Norðurslóð - 30.06.1995, Side 1
Lömbin þagna
Riða á Tjörn
Svarfdælsk byggð & bær
19. árgangur
Föstudagur 30. júní 1995
6. tölublað
tár-S|Ii(Bppsp|p
Kýrnar á Hóli leika við kvurn sinn fingur þó kuldalegt sé að líta vfir á Látraströnd.
AHt á floti allsstaðar
Milljónatjón á Dalvík
Vetur konungur var ekki á því
að sleppa taki sínu á okkur þetta
árið og hélt því út allan maí-
mánuð fram til 4. júní. Þá brast
sumarið á með offorsi, vindur
snerist til sunnanáttar en slíkt
hefur vart gerst síðan í fyrra, og
hitinn steig úr 6 gráðum upp í
20. Þannig var veðrið í viku-
tíma.
Slíkar kúvendingar í náttúrunni
gerast náttúrulega ekki án þess að
eitthvað láti undan. Snjórinn
nánast gufaði upp fyrir augum
dalbúa með þeim alleiðingum að
lækir og ár bólgnuðu upp og út
yfir bakka sína. Dalurinn var eins
og fjörður yfir að líta en fjörðurinn
hinsvegar mórauður eins og
jökulá.
Vaiplönd fugla urðu hart úti en
þó má e.t.v. segja að enn verr hefði
getað farið því sökum fannfergis á
venjulegum varpstöðvum á undir-
lendinu liöfðu ýmsir fuglar þurft
að gera hreiður sín á öðrum stöð-
um en venjulega og þá stundum
utan seilingar flóðsins. Sú var t.d.
raunin með álftahjónin á Hrísa-
tjöm sem hröktust með hreiður-
stæði sitt upp á gamla þjóðveginn
og kærðu sig kollótt um þungan
umferðargnýinn á nýja veginum
og óskipta athygli vegfarenda.
Vatnsyfirborðið náði aldrei að gera
þeim hjónum skráveifu, svo var
fannferginu fyrir að þakka.
Tún og beitarlönd spilltust víða
í þessu flóði. t.d. tún á Grundar-
bökkuin og liggur ekkert annað
fyrir en brjóta þau upp að nýju og
freista þess að gera þau brúkleg
fyrir næsta vor. Engjar í niður-
sveitinni voru flestar eins og mold-
arflög yfir að líta þegar vatn sjatn-
aði og verða lítil not af þeim joetta
árið. Þá hlupu skriður á nokkrum
stöðum. Tvær aurskriður féllu í
fjallinu fyrir ofan Skeggstaði og
mátti litlu muna að sumarbústaður
mætti þar örlögunt sínum.
Golfvöllurinn góði, Amarholts-
völlur lenti að hluta til undir vatni,
þ.e.a.s. þrjár brautir af níu. Ekki
telja menn þó að skemmdir verði
varanlegar og jafnvel að aðstæður
hafi batnað sumsstaðar eftir að
flatir hafa verið endurgerðar. Búið
er að reisa vamargarða og er golf-
mennskan kontin í fullan gang.
Vegir og brýr undir
skemmdum
Vegir fóru í sundur á mörgum
stöðum og brýr urðu fyrir skakka-
föllum. Gamla brúin yfir Brimnesá
utan Dalvíkur hrundi og urðu við
það rafmagnstruflanir þar sem raf-
lína lá þar í gegnum stokk. Vegur-
inn fór í sundur á 6 metra kafla við
brúna yfir Skíðadalsá frarnan við
Þverá og brúin lemstraðist nokkuð
þegar gróf undan austari stólpan-
um. Við það urðu bæirnir austan
árinnar; Klængshóll, Hnjúkur og
Hlíð, vegasambandslausir frá
mánudegi og frant á föstudag. Ekki
voru þeir þó alveg einangraðir því
vaskir menn gátu klifið brúarstólp-
ann og komist þurrum fótum yfir
gjána. Þannig fór póstmaðurinn að.
Þverá í Skíðadal veltist upp úr
farvegi sínum, rann langt út með
þjóðveginum og vann nokkur
vegaspjöll. Það sama gerði Lamb-
áin í Svarfaðardal þegar ræsi hætti
að hafa undan vatnsflaumnum og
þurfti að rjúfa veginn til að ekki
hlytust af henni enn alvarlegri
spjöll. Annars staðar tókst með
Bærinn
Allar götur síðan bærinn eignað-
ist svokallað Haraldarhús við
Hafnarbraut á Dalvík liafa bæj-
aryfirvöld haft úti öll spjót til að
lokka arðbær atvinnufyrirtæki
inn í húsið sein skapað gætu ný
atvinnutækifæri og styrkt at-
vinnulíf bæjarins enn frekar. Nú
hafa tekist samningar um að
bærinn kaupi verksmiðjuna
Hrein sem hefur verið í eigu
Nóa/Síríuss, og flytji starfsemi
hennar hingað norður, nánar til-
tekið á neðri hæð nefnds Harald-
arhúss.
Fyrirtækið framleiðir allskyns
harðfylgi að forða skemmdum á
brúm og vegum.
