Norðurslóð - 13.12.2007, Síða 3
Norðurslóð - 3
Góð staða en við þurfum
á öllu okkar að halda
Rœtt við Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra um jjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar
Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar
afgreiddi fjárhagsáætlun ársins
2008 á fundi sínum 4. desember sl.
Að sögn bæjarstjóra, Svanfríðar
Jónasdóttur, var mjög góð
samvinna allra bæjarfulltrúa í
fjárhagsáætlunarvinnunni og var
áætlunin samþykkt samhljóða.
Helstu niðurstöðutölur eru að
rekstrarafgangur A og B hluta sam-
antekið er ríflega 152 milljónir og
Verið að
semja við
Tréverk um
stórbyggingu
á Akureyri
Tréverk hf. var meðal
fjögurra verktakafyrirtækja
sem buðu í 4. áfanga
byggingaframkvæmda við Há-
skólann á Akureyri. Fram-
kvæmdasýsla ríkisins mæfti
með tilboði Tréverks og staðfesti
Bj örn F riðþjófsson það í samtali
við Norðurslóð og jafnframt
að viðræður við Tréverk um
framkvæmdina væru hafnar.
Um er að ræða nýbyggingu
að flatarmáli 2.300 fermetrar
og er kostnaðaráætlun 550
milljónir króna.
Þessar byggingarfarm-
kvæmdir hafa tvisvar verið
boðnar út en viðunandi tilboð
hefur ekki fengist að mati Fram-
kvæmdasýslu ríkisins fyrr en
nú með boði Tréverks. Aætluð
verklok eru í lok maí 2010 sam-
kvæmt upplýsingum Háskólans
á Akureyri.
veltufé frá rekstir er um 324 millj-
ónir en það sýnir hve mikið er til
ráðstöfunar til framkvæmda og
afborgana lána.
Þetta er afar jákvæð niðurstaða
og hefur á nokkrum árum orð-
ið mikill viðsnúningur á íjár-
hag sveitarfélagsins. Aðspurð um
skýringu sagði Svanfríður að þær
væru nokkrar. A árabilinu 2001-
2005 voru miklir erfiðleikatímar
hjá mörgum sveitarfélögum þar
sem fjölbreytt þjónusta hafði verið
byggð upp en fólki var að fækka.
Jöfnunarsjóði var ekki beitt til að
aðstoða þessi sveitarfélög og þau
lentu mörg, m.a. Dalvíkurbyggð,
undir hrammi eftirlitsnefndar með
fjármálum sveitarfélaganna. Hér
var því mikið aðhald í rekstri og
framkvæmdum.
Tímabundin framlög
„Okkur hefur svo tekist að halda
rekstrinum sæmilega í horfinu,
aukin umsvif og framkvæmdir í
sveitarfélaginu skapa meiri tekjur,
við höfum selt mikið af íbúðum
sem voru í eigu sveitarfélagsins
og svo hefur Jöfnunarsjóður verið
að greiða úr tímabundin aukafram-
lög sem m.a. taka mið af íbúa- og
tekjuþróun áranna 2001-2006 og
fékk Dalvíkurbyggð t.d. um 17
milljónir i aukaframlag á síðasta
ári og um 69 milljónir á þessu ári.
