Norðurslóð


Norðurslóð - 18.12.1996, Page 14

Norðurslóð - 18.12.1996, Page 14
14 — NORÐURSLÓÐ Mj ólkurflutning- ar í hálfa öld... Framhald afbls. 13 þó hún kæmi ekki annars staðar að í Samlagið. Það var líka þessum trukkum að þakka. Þeir komu seinna fram í Eyjafjörð, enda nátt- úrulega miklu snjóléttara hérað. Það var oft hægt að fara á trukkun- um utan vegar. Eg man dæmi um það. Það var t.d. hægt að fara upp hjá Auðnum [næst framan við Hól], en þá var vegurinn niður við hvamminn hjá Höfða, og fara svo yfir Símonarlækjargilið. Það var enginn vegur þar en ef snjórinn var nógu mikill í gilinu var hægt að fara þar yfir. Við fórum þá nokk- um veginn eins og vegurinn er núna. Það var oft mikið á sig lagt á þessunt tíma, að finna þetta út og komast fram á fremstu bæi. Eða þegar við fórum upp hjá Hrapps- staðakoti og suður fyrir ofan reit- inn á Holtsmóunum. Þetta var hægt að fara með gætni ef maður passaði sig að fá ekki stóra þúfu undir hásingu og slíkt. Og eins innan við Fagraskóg að við fórum stundum niður túnið og yfir fram- an við lónið og svo suður Arnar- neshæðina. Það gat verið ófært suð- ureftir neðan við Kjarna og þar.” Handmoksturslið Þegar farið var að kappkosta að koma bílunum um sveitina að vetr- inum var ein samgöngubótin að skipuleggja handmokstur til að opna höft. Þá var ýmist að bændur höfðu herútboð gegn ákveðnum sköflum (Skíðdælingar fóru í Hvarfið, Svarfdælingar í Urðaeng- ið) eða að Baldvin kaupfélagsstjóri sendi út bíl mð moksturslið. Hulldór: „Á árunum eftir 1940 var yfirleitt snjólétt, en svo versn- aði það þegar dró nær 1950. Eg var þá stundum með þessa moksturs- hópa. Það var bara smalað mönn- um. Eg man einu sinni að ég var á leiðinni inneftir og mæti moksturs- hóp Ströndunga neðan við Krossa. Og það er einhver sem segir við Kristján á Hellu, hann stjórnaði, hvort hann ætlaði ekki að moka skaflinn suður af hæðinni sunnan og neðan við Krossa, og Kristján svarar „Ja, ég var að hugsa um að láta sólina moka þennan.” Vorið 1949 var með afbrigðum snjó- þungt. Þá fór ég einmitt með Gunna á Churchill [einn trukkur- inn] fram í Skíðadal þann 29 maí. Eg skildi eiginlega ekkert í því hvemig Gunni gat ekið, ég sá ekki glóru, en hann ók og ók, það sá hvergi á dökkan díl. Svo komum við í Dælisbrekkuna og þar var mokstur og ég var með myndavél og tók mynd af trukknum í snjó- göngunum. Hún kom í Heima er best. og nokkrum árum seinna kom hún í einhverju sunnlensku blaði til að lýsa færinu kringum höfuðborgina!” Á þessum árum voru bílstjór- arnir oft boðnir í kaffi á bæjum. Einna algengustu áningarstaðir voru Sandá og Ytra-Hvarf og svo Fagriskógur á inneftirleiðinni. Áning á Hvarfi og í Fagraskógi Gunnar: „Það var ekki síst ef ófært var í Skíðadalinn að manni var boðið inn á Hvarfi. Tryggvi hafði gaman af að fá okkur í spjall. Það var mikill barningur að koma bílunum fram í dalinn, sérstaklega Gunnar Jónsson frá Hæringsstöðuin og Gamli Gulur. (Ljósmynd: Júlíus J. Daníelsson) Svarfdælingar koma með fulla dunka og sækja tóma til Dalvíkur í Ófærð. (Mynd í eigu Kristínar Gestsdóttur) Gunnar: „Þá setti Daníel læknir á algjört samgöngubann. Það mátti þó flytja mjólk ef bíl- stjóramir kæmu hér hvergi við. Við máttum ekki koma við heima hjá okkur né heim á bæi. Ekki hafa samneyti við neinn. Ekki koma með bréf innanað, en hins vegar mátti fara með bréf inneftir. Við urðum alltaf að gista innfrá. Þetta stóð í hálfan annan mánuð og þetta var mjög erfiður kafli. Einu sinni vorum við að berjast innanað allan daginn. Bæði ófærð og vont veður. Og þegar við komum á Há- mundastaðahálsinn þá versnaði veðrið enn. Mig minnir að við næð- um mjólkinni á Hrísum en urðum þar að snúa við og fara með tóma bílana inneftir aftur, og það fannst okkur alveg voðalegt. Það var komið fram á dag þegar við kom- um inneftir daginn eftir. Við sváf- um einhverja stund en þá birti svo við fórum aftur. I annað skipti man ég að við Jói komum innan að og ég fór fram að vestan en hann að austan. Skiptum vikulega um kjálka. Það var leið- indaveður og blindað mjög. Og þegar Jói kom eitthvað suðurfyrir Skáldalæk þá missir hann trukkn- um fram af veginum og nær hon- um ekki upp. Hann gengur þá heim í Skáldalæk, þá var sími kominn þar, og hann biður Snjólaugu að hringja í Steina Kidda og biðja hann að koma og draga sig upp. Netaverkstæðið átti þá trukk eins og okkar. Svo þurfti Jói að bíða eftir Steina. Og hann bara gengur þar um gólf á hlaðinu í stórhríð- inni. Þá kemur Snjólaug allt í einu út og grípur hann bara í fangið án þess að hann geti forðað sér. Hann mátti auðvitað alls ekki koma inn. En hún segir við hann. „Komdu inn og fáðu þér kaffi, Jói, og það skal aldrei vitnast að þú hafir kom- ið hér inn, þó lömunarveikin kynni að koma hér upp.” Hún sagðist ekki geta horft á hann svona í hríð- inni. Eg man hvað Jóa féll þetta illa eftirá að hún skyldi ná sér þama. Því ef lömunarveikin kæmi þama upp yrði það náttúrulega rakið og honum kennt um. Enn eina sögu man ég frá þess- um vetri. Við komum utanað seint um nótt. Eg man við keyrðum á móti einstefnureglum eftir Skipa- götu. Við losuðum held ég annan þflinn uppí Samlagi. Svo löbbuð- um við niður á Hótel Goðafoss, þar sem við höfðum herbergi, og ætl- uðum úr úlpunum en gátum þá ekki hneppt neinni tölunni. Ulp- umar voru orðnar svo brynjaðar. Okkur þótti sárt hvað við urðum bíða lengi í forstofunni á hótelinu. Við tímdum ekki að skera tölumar úr.” Það hefði kannski bæst skaðinn með tölumar því þegar þeir Gunn- ar og Jóhann loksins komust heim úr útlegðinni kom Baldvin kaupfé- lagsstjóri á móti þeim með sína Hekluúlpuna handa hvorum. Sjóflutningar Það stóð ekkert á sögum frá upp- gjafabflstjórunum. Það voru líka sjóferðasögur, því það gátu komið alllangir kaflar sem hvorki var fært í dalinn né inneftir á bíl. Þá var stundum löng mna af hestum og sleðum niður á bryggju, og með tímanum dráttarvélum. Bflstjór- amir fóru með bátnum og höfðu þá oftast skilið eftir bíl innfrá til að keyra frá Torfunefi og upp í Sam- lag. Nefndir voru bátar eins og Skúli fógeti, Nói, Amgrímur, Hrís- eyjarferjan. Gunnar man eftir að þeir sigldu næstum upp í fjöru við Fagraskóg í stórhríð af því þeir héldu að útiljósið þar væri vitinn á Hjalteyri. Einu sinni strandaði Skúli fógeti á Hörgárgrunni og annað skipti kviknaði í Nóa. En allt slapp þó stórslysalaust. En bændur og bflstjórar voru sammála um að draga úr sjóflutningum sem kostur var. Þeir voru miklu dýrari og svo var bölvað púl að lesta of aflesta bátana. Að lokum: Ef einhvem tíma verður samin svarfdælsk „innan- sveitarkróníka” frá 20. öldinni er bersýnilegt að saga mjólkurflutn- inganna verður að eiga þar góðan kafla. Mjólkurbílstjórarnir Jói, Dóri og Sveinn. Myndin er tekin um 1950. (Mynd í eigu Friðrikku Óskarsdóttur) Mjólkurstefnumót. Alexander Jóhannesson bóndi í Hlíð réttir Jóni A. Jóns- syni mjólkurbílstjóra dunkana. (Mynd: Héraðsskjalasafn Svarfdæla) Skíðadalinn, það gerði Hvarfið. Ég man einn seinnipart vetrar þá var Rögnvaldur í Dæli búinn að koma tvisvar út í Y-Hvarf að ræða við Tryggva um að ýta á það að bíllinn færi a.m.k. fram í Dæli að sækja mjólk úr dalnum. Það var ekkert þægilegt að komast yfir Hvarfið með hesta heldur. Það var svo bratt og ófærð í skaflinum sunnan í því. Þennan dag kom ég þarna í kaffi og Rögnvaldur líka og ég ætlaði að reyna við Hvarfið. Þá sagði Tryggvi: „Ég kem með”. Og Rögnvaldur stóð úti á bretti. Þá var vegurinn upp Hvarfið niðri á ár- bakkanum. Ég man að ég bakkaði dálítið þama uppá, það var auður hryggurinn, og lét svo vaða suður af, það gekk dálítil snjógusa út frá bílnum og Rönvaldur missir af sér húfuna. Ég ætlaði þá að stoppa. „Nei, við skulum ekki stoppa” sagði Tryggvi, „við skulum ekki láta hann ná húfunni”, svo ég hélt bara áfram og alla leið fram í Dæli. Við fórum út og Tryggvi sagði. „Hvað, ertu búinn að missa húf- una?”. „Já, hún hvarf, en það gerir ekkert fyrst bíllinn komst í Dæli, komið inn og fáið ykkur koníak.” Tryggvi fór líka frameftir með mér einu sinni fyrripart sumars. Svo þegar við komum fram í Dæl- ishólana sjáum við Rögnvald þar útfrá og á fjórum fótum. Tryggvi biður mig að stoppa. „Hvað ætli helvítis karlinn sé að gera”. Hann fer svo út og kallar og spyr hvað hann sé að gera. „Ég er að gróður- setja”. Þetta fannst Tryggva ólík- legt og spurði hvað hann meinti með því, þetta yrðu nú varla tré. „Ég er að gera þetta fyrir barna- bömin”. En hvað varð, nú eru bamabömin þarna öll sumur.“ Halldór: „Fagriskógur var fast- ur viðkomustaður hjá okkur. Þar komum við oft við og fengum okk- ur kaffi á veturna. Gestrisni þar var mikil. Við tókum oft mjólkina í Fagraskógi, þó við ættum ekki að gera það, ef þeirra bfll hafði ekki komið.” Gunnar: „Ég man við komum eitt sinn sem oftar þar við í blind- stórhríð. Bflamir stóðu þar á hlað- inu og veðrið svifti þeim hálfpart- inn til á svellinu. Við fórum í kaffi. Stefán bóndi þurfti þá að komast suður á þing og spurði hvort hann fengi pláss hjá okkur. Það fékk hann. Maður sá oft lítið út um framrúðuna á bílnum fyrir hríð og svelli og þurfti að hafa hliðarrúð- una opna. Hann var farþegi hjá mér, Stefán. Ég hafði hausinn út um rúðuna og var ekkert að yrða á hann. Það var nú kannski ekkert of heitt þama. Þegar við komum inn í Brekkumýrar fór heldur versnandi veðrið. Ég man mér varð þá litið á Stefán og þá er þetta bara snjókarl þama við hliðina á mér, allur bar- inn í snjó. Svo komum við inn að Hörgárbrúnni. Þá reisti Stefán sig upp, hann gat ekki reist sig mikið en aðeins, hristi af sér snjó og sagði: „Ég dáist að ykkur Dalvík- urþílstjórum að hitta á Hörgár- brúna.““ Akureyrarveiki - sóttkví Enn heldur Gunnar áfram og talar nú um Akureyrarveikina sem lagð- ist hér að haustið 1948, skæð taugaveiki sem gat valdið löntun. sá vetur var erfiður og snjóþungur.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.