Ekki allt búið enn
Enn er ekki upp talið allt það tjón
sem þessi snögga sumarbyrjun
hafði í för með sér. Það versta er
eftir. Þegar leið á hlýindin fór að
flæða inn í kjallara Ráðhúss Dal-
víkinga þar sem bókasafnið og
Héraðsskjalasafnið er til húsa og í
fleiri kjöllurum í bænum var það
sama uppi á teningnum. Bókasafn-
ið er því óstarfhæft sem stendur og
búið að flytja allar bækur og skjöl
upp á loft í Ráðhúsinu. I og um-
hverfis húsið ganga vatnsdælur
slökkviliðsins nótt og dag og hafa
vart undan þó þær dæli um 3000
lítrum á mínútu.
Grunnvatnsstaðan er nú hærri
en menn muna, vatn streyntir und-
an bakkanum sunnán við frysti-
húsið og sumar götur þorna aldrei
þar sem vatn smitar upp í gegn um
dúandi malbikið. Að sögn Svein-
bjöms Steingrímssonar bæjar-
tæknifræðings er Ijóst að þarna er
um að ræða milljónatjón og mikill
kostnaður verður við að fyrir-
byggja frekari hremmingar af
völdum náttúruhamfara af þessu
tagi.
Það er Ijóst að þó lækir allir og
hreinlætisvörur og veitir það 5
starfsmönnum atvinnu eins og
reksturinn er nú. Ekki verður fyrir-
Enn hefur riðan höggvið skarð í
fjárstofn Svarfdælinga. Síðustu
fórnarlömb faraldursins voru á
fimmta tug fjár á Tjörn ásamt 64
Iömbum. Riða var staðfest í þre-
vetra á fæddri hér heima af Þist-
ilfjarðarkyni og var allt féð skor-
ið niður undir lok sauðburðar
29. maí s.l. Ekki verða gerðar
fleiri tilraunir í bráð með sauð-
fjárrækt á Tjörn og er nú verið
að jafna fjárhús við jörðu.
Hausar voru allir sendir suður
að Keldum til rannsóknar og hefur
niðurstaðna veriö beðið með tals-
verðri eftirvæntingu. Margir hafa
orðið til að gagnrýna þá aðferð
Sauðfjárveikivarna að skera niður
allan stofninn þegar einkenni
koma fram í einum einstaklingi
hvort heldur er á vetri, sumri, vori
eða hausti. Telja sumir að svo
harkalegar aðgerðir hvetji menn
heldur til að halda því leyndu ef
veikin kemur upp. Ekki sé neinn
ár hafi margfaldast í hlýindunum
hefur þó megnið af snjóalögunum
látið sig bráðna beint ofan í
ófreðna jörðina og þar er að finna
ástæðuna fyrir hárri grunnvatns-
stöðu.
Betra hljóð í bændum
En þrátt fyrir margvíslegar auka-
verkanir af þessum vonum seinni
vorfiðringi í náttúrunni anda þó
bændur og önnur vorsins börn hér
tækið rekið sem bæjaifyrirtæki
heldur er hugmyndin sú að bærinn
bjóði bæjarbúum hlut í fyrirtækinu
skaði skeður þó beðið sé með
niðurskurð fram að sláturtíð jafn-
vel þó viðkomandi hjörð gangi
með öðru fé í afrétt. Niðurstöður úr
rannsóknum á Tjarnaránum skera
e.t.v. að nokkru úr um réttmæti
slíkra skoðana.
Niðurstöður fengnar
Nú liggja loks fyrir niðurstöður frá
Keldunr. Skoðuð voru sýni úr öllu
fullorðnu fé frá Tjöm og fundust
veljabreytingar í heila hjá tveim
ám sem báðar fæddust hér í daln-
um. Vefjabreylingar þessar eru
taldar nokkuð órækar sannanir fyr-
ir smiti.
Fyrirhugaður fundur með full-
trúum Sauðfjárveikivarna. verður
væntanlega haldinn í byrjun júlí.og
bíða sjálfsagt margir bændur með
nokkurri eftirvæntingu eftir boð-
skapnum sem þeir hafa nú frarn að
færa.
hjhj
urn slóðir töluvert léttar og horfa
bjartari augum til sumarsins. Gras-
vöxtur tók gríðarlegan kipp og eft-
ir miðjan mánuð voru kýr komnar
út á mörgum bæjum. Tún eru þó
víða mjög blaut af skiljanlegum
ástæðum og enn mega mikil undur
gerast ef sláttur á að geta hafist á
skikkanlegum tíma. Enn er sjór
mög kaldur úti fyrir Norðurlandi
og ríður því á sem aldrei fyrr fyrir
okkur Norðlendinga að suðlægar
og hafa nú þegar nokkrir aðilar lýst
áhuga á að eignasl hlutabréf. Er
síðan ætlunin að bærinn dragi sig
út úr rekstrinum þegar tímar hafa
liðið.
Þá hefur verið ákveðið að ganga
til samninga við nokkur fyrirtæki í
bænum um kaup á efri hæð Har-
aldarhússins. Þessi fyrirtæki eru:
Verslunin Ilex, Þvottahúsið Þern-
an, Asvídeo og Verslunin Tara. Er
f bígerð að setja á stofn verslunar-
og þjónustumiðstöð í húsinu nteð
einhverskonar mini-„KringIu“-
sniði.
hjhj
Ný starfseini í Haraldarhúsið
kaupir sápuverksmiðju
12. júní 1995: Allt á floti í garðinum við Nýjabæ og umhverfis Bílaverkstæðið.
12. júní 1995: Gamla brúin á Brimnesá lét undan vatnsaganum. Enn er þó
nægur snjór eftir í Bæjarfjallinu.