Norðurslóð - 30.06.1995, Side 3

Norðurslóð - 30.06.1995, Side 3
NORÐURSLÓÐ —3 Turistar á Dalvík Hvað stendur þeim til boða hér? Ferðamannatíininn er liafinn og á helstu ferðamannastöðum landsins má sjá flokka af erlend- um ferðamönnuin skimandi eftir nýjum upplifunum í sérstæðri náttúru Islands. Hingað norður til Dalvíkur koma einnig túristar og einhverra hluta vegna vor- kennir maður þessu fólki þegar það verður á vegi manns eins og hálfpartinn vegalaust og vitandi ekki almennilega hvað það á af sér að gera. En er nokkur ástæða til að vorkenna þessum ferða- lönguin? Þeir eru hér náttúru- lega af fúsum og frjálsum vilja og gera sér væntanlega fulla grein fvrir við hverju er að bú- ast. En hvað er ferðafölki boðið upp á hér um slóðir og hvð kostar það? Eftir ótal símhringingar og stund- urn töluverða fyrirhöfn að hafa upp á réttum aðilum kom eftrfarandi upp úr dúrnum. Matsölustaðir I bænum eru tveir matsölustaðir sem bjóða upp á fjölbreyttari mat- seðla: Sœluhúsið og Pizza 67. Báðir þessir staðir eru opnir frá morgni til kvölds alla virka daga og fram til kl. 3.00 um helgar. Boðið er upp á tilboðsrétti dagsins og einnig rétti „A la carte“, fisk og kjöt, pizzur, grænmetisrétti og smárétti. Verð á réttum hleypur frá innan við þúsund krónur upp í 2.000. Vínveitingar eru á báðunt þessum stöðum. Þá geta ferðamenn einnig satt sárasta hungur sitt með hamborg- urum og pylsum eða kaffi og ís á vel innan við 500 kr. á bensín- stöðvum bæjarins; í Spaðanum í Olís-skálanum og Söluskálanum Dröfn. Gisting Sæluhúsið býður upp á gistingu á Heimavist og í Sœluvist. A heima- vistinni er boðið upp á svefnpoka- pláss frá 1.000 kr. og tveggja manna herbergi með uppbúnum rúmum á 2.400 fyrir manninn. A Sæluvistinni er sælan að sjálf- sögðu meiri, herbergi með sjón- varpi, síma og baði sem kosta 3.250 kr. nóttin fyrir manninn. I skíðaskálanum Brekkuseli er svefnpokapláss á 800 kr. en í uppbúnu rúmi kostar nóttin 1500 fyrir manninn. Gestir hafa aðgang að setustofu og eldhúsi og er skál- inn gjarnan leigður út fyrir mann- fagnaði og jafnvel ættarmót. Bændagisting er engin á hinu svarfdælska efnahagssvæði en skammt undan, nánar tiltekið á Ár- skógsströnd, eru lveir ferðabændur með umfangsmikinn rekstur og fjölbreytta dagskrá fyrir ferðafólk í tengslum við þann rekstur. Á Dalvík er gott tjaldstœði og kostar 500 kr. fyrir tjaldið. Sjóferðir 11 aðilar á Dalvík eiga og reka Sjóferðabátinn sem nú um stundir virðist helsti sóknaraðilinn í ferða- þjónustu hér um slóðir. Sjóferðir bjóða upp á útsýnissiglingu út með bjargi og út fyrir Hrólfssker, mið- nætursólarferðir, ferðir til Gríms- eyjar og Hríseyjar, sjóstangveiði og nú síðast hvalaskoðunarferðir. I lítilli vík við Hrísey er llotbryggja og þar er stundum komið við og borðað nesti eða grillað og þá er vinsælt að fara skoðunarferð um eyna undir leiðsögn Sæmundar á Ystabæ. Fargjaldið til Hríseyjar með klukkustundar stoppi er 700 kr. fyrir manninn (lágmark 5 manns). Grímseyjartúrinn kostar ca. 35.000 kr. 3 tíma stangveiðitúr nreð nesti kostar 3.900 kr. og hvalaskoðunarferð kostar 1500 kr. klukkustundin (hvalir sjást í 90% tilvika). Báturinn tekur 22 farþega og er hægt að panta hann hjá Bjarna skipstjóra í söluskálanum Dröfn eða í Sæluhúsinu. Veiði Sem fyrr er boðið upp á stangveiði í Hrísatjörn. Þar kostar 2.000 kr. 5 klst. veiði frá kl. 7-12 eða kl. 17- 22, en 1.500 kr. frá kl. 12-17. Veiðileyfi í Svarfaðardalsá eru seld í versluninni Sportvík. I sumar verða tvö verðtímabil, hið fyrra frá 20. júní tii 20. júli og hið síðara frá 21 .júlí til 10 sept. Kostar stöngin kr. 1.000 á fyrra tímabilinu en kr. 2.000 á því síðara. Söfn Byggðasafnið Hvoll er opið alla daga frá 13-17 og er þess utan opnað fyrir ferðahópa sé þess óskað. Sund Sundlaugin nýja á Dalvík er sann- kallaður unaðsreitur fyrir fólk á öllum aldri með pottum og bama- laug og rennibraut og gufu og ljós- um, opin í sumar frá 7 á morgnana til 21 á kvöldin og kostar 150 kr. fyrir fullorðna og 70 kr. fyrir böm. Sundskáli Svarfdœla er eina laugin á landinu sem hægt er að taka