Norðurslóð - 29.03.1995, Page 5
NORÐURSLÓÐ —5
Leikfélag
Dalvíkur
Mávur
Tsjek-
hovs
frum-
sýndur
Annað kvöld, fimmtudaginn 30.
mars, frumsýnir Leikfélag Dal-
víkur hinn sígilda gamanleik
Mávinn eftir rússneska skáldjöf-
urinn Anton Tsjekhov. Er þetta
þriðja frumsýning félagsins á
rúmu ári svo varla verður það
sakað um aðgerðarleysi á af-
mælisárinu, en félagið átti háflr-
ar aldar afinæli í fyrra.
Mávurinn er eitt þeirra fjögurra
leikverka sem halda nafni Tsjek-
hovs á lofti sem leikritaskálds. Það
hefur margoft verið sýnt hér á
landi sem annars staðar og ávallt
notið vinsælda. Síðast var það sýnt
í Þjóðleikhúsinu í fyrravetur og
þótti sú sýning mjög athyglisverð.
Þessa stundina er Mávurinn á fjöl-
um tveggja leikhúsa í Moskvu en
þar leita menn mjög til verka
Tsjekhovs í leit að menningarleg-
um uppruna sínum um þessar
mundir.
Leikrit Tsjekhovs gerast öll
meðal sama fólksins: rússnesks
aðalsfólks um síðustu aldamót,
fólksins sem Tsjekhov þekkti best.
En það er bara umgjörðin, inntakið
er mannleg samskipti, ástir, til-
finningar, Iistin og allt þetta sem
fólk á sameiginlegt um allan heim.
Þess vegna leita þessi verk stöðugt
á fólk hvar sem það býr, atvinnu-
mönnum jafnt sem áhugaleikfé-
lögum finnast þau ögrandi verk-
efni að fást við. Og áhorfendur eru
sama sinnis.
I sýningu Leikfélags Dalvíkur
eru engir nýliðar að þessu sinni, öll
hlutverkin skipuð fólki sem hefur
komið við sögu félagsins síðustu
árin og jafnvel dæmi um fólk sem
er að stíga á svið aftur eftir nokk-
urra ára hlé. Leikstjóri er enginn
annar en Arnar Jónsson sem hefur
áður komið við sögu LD þegar
hann setti upp rómaða sýningu á
söngleiknum Þið munið hann Jör-
und eftir Jónas Arnason á fertugs-
afmæli félagsins 1984.
Kannt þú
á áttavita?
Námskeið í meðferð
áttavita á vegum
Ferðafélagsins
Nú fer í hönd tími fjallaferða. í
páskasólinni leitar fólk í hópum
upp til fjalla ýmist á vélsleðum
eða fyrir eigin vélarafli. Allt er
það hið besta mál svo fremi sem
fyllsta öryggis sé gætt.
Eitt af því nauðsynlegasta senr
Itafa verður með í hverja fjallaferð
eru kort og áttaviti. En slíkir hlutir
korna hins vegar ekki að gagni
nema menn kunni með þá að fara.
Því mun Ferðafélag Svarfdæla
gangast fyrir eins til tveggja
kvölda námskeiði í meðferð átta-
vita og hefst það n.k. þriðjudags-
kvöld 4. apríl kl 21 í Dalvíkurskóla
eða Tónlistarskóla eftir atvikum.
Leiðbeinandi verður Brynjólfur
Sveinsson. Eru þátttakendur beðn-
ir um að hafa með sér áttavita og
500 kr. þátttökugjald.
Þrettán manns fara með hlut-
verk í Mávinum: Arnar Símonar-
son, Birkir Bragason, Friðrik
Gígja, Guðný Bjarnadóttir, Hjör-
leifur Halldórsson, Lovísa María
Sigurgeirsdóttir, María Gunnars-
dóttir, Omar Arnbjömsson, Oskar
Pálmason, Sigurbjöm Hjörleifs-
son, Steinunn Hjartardóttir, Stein-
Efri mynd: Steinunn Hjartardóttir
og Omar Arnbjörnsson; minni
mvnd: Friðrik Gígja og Lovísa
María Sigurgeirsdóttir. Myndirnar
eru teknar á æfingu.
þór Steingrímsson og Ylfa Mist
Helgadóttir en hún er jafnframt
aðstoðarleikstjóri. Leikmynd og
lýsing er hönnuð af Arnari Jóns-
syni og Kristjáni Hjartarsyni, en
tónlist og píanóleik annast Karl
Olgeirsson. Notuð er nýleg þýðing
Ingibjargar Haraldsdóttur sem
gerð var fyrir uppsetningu Þjóð-
leikhússins.
Eins og áður segir er frumsýn-
ingin annað kvöld, fimmtudag, en
einungis eru fyrirhugaðar sex sýn-
ingar á verkinu, þrjár um næstu
helgi, tvær um aðra helgi og síð-
asta sýningin verður miðvikudag-
inn fyrir skírdag. -ÞH
Húsnæði óskast
Miðaldra, reglusöm, reyklaus hjón með fjögur
smábörn óska eftir að taka á leigu 4-5 herbergja
íbúð á Dalvík, eða næsta nágrenni, frá og með 1.
júní eða 1. júlí.
Skrifið til:
Kristjáns Sigurjónssonar
c/o Kristjánsson
Banérvágen 13
S-554 63 Jönköping
Sverige
Arshátíð
Félags aldraöra á Dalvík og nágrenni
verður haldin aö öllu forfallalausu
laugardaginn 1. apríl í Víkurröst kl. 14.
Vonast er til aö félagar fjölmenni og taki
meö sér gesti.
Frá
kjörstjórn
Dalvíkur
Auglýsing um kjörfund vegna
kosninga til Alþingis
8. apríl 1995
Kosning hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00.
Kosið verður í Efri-skóla. Sá fyrirvari er gerður, að
verði verkfalli kennara ekki lokið á kjördegi verður
kjörstaður í húsnæði Tónlistarskóla Dalvíkur í
Neðri-skóla.
í kjörstjórn Dalvíkur
Sigmar Sævaldsson
Halldór Jóhannesson Helgi Þorsteinsson
Frá kjörstjórn
Svarfaöardals-
hrepps
Kjörfundur vegna alþingiskosninga 8. apríl 1995
hefst í Húsabakkaskóla, syðri heimavist, kl. 11 á
kjördag. Stefnt er að því að Ijúka kjörfundi kl. 19.
í kjörstjórn Svarfaðardalshrepps
Sigríður Hafstað
Björn Daníelsson
GunnarJónsson
Hraðbanki á Dalvík
Sparisjóðurinn hefur opnað hraðbanka í Ráðhúsinu.
Hvað er hægt að gera?
1. Taka út peninga
2. Fá stöðu reiknings
3. Fá útskrift af reikningi
(20 síðustu færslur)
Athi
Ekkert færslugjald
Opíb allan sólarhringinn
4. Millifæra á milli reikninga
Sparisjóður Svarfdæla
- Dalvík -