Norðurslóð - 27.07.1994, Side 1
Svarfdælsk byggð & bær
Svarfaðardalur/Skíðadalur:
Miklar vegabætur
18. árgangur
Miðvikudagur 27. júlí 1994
7. tölublað
x Ráðhús Dalvíkur:
Utilistaverk sett upp í haust
- Jóhanna Þórðardóttir og Sigurður Guðmundsson
hlutskörpust í samkeppni fjögurra myndlistarmanna
Um miðjan júlí var tilkynnt
hvaða verk hetðu orðið fyrir val-
inu í samkeppni um útilistaverk
sem fyrirhugað er að reisa við
Ráðhúsið á Dalvík. Tvö listaverk
voru valin, annað eftir Jóhönnu
Þórðardóttur en hitt eftir Sigurð
Guðmundsson.
Bæjarstjórn Dalvíkur ákvað í
fyrra í samráði við Sparisjóð
Svarfdæla að koma upp útilista-
verki við Ráðhúsið og var ákveðið
að efna til samkeppni meðal
myndlistarmanna um gerð þess.
Auglýst var eftir þátttakendum og
sendu 24 listamenn inn nöfn sín.
Af þeim voru fjórir valdir til að
gera tillögur að tveim verkunt.
Auk þeirra Jóhönnu og Sigurðar
tóku þær Rúrí og Sólveig Eggerts-
dóttir þátt í keppninni.
Verkin sem listamennirnir
sendu inn voru öll sýnd í anddyri
Ráðhússins í síðustu viku og er
greinilegt að dómnefnd hefur verið
vandi á höndum því verkin eru öll
stórskemmtileg. Eða eins og segir í
niðurstöðum nefndarinnar: „Það er
álit dómnefndar að tillögumar hafi
verið fallega unnar og borið vitni
listrænum metnaði.“
Verkin tvö sem urðu fyrir val-
inu heita Alda eftir Jóhönnu Þórð-
ardóttur og Sjófuglar eftir Sigurð
Guðmundsson. Alda á að rfsa í
sumar á túninu sunnan og austan
Ráðhússins, nánar tiltekið nærri
horni Goðabrautar og Hólavegar.
Það verður fjórir metrar á hæð og
breidd og að sögn dómnefndar er
Nú eru að hefjast miklar vega-
bætur í Svarfaðardal. Bæði á
Skíðadals- og Svarfaðardalsvegi
verður vegurinn styrktur víða og
síðan verður unninni slitlagsmöl
úr Dælishólum ekið í veginn
dalsenda á milli.
Að sögn Sigurðar Oddssonar
hjá Vegagerðinni er ætlunin að
laga veginn við Þverárbrúna í
Svarfaðardal og þá verður vegur-
inn styrktur frá Steindyrum fram
að Tunguvegi. Eins verður vegar-
kafli frá Klaufabrekkum að Atla-
stöðum styrktur og síðan ekið slit-
lagi yfir allt heila klabbið frá
klæðningarenda við Húsabakka og
fram í botn.
Ekkert verður unnið við Tungu-
veg enda engin þörf á því en á
Skíðadalsvegi verða framkvæmdir
sem hér segir: Vegarkalli frá
Skáldalæk að Sökku verður styrkt-
ur. Sömuleiðis kaflinn frá Skegg-
stöðum fram að Ytra-Hvarfi og frá
brekkurótum yfir Hvarfið og niður
að brúnni á Skíðadalsá. Vegurinn á
Austurkjálka verður síðan einnig
klæddur Dælismölinni góðu að
undanskildum kaflanum frá Hofsá
að Skeggstöðum en sá vegarspotti
bíður stórfelldari endurbóta og
þykir ekki taka því að leggja í
kostnað við hann að svo stöddu.
Þá er bara Skíðadalurinn eftir.
Að sögn Sigurðar verður vegurinn
frá Dæli að Klængshóli styrktur á
Iöngum köflum þar sem jress gerist
þörf og síðan ekið yfir hann með
slitlagi.
