Norðurslóð - 13.12.2007, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 13.12.2007, Blaðsíða 3
Norðurslóð - 3 Góð staða en við þurfum á öllu okkar að halda Rœtt við Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra um jjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar afgreiddi fjárhagsáætlun ársins 2008 á fundi sínum 4. desember sl. Að sögn bæjarstjóra, Svanfríðar Jónasdóttur, var mjög góð samvinna allra bæjarfulltrúa í fjárhagsáætlunarvinnunni og var áætlunin samþykkt samhljóða. Helstu niðurstöðutölur eru að rekstrarafgangur A og B hluta sam- antekið er ríflega 152 milljónir og Verið að semja við Tréverk um stórbyggingu á Akureyri Tréverk hf. var meðal fjögurra verktakafyrirtækja sem buðu í 4. áfanga byggingaframkvæmda við Há- skólann á Akureyri. Fram- kvæmdasýsla ríkisins mæfti með tilboði Tréverks og staðfesti Bj örn F riðþjófsson það í samtali við Norðurslóð og jafnframt að viðræður við Tréverk um framkvæmdina væru hafnar. Um er að ræða nýbyggingu að flatarmáli 2.300 fermetrar og er kostnaðaráætlun 550 milljónir króna. Þessar byggingarfarm- kvæmdir hafa tvisvar verið boðnar út en viðunandi tilboð hefur ekki fengist að mati Fram- kvæmdasýslu ríkisins fyrr en nú með boði Tréverks. Aætluð verklok eru í lok maí 2010 sam- kvæmt upplýsingum Háskólans á Akureyri. veltufé frá rekstir er um 324 millj- ónir en það sýnir hve mikið er til ráðstöfunar til framkvæmda og afborgana lána. Þetta er afar jákvæð niðurstaða og hefur á nokkrum árum orð- ið mikill viðsnúningur á íjár- hag sveitarfélagsins. Aðspurð um skýringu sagði Svanfríður að þær væru nokkrar. A árabilinu 2001- 2005 voru miklir erfiðleikatímar hjá mörgum sveitarfélögum þar sem fjölbreytt þjónusta hafði verið byggð upp en fólki var að fækka. Jöfnunarsjóði var ekki beitt til að aðstoða þessi sveitarfélög og þau lentu mörg, m.a. Dalvíkurbyggð, undir hrammi eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaganna. Hér var því mikið aðhald í rekstri og framkvæmdum. Tímabundin framlög „Okkur hefur svo tekist að halda rekstrinum sæmilega í horfinu, aukin umsvif og framkvæmdir í sveitarfélaginu skapa meiri tekjur, við höfum selt mikið af íbúðum sem voru í eigu sveitarfélagsins og svo hefur Jöfnunarsjóður verið að greiða úr tímabundin aukafram- lög sem m.a. taka mið af íbúa- og tekjuþróun áranna 2001-2006 og fékk Dalvíkurbyggð t.d. um 17 milljónir i aukaframlag á síðasta ári og um 69 milljónir á þessu ári. Það munar um þetta, en ég legg áherslu á að þetta eru tímabundin framlög og það skiptir því máli að rekstrarafgangur hjá sveitarfélaginu er mun meiri þannig að við ættum áfram að ráða vel við okkar verk- efni þó þeim sleppi. Rekstur sveit- arfélagsins tekur nú um 88% af tekjum á móti 95% á árinu 2006.“ Fréttahorn Rífandi aðsókn hefur verið á jólahlaðborð á Hótel Sóley að undanförnu. Auglýst voru sex kvöld og var ætlunin að þeim yrði lokið um síðustu helgi en vegna ásóknar hefur verið ákveðið að halda enn eitt jólahlaðborð þann 21. desember nk. að sögn Arnars Símonarsonar hótelstjóra. „Þetta fór hægt af stað en upp á síðkastið hefur verið alveg fantagóð aðsókn og mikil gleði. Við höfum verið hér með hátt í hundrað gesti þegar mest var. Það er nokkuð þétt skipað en við ráðum við allt,“ segir Arnar. „Þetta eru mikið vinnustaðahópar sem taka sig saman og fara út að borða svona einu sinni fyrir jólin en síðan líka bara einstaklingar. Við verðum með skötu í hádeginu á Þorláksmessu og vissara fyrir fólk að panta tímanlega fyrir það. Svo erum við byrjuð að bóka þorrablótin. Við látum mjög vel af okkur hérna á Hótelinu. Við höfum verið að senda út skíðatilboð vítt og breitt um landið og gerum okkur góðar vonir með þau.“ Skíðavertíðin hefur farið vel af stað að sögn Jóns Halldórssonar. Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli var opnað 6. desember sl. fyrst skíðasvæða og hefur verið gríðarleg aðsókn síðan enda aðstæður allar hinar bestu. Snjóframleiðslan hefur að mestu gengið vel enda mikið frost með köflum og kjöraðstæður til framleiðslunnar. Fyrstu vikuna seldust á annað hundrað árskort hjá Skíðafélaginu. Strax fyrsta daginn mættu fjórir galvaskir og óþreyjufullir brettamenn úr Reykjavík sem staðráðnir voru í að skella sér á bretti samstundis og fyrsta skíðasvæðið opnaði. Annars hafa einkum heimamenn verið í fjallinu,jafnt eldri sem yngri að sögn Jóns og almenn hamingja með aðstæður. Styrktartónleikar fyrir Stærra-Árskóg verða haldnir í Víkurröst nk. sunnudagskvöld, 16. des. kl 20. Það eru þeir