Það munar um þetta, en ég legg
áherslu á að þetta eru tímabundin
framlög og það skiptir því máli að
rekstrarafgangur hjá sveitarfélaginu
er mun meiri þannig að við ættum
áfram að ráða vel við okkar verk-
efni þó þeim sleppi. Rekstur sveit-
arfélagsins tekur nú um 88% af
tekjum á móti 95% á árinu 2006.“
Fréttahorn
Rífandi aðsókn hefur verið á jólahlaðborð á Hótel Sóley að
undanförnu. Auglýst voru sex kvöld og var ætlunin að þeim
yrði lokið um síðustu helgi en vegna ásóknar hefur verið ákveðið að
halda enn eitt jólahlaðborð þann 21. desember nk. að sögn Arnars
Símonarsonar hótelstjóra. „Þetta fór hægt af stað en upp á síðkastið
hefur verið alveg fantagóð aðsókn og mikil gleði. Við höfum verið hér
með hátt í hundrað gesti þegar mest var. Það er nokkuð þétt skipað
en við ráðum við allt,“ segir Arnar. „Þetta eru mikið vinnustaðahópar
sem taka sig saman og fara út að borða svona einu sinni fyrir jólin en
síðan líka bara einstaklingar. Við verðum með skötu í hádeginu á
Þorláksmessu og vissara fyrir fólk að panta tímanlega fyrir það. Svo
erum við byrjuð að bóka þorrablótin. Við látum mjög vel af okkur
hérna á Hótelinu. Við höfum verið að senda út skíðatilboð vítt og
breitt um landið og gerum okkur góðar vonir með þau.“
Skíðavertíðin hefur farið vel af stað að sögn Jóns Halldórssonar.
Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli var opnað 6. desember sl. fyrst
skíðasvæða og hefur verið gríðarleg aðsókn síðan enda aðstæður allar
hinar bestu. Snjóframleiðslan hefur að mestu gengið vel enda mikið
frost með köflum og kjöraðstæður til framleiðslunnar. Fyrstu vikuna
seldust á annað hundrað árskort hjá Skíðafélaginu. Strax fyrsta daginn
mættu fjórir galvaskir og óþreyjufullir brettamenn úr Reykjavík sem
staðráðnir voru í að skella sér á bretti samstundis og fyrsta skíðasvæðið
opnaði. Annars hafa einkum heimamenn verið í fjallinu,jafnt eldri sem
yngri að sögn Jóns og almenn hamingja með aðstæður.
Styrktartónleikar fyrir Stærra-Árskóg verða haldnir í Víkurröst
nk. sunnudagskvöld, 16. des. kl 20. Það eru þeir skólapiltarnir
Aron Birkir Óskarsson og Kristján Guðmundsson sem veg og vanda
hafa af samkomunni en þar kemur fram fjöldi listamanna sem allir
gefa vinnu sína til styrktar uppbyggingunni eftir brunann í Stærra
Árskógi. Má þar nefna Óskar Pétursson, Karlakór Dalvíkur, Eyþór
Inga, Stefán Þór, Kristjönu Arngrímsdóttur og Ösp Kristjánsdóttur,
hljómsveitina Hund í óskilum og eitt dansatriði svo eitthvað sé nefnt.
Hljóð- og ljósaleiga Akureyrar lánar allar græjur til tónleikanna.
Ajólasýningu Handverks og hönnunar „Allir fá þá eitthvað
fallegt“ sem opnuð var nú um helgina í Reykjavík er valið úr
fjölda aðsendra muna hvaðanæva að af landinu. Þar er m.a. að finna
armbönd, hálsfestar og pappírsballerínur eftir Írísi Ólöfu Sigurjóns-
dóttir úr Dalvíkurbyggð.
Miklar framkvæmdir áfram á
næsta ári
„Við höfum verið að framkvæma
mikið á árinu 2007. Ég nefni veitu-
framkvæmdir, gatnagerð og Kríla-
kot. Og á næsta ári bíða okkar fjár-
frekar fráveituframkvæmdir, enn
frekari gatnagerð, viðbygging við
Fagrahvamm og svo fyrsti áfangi
nýs íþróttahúss eða fyrir alls um 280
milljónir netto. Þetta getum við gert
án þess að taka ný langtímalán og
munum ekki heldur taka lán á næsta
ári. Það er mikill styrkur. Auk þessa
munu svo þær hafnarframkvæmdir
sem hefja átti á þessu ári, en dróg-
ust af ýmsum ástæðum, koma af
fullum þunga á næsta ár. Það verður
því áfram mikið um framkvæmdir í
sveitarfélaginu."
