Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2016, Síða 22
Vikublað 5.–7. apríl 20164 Upp á palli - Kynningarblað
NormX: Heitir pottar
– íslensk framleiðsla í 30 ár
Þar sem gæði og verð fara saman
N
ormX er rúmlega þrjátíu
ára gamalt íslenskt fram-
leiðslufyrirtæki sem
framleiðir heita potta úr
hverfisteyptu plasti í plast-
verksmiðju sem staðsett er í Vogum
á Vatnsleysuströnd. Að sögn Kjart-
ans Ragnarssonar er NormX með
verslun og glæsilegan sýningarsal
að Auðbrekku 6 í Kópavogi. „Í saln-
um okkar eru til sýnis ýmsar vörur
sem við framleiðum og seljum. Við
höfum sérhæft okkur í heitum pott-
um en jafnframt teljum við mjög
mikilvægt að vera með á boðstól-
um allar vörur sem tengjast pott-
unum, líkt og hitastýringar, nokkr-
ar gerðir af lokum, nuddbúnað og
ýmsa fylgihluti.“
Besti kosturinn hvað varðar
bæði gæði og verð
„Við stöndum við þau orð að heitu
pottarnir frá NormX séu besti
kosturinn hvað varðar bæði gæði
og verð,“ segir Kjartan. „Pottarnir
sem við framleiðum eru einstaklega
sterkir og þola vel fjölbreytileika ís-
lenskrar veðráttu. Þeir eru einkar
auðveldir í þrifum enda framleidd-
ir úr gegnheilu Polyethylene-plasti
með UV-vörn (sólarvörn) og verjast
því sólarljósi vel. Allir heitir pottar
frá NormX eru endurvinnan legir.
Allar gerðir af pottum er hægt að fá í
mismunandi litum. Við Íslendingar
erum þeirrar gæfu aðnjótandi að
hér er langoftast lítið sem ekkert
mál að nálgast heitt vatn á mjög
lágu verði og hönnun heitu pott-
anna okkar hjá NormX taka mið
af því og taka frekar mikið vatn og
eru djúpir. Í Snorralauginni (sem
er vinsælasti potturinn okkar) eru
t.d. 66 sentimetrar frá sæti og upp
á brún. Þá ætti að flæða vel yfir axl-
ir á flestum. Það er því svo sannar-
lega leikur einn að njóta vellíðunar í
pottinum hvort sem sólin skín glatt
að sumri til eða kuldi og snjór sé í
kortunum.“
Sjáum um allt samkvæmt
óskum viðskiptavina
„Afgreiðslutími NormeX pottanna
er skammur þar sem algengustu og
vinsælustu gerðirnar eru alltaf til á
lager og aðrar getum við framleitt
með litlum fyrirvara. Við seljum að
sama skapi allar lagnir sem til þarf,
auk nuddkerfa og ljósabúnaðar, allt
eftir óskum viðskiptavina. Starfs-
menn okkar geta einnig séð um
ísetningu og tengingar. Við leggjum
metnað okkar í að viðskipta vinir
okkar séu ánægðir alla leið,“ segir
Kjartan að lokum. n
NormX
Auðbrekku 6, 200 Kópavogur
Sími: 565-8899
Opnunartími: Mánudaga
til fimmtudaga 10.00–18:00,
föstudaga, opið 10.00–17.00.
Normx@normex.is
Snorralaug Gvendarlaug Geirslaug
Grettislaug