skólapiltarnir Aron Birkir Óskarsson og Kristján Guðmundsson sem veg og vanda hafa af samkomunni en þar kemur fram fjöldi listamanna sem allir gefa vinnu sína til styrktar uppbyggingunni eftir brunann í Stærra Árskógi. Má þar nefna Óskar Pétursson, Karlakór Dalvíkur, Eyþór Inga, Stefán Þór, Kristjönu Arngrímsdóttur og Ösp Kristjánsdóttur, hljómsveitina Hund í óskilum og eitt dansatriði svo eitthvað sé nefnt. Hljóð- og ljósaleiga Akureyrar lánar allar græjur til tónleikanna. Ajólasýningu Handverks og hönnunar „Allir fá þá eitthvað fallegt“ sem opnuð var nú um helgina í Reykjavík er valið úr fjölda aðsendra muna hvaðanæva að af landinu. Þar er m.a. að finna armbönd, hálsfestar og pappírsballerínur eftir Írísi Ólöfu Sigurjóns- dóttir úr Dalvíkurbyggð. Miklar framkvæmdir áfram á næsta ári „Við höfum verið að framkvæma mikið á árinu 2007. Ég nefni veitu- framkvæmdir, gatnagerð og Kríla- kot. Og á næsta ári bíða okkar fjár- frekar fráveituframkvæmdir, enn frekari gatnagerð, viðbygging við Fagrahvamm og svo fyrsti áfangi nýs íþróttahúss eða fyrir alls um 280 milljónir netto. Þetta getum við gert án þess að taka ný langtímalán og munum ekki heldur taka lán á næsta ári. Það er mikill styrkur. Auk þessa munu svo þær hafnarframkvæmdir sem hefja átti á þessu ári, en dróg- ust af ýmsum ástæðum, koma af fullum þunga á næsta ár. Það verður því áfram mikið um framkvæmdir í sveitarfélaginu." Áhyggjur af þorskniðurskurði „Ég hef áhyggur af því hvernig þorskniðurskurðurinn kemur við sjávarútvegsfyrirtækin í sveitar- félaginu. Við höfum verið með þeim stærstu í þorskvinnslu, og þó við höfum ekki grátið mikið opinberlega er full ástæða til að hafa áhyggur af þróun mála. Það má ætla að þetta högg hafí áhrif á fólksijölgun hér og þar með tekjur. Stjómvöld hafa lofað að koma að einhverju leyti til móts við bæði sveitarsjóði og hafnasjóði en það er ekki í hendi. Á móti sjáum við hvemig verktakafyrirtækin vaxa og takast sífellt á við stærri verkefni. Og hér eru líka að verða til ný fyr- irtæki í nýjum greinum sem er afar jákvætt. En það er ljóst að við þurf- um á öllu okkar að halda,“ sagði Svanfríður. Styrkur til Urðakirkju Þann 1. desember sl. var úthlutaö úr Þjóðhátíðarsjóði við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsi. Meðal verkefna sem fengu úthlutun að þessu sinni var forvarsla á predikunarstól Urða- kirkju sem smíðaður var og málaður af Jóni Hallgrímssyni árið 1766. Hann þefur því staðið uppi í yfír 240 ár við misjafnar aðstæður og þolað ýmislegt hnjask í þrem Urðakirkjum, þar af einni sem fauk af gmnni sínum og brotnaði í spón. Það var Byggðasafnið Hvoll ásamt Sóknamefnd Urðakirkju sem sótti um úthlutun og fengust 400 þús- und krónur til verksins. íris Ólöf Sigurjónsdóttir safnstjóri veitti út- hlutuninni viðtöku. Hún segir að fénu verði m.a. varið til að setja upp rakastillingartæki og filmur í glugga til vemdar gripum kirkjunnar og þá verði kallaður til gripaforvörður og sérfræðingur í kirkjugripum til að forverja stólinn. Skötuveisla á Húsabakka „Áhugahópur um gamlan mat“ hyggst efna til skötuveislu í matsalnum á Húsabakka á Þor- láksmessu kl. 11-13. Gert er ráð fyrir að hver fyrir sig komi með sinn kost og síðan verði eldað sameiginlega. Nánari upplýs- ingar fást hjá Jóni í s. 660-9617 eða Dagbjörtu í s. 466-1563. Þeir sem ekki treysta sér til að borða skötu geta einnig mætt á svæðið og haft með sér saltfisk eða siginn físk eða álíka. Antonía Huld er ánœgö með viöbygginguna en grjónakassinn er bestur. Aukið og endurbætt Krílakot afhent formlega Sl. þriðjudag var nýbygging við Krílakot formlega afhent Dalvíkur- byggð að viðstöddu fjölmenni. Athöfnin hófst með gítarslætti nemenda Tónlistarskóla Dalvíkur en síðan sagði Björn Friðþjófsson forstjóri Tréverks frá viðbyggingunni og afhenti Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra hana formlega fyrir hönd verktaka. í þakkarorðum bæjarstjóra kom m.a. fram að talan sjö skipaði sérstakan sess í byggingarsögu leikskólans því frá stofnun hans hefur hann þrisvar verið stækkaður, þ.e. árin 1987, 1997 og 2007. Það væri því spennandi að sjá hvað gerist árið 2017. Ljóst er að með þessari tæplega 150 m2 við- byggingu batnar öll aðstaða svo um munar bæði fyrir böm og starfsfólk en einnig hefur gamla húsnæðið fengið verulegar endurbætur í leiðinni. Að lokinni athöfninni var gestum boðið upp á veitingar og síðan var opið hús fyrir foreldra og aðra sem vildu skoða bygginguna. Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.