Norðurslóð - 18.12.1996, Síða 17
NORÐURSLÓÐ —17
Bréf frá Kazakstan
Hafrún Ösp Stefánsdóttir er barnapía austur undir
kínversku landamærunum
Norðurslóð er sem kunnugt er
víðlesið blað og berst það víða
um heiminn. Einn fjarlægasti
kaupandi blaðsins er Adda
Steina Björnsdóttir sem býr
ásamt manni sínum Þóri Guð-
mundssyni sendifulltrúa Rauða
Krossins,og tveim sonum í Kaz-
akstan, í höfuðborginni Almatv
(Alma Ata) ekki langt frá landa-
mærum Kína. Hjá þeim dvelst
sem barnfóstra og túlkur Haf-
rún Ösp Stefánsdóttir dóttir
Stefáns Jóns Bjarnasonar fyrr-
verandi bæjarstjóra á Dalvík.
Frá henni fengum við þetta bréf
á tölvupóstinum 12. desember
s.I.
Perustíg,
Föður eplanna,
Landi Kazakka
á aðventunni 1996
Heil og sœl!
Þegar rótlausum aumingja skýtur
upp í Mið-Asíu hugsar hann heim
og þá ekki síst til Dalvíkur og
Svarfaðardals. Eg er að dúlla mér
við bamagæslu og um leið að
þjálfa mig í rússnesku. Rússneskan
brúkast í sífellu af algjörri nauðsyn
því hér talar fólk helst ekkert ann-
að. Krakkar á mínum aldri eru
önnur til þriðja kynslóðin sem
verður að læra kasöksku sem ann-
að mál (á eftir rússneskunni) og
kann hana því ekki fullkomlega
lengur, svo heyri maður á tal 2ja
Kazakka tala þeir svo til án undan-
tekninga saman á rússnesku. Þjóð-
emishyggja er varla til hérna,
venjulegir Kazakkar vara mann
við þeim sérvitringum, að hlusta
ekki á vitleysuna í þeim, þeir séu
engi skárri en Zhirinovskij. Að
sama skapi tala þeir um hálfvitana
frændur sína í Túrkmenistan og
Tadjikistan að vilja ekki hafa gott
samband við Rússa, sem hér er
talið skipta öllu. Að mörgu leyti er
það rétt. Kazakkar eru Rússum
háðir að því leyti að í gegnum land
þeirra (Rússanna) þarf að flytja öll
aðföng til Kazakstans. Núna fyrst
skil ég hversu margt gott hefur
hlotnast landi okkar og þjóð vegna
ótakmarkaðs aðgangs að hafi - við
erum a. m. k. ekki lengur upp á
aðrar þjóðir komin með vömflutn-
inga. Rússar geta (og gera það oft)
auðveldlega stöðvað vöruflutninga
á leið gegnum landið til að þrýsta á
greiðslur - t. d. er mikið rafmagn
keypt frá Rússlandi - og stuðning í
utanríkismálum og á meðan kemur
sem dæmi engin gerilsneydd mjólk
inn í landið og því sérstaklega mik-
ilvægt fyrir barnafjölskyldur að
hamstra hana. Nóg um þjóðina að
sinni.
Almaty er höfuðborg landsins
og hér búa um 1,7 milljónir. Flest
er hægt að kaupa hér, með mis-
mikilli fyrirhöfn þó. Hér eru alls
konar veitingahús og glæsihótel,
en erfiðast er að fá drykkjarhæft
kaffi.
Hinn vestræni staðall Almaty er
þó ekki landlægur og fyrir norðan
og vestan býr fólk enn í mikilli
fátækt við frumstæðar aðstæður.
Við fórum í sumar að vatni héma
rétt norðan við borgina og á leið-
inni þangað mættum við hestvögn-
um á hraðbrautinni sem við af-
greiddum sem Sígauna að sinni. A
bakaleiðinni um kvöldið kom þó í
ljós hvað í raun var um að vera.
Hirðingjarnir að norðan voru að
flytja tjöld sín og búsmala í sumar-
beitina hérna suður í fjöllunum og
þurfa núna sökum þéttbýlis og
mikillar ræktunar á óbyggðum
svæðum umhverfis borgina að
reka hjarðimar eftir hraðbrautinni.
Við keyrðum fram úr tveimur
stórrekstrum með kindum, kúm og
geitum sem rekin vora áfram af
stórum hundum, mönnum á hest-
baki og hlaupandi berfættum strák-
um, en konumar hafa líklega farið
á undan með stelpumar í hestvögn-
um sem notaðir eru til að flytja
tjöldin þeirra sem heita „Júrta“ og
er slegið upp á trégrind en eru að
öðra leyti úr unninni ull sem haldið
er saman með litríkum og skraut-
legum ullarvafningum sem helst
líkjast löngum treflum. Það tekur
þau innan við 2 klukkustundir að
Hvenær koma þeir?
Jólasveinarnir tínast nú einn af öðrum tik byggða ungu kynslóð-
inni til ómældrar gleði enda koma þeir víða við og skilja hvar-
vetna eftir glaðning í litlum skóm. Til gamans og glöggvunar
rifjum við nú upp hvaða jólasveinn kemur hvaða dag.
