Norðurslóð - 28.02.1995, Qupperneq 4

Norðurslóð - 28.02.1995, Qupperneq 4
4 — NORÐURSLOÐ Unglingar lifa heilbrigðu lífl - þótt annað mætti ætla af frásögnum fjölmiðla, sögðu unglingar á fjölmennri ráðstefnu um málefni unglinga sem haldin var í Dalvíkurskola Dalvikurskoli Ræðumenn Húsabakkaskóla, Húni Heiðar Hallsson (tv.) og Pétur Jakob Ráðstefnugestir fylltu fundarsalinn í Dalvíkurskóla og fvlgdust af athygli með Pétursson en Húni samdi ræðuna ásamt Omari Hjalta Sölvasyni. því sem upp á var boðið. Myndir: hjhj Á dögunum var efnt til ráðstefnu um málefni unglinga í Dalvíkur- skóla. Hún var fjölmenn og þótti takast afar vel. Þar sátu hátt í tvö hundruð nemendur, foreldr- ar, kennarar og aðrir þeir sem hafa með málefni unglinga að gera og hlýddu á erindi í þrjá tíma - að vísu fengu þeir kaffi og vöfflur í hléinu, framreitt af 10. bekkingum Dalvíkurskóla og foreldrum þeirra. Það voru nemendaráð skólanna á Dalvík, Húsabakka og í Árskógi sem efndu til ráðstefnunnar í sam- vinnu við æskulýðsfulltrúa, félags- málastjóra, sóknarpresti, lögreglu og Heilsugæslustöð, að ógleymd- unt kennurum og stjórnendum skólanna. Erindin voru af ýmsum toga. I upphafi áttu unglingamir sviðið. Fulltrúar nemendaráðanna þriggja ávörpuðu fundargesti og á eftir þeim stigu fram þrír nemendur í framhaldsskólunum á Akureyri og deildu reynslu sinni af því að fara burt og vera í framhaldsskóla, með fundarmönnum. Að því loknu komu þau eitt af öðru Bjarni Gunnarsson æskulýðsfulltrúi, Steinunn Hjartardóttir félagsmála- stjóri, sr. Jón Helgi Þórarinsson, Sædís Númadóttir hjúkrunarfræð- ingur, Bragi Stefánsson læknir og Felix Jósafatsson lögregluvarð- stjóri rak lestina. Og ekki má gleyma því að léttsveit Tónlistar- skóla Dalvíkur lék fyrir gesti í fundarhléi. Það er engin leið að gera þessari ráðstefnu tæmandi skil, en við viljum til gamans og fróðleiks birta erindi sem tveir nemendur Húsabakkaskóla flultu: Hvað eru unglingar? Okkur fannst það vægast sagt undarlegt þegar við flettum al- fræðiorðabókinni upp, að þá fund- um við ekki orðið unglingar heldur bara orðin unglinga-aibrot og Unglinga-heimili ríkisins. Eru unglingar ekki til á Islandi nema þegar talað er um afbrot eða upp- tökuheimili fyrir unglinga? Jú, þeir eru til þótt þeir séu ekki nefndir í íslensku alfræðiorðabók- inni. En kannski hefur röng um- fjöllun verið um unglinga í fjöl- miðlum, sérstaklega innan höfuð- borgarsvæðisins og annarra stærri kaupstaða. Þegar svona er hugsað er fólk of neikvætt. Fjölmiðlar gefa þannig ranga mynd af unglingum. Eru all- ir unglingar afbrotaunglingar eða hvað? Séu unglingareykingar og vímuefnaneysla orðnar algengari er þá réttlætanlegt að tala svona um unglinga þar sem fátt eða ekk- ert jákvætt er um þá? Staðreyndin er sú að flestir ung- lingar lifa heilbrigðu og jákvæðu lífi. Það er að vísu rétt að neysla áfengis og vímuefna hefur aukist meðal unglinga og það er alls ekki nógu gott. En hverjir bera ábyrgð- ina? Hvað um þá sem sjá unglingum fyrir álengi og sígarettum? Eiga þeir enga sök á þessu? Yfirleitt eru þetta eldri unglingar sem komast í Ríkið eða geta keypt sígarettur. Stundum eru það eldri systkini. jafnvel fullorðið fólk sem veit greinilega ekki hvað það er að gera unglingunum. Líklegasta orsökin fyrir aukinni neyslu er e.t.v. sú að foreidrar veita börnum sínum of litla athygli eða umönnun og kenna þeim of lítið um lífið og tilveruna og eigin reynslu. Nútíma foreldrar þurfa að vinna mikið og hafa þar af leiðandi lítinn frítíma. En það þarf ekki að koma niður á sambandi þeirra við bömin. Það gerist því miður allt of oft og ætlast foreldrarnir til þess að skólinn sjái um uppeldi barnanna. Þetta þýðir þó ekki að ungling- arnir séu alsaklausir. Unglingar þurfa að læra að bera ábyrgð á sjálfum sér. Segjum sem svo að einhver töffari í bekknum spyrji einhvem Meðal-Jón hvort hann vilji ekki sopa eða smók. Þá þarf viðkom- andi að geta sagt nei og meint nei. En yfirleitt segja þeir já þó þeir meini kannski nei, bara til að vera nteð í hópnum og til þess að vera ekki talinn alger gík! Nú er í tísku hjá unglingum að drekka sig fulla og sýnir það hvað íslenskir unglingar eru rniklir aum- ingjar að geta ekki skemmt sér án þess að detta í það! Sannleikurinn er sá að það er ekki lengur flott að reykja eins og í göntlu bíómyndunum eða drekka frá sér ráð og rænu. Þvert á móti! Það er töff að segja nei! Svarfdælabúð Dalvík Emmess ístllbod Sportklaki Skafís 2 Itr. heimilispakkning Vanillu og Súkkulaði kr. 199,- Kr. 398,- Sprengidags- saltkjöt fyrir sprengidaginn Allt í helgarmatinn - Líttu inn! Verðlaekkun Seljum næstu daga: Loftljós, veggljós, borðlampa og ýmsa aðra hluti með 15%-50% afslætti = (96) 63204 og (96) 63201

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.