Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2016, Blaðsíða 2
2 Fréttir Panama-skjölin Vikublað 5.–7. apríl 2016
R
íkisstjórnarsamstarfið
stendur og fellur með Sjálf
stæðisflokknum sem, eins
og staðan er núna, virðist
ekki vera tilbúinn til að
standa við bakið á forsætisráðherra.
Enginn af þeim þingmönnum flokks
ins sem Eyjan ræddi við á göngum
þingsins í gær, mánudag, var til
búinn til að lýsa opinberlega yfir
stuðningi við Sigmund Davíð Gunn
laugsson. Raunar vildu þeir sem
minnst tjá sig um málið, en þeir sem
það gerðu voru sammála um að mál
ið væri grafalvarlegt. „Ég skil vel að
fólk hefur af þessu miklar áhyggjur.
Ég hef þær líka. Upplýsingarnar sem
komu fram í Kastljósþættinum í gær
voru sláandi. Þetta er eitthvað sem
verður að koma fram og við verðum
að hreinsa út,“ segir Elín Hirst, þing
maður flokksins.
Sjálfur formaður Sjálfstæðis
flokksins var heldur ekki tilbúinn að
svara því hvort Sigmundi Davíð væri
stætt í embætti, er hann var spurð
ur út í það í gær. Þvert á móti sagði
hann ekki augljóst að samstarfið
héldi áfram. Það flækti óneitanlega
stöðuna að Bjarni var strandaglópur
í Bandaríkjunum þar sem hann
missti af flugi á leið heim úr tveggja
vikna fríi í Flórída, en honum tókst
að funda með þingflokknum með
aðstoð fjarfundabúnaðar.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar
fól þingflokkurinn Bjarna umboð
til þess að ræða málið við forsætis
ráðherra um leið og hann kem
ur heim. Bjarni mun þar af leiðandi
ákveða örlög ríkisstjórnarsamstarfs
ins. Skilaboðin sem þingflokkurinn
mun senda Bjarna með á fundinn
eru þau að Sigmundur Davíð njóti
ekki óskoraðs stuðnings til að gegna
áfram embætti forsætisráðherra.
Þetta hefur komið fram í samtölum
Eyjunnar við þingmenn og áhrifa
menn innan Sjálfstæðisflokksins.
Framsókn stendur
með sínum formanni
Þingflokkur Framsóknarflokksins
ætlar hins vegar að standa þétt við
bakið á sínum formanni sem til
kynnti í hádeginu í gær að hann ætl
aði ekki að segja af sér, þrátt fyrir
háværa kröfu þar um. „Ég held að
forsætisráðherra hafi gert mjög vel
grein fyrir sínum málum,“ sagði
Þórunn Egilsdóttir sem vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um málið. Erfið
lega gekk að ná tali af þingmönnum
flokksins í gær og þeir hafa lítið haft
sig í frammi síðustu tvo daga.
Ljóst er að forsætisráðherra rær
lífróður í embætti og þrátt fyrir að
ætla að standa fastur fyrir eru örlög
hans í höndum samstarfsflokksins.
Hann opinberaði málsvörn sína í
gær. Hann baðst afsökunar á „ömur
legri“ frammistöðu sinni í umtöluðu
sjónvarpsviðtali og bar því við að
spurningarnar hafi komið honum að
óvörum. Hann fullyrti að hvorki hann
né eiginkona hans hafi nokkru sinni
átt eignir í skattaskjóli, þótt Wintris
væri skráð á Bresku Jómfrúaeyjum.
Samkvæmt skilgreiningu Sigmundar
Davíðs á skattaskjólum skiptir höfuð
máli hvort skattar eru greiddir af eign
unum sem þar eru. Og þar sem fyrir
liggur, að hans sögn, að eiginkona
hans hafi greitt alla skatta í tengsl
um við Wintris flokkist það ekki sem
skattaskjól. Í því samhengi nefndi
hann að Svíþjóð hafi verið kallað
skattaskjól í opinberri umræðu.
Hvort þingmenn Sjálfstæðisflokksins
kaupi þá skýringu að Tortola sé ekki
skattaskjól verður að koma í ljós.