Ef fer sem horfir hefjast verk-
takar handa nú í vikunni að sögn
Sigurðar. Eru það Jarðverksmenn,
Bflstjórafélag Dalvíkur og Hallur
Steingrímsson sem skipta verkinu
með sér. „Það bárust um það boð
að ofan að verkinu skyldi úthlutað
heimamönnum sem var í sjálfu sér
auðsótt mál af okkar hálfu. en þá
fóru heimamenn náttúrulega að
bítast innbyrðis svo við urðum á
endanum að skipta verkinu. Við
gerum þetta ekki aftur svona,“
sagði Sigurður að lokum. hjhj
Sögur úr sveitinni
- Búháttabreytingar á mörgum
jörðum og aukin eftirspurn eftir
byggingarlóðum
Jóhanna Þórðardóttir við Öldu sem búiö er að setja inn á mynd af Ráðhúss-
lóðinni. Mynd: -ÞH
það „stílhreint og fágað og fellur
vel að umhverfinu. Samspil birtu
og skugga í stálinu gefur því sann-
færandi yfirbragð. Höfundur
verksins hefur leyst vel tengsl list-
ar, sögu og atvinnulífs staðarins."
Unt Sjófugla Sigurðar Guð-
mundssonar segir dómnefnd að þar
sé á ferðinni „persónulegt og fágað
verk. Brotinn grunnsteinn. svört
graníthöfuð og gler gefa verkinu
líflegt yftrbragð. Tenging verksins
við hafið og leikur með birtu fellur
vel að umhverfinu.“ Þetta verk á
að rísa á stéttinni framan við Ráð-
húsið, en ekki er afráðið hvenær
það verður. Hugmyndin er sú að
Sparisjóðurinn kaupi þetta verk.
Dómnefnd var skipuð þrem
heimamönnum, þeim Friðriki
Friðrikssyni, Dóróþeu Reimars-
dóttur og Valdimar Bragasyni, og
tveimur myndlistarmönnum,
Steinunni Þórarinsdóttur og Guð-
jóni Ketilssyni. Með nefndinni
starfaði Olafur Jónsson fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
myndlistarmanna.
Dalvíkurbær fékk styrk úr List-
skreytingasjóði ríkisins upp á tvær
milljónir króna til að kosta kaupin
og uppsetningu verksins. Eins og
áður segir er ætlunin að Alda Jó-
liönnu verði risin á Ráðhússlóðinni
fyrir haustið.
-ÞH
Gróður kom seint undun snjó í
vor og voru vorverk eins og
ávinnsla og áburðardreifing víð-
ast hvar háifum inánuði seinna á
ferðinni en í meðalári. I byrjun
júlí hlýnaði verulega í veðri og
var sláttur víðast hvar kominn
af stað viku af júlí.
Heyskapur fór þó liægt af stað.
Hitastigið hefur verið vel yfir með-
allagi í mánuðinum en til að byrja
með tafði þokuloft nokkuð fyrir
heyþurrkun og einnig hafa hita-
skúrir gert bændum Ijóta skráveifu
og bleytt duglega upp í skrauf-
þurrum flekkjum þegar síst skyldi.
Hér eru þó nokkrir sem alfarið
verka í plast og láta veðráttuna lítil
áhrif hafa á sig. I það heila má
segja að heyskapur hafi gengið
alveg bærilega og eru flestir vel á
FréttahorniÐ
Frá því um 10. júlí hefur verið
góð veiði í Smugunni. Það
hafði þau áhrif að íslenskum skip-
um fjölgði jrar mikið. Héðan frá
Dalvík eru bæði Bliki EA 12 og
Björgúlfur EA 312 farnir til veiða.
Bliki var við veiðar í Smungunni í
fyrra og var í vor að hrella Norð-
menn við Svalbarða. Bliki frystir
sinn afla um borð og getur því ver-
ið vikum saman þama norðurfrá.
Hins vegar er Björgúlfur á ísfisk-
veiðum og takmarkast útivistin við
geymsluþol fisks sem ísaður er um
borð.
Dalvískir togarar eru mjög farn-
ir að leita út fyrir landhelgina
því auk Blika og Björgúlfs er
Baldur EA 108 nú við rækjuveiðar
á Flæmska Hattinum svokallaða
við Nýfundnaland. Skipið er í sín-
um fyrsta túr og er reiknað með að
landað verði úti og það verði hugs-
anlega á |3essum slóðum næstu
mánuði. Björgvin EA 311 hefur
aftur á móti verið á heimamiðum á
karfa- og grálúðuveiðum að und-
anfömu og fryst aflann um borð.
Grálúðuveiðin hefur gengið mis-
jafnlega en skipið er nú fyrir aust-
an að reyna við karfa.
-- ' ........................................................................................................
... M
■ - ■■:
Sá rússneski losaði fisk og lestaði Lödur í Dalvíkurhöfn, en fyrir aftan liann lá 15jörgúlfur nýmálaður og fínn, rétt ófar-
inn í Sniuguna. Mynd: -þh
N
ú er verið að bjóða út gerð nýs
brimvarnargarðs á Dalvík.
