Norðurslóð - 28.07.2005, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær
29. ÁRGANGUR
Fimmtudagur 28. júlí 2005
7. TÖLUBLAÐ
Framvarðasveit Fiskidagsins mikla. Frá vinstri: Gunnar Aðalbjörnsson, Óskar Óskarsson, Sigurður Jörg-
en Óskarsson, Ottó Jakobsson, Júlíus Júlíusson, Þorsteinn Már Aðalsteinsson, Guðmundur St. Jónsson og
Hilmar Daníelsson.
Það var mikið umleikis við Dalvíkurhöfn sl. laugardagsmorgun. Flutn-
ingaskip að takafrosin síldarflök, landað úrBjörgúlfi og Stefáni Rögn-
valdssyni, aukþess sem margir minni bátar komu til löndunar.
Mikið umleikis við Dalvíkurhöfn
Það er óhætt að segja að það hafi
verið mikið umleikis við Dalvík-
urhöfn í sl. viku. Alls var land-
að ríflega 100 tonnum af rækju,
sem er ineð því besta sem verið
hefur í sumar. Þar af lönduðu
heimabátarnir Sæþór 21 tonni
og Stefán Rögnvaldsson liðlega
10 tonnum.
Barði NK landaði 47 tonnum
af ísuðum bolfiski og um 4000
kössum af frosnu. Björgúlfur
landaði bolfiski í tvígang, alls um
160 tonnum. Björgúlfur er nú
kominn í slipp.
Huginn VE landaði liðlega
500 tonnum af frosnum síldar-
flökum, auk þess sem landað var
um 500 tonnum af lausu í Krossa-
nesi. Um helgina kom síðan
flutningaskip og sótti síldarflök-
in til Dalvíkur.
Við þetta má bæta að Björg-
vin EA, sem verið hefur á fryst-
ingu að undanförnu, kom inn til
löndunar á Akureyri sl. sunnu-
dag með um 400 tonna afla upp
úr sjó að aflaverðmæti um 44
milljónir króna. Gert er ráð fyrir
að Björgvin fari a.m.k. einn túr á
frystingu til viðbótar.
Steindyr kaupir Þverá
Gengið hefur verið frá sölu á jörðinni Þverá í Svarfaðardal.
Hinir nýju eigendur eru þau hjón á Steindyrum, Hjálmar
Herbertsson og Gunnhildur Gylfadóttir. Þau hyggjast búa á báð-
um jörðunum og nýta útihús en undanskilið kaupunum er íbúðar-
húsið á Þverá ásamt lóð. Kaup þessi hafa því litla búháttabreyt-
ingu í för með sér þar sem steinsnar er á milli Þverár og Steindyra.
Steindyrafjölskyldan getur sem hægast setið áfram á Steindyrum
og gengið til gegninga á Þverá og í íbúðarhúsinu á Þverá búa áfram
fyrri eigendur jarðarinnar og hafa áfram hesta og kindur eins og
hingað til.
Júlíus Júlíusson framkvœmdastjóri Fiskidagsins mikla:
,y\llt að verða tilbúið44
Leikskóladeild á lofti
safnaðarheimilisins
Undirbúningur fyrir Fiskidaginn
mikla er nú á lokastigi og segir
Júlíus Júlíusson framkvæmda-
stjóri að þetta sé allt að smella.
„Við fengum mjög góð viðbrögð
við Bæjarpóstinum í sl. viku.
Meðal annars hafa hátt í þrjátíu
fjölskyldur látið skrá sig vegna
„fiskisúpukvö)dsins“ á föstu-
dagskvöldið.
Enn er hægt að skrá sig og við
viljum benda fólki á að það fær
fisk og brauð hjá framkvæmda-
nefndinni, auk þess sem Nettó
gefur gestgjöfum skálar og skeið-
ar. Það eru komnar nýjar grill-
sveitir, m.a. ein frá Akureyri, og
við höfum fengið góðar undir-
tektir að vanda frá sjálfboðalið-
um. Það má kannski segja að það
eina sem okkur vantar núna séu
fleiri til að baka rúgbrauð. Eins
vantar okkur fleiri sjálfboðaliða
í pökkun og er fólk beðið að láta
skrá sig sem fyrst á netfangið
fiskidagurinn@julli.is eða hringja
í síma 897 9748. Það er ljóst að
fólk ætlar að bregðast vel við og
kveikja á ljósaseríum og þess má
geta að seríur eru uppseldar í
Húsasmiðjunni, en eru væntan-
legar innan tíðar.“
Dagskrá dagsins er nánast full-
frágengin, hvort heldur sem er á
Folarnir komnir á jafnsléttu
Eins og sagt var frá í síðasta Bæjarpósti trylltust tveir ungir grað-
folar þegar herflugvél flaug yfir hestahólf sem þeir voru hafðir
í úti við Sauðanes og linntu ekki látum fyrr en þá bar við him-
in efst uppi á Karlsárfjalli sunnan við svokallað Brunnárgil. Þar
hurfu þeir í þoku og hafði ekkert til þeirra spurst þegar blaðið fór
í prcntun sl. iniðvikudag.
Þegar þokunni loksins létti á fimmtudag fór Þorleifur Karlsson
á Hóli, annar eigandi hestanna, með hross upp á Karlsárdal og
hugðist freista þess að ná folunum niður. Þegar hann kom fram
á dalinn mætti hann hins vegar folunum sem komnir voru niður
á jafnsléttu heilu og höldnu af sjálfsdáðum en nokkuð kvikir og
taugaóstyrkir. Að sögn Þorleifs má heita kraftaverk að þeir í fyrsta
lagi höfðu sig upp á brúnina og í öðru lægi að þeir komust aftur
niður. Sjálfsagt hafa þeir hafst við eina fjóra daga uppi á eggjum
við lítinn sem engan kost.
sviði, á hátíðarsvæðinu eða ann-
arsstaðar í sveitarfélaginu. Ein-
hverjar smávægilegar breytingar
gætu kannski litið dagsins ljós.
Fiskidagurinn mikli hefst stund-
víslega kl. 11.00 og stendur til kl.
17.00 en dagskráin í heild birtist
á bls. 2.
Bæjarráð Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 14.
júlí sl. að taka á leigu efri hæð safnaðarheimilis Dalvíkur-
kirkju fyrir rekstur á nýrri leikskóladeild, þ.e. fimm ára deild, við
Krílakot. Stjórnendur Krílakots hafa fyrir sitt leyti samþykkt að
hefja rekstur 5 ára deildar á lofti safnaðarheimilisins en líta á þá
ráðstöfun sem bráðabirgðalausn. í samþykkt bæjarráðs er sérstak-
lega tekið fram að með þessari samþykkt felst ekki samþykki fyrir
því að hafist verði handa við stækkun Krílakots.
Víða verið að snyrta
Nokkuð víða á Dalvík er verið að lagfœra umhverfið, til dœmis neðan við bakkann framan við kaupfélagið
sem myndin hér að ofan er af. Á dögunum voru einnig boðin út jarðvegsskipti og lagning slitlags við Hvol
en brýnt var orðið að ganga frá þessu svœði því þar koma þúsundirferðamanna árlega til að skoða byggða-
safnið.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202