Norðurslóð - 20.04.1994, Side 3

Norðurslóð - 20.04.1994, Side 3
NORÐURSLÓÐ —3 : ■■■ ■ . '>i/. '' "-v '&M í' ;•■ ■■ , 'i Sveitarstjórnarkosningarnar í vor: Litlar breytingar fyrirsjáanlegar í dalnum - en ljóst að töluverðar breytingar verða á bæjarstjórn Dalvíkur - fjórir bæjarfulltrúar hætta Það fer Iítið fyrir kosninga- skjálfta í sveitinni enn sem kom- ið er og bendir raunar fátt til að það breytist. Svarfdælingar virðast flestir nokkuð sáttir við störf sitjandi hreppsnefndar. I það minnsta nýtur Atli oddviti á Hóli fádæma trausts og vinsælda. Því til staðfestingar skrifuóu 130 kosningabærir Svarfdælingar nöfn sín á undirskriftalista þar sem Atli var hvattur til að gefa kost á sér til áframhaldandi setu. Nánast allir þeir sem náóist til skrifuðu nöfn sín þar undir en um 180 manns eru á kjörskrá í hreppnum. Ljóst er að kosningarnar verða Út-Eyjafjörður Samein- ing aftur á dagskrá Lítið hefur farið fyrir umræðu um sameiningu sveitarfélaga hér utanvert við fjörðinn eftir að til- laga Umdæmisnefndar um sam- einingu alls Eyjafjarðarsvæðis- ins var felld í kosningunum í nóvember sl. Sveitarstjórnar- menn virðast margir helst á því að hreyfa sem minnst við þeim málum fram yfir kosningar hvort sem það er af ótta við at- kvæðatap, almennu áhugaleysi eða af öðrum toga. Það verður alla vega fróðlegt að heyra stefnuskrár framboðslista með tilliti til sameiningar sveitarfé- laga þegar þær taka að birtast á næstunni. Ekki ríkir þó alls staðar þögnin ein um sameiningarmálin því nú hefur sveitarstjórnum á Dalvík, 01- afsfirði, Hrísey og Svarfaðardals- hreppi borist erindi frá kollegum sínum í Arskógshreppi þar sem stungið er upp á því aó gerð verði um það könnun meðal kjósenda um leið og þeir greiða atkvæði í komandi sveitarstjórnarkosningum hvert viðhorf þeirra er til samein- ingar þessara sveitarfélaga í eitt stórt. I bréfinu segir m.a.: ...Þrátt fyrir þá niðurstöðu kosninga uw sameiningu Eyja- fjarðarsvœðisins þ. 20. nóv. s.l. í eitt sveitarfélag, að hún hafi ekki verið samþykkt af öllum aðilum, lítur sveitarstjórn Arskógshrepps svo á að eigi að síður beri að skoða minni sameiningu. Með bréfi þessu viljum við vekja máls á því hvort ekki sé eðlilegt að nota sveitarstjórnarkosningarnar þ. 28. maí n.k. til að samtímis þeim fari fram skoðanakönnun á áhuga fólks fyrir sameiningu þeirra sveitarfé- laga sem þetta bréfer sent til. í samtali við blaðið sagði Sveinn Jónsson oddviti Strönd- unga að persónulega þætti honum það sóun á bæði tíma og fjármun- um að menn væru allir að fjalla um og afgreiða sömu málin hver í sínu sveitarfélagi þegar hægt væri að verja tímanum miklu betur og spara auk þess verulega meó sam- eiginlegum lausnum. „Og fyrst menn vildu ekki sam- eina allan fjörðinn og ganga þann- ig á vit næstu aldar með það skemmtilega verkefni í farangrin- um þá veröum við að skoða hvort mönnum Hst betur á aðra kosti eins og þennan“, sagði Sveinn. Þess má geta að Sveinn hefur beðist undan endurkjöri til hrepps- nefndar Arskógshrepps en hann hefur setið í hreppsnefnd í 24 ár og þar af verið oddviti í 9 ár. hjhj óhlutbundnar þar sem frestur til aó fara fram á hlutbundnar kosningar rann út þann 16. þ.m. Það verða því engir listar lagðir fram að þessu sinni. Frestur sá sem sitjandi hreppsnefndarmenn hafa tii að biðjast undan endurkjöri rennur út nú 23. apríl. Atli Frióbjörnsson hcfur verið tregur til að gefa út nokkrar yfir- lýsingar um framhaldið hjá sér. Hins vegar hefur Jón Þórarinsson á Hæringsstöðum lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér áfram en hann hefur setið í hreppsnefnd samfellt