Norðurslóð - 29.03.1995, Qupperneq 3

Norðurslóð - 29.03.1995, Qupperneq 3
NORÐURSLOÐ —3 100 ára afmæli leiklistar í Svarfaðardal - Gestkoman frumsýnd á þinghúsinu fyrir einni öld Um þessar mundir eru liðin 100 ár frá því fyrsta leikritið var sett upp hér í Svarfaðardal. Fyrir þann tíma höfðu menn efnt til álfasýninga um leið og álfabrennur voru. Til dæmis var mikil sýning á þjóðhátíð Svarfdæla 1874. En fyrsta leiksýningin að hefðbundnum hætti í Svarfað- ardal sem sögur fara af var sett upp í apríl 1895 og voru sýningar í þinghúsinu á Tungunum. Svo virðist sem kveikjan að sýningunni hafi ekki síst verið fjáröflun vegna fyrirhugaðrar snu'ði brúar á Skíðadalsá. Kristmundur Bjarnason getur sér þess til í þriðja bindi Sögu Dalvíkur að aðalhvatamenn þessarar sýningar hafi verið sóknarprestarnir í dalnum, þeir Kristján Eldjárn Þórar- insson á Tjöm og Tómas Hallgrímsson á Völlum. Séra Kristján hafði kynnst leikstarfsemi á skólaárum sínum og hefur vafalaust miðlað þekkingu sinni til sveitunga sinna við þetta tækifæri. Leikritin sem sýnd voru í apríl 1895 voru tvö. Annað var Gestkoman eftir Kristján Jónsson Fjallaskáld, hitt leikþáttur sem séra Tómas á Völlum samdi af þessu tilefni og hét „Þeir ætla að leika“ en það var eins konar forleikur. I Sögu Dalvíkur er vitnað til frásagnar Gísla Jónssonar á Hofi varðandi hlutverkaskipan, en þar segir: „Hjón í koti undir heiði“ Dóttir hjóna Fjórir flækingar: Ólafur muður Jón Repp Galdra-Leifi Sölvi Helgason Fjórir stúdentar: Stefán Bjömsson, Hofsárkoti. SolTía Baldvinsdóttir, Melum Guðleif Halldórsdóttir, Melum Ólafur Jónsson bamakennari Páll Bergsson Vilhjámur Einarsson, Bakka, Gísli Jónsson, Hofi Hallgrímur Halldórsson, Melum, Agúst Jónsson. Felli, Kristinn Jónsson, Ingvörum, Angantýr Amgrímsson, Dalvík. Sannsögulegar persónur Síðar er vitnað til Tryggva Jóhannssonar á Ytra-Hvarfi og Gests Vilhjámssonar frá Bakkagerði sem telja að hlutverka- skipan hafi verið í megindráttum þessi en þó er smá mismun- ur á þegar þeir rifja þetta upp á gamals aldri. Síðan segir í Sögu Dalvíkur: „I leikriti séra Tómasar voru a.m.k. að einhverju leyti sannsögulegar perónur, svo sem Björn Snorrason, sem um árabil var reikunarmaður í dalnum og stundum illur viður- hafi verið í leiknum, og reyndi mjög á sönghæfni, enda fóru ágætir raddmenn með a.m.k. sum hlutverkin.“ Leiklist í bland við fjárkláða Eins og áður segir voru sýningarnar í Þing- húsinu á Tungunum. Þar hófust æfingar 9. apríl en lokaæfing og þá með áhorfendum var 18. aprfl. Ahorfendur þá voru l'undar- menn á sveitarfundi. I dagbók Jóhanns á Hvarfi seni birtist í Norðurslóð fyrir nokkr- unt árum segir svo um þessa daga í apríl: I’aö munu liafa verið prestarnir í dalnum, séra Tómas á Völlum (tv.) og séra Kristján á Tjörn sem stóöu fyrir leikstarfseminni fvrir einni öld. skiptis. Hann var á framfæri hreppsins, en tolldi illa til lengdar á sama stað, og því kvöð á bændum að veita honum húsaskjól nokkra daga á ári, en það vildi teygjast úr dvöl hans, þar sem honum féll vistin. Björn svaf að jafnaði í hlöð- um eða öðrum útihúsum. Töldu sumir, að hann mundi taka því illa að vera „sviðsettur". En Björn sótti sýninguna og hafði óblandna ánægju af, rak upp miklar hlátuiTokur því til staðfestingar. Persóna lians var leikin af Friðbirni Gunnars- syni frá