Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Side 20
Vikublað 21.–23. júní 201616 Skrýtið
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR NOTAÐU ÞITT FÉ
SKYNSAMLEGA
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...
H
ar Parkash Rishi, 74
ára gamall Indverji, lét
fjarlægja úr sér allar
tennurnar svo hann gæti
slegið nýtt heimsmet í að
troða sogrörum upp í sig. Náði Ris-
hi, sem býr í höfuðborg Indlands,
Nýju Delí, að troða upp í sig 496
rörum og seinna sama dag um 50
logandi kertum. Rishi kallar sig nú
Guinness Rishi, eftir heimsmeta-
bókinni samnefndu, en hann segist
eiga um 20 heimsmet.
Ættleiddi mág sinn
Indverjinn, sem er framleiðandi
bílavarahluta, komst fyrst í meta-
bókina vinsælu þegar hann keyrði
vespu ásamt tveimur félögum
sínum í 1.001 klukkustund. Síðan
þá hefur líf Rishi snúist um að fá
hugmynd að heimsmetum og slá
næsta heimsmet. Ein tilraun hans
fólst í því að sendast með pítsu frá
heimaborginni Nýju Delí til San
Francisco á vesturströnd Banda-
ríkjanna.
Í annarri drakk hann heila flösku
af tómatsósu á innan við 40 sek-
úndum og í kjölfarið byggði hann
heimsins hæsta sykurmolaturn.
Einnig fékk hann eiginkonu sína til
að semja stystu erfðaskrá sem vit-
að er um. Í henni stóð einfaldlega:
„Sonurinn fær allt“.
Hið bíræfnasta var án efa þegar
Rishi ættleiddi Ravinder Kumar Vig,
61 árs mág sinn, árið 2001. Mágur-
inn varð þá elsti maður jarðar til að
vera ættleiddur.
Stjórnmálin heilla
Rishi er aftur á móti þekktastur fyrir
húðflúr sín en þau eru yfir 500 tals-
ins. Þar af eru 366 mismunandi
þjóðfánar sem Indverjinn hefur
látið teikna á sig en 40 þeirra eru á
andliti hans. Heimskort hefur hann
fengið sér á kviðinn og nafn vöru-
merkisins Ripley's Believe It or Not
á ennið.
Nýjasta markmið Rishi er að
fá sér húðflúr af ýmsum þekktum
þjóðarleiðtogum. Á líkama
hans má nú þegar finna myndir
af ýmsum stórmennum, þar á
meðal forsætisráðherra Indlands,
Narendra Modi, Barack Obama,
forseta Bandaríkjanna, Elísabetu
Bretlandsdrottningu og Mahatma
Gandhi. n
Fjarlægði
tennurnar
til að setja
heimsmet
Treður 50 logandi kertum upp í sig og sentist
með pítsu frá Indlandi til San Francisco„Hið bíræfnasta var
án efa þegar Rishi
ættleiddi Ravinder Kumar
Vig, 61 árs mág sinn, árið
2001. Mágurinn varð þá
elsti maður jarðar til að
vera ættleiddur.
Guinnes Rishi Indverjinn
er alræmdur methafi enda
hefur hann helgað líf sitt
því að komast sem oftast í
Heimsmetabók Guinness.