Norðurslóð - 13.12.2007, Síða 7
Norðurslóð - 7
Ljóðagetraun
Norðurslóðar
2007
1. Hvar er huggun harmi gegn?
2. Hver hefur skrifað hugsun sína og hag í ljóð?
3. Hver hljóp brosandi móti golunni?
4. Hvað er auðnuspor með þér?
5. Hver geymir ijötur sinn?
6. Hvar er kyrrðin friðandi mild og angurvær?
7. Hver bryður stöðugt úfna urð?
8. Hverjir standa logandi í langri röð?
9. Hverjir draga feikna hlass?
10. Hver syngur enn á engi?
11. Hvert skoppar hugurinn núna?
12. Hver grær á grænum völlum?
13. Hví grætur þöngull og þarinn?
14. Hvers lát barst út um allan bæ?
15. Hverjum sé lof fyrir þennan fund?
16. Hvarreika svipir fornaldar?
17. Hver brotnar unnarsteinum á?
18. Hvað verður ævikveðjan mín?
19. Hver veitir vor og yndi um vetrarmiðja nótt?
20. Hver fannst meðal þymanna hörðu?
21. Hver var áður vitringum, vegaljósið skæra?
22. Hver liggur brotin milli hleina?
23. Hverjum mun viskan veitast mest?
24. Hvenær býst sorgin heimanað?
25. Hverjar stíga vonarglaðar dans?
Rétt svör berist fyrir 15. janúar 2008.
Góða skemmtun. S.H.
Kvikmyndagetraun Norðurslóðar
Úr hvaða bíómyndum eru myndirnar hér að neðan?
Bókmenntagetraun Norðurslóðar
Finnið bókatitlana
Bókmenngtagetraunin er með sama sniði og áður. Hvet atriði vísar til titils á ýmist
nýútkomnum eða eldri þekktum íslenskum bókum.
1. Hjá Lykla-Pétri og í neðra
2. Óháðar manneskjur
3. Vængjaðir morðingjar
4. Sýslað við allt niögulegt
5. Dökkleitt fiðurfé
6. Eggjárn ættföður gyðinga
7. Grindur sem hamla hugsunum
8. Kaos á grófum textíl
9. Endalok grínarans
10. Sá sem vissi of mikið
Góða skemmtun og gangi ykkur vel.
Og botn-
aðu nú!
Fyrst eru það tíðindi ársins í Svarfaðar-
dal.
Liggja heit um hálfa sveit
hitaveiturörin ...
Svo er það reynsluheimur sauðfjárbónd-
ans.
Ýmsir hafa elt um fjöll
eftirlegukindur...
Og að lokum stórtíðindi úr menningar-
sögunni.
Þreyð hefur Þorra og Góu
þrítug Norðurslóð ...
Sendið inn lausnir
fyrir 15. janúar 2008
Að vanda efnir Norðurslóð til
jólagetrauna sem reyna á kunn-
áttu lesenda í bókmenntum,
kveðskap og kvikmyndum. Hin
hefðbundna og vinsæla ljóðaget-
raun er á sínum stað og einnig
fyrripartarnir sem vantar
seinniparta. Þá er það orðin
hefð að leyfa lesendum að ráða
bókatitla úr vísbendingum og
kvikmyndagetraunin er í þann
veginn að vinna sér sama sess. Þar
gildir að setja rétt kvikmyndaheiti
við hvert númer.
Þegar fólk er komið með
lausnirnar á að senda þær á
Norðurslóð, Tjörn,
Svarfaðardal, 621 Dalvík.
Sendum viðskiptavinum
okkar og velunnurum
bestu óskir um
gleðileg jól og farsœld
á komandi ári
Happdrætti
Háskóla íslands
vænlegast til vinnings!
Umboðið á Dalvik:
Kristján Ólafsson - Hafnarbraut 5 - S. 466 1434