Efstakoti. En hvar fengu Svarfdælir handrit að Gestkomunni, leik- riti sem nú telst glatað? Sennilegt er, að séra Kristján hafi átt það eða þá útvegað það, en náin vinátta og skólabræðralag var á árum áður með Fjallaskáldinu og honum. Þó skal ekk- ert um þetta fullyrt. Gísli á Hofi segir að séra Kristján hafi leiðbeint „við fyrstu æfingamar". Tryggvi á Hvarfi nefnir aftur á rnóti aðeins séra Tómas, svo og Gestur Vilhjálmsson. Mætti hvort tveggja til sanns vegar færa. Séra Tómas hefur að sjálfsögðu verið leiðbeinandi við forleikinn. Þeir ætla að leika, og kann að hafa hönd í bagga við æfingar Gestkom- unnar, er frá leið. Af söngvunum í Gestkomunni má marka, að mikið fjör „18. apríl. Haldin leikæfing að morgni á þinghúsinu til kl. 1. þar eftir fundur, rætt ýmislegt. Skoðanir ískyggilegs kláða á fé er víða gerir vart við sig, og skil't hreppn- um í smá deildir, 2 menn til skoðunar á hverjum parti. Rætt um lækning band- orma í hundum. Eftir lund 2 Ieikir. Ahorfendur voru flestir fundannenn og þótti góð skemmtun. 19. apríl. Fór ég f Syðra-Hvarf snennna og skoðuðum við Jón fé þar og á Hjaltastöð- um. Fundum ekki kláða í neinni skepnu á þeim bæjum. Var leikið tvívegis á þinghúsinu, fjöldi fólks viðstatt í bæði skipti. 20. apríl. Tvíleikið enn í dag á þinghúsinu og skal ágóðinn lagður í brúarkostnað á árnar hér. Skoðuðum við Jón fé hérog út í Skeggstaði, fundum ekki kláða í neinni fullorð- inni kind, en á öllum bæjum í nokkrum lambgemlingum. Hér gisti nokkuð af því fólki er kom af Arskógsströnd á leikinn. 21. apríl. Tekið úr þinghúsinu tjöld og leikáhöld, telja þeir að muni verða unt 40 kr. ágóði auk kostnaðar." Þannig segir bóndinn á Hvarfi frá þessum merkisatburði í bland við vandamál hversdagsins. Leiklistarsaga þessa byggðarlags er sem sagt fullra 100 ára um þessar mundir og má með sanni segja að leiklistin hafi náð að blómgast. Helm- ing þessa tíma hefur Leikfélag Dalvíkur starfað og notið við- urkenningar fyrir metnaðarfullt starf. Leikfélagið mun nú í vikunni frumsýna eitt af öndvegisverkum leikhúsbókmennt- anna Mávinn eftir Tsjekhov og er það vel að slíkt gerist á þessum tímamótum. J.A. I Norðurlandskjördæmi eystra verða eftirtaldir listar í kjöri við Alþingiskosningarnar 8. apríl 1995 A-listi Alþýðuflokksins, Jafnaðarmannaflokks íslands 1. Sigbjörn Gunnarsson, alþingismaður, Akureyri. 2. Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, frkvstj. hjá íþróttasambandi fatlaðra, Garðabæ. 3. Aðalheióur Sigursveinsdóttir, verslunarmaður, Akureyri. 4. Pálmi Ólason, skólastjóri, Þórshöfn. 5. Halldór Guómundsson, bifvélavirki, Ólafsfirði. 6. Hanna Björg Jóhannesdóttir, talsímavöróur, Akureyri. 7. Viðar Valdemarsson, matreióslumeistari, Dalvík. 8. Hilmar Ágústsson, útgerðarmaður, Raufarhöfn. 9. Sigurrós Jóhannsdóttir, starfsstúlka FSA, Akureyri. 10. Trausti Gestsson, skipstjóri, Akureyri. 11. Áslaug Einarsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi, Akureyri. 12. Guðmundur Hákonarson, framkvæmdastjóri, Húsavík. G-listi Alþýðubandalagsins og óháðra 1. Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, Svalbarðshr. 2. Árni Steinar Jóhannsson, umhverfisstjóri, Akureyri. 3. Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Akureyri. 4. Örlygur Hnefill Jónsson, héraðsdómslögm., Húsavík. 