sem spekingar sjá um að fylla
út raðirnar eftir stórurn kerfum.
Þeir sem kaupa hlutabréf fá svo
Björn Friðþjófsson forniaður
UMFS.
vimúnga í hlutfalli við upphæóina
sem þeir kaupa fyrir.
Loks má nefna að við stöndum í
viðræðum við Dalvíkurbæ um að
taka rekstur Víkurrastar á leigu til
reynslu. Við fréttum að þar stæðu
til breytingar og datt í hug að
kanna hvort þetta gæti komið fé-
laginu að gagni í rekstrinum. Við
vitum aó þetta er engin gullkista
lengur, en viljum athuga málið,"
segir Bjöm Friðþjófsson formaður
UMFS.
Hann bætti því við að engar
fréttir væru af þjálfaramálum,
meim hvíldu sig að lokinni vertíð
og færu svo að kanna nrálin þegar
líður á haustið.
-ÞH
Hcr eru þær stöllurnar Sigrún V. Hcimisdóttir (tv.) og Auður Hclgadótt-
ir í hárgrciðsludcildinni með viðskiptavin í hnrþurrkunni. Mynd: -ÞH
Ný snyrtistofa
opnuð á Dalvík
Tvœr tingar konur, Auðiir Helgadóttir hárgrciðsludama og Sig-
rún V. Hcimisdóttir nudd- og snyrtifræðingur, hafa opnað hár-
snyrti-, nudd- og snyrtistofuna Frá toppi til táar að Svarfaðar-
braut 24.
Þarna verður veitt öll almemi hársnyrting, snyrtiþjónusta og lík-
amsnudd, auk þess sem þær hafa til sölu fjölbreytt úrval af snyrti-
vörum fyrir húð og hár.
Opnunartími stofunnar er frá 9-17 mánudaga til fimmtudaga, frá
9-19 á föstudögum og frá 10-14 á laugardögum. Símimi í Frá toppi
til táareró 18 97.
Innilegar þakkir til allra þeirra er glöddu mig á einn eöa
annan hátt á áttræóisafmæli mínu 8. september sl.
Guó blessi ykkur öll.
Laufey Guðjónsdóttir
frá Hreióarsstöðum
Innilegar þakkir færum vió öllum þeim sem vottuóu
okkur samúö viö andlát og útför móöur minnar, tengda-
móóur og ömmu okkar,
Rannveigar Stefánsdóttur
Dalbæ,
Dalvík,
og heiðruðu minningu hennar.
Gunnar Stefánsson Gerður Steinþórsdóttir
Atli Gunnarsson Svava Gunnarsdóttir
Auðun Gunnarsson