Norðurslóð - 20.10.2005, Page 4
4 - Norðurslóð
Seinni göngur
Framhald afbls. 3.
Þá hófst nú gleðin og var ljóst
að nú mundi enginn spara sig.
Ég var svo heppinn að planta
mér niður á hornið hjá Omari,
Steingrími og Steinari því þar
leið aldrei langt á milli þess að
skálað væri en sennilega hallað-
ist nú lítið á með afrekin á því
sviði. Söngurinn var tvímæla-
laust sá besti sem ég hef heyrt í
gangnakofa, þarna voru greini-
lega fagmenn. En söngóðum Pét-
ri leið djöfullega því hann kunni
minnst af þessum heimatextum
sem sungnir voru þannig að gott
væri fyrir hann að vita fljótlega
hvort hann megi koma aftur
næsta haust því ef svo er þá lærir
hann textana í vetur trúi ég, til
að þurfa ekki að sitja hjá. Menn
tóku til matar og bar þá við að
ansi margir voru laumulegir við
mal sinn og var ástæðan sú að
fjöldinn allur var með kjúkling
til nestis og vildu greinilega ekki
fá á sig skammarræðu frá Stera-
Pétri eins og ég kvöldið áður.
Það komu gestir og ekki spilltu
þeir söngveislunni og var þar
t.d. enginn meðalmaður á ferð,
sjálfur Jóhann Daníelsson. Fór
nú loftið að titra af hærri tónum
en áður og gaf enginn eftir.
Var brátt hugað til niðurreiðar
og ljóst að í öllum var tilhlökk-
un. Fyrsti viðkomustaður var að
Klængshóli samkvæmt gamalli
venju. Var þar litið undir hross
og úr bætt. Allir gengu til húss og
þáðu veitingar og var ekki í kot
vísað hjá þeim glæsihjónum. Þar
gerðist það að yngissveinninn
Atli frá Grund kvaddi sér hljóðs
og bað um að fá að gera tilraun
til að kveða sig inn í félgsskap-
inn. Eðlilega var sú beiðni veitt
ekki síst þar sem Atli er af bratt-
gengustu og frískustu ættum
sveitarinnar hvort sem litið er til
móður- eða föðurættar og ætti
því að vera vís fengur að honum
í þessum afrétti.
Mig glepur hvorki gips né fatli
og glaður hleyp ég yfir dý.
Greiða biður Grundar-Atli
í gangnamannakompaní.
Ekki var annað að heyra en að
hann væri innvígður með miklu
klappi. Á Klængshóli fannst Pétri
menn fara heldur yfir mörkin og
syngja óviðurkvæmilega texta
eða allt að því klámvísur:
Vinum mínum vil ég allra sízt
valda sorg; afhólmi trauðla
renn,
en fyrir Klœngshólsfólkið
finnst mér víst
ferleg plága þessir gangna-
menn.
Eitt vakti athygli flestra er
þarna voru, en það var ólyst Ár-
manns dýralæknis á brennivíni og
voru margir smeykir um að hann
væri því alvarlega sjúkur og væri
að undirbúa að ganga fyrir hinn
æðsta dóm. Gott var því að hafa
lækni á staðnum. Pétur sagði að
karlinn væri bara með einhvern
flensuskít en það fannst innfædd-
um Svarfdælum léleg skýring og
höfðu ekki trú á að Ármann léti
slíka smámuni hefta sig í þessum
efnum. En hver sem veikindin
voru þá get ég sagt öllum Svarf-
dælingum að þeir þurfa ekki að
hafa nokkrar áhyggjur af heilsu-
fari Ármanns því strax daginn
eftir hafði bráð af honum og lyst-
in kominn aftur.
Þegar riðið var frá Klængs-
hóli var hestunum leyft að teygja
sig. Það fór vel á því þar til Pétur
læknir og hryssan hans Drottn-
ing voru ekki sammála um hvor-
um megin við skurðenda skyldi
farið. Þá skildi með þeim og
merin stökk frammúr hópnum
með blaktandi hnakklöfum en
Pétur kyssti móður jörð af meira
afli en nauðsynlegt er gömlum
manni. Á þennan snarlega við-
skilnað var kominn tími þar