5. Svanfríóur Halldórsdóttir, móttökuritari, Ólafsfirói. 6. Hildur Haróardóttir, verkakona, Raufarhöfn. 7. Steinþór Heióarsson, nemi, Tjörnesi. 8. Margrét Ríkharðsdóttir, þroskaþjálfi, Akureyri. 9. Aðalsteinn Baldursson, form. Verkal.félags Húsavíkur, Húsavík. 10. Jóhanna M. Stefánsdóttir, bóndi, Reykjadal. 11. Kristján E. Hjartarson, bóndi og húsasm., Svarfaðardal. 12. Kristín Hjálmarsdóttir, form. lóju, Akureyri. B-listi Framsóknarflokksins 1. Guðmundur Bjarnason, alþingismaður, Húsavík. 2. Valgeróur Sverrisdóttir, alþingismaður, Grýtubakkahr. 3. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþ.maður, Eyjafjarðarsv. 4. Ingunn St. Svavarsdóttir, sveitarstjóri, Kópaskeri. 5. Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri, Akureyri. 6. Helga Björk Eiríksdóttir, háskólanemi, Dalvík. 7. Elsa Friófinnsdóttir, lektor, Akureyri. 8. Þröstur Aðalbjarnarson, menntask.nemi, Öxarfjarðarhr. 9. Vilhelm Á. Ágústsson, framkvæmdastjóri, Akureyri. 10. Aðalgeir Bjarnason, skipstjóri, Húsavík. 11. Björn Snæbjörnsson, form. Verkal.félagsins Einingar, Akureyri. 12. Böðvar Jónsson, bóndi, Mývatnssveit. J-listi Þjóðvaka 1. Svanfríður Inga Jónasdóttir, forseti bæjarstj., Dalvík. 2. Vilhjálmur Ingi Árnason, form. Neytendafél. Akureyrar, Glæsibæjarhreppi. 3. Magnús Aóalbjörnsson, aðstoðarskólastjóri, Akureyri. 4. Helga Kristinsdóttir, bankastarfsmaður, Húsavík. 5. Árni Gylfason, verkamaður, Raufarhöfn. 6. Jórunn Jóhannesdóttir, leikskólakennari, Akureyri. 7. Sæmundur Pálsson, forstöðumaóur, Akureyri. 8. Ingibjörg Salome Egilsdóttir, sjúkraliði og bóndi, Reykjadal. 9. Gunnar Reynir Kristinsson, stýrimaður, Ólafsfirói. 10. Jón Benónýsson, múrarameistari, Reykjadal. 11. Ásdís Árnadóttir, sölustjóri, Akureyri. 12. Hannes Örn Blandon, sóknarprestur, Eyjafjarðarsveit D-listi Sjálfstæðisflokksins 1. Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, Akureyri. 2. Tómas Ingi Olrich, alþingismaður, Akureyri. 3. Svanhildur Árnadóttir, bæjarfulltrúi, Dalvík. 4. Jón Helgi Björnsson, líffræðingur/rekstrarhagfr., Reykjahreppi. 5. Anna Fr. Blöndal, tækniteiknari, Akureyri. 6. Gunnlaugur Magnússon, rafvirkjameistari, Ólafsfirði. 7. Rúnar Þórarinsson, oddviti, Kópaskeri. 8. Sæunn Axelsdóttir, framkvæmdastjóri, Ólafsfirói. 9. Sædís Guðmundsdóttir, nemi, Húsavík. 10. Andri Teitsson, verkfræðingur, Akureyri. 11. Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri, Akureyri. 12. Ingvar Þórarinsson, bóksali, Húsavík. V-listi Samtaka um kvennalista 1. Elín Antonsdóttir, atvinnuráógjafi, Akureyri. 2. Sigrún Stefánsdóttir, húsmóðir, Akureyri. 3. Ásta Baldvinsdóttir, skólaritari, Reykjadal. 4. Bjarney Súsanna Hermundardóttir, bóndi, Þórshafnarhr. 5. Sigurlaug Arngrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Akureyri. 6. Gunnhildur Bragadóttir, sjúkraliði, Akureyri. 7. Jófríóur Traustadóttir, leikskólakennari, Eyjafjarðarsveit. 8. Ragna Finnsdóttir, prentsmióur, Akureyri. 9. Hólmfríóur Haraldsdóttir, húsmóðir, Grímsey. 10. Helga Erlingsdóttir, oddviti, Ljósavatnshreppi. 11. Guðbjörg Þorvarðardóttir, dýralæknir, Húsavík. 12. Málmfríður Siguróardóttir, bókavöróur, Akureyri. Akureyri, 27. mars 1995. F.h. landskjörstjórnar skv. umboði, Freyr Ófeigsson, formaður yfirkjörstjórnar Norðurlandskjördæmis eystra.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.