Upphaflega var áætlað að verkið
yrði boðið út snemma í vor svo
vinna gæti hafist í sumar en undir-
búningi lauk ekki í tæka tíð. A
þessari stundu er ekki Ijóst hvað
þessi dráttur á útboði þýðir fyrir
framkvæmd verksins á |3essu ári en
hér er um að ræða verk sem taka
mun a.m.k. tvö ár og gerbreytir
allri aðstöðu í höfninni sem og
möguleikum til áframhaldandi
uppbyggingar innri mannvirkja.
/
Anæstunni munu bæjarbúar
verða varir við nokkra útlits-
breytingu á Hafnarbrautinni. Val-
ensían, gamla byggingin sem stað-
ið hefur út í götuna norðan við
rækjuverksmiðjuna, verður rifin
og þá um leið gengið frá bakkan-
um og gerð gangstétt. Margir eiga
minningar bundnar við þetta hús
sem hefur |3jónað ýmsum hlut-
verkum og sannariega hefur það
sett sinn svip á Hafnarbrautina. Nú
á síðustu árum hefur ásjóna þess
þó verið að daprast og verður það
nú fjarlægt fyrst og fremst af um-
hverfisástæðum. I leiðinni mun
umferðaröryggi á Hafnarbraut
aukast og útsýni opnast til hafnar-
innar.
Rússneskur togari lá í Dalvfkur-
höfn í hartnær viku og hreins-
uðu skipverjar bæinn af öldruðu-
um bifreiðum af gerðinni Lada.
Það var þó ekki aðalerindi skipsins
sem kom hingað á vegum Fisk-
miðlunar Norðurlands með 170
tonn af frystum þorski úr Barents-
liafi. Aflinn skiptist á milli Blika
hf. á Dalvík, tveggja fyrirtækja á
Olafsfirði og eins á Arskógsströnd.
Að sögn Hilmars Daníelssonar
gengu viðskiptin á báða bóga vel
fyrir sig og kvað hann skipverja
hafa lýst ánægju sinni með sam-
skiptin við Dalvíkinga.
veg komnir og sumir við það að
klára. Og llestir geta verið sam-
mála um að mun skárra sé að kepp-
ast við heyskap í rysjóttri tíð en að
geta sig hvergi hrært vegna ótíðar
eins og verið hefur langtímum
saman undanfarin ár.
Ovenju miklar breytingar
Fyrirsjáanlegar eru búháttabreyt-
ingar á nokkrum jörðum í sveitinni
þó ekki séu þau mál enn til lykta
leidd. Jörðin Hæringsstaðir hefur
verið auglýst til sölu. A Hreiðars-
stöðum eru líkur á að mjólkur-
framleiðslu verði hætt í haust. Þar
er nýtt og fullkomið tjós en að
sögn Sölva Hjaltasonar bónda
stendur framleiðslan ekki undir
fjárfestingum svo við svo búið get-
ur ekki staðið lengur. Ekki er þó
enn ákveðið hvort framleiðslurétt-
ur verður seldur eða hann leigður
ásamt mestum hluta jarðarinnar
eða allt selt í einum pakka en á því
síðastnefnda eru þó minnstar líkur
að sögn Sölva. A Steindyrum eru
einnig fyrirsjáanlegar breytingar.
Armann Sveinsson bóndi þar seg-
ist hafa fullan hug á að „yngja upp
á jörðinni í haust“ og að ekki
standi til að selja af henni fram-
leiðsluréttinn. Ekkert hefur þó end-
anlega verið frágengið í þeim efn-
um. Þá er Laugasteinn til sölu og
fylgir honum dálítill landskiki en
þar eins og annars staðar er allt
óráðið með framhaldið.
Það eru því augljóslega óvenju
miklar breytingar í vændum á
eignarhaldi og búrekstri á jörðum í
Svarfaðardal og má í sumum til-
vikum, en þó ekki öllum, tengja
það beint eða óbeint margum-
ræddri kreppu í íslenskum land-
búnaði. Hafa viðmælendur blaðs-
ins sumir haft á orði að þeim kæmi
ekki á óvart að örðugleikar í bú-
rekstri ættu eftir að koma víðar upp
á yfirborðið hér í sveit áður en
langt um líður.
Aukin eftirspurn
eftir lóðurn
En það er uppgangur á öðrum svið-
um og þrált fyrir allt vaxandi áhugi
meðal bæjarbúa á að fytjast í sveit-
ina. Búið er að úlhluta einni bygg-
ingarlóð í landi Laugahlíðar og
Framhald á hls. 4