í 12 ár og segir sjálfur tímabært fyrir sig að hleypa öðrum aö. Aðrir hrcppsnefndarmenn hafa ekki gefið út neinar yfirlýsingar þegar þetta er ritað og ólíklegt að þeir fari að beiðast undan endur- kjöri hér eftir. Það eru því fyrirsjáanlegar ein- hverjar breytingar á hreppsnefnd þó næsta öruggt sé aó oddvitinn hljóti rússneska kosningu, ef hann gefur kost á sér. Það er að margra mati ekki vanþörf á að koma full- trúa kvenna inn í hreppsnefndina enda einkynja sveitarstjórnir eins og í Svarfaðardalshreppi orðnar næsta fátíðar nú við lok 20 aldar. Þrír listar á Dalvík Á Dalvík hefur kosningabaráttan farið rólega af stað. I-listinn reið á vaðið með því að efna til prófkjörs eins og við sögöum frá í síðasta blaði, en Sjálfstæðisfiokkurinn og óháóir uróu fyrstir til að birta sinn lista, D-listann, og eru sjö efstu sæti hans þannig skipuð: 1. Trausti Þorsteinsson, 2. Svanhildur Árnadóttir, 3. Birgir Ossurarson, 4. Gunnar Aóal- björnsson, 5. Dóróthca Jóhanns- dóttir, 6. Þorstcinn Skaftason, 7. Hjördís Jónsdóttir. A þessum lista er sú breyting stærst að Birgir Ossurarson er kominn í 3. sæti, en Gunnar Aðal- björnsson sem það sæti skipaði hefur fiutt sig í fjórða sætið. Þá helur Hjördís Jónsdóttir llust úr 4. sæti í það 7. Næstir voru Framsóknarmenn sem nú bjóóa fram B-lista og hafa klippt viðbótina „og vinstri menn" altan úr listaheitinu. B-listinn er þannig skipaóur, niður í 7. sæti: 1. Kristján Olafsson, 2. Katrín Sigurjónsdóttir, 3. Stelan Gunn- arsson, 4. Helga Björk Eiríksdóttir, 5. Sigurlaug Stefánsdóttir, 6. Brynjar Aðalsteinsson, 7. Ragn- heiður Valdimarsdóttir. Þarna hafa oróið alger umskipti því fólkið í þrem efstu sætum list- ans í síóustu kosningum, þau Valdimar Bragason, Guðlaug Björnsdóttir og Rafn Arnbjörnsson eru hætt í bæjarstjórn. Kristján 01- afsson sem leiðir listann getur þó varla kallast nýgræðingur í bæjar- málum Dalvíkur því hann sat í bæjarstjórn um 8 ára skeið og var forseti bæjarstjórnar frá 1982- 1986. Loks birtist I-listinn eftir að uppstillingarnefnd hafði farið höndum um nióurstöður prófkjörs- ins. Efstu sæti hans eru þannig skipuð: 1. Svanlríður Inga Jónasdóttir, 2. Bjarni Gunnarsson, 3. Þórir V. Þórisson, 4. Þóra Rósa Geirsdóttir, 5. Gunnhildur Ottósdóttir, 6. Vióar Valdimarsson, 7. Ásta Einarsdótt- ir. Fimrn elstu sætin eru óbreytt frá prófkjörinu, en þau Viðar og Ásta færðust upp eftir að Snorri Snorrason dró sig til baka. Að list- anum standa Alþýðubandalagið, Alþýðullokkurinn, F-listinn, óháð- ir og Þjóðarllokkurinn. Tveir fyrst- nefndu flokkarnir stóðu að fram- boói Jafnaðarmannafélags Dalvík- ur í síðustu kosningum, en þaó býóur ekki fram nú. F-listinn var boóinn fram við síðustu kosningar og hlaut einn mann kjörinn, en Þjóðarfiokkurinn hefur ekki tekið þátt í bæjarstjórnarkosningum á Dalvík áður. Eins og áður segir er kosninga- baráttan vart hafin á Dalvík. Þó efndi D-listinn til fundar í Víkur- röst á sunnudaginn og var það fyrsti opinberi fundurinn fyrir þessar kosningar. Ljóst er eftir birtingu framboðs- listanna þriggja að verulegar breytingar verða í bæjarstjórn Dal- víkur eltir kosningar. Fjórir af sjö bæjarfulltrúum sækjast ekki eftir endurkjöri, þau Jón Gunnarsson, Valdimar Bragason, Guðlaug Björnsdóttir og Haukur Snorrason. Einnig verður töluverð breyting á framboðslistunum eins og áður var nefnt. Vió munurn fjalla betur um list- ana þrjá, frambjóðendur þeirra og stefnumál í næsta tölublaói sem kemur út fyrir miðjan maí n.k. hjhj/-ÞH Sendum starfsfólki okkar og viðskiptavinum bestu óskir um

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.