Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2016, Blaðsíða 22
Vikublað 5.–7. apríl 20164 Upp á palli - Kynningarblað NormX: Heitir pottar – íslensk framleiðsla í 30 ár Þar sem gæði og verð fara saman N ormX er rúmlega þrjátíu ára gamalt íslenskt fram- leiðslufyrirtæki sem framleiðir heita potta úr hverfisteyptu plasti í plast- verksmiðju sem staðsett er í Vogum á Vatnsleysuströnd. Að sögn Kjart- ans Ragnarssonar er NormX með verslun og glæsilegan sýningarsal að Auðbrekku 6 í Kópavogi. „Í saln- um okkar eru til sýnis ýmsar vörur sem við framleiðum og seljum. Við höfum sérhæft okkur í heitum pott- um en jafnframt teljum við mjög mikilvægt að vera með á boðstól- um allar vörur sem tengjast pott- unum, líkt og hitastýringar, nokkr- ar gerðir af lokum, nuddbúnað og ýmsa fylgihluti.“ Besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð „Við stöndum við þau orð að heitu pottarnir frá NormX séu besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð,“ segir Kjartan. „Pottarnir sem við framleiðum eru einstaklega sterkir og þola vel fjölbreytileika ís- lenskrar veðráttu. Þeir eru einkar auðveldir í þrifum enda framleidd- ir úr gegnheilu Polyethylene-plasti með UV-vörn (sólarvörn) og verjast því sólarljósi vel. Allir heitir pottar frá NormX eru endurvinnan legir. Allar gerðir af pottum er hægt að fá í mismunandi litum. Við Íslendingar erum þeirrar gæfu aðnjótandi að hér er langoftast lítið sem ekkert mál að nálgast heitt vatn á mjög lágu verði og hönnun heitu pott- anna okkar hjá NormX taka mið af því og taka frekar mikið vatn og eru djúpir. Í Snorralauginni (sem er vinsælasti potturinn okkar) eru t.d. 66 sentimetrar frá sæti og upp á brún. Þá ætti að flæða vel yfir axl- ir á flestum. Það er því svo sannar- lega leikur einn að njóta vellíðunar í pottinum hvort sem sólin skín glatt að sumri til eða kuldi og snjór sé í kortunum.“ Sjáum um allt samkvæmt óskum viðskiptavina „Afgreiðslutími NormeX pottanna er skammur þar sem algengustu og vinsælustu gerðirnar eru alltaf til á lager og aðrar getum við framleitt með litlum fyrirvara. Við seljum að sama skapi allar lagnir sem til þarf, auk nuddkerfa og ljósabúnaðar, allt eftir óskum viðskiptavina. Starfs- menn okkar geta einnig séð um ísetningu og tengingar. Við leggjum metnað okkar í að viðskipta vinir okkar séu ánægðir alla leið,“ segir Kjartan að lokum. n NormX Auðbrekku 6, 200 Kópavogur Sími: 565-8899 Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10.00–18:00, föstudaga, opið 10.00–17.00. Normx@normex.is Snorralaug Gvendarlaug Geirslaug Grettislaug

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.