Skýlaus krafa um kosningar
Samhugur er á meðal stjórnarand
stöðuflokkanna um að rjúfa þing og
efna til kosninga. Píratar og Björt
framtíð eru einarðastir í þeirri af
stöðu. Þetta kom glöggt í ljós á um
ræðum í þingi í gær þar sem stór
orðu féllu í garð Sigmundar Davíðs.
Guðmundur Steingrímsson kall
aði forsætisráðherra „frægasta fjár
glæframann heimsbyggðarinnar“
á meðan Ásta Guðrún Helgadóttir
spurði Sigmund Davíð hvort hann
hefði enga sómakennd um leið og
hún hvatti hann til afsagnar. Helgi
Hjörvar, þingflokksformaður Sam
fylkingarinnar, segir sinn flokk reiðu
búinn í kosningar þrátt fyrir afleita
stöðu. „Nú eru það sannarlega ekki
hagsmunir okkar í Samfylkingunni
að gengið verði til kosninga núna,
það sér hver maður. En það bara
undirstrikar í mínum huga að þetta
nýst ekki um flokkspólitík eða hags
muni einstakra flokka.“ n
Framtíð Sigmundar
er í höndum Bjarna
Forsætisráðherra nýtur ekki óskoraðs stuðnings innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins
Magnús G. Eyjólfsson
Freyr Rögnvaldsson
Möguleikar Bjarna Ben
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur nokkra kosti í þeirri stöðu sem
upp er komin. Enginn þeirra er einfaldur í framkvæmd og aðeins einn þeirra felur í sér að
Sigmundur Davíð haldi áfram. Bjarni og samherjar hans þurfa hins vegar að vinna hratt.
Tillaga um vantraust og þingrof verður tekin fyrir á Alþingi á miðvikudag eða fimmtudag
og vilja sjálfstæðismenn vafalaust vera búnir að afgreiða málið þegar þar að kemur.
Óbreytt stjórnarsamstarf Bjarni gæti tekið skýringar Sigmundar Davíðs
góðar og gildar og freistað þess að berjast á móti straumnum, mögulega með einhvers
konar kröfum um ráðherraskipti þannig að Sjálfstæðisflokkurinn fái forsætisráðu-
neytið. Slíkt útheimtir gríðarlegt pólitískt kapítal og gæti jafnvel endað með því
að báðir stjórnarflokkar verði enn laskaðri en nú er þegar að kosningum kemur.
Fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar á Austurvelli í gær eru vísbending um hvað er
í vændum.
Sigmundi fórnað Bjarni gæti stillt Framsóknarflokknum upp við vegg og gert þá
kröfu að Sigmundur Davíð víki til að halda stjórnarsamstarfinu gangandi. Þetta gæti
virst auðveldasti kosturinn fyrir Bjarna, en þó þarf að hafa í huga að bæði hann og
varaformaðurinn Ólöf Nordal eru einnig tengd Panama-skjölunum svokölluðu. Óvíst er
hvort það nægi til að lægja öldurnar auk þess sem framsóknarmenn eru afar hliðhollir
sínum formanni og óvíst hvort þeir taki slíkt í mál.
Boða til kosninga Bjarni gæti allt eins ákveðið
að útséð væri með stjórnarsamstarfið og að
hyggilegast væri að boða til kosninga nú. Í því
samhengi þarf Bjarni að meta hvort hans eigin
flokkur er tilbúinn til kosninga og hvort hann sjálf-
ur standi nægilega sterkt til að leiða flokkinn.
Minnihlutastjórn Bjarni gæti freistast til
þess að slíta samstarfinu við Framsóknarflokkinn
og fara þess á leit við stjórnarandstöðuflokkana
að þeir styðji minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokks
út kjörtímabilið, eða fram að kosningum í haust.
Miðað við hljóðið í stjórnarandstöðunni um þessar
mundir er lítil stemning fyrir slíku.
Þjóðstjórn Loks gæti Bjarni hlutast til um að
mynduð yrði þjóðstjórn fram að kosningum, sem
annaðhvort yrðu á næsta ári eða í haust. Slík stjórn þyrfti
að vera mynduð án aðkomu Sigmundar Davíðs þar sem
ólíklegt er að aðrir flokkar vilji í samstarf með honum.
Hvort Framsókn samþykki slíkt er annað mál.