á leigu l'yrir sig prívat og kostar 500 kr. einn og hálfur tími Frá „miðnætursólargöngu'1 Ferðafélagsins í Múlann. Sumaráætlun Ferðafélagsins Suniarvertíð Ferðafélags Svarfdæla er nú hafin og suinaráætlunin fvrir allnokkru ákveðin þó ekki hafi hún verið fullmótuð þegar síðasta blað fór í prentun. Tvær fyrstu ferðir sumarsins eru nú yfirstaðnar, sú fyrri var raunar ferð sem aldrei var farin. Jónsmessuferðin var hins vegar farin og þar rnættu 25 manns og gengu gamla Múlaveginn út á plan í góðu veðri þó ekki hefði miðnætursólin látið sjá sig. Óhætt er að mæla með þessari gönguleið fyrir heimamenn og gesti. Vegfarendur hljóta að fyllast lotningu gagnvart stórbrotinni náttúrufegurðinni lil sjós og lands en ekki síður fyrir kjarki og áræðni þeirra manna sem á sínum tfma lögðu þcnnan veg á hrikalegasta vegarstæði íslands. En það var sumaráætlunin sem við ætluðum að kynna. Laugard. 3. júní Stekkjarhúsaferð (sem aldrei var farin) Laugard. 24. júní Sunnud. 2. júlí Laugard. 5. ágúst Laugard. 26. ágúst Laugard. 2. sept Laugard. 30 sept Jónsinessuganga út í Múla. Fjölskylduferð upp að Hraunsvatni ásamt Ferðaf. Hörgi í Hörgárdal Héðinsfjarðarganga. Siglt með Sjóferðum til Héðins- fjarðar og gegið þaðan til Olafsfjarðar. Vinnuferð á Tungnahrygg. Fjallganga á Stólinn Haustlitaferð fjölskyld- unnar eftir Hillum. Frá Götu að Fagraskógi. Ferðin að Hraunsvatni næsta sunnudag verður farin frá Hálsi í Öxnadal. Upp að vatninu er hálftíma léttur gangur fyrir allar tegundir fólks. Stefnt er að því að fá leyfi til að renna fyrir fisk fyrir þá sem það vilja og einnig er á dagskránni göngutúr um ná- grennið með leiðsögn kunnugra. Iijhj ■ iHi Póstkort frá Dalvík. plús 100 kr. fyrir fullorðna og 50 fyrir börn. Auk þess er á fimmtu- dagskvöldum almenningstími. Golf Arnarholtsvöllur er 9 holu golf- völlur sem nýtur sívaxandi vin- sælda heimamanna og fleiri. Þar er golfskáli og veitingasala. Vallar- gjaldið er kr. 500 fyrir fullorðna og 250 fyrir böm. Af öðru því sem glatt getur ferða- menn á svæðinu eru það náttúru- lega gönguleiðir unt villta og óspillta náttúruna allt f kring sem ntunu þegar fram í sækir án efa hafa meira aðdráttarafl en margan grunar. Enn vantar þó merktar gönguleiðir. Hestaleiga er hér engin en að sögn Júlíusar í Sæluhúsinu er þó lítið mál að úlvega hross þegar ntikið liggur við. Reiðhjólaleigu vantar sömu- leiðis en Jón Halldórsson í Sport- vík sagðist þó hafa bjargað mönn- um í neyð og að hann hefði fullan hug á að vera með nokkur hjól til leigu í framtíðinni. Hafa ber í huga að hér er aðeins til umfjöllunar það sem túristum stendur til boða að sumrinu. Skíða- aðstaðan í Böggvisstaðafjalli og öll uppbyggingin sem þar hefur orðið í seinni tíð er því ekki inni í myndinni hér. Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu er töluverð hreyfing nú um stundir í þá átt að koma Dalvík á Islandskortið sent ferðamannastað. Með hliðsjón af upplýsingunum hér að framan er ljóst að margt er til staðar hér sent slíkan stað má prýða. Hins vegar er ekki auðvell að fá upplýsingar um hvað hér er að finna eða hugmyndir um hvern- ig hér sé hægt að eyða deginum. Hvergi liggjaframmi bæklingarog raunar eru slíkir bæklingar ekki lil í handhægu formi. Einnig vantar upplýsingar um samgöngur á sjó og landi og líklega þarf að leggja vinnu í að samræma alla aðila í því sviði. Ferðamálanefnd Dalvíkurbæjar ásamt ferðamálafulltrúanum Kol- beini Sigurbjörnssyni hafa uppi stór áfornt í þessum efnum og verður spennandi að sjá hverju verður áorkað á næstunni. hjhj Sjóferðir hf. Dalvík Bjóðum upp á: Skemmtisiglingar Ævintýraferð m/veiði og grilli Sjóstangaveiði Miðnætursól Upplýsingar í símum: 466 1488-466 1236 Um borð í bátnum: 852 5919 Boðtæki: 846 3226 Fax: 466 3178 Dalvíkurbæ Ákveðið hefur verið að reyna að fækka villiköttum í bæjarlandinu dagana 4. til 7. júlí 1995. Kattaeig- endur eru því beðnir að halda heimilisköttum inn- andyra. Eigendum er bent á að merkja heimilisketti sína betur og gæta mun betur að þeim en verið hefur.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.