Norðurslóð - 13.12.2007, Qupperneq 7

Norðurslóð - 13.12.2007, Qupperneq 7
Norðurslóð - 7 Ljóðagetraun Norðurslóðar 2007 1. Hvar er huggun harmi gegn? 2. Hver hefur skrifað hugsun sína og hag í ljóð? 3. Hver hljóp brosandi móti golunni? 4. Hvað er auðnuspor með þér? 5. Hver geymir ijötur sinn? 6. Hvar er kyrrðin friðandi mild og angurvær? 7. Hver bryður stöðugt úfna urð? 8. Hverjir standa logandi í langri röð? 9. Hverjir draga feikna hlass? 10. Hver syngur enn á engi? 11. Hvert skoppar hugurinn núna? 12. Hver grær á grænum völlum? 13. Hví grætur þöngull og þarinn? 14. Hvers lát barst út um allan bæ? 15. Hverjum sé lof fyrir þennan fund? 16. Hvarreika svipir fornaldar? 17. Hver brotnar unnarsteinum á? 18. Hvað verður ævikveðjan mín? 19. Hver veitir vor og yndi um vetrarmiðja nótt? 20. Hver fannst meðal þymanna hörðu? 21. Hver var áður vitringum, vegaljósið skæra? 22. Hver liggur brotin milli hleina? 23. Hverjum mun viskan veitast mest? 24. Hvenær býst sorgin heimanað? 25. Hverjar stíga vonarglaðar dans? Rétt svör berist fyrir 15. janúar 2008. Góða skemmtun. S.H. Kvikmyndagetraun Norðurslóðar Úr hvaða bíómyndum eru myndirnar hér að neðan? Bókmenntagetraun Norðurslóðar Finnið bókatitlana Bókmenngtagetraunin er með sama sniði og áður. Hvet atriði vísar til titils á ýmist nýútkomnum eða eldri þekktum íslenskum bókum. 1. Hjá Lykla-Pétri og í neðra 2. Óháðar manneskjur 3. Vængjaðir morðingjar 4. Sýslað við allt niögulegt 5. Dökkleitt fiðurfé 6. Eggjárn ættföður gyðinga 7. Grindur sem hamla hugsunum 8. Kaos á grófum textíl 9. Endalok grínarans 10. Sá sem vissi of mikið Góða skemmtun og gangi ykkur vel. Og botn- aðu nú! Fyrst eru það tíðindi ársins í Svarfaðar- dal. Liggja heit um hálfa sveit hitaveiturörin ... Svo er það reynsluheimur sauðfjárbónd- ans. Ýmsir hafa elt um fjöll eftirlegukindur... Og að lokum stórtíðindi úr menningar- sögunni. Þreyð hefur Þorra og Góu þrítug Norðurslóð ... Sendið inn lausnir fyrir 15. janúar 2008 Að vanda efnir Norðurslóð til jólagetrauna sem reyna á kunn- áttu lesenda í bókmenntum, kveðskap og kvikmyndum. Hin hefðbundna og vinsæla ljóðaget- raun er á sínum stað og einnig fyrripartarnir sem vantar seinniparta. Þá er það orðin hefð að leyfa lesendum að ráða bókatitla úr vísbendingum og kvikmyndagetraunin er í þann veginn að vinna sér sama sess. Þar gildir að setja rétt kvikmyndaheiti við hvert númer. Þegar fólk er komið með lausnirnar á að senda þær á Norðurslóð, Tjörn, Svarfaðardal, 621 Dalvík. Sendum viðskiptavinum okkar og velunnurum bestu óskir um gleðileg jól og farsœld á komandi ári Happdrætti Háskóla íslands vænlegast til vinnings! Umboðið á Dalvik: Kristján Ólafsson - Hafnarbraut 5 - S. 466 1434

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.