Áhyggjur af þorskniðurskurði
„Ég hef áhyggur af því hvernig
þorskniðurskurðurinn kemur við
sjávarútvegsfyrirtækin í sveitar-
félaginu. Við höfum verið með
þeim stærstu í þorskvinnslu, og
þó við höfum ekki grátið mikið
opinberlega er full ástæða til að
hafa áhyggur af þróun mála. Það
má ætla að þetta högg hafí áhrif á
fólksijölgun hér og þar með tekjur.
Stjómvöld hafa lofað að koma að
einhverju leyti til móts við bæði
sveitarsjóði og hafnasjóði en það
er ekki í hendi. Á móti sjáum við
hvemig verktakafyrirtækin vaxa og
takast sífellt á við stærri verkefni.
Og hér eru líka að verða til ný fyr-
irtæki í nýjum greinum sem er afar
jákvætt. En það er ljóst að við þurf-
um á öllu okkar að halda,“ sagði
Svanfríður.
Styrkur til
Urðakirkju
Þann 1. desember sl. var úthlutaö
úr Þjóðhátíðarsjóði við hátíðlega
athöfn í Þjóðmenningarhúsi.
Meðal verkefna sem fengu
úthlutun að þessu sinni var
forvarsla á predikunarstól Urða-
kirkju sem smíðaður var og
málaður af Jóni Hallgrímssyni
árið 1766.
Hann þefur því staðið uppi í
yfír 240 ár við misjafnar aðstæður
og þolað ýmislegt hnjask í þrem
Urðakirkjum, þar af einni sem fauk
af gmnni sínum og brotnaði í spón.
Það var Byggðasafnið Hvoll ásamt
Sóknamefnd Urðakirkju sem sótti
um úthlutun og fengust 400 þús-
und krónur til verksins. íris Ólöf
Sigurjónsdóttir safnstjóri veitti út-
hlutuninni viðtöku. Hún segir að
fénu verði m.a. varið til að setja upp
rakastillingartæki og filmur í glugga
til vemdar gripum kirkjunnar og þá
verði kallaður til gripaforvörður og
sérfræðingur í kirkjugripum til að
forverja stólinn.
Skötuveisla á
Húsabakka
„Áhugahópur um gamlan mat“
hyggst efna til skötuveislu í
matsalnum á Húsabakka á Þor-
láksmessu kl. 11-13.
Gert er ráð fyrir að hver fyrir sig
komi með sinn kost og síðan verði
eldað sameiginlega. Nánari upplýs-
ingar fást hjá Jóni í s. 660-9617 eða
Dagbjörtu í s. 466-1563.
Þeir sem ekki treysta sér til að
borða skötu geta einnig mætt á
svæðið og haft með sér saltfisk eða
siginn físk eða álíka.
Antonía Huld er ánœgö með viöbygginguna en grjónakassinn er
bestur.
Aukið og endurbætt
Krílakot afhent formlega
Sl. þriðjudag var nýbygging við Krílakot formlega afhent Dalvíkur-
byggð að viðstöddu fjölmenni. Athöfnin hófst með gítarslætti nemenda
Tónlistarskóla Dalvíkur en síðan sagði Björn Friðþjófsson forstjóri
Tréverks frá viðbyggingunni og afhenti Svanfríði Jónasdóttur
bæjarstjóra hana formlega fyrir hönd verktaka.
í þakkarorðum bæjarstjóra kom m.a. fram að talan sjö skipaði sérstakan
sess í byggingarsögu leikskólans því frá stofnun hans hefur hann þrisvar
verið stækkaður, þ.e. árin 1987, 1997 og 2007. Það væri því spennandi
að sjá hvað gerist árið 2017. Ljóst er að með þessari tæplega 150 m2 við-
byggingu batnar öll aðstaða svo um munar bæði fyrir böm og starfsfólk en
einnig hefur gamla húsnæðið fengið verulegar endurbætur í leiðinni.
Að lokinni athöfninni var gestum boðið upp á veitingar og síðan var
opið hús fyrir foreldra og aðra sem vildu skoða bygginguna.
Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn.