Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.06.2017, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 14.06.2017, Qupperneq 20
Persónur úr Star Wars eru áberandi í 100 efstu sætunum um verðmætustu mínífígúrur Lego. MYND/ANTON BRINK Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Það eru allir að tala um Mr. Gold. Hann er sjaldgæfastur og verðmætastur,“ upplýsir Frímann um eftirsóttustu mínífíg- úru (e. minifigures) Lego sem fram- leidd var árið 2013 í takmörkuðu upplagi í tíundu seríu. „Þá voru 5.000 stykki af Herra Gulli sett í staka poka og dreift um heims- byggðina og nú, fjórum árum síðar, er helmingurinn enn ófundinn.“ Á uppboðsvefnum eBay er Mr. Gold metinn á 2.000 Bandaríkja- dali, eða tæpar 200 þúsund krónur. „Á lista yfir hundrað verðmæt- ustu mínífígúrur Lego eru sögu- persónur Star Wars ráðandi. Meðal annars eru til tvö eintök af Boba Fett úr 14 karata gulli og kosta tvær milljónir stykkið. Kaupendur í dótabúðum detta ekki í lukku- pottinn með slíkar gersemar, því þær eru sérframleiddar og seldar, en Mr. Gold má enn hnjóta um í leikfangabúðum heimsins,“ segir Frímann sem sjálfur er mikill Lego- nörd og keypti sér nýlega Ghost Busters-sett með tíu fígúrum á 40 þúsund krónur. „Þar með eignaðist ég langþráða sögupersónu Bills Murray úr Ghost Busters, sem er uppáhaldið mitt.“ Dýrmætur fjársjóður Frímann segir marga í leit að Svarthöfða úr Stjörnustríði og hægt sé að hafa dágott upp úr krafsinu eigi maður verðmætar fígúrur eða heilu settin í fórum sínum. „Til dæmis eru stakar fígúrur úr Millennium Falcon-setti Star Wars mjög verðmætar og eigi maður á settið með öllu eykst verðgildið enn meir. Ég segi iðulega við for- eldra barna sem hingað koma, og helst í áheyrn barnanna, að kaupa ekki meira Lego fyrr en börnin kunni að passa upp á settin sín og kallana sem orðið geta fágætir. Söfnunarleið nördsins er að gæta þess að hafa allt úr sama setti í einum kassa svo það blandist ekki öðru. Með því átta krakkar sig á því, og oft í fyrsta sinn, að þau eiga verðmæti í leikfangasafninu og gott að hafa á bak við eyrað að söfnunargildi Lego eykst með tímanum og að alvöru stöff leynist inni á milli.“ Sjálfur gaf Frímann litla bróður sínum fokdýrt sett með verðmætri fígúru. „Næst þegar ég kom í heimsókn var búið að taka hendurnar af kall- inum og setja nýjar í staðinn. Þá barði ég í borðið og sagði að þetta gengi bara ekki! Þetta væri eins og að sturta niður demöntum!“ segir hann og brosir, en öllu gamni fylgir alvara. „Lego-kallar og sett eru ekki endalaust til. Hver sería er að meðaltali í sölu í eitt til tvö ár. Þannig dettur Force Awakens- línan úr Star Wars út í desember næstkomandi, og um leið og fram- leiðslu er hætt en einhver á hana til í óopnuðum pakkningum getur hún rokið upp í verði.“ Heillandi og frægir kallar Á morgun býður Legóbúðin í Smáralind öllum að koma og býtta á mínífígúrum. Býttað verður á vegum búðarinnar frá hádegi til kvölds en á milli klukkan 17 og 19 býðst öllum að koma með kallana sína og býtta við aðra gesti Legó- búðarinnar. „Við elskum þessa litlu Lego- kalla og fyrir þá sem vantar einn kall í sett eða eru að leita að ákveðnum kalli er tilvalið að mæta á svona býttidag. Við höfum þegar togað í nokkra spotta og búin að verða okkur úti um alveg helling af eldri gerðum af Minifigures-pok- um,“ upplýsir Frímann spenntur. Hvað eftirsóknarverðast sé á býttidegi sem þessum segir Frí- mann fara eftir áhugasviði hvers og eins. „Í Batman-seríunni, sem hætti 1. maí, voru nokkrar fígúrur mjög vinsælar, eins og Jókerinn, Harley Quinn og Glam Rock-útgáfan af Batman, en í þeirri seríu voru alls tuttugu fígúrur úr Batman Lego- bíómyndinni. Þessar vinsælustu voru þó ekki í settunum sjálfum heldur eingöngu seldar sér og því ekki hægt að fá með öðrum hætti.“ Legónördar á áttræðisaldri Mínífígúrur Lego komu fyrst á markað 1978. Í tölfræði Lego segir að til ársins 2010 hafi verið fram- leiddar 3,7 milljarðar fígúra og eru persónur fígúrukallanna yfir 3.600 talsins. „Fyrstu mínífígúrurnar voru allar eins, með rauðan búk og handalausar, og réði ímyndunar- aflið hver væri hvaða persóna í leik. Árið 1980 fengu kallarnir loks hendur og hafa litið eins út síðan. Mínífígúrur í stökum pokum eru sjóðheitar til söfnunar og reynt að safna köllum úr hverri seríu sem komnar eru yfir tuttugu alls,“ segir Frímann innan um stútfulla kassa af mínífígúrugóssi sem bíða býttis. „Mann vantar alltaf kalla! Brátt verð ég þrítugur og þótt ég hafi kubbað stöðugt í 26 ár og sé kom- inn með ágætis safn vantar mig enn nokkra góða. Vonandi kemur hellingur af liði til að býtta!“ Í Lego-búðinni vinna eingöngu Lego-nördar enda finnst Frímanni lykilatriði að viðskiptavinir komi ekki að tómum kofunum með eitt eða neitt sem viðkemur Lego. „Þeir sem koma fagnandi á býttidag eru allt frá krökkum yfir í áttræða Lego-nörda. Þetta er afar vinsælt hjá krökkum en líka fullorðnu fólki og eru nokkrir öldungar sem koma hingað reglu- lega til að spjalla um Lego í þrjá, fjóra tíma, sem okkur þykir auð- vitað mjög skemmtilegt.“ Mínifígúrudagur Legóbúðar- innar í Smáralind er á morgun, fimmtudag, frá klukkan 12 til 21. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Næst þegar ég kom var búið að taka hendurnar af kallinum og setja nýjar í staðinn. Þá barði ég í borðið og sagði að þetta bara gengi ekki! Lego-nördinn Frímann Valdimarsson segir að passa eigi kallana vel. SUMARYFIRHAFNIR 20% AFSLÁTTUR Skoðið laxdal.is/ spice Bazaar Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is Laugavegi 63, Skipholti 29b • S. 551 4422 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . j ú n Í 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R 1 4 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 9 -4 B 4 4 1 D 1 9 -4 A 0 8 1 D 1 9 -4 8 C C 1 D 1 9 -4 7 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.