12. desember Stekkjastaur
13. desember Giljagaur
14. desember Stúfur
15. desember Þvörusleikir
16. desember Pottasleikir
17. desember Askasleikir
18. desember Hurðaskellir
19. desember Skyrgámur
20. desember Bjúgnakrækir
21. desember Gluggagægir
22. desember Gáttaþefur
23. desember Ketkrókur
24. desember Kertasníkir
slá þessum tjöldum upp. Á Stalín-
tímanum var reynt að fá þá til að
setjast að á samyrkjubúunum, en
eftir að rúmlega 3 milljónum
þeirra hafði verið slátrað vegna
mótþróa gáfust kommúnistar upp
(samt þóttust þeir hafa fengið tölu-
vert af hugmyndafræði sinni frá
lífsstíl þeirra!) - Jæja, enn ein
þversögnin hjá þeim blessuðum.
Þegar ég kom hingað á vormán-
uðum var enn mikill „Sovét“-brag-
ur á hlutunum, lítið og lélegt vöru-
úrval og rússneskt yfirbragð alls-
ráðandi. Um sumarið gjörbreytti
borgin um svip; upp spruttu kaffi-
hús (götubarir) eins og gorkúlur og
vestrænar vörur tóku að birtast í
verslunum. Miklar breytingar sem
vonandi eru til hins betra, ég er nú
samt hrædd um að innfæddir hafi
sjaldan efni á þessum nýju inn-
fluttu vörum. Við erum annars
ekki í miklu sambandi við inn-
lenda. Hér er svo mikið af útlend-
ingum sem flestir vinna við hjálp-
arstofnanir eða einkavæðingarpró-
grömm og hafa fjölskyldumar með
sér. Tvisvar í viku er hist hjá ein-
hverjum sem búa í stórum húsum
og haldnir leikhópar fyrir bömin.
Þar fell ég mitt á milli hópa; get
talað ensku við frúmar en reyni
lfka að babla aðeins við rússnesku
bamfóstrumar, því núna er ég eina
„innflutta" bamapían. Annað slag-
ið er svo aðeins lagt út af laginu og
tilveran krydduð örlítið. Sérstak-
lega var mikið gert úr Halloween
eða Hrekkjavöku og snerist leik-
hópurinn þann daginn eingöngu
um hana. Hálffyndið að vera stödd
í Mið-Asíu og tileinka sér banda-
ríska siði. Ég var spákona veisl-
unnar og það tók svo sannarlega á
að skálda upp einhverjar sögur fyr-
ir hvem einasta krakka á svæðinu,
ég spáði meira að segja á rússn-
esku fyrir eitt þeirra! Erfitt, en
gaman.
Annars erum við búin að eiga í
ýmsum hremmingum með orku-
gjafa, töldum okkur vera í góðum
málum með 3 rafmagnsinntök og
gas. En það dugar ekki alltaf. Við
höfum verið tölvusambandslaus i
vikutíma tvívegis og símasam-
bandslaus alltaf annað slagið. Þó
finnst manni ekki hægt að kvarta
þegar fólk hringir eins og Tom
vinur okkar sem spurði hvort hann
gæti fengið vatn hjá okkur, þau
hafa ekki haft heitt vatn frá því í
byrjun október og höfðu á tímabili
ekkert kalt heldur.Gasið okkar er
búið að vera svo lágt frá því í októ-
ber að það tekur rúmlega 2 klst. að
hita mjólkurgraut og einu sinni
steikti ég 20 lummur á einum og
hálfum tíma! Við erum að hugsa
um að fara hvað úr hverju að sjóða
hangikjötið, ekki seinna vænna ef
það á að vera til um jólin!
Mínar bestu jóla- og nýárskveðj-
ur, með þökkum fyrir liðin ár.
Hafrún Ösp Stefánsdóttir
Ps. Sérstaklega langar mig að
þakka fyrir Norðurslóð, sem berst
reglulegar en Mogginn og flytur
skemmtilegri fréttir en skeytin frá
RÚV. HS.
FLUGLEIÐIR
Umboð Flugleiða
Dalvík
óskar öllum Dalvíkingum og
Svarfdœlingum gleðilegra jóla
og farsœldar á nýju ári.
Þakka mikil og góð viðskipti á
árinu sem er að líða.
Verslunin Sogn
Goðabraul 3 • Sími 466 1300
Sólveig Antonsdóttir
Sendum starfsfólki okkar og viðskipta-
vinum bestu óskir um gleðileg jól og
farsœld á komandi ári.
A árinu sem er að líða minntist Bliki hf. þess að liðin
voru 25 árfrá stofnun fyrirtœkisins. Við viljum þakka
árnaðaróskir og kveðjur sem bárust fyrirtœkinu af
því tilefni.
Um nœstu áramót verða kaflaskil í starfsemi
fyrirtœkisins þegar Bliki hf. og G.Ben sf. sameinast í
nýju fyrirtœki B.G.B. hf.
Sameining fyrirtœkjanna er gerð til að efla þá
starfsemi sem verið hefur á vegum þeirra.
Um leið og eigendur Blika hf.fagna samstarfi við
nýja aðila undir nýjum merkjum vilja þeir þakka
starfsfólki og viðskiptavinum fyrir samstarfið á
liðnum 25 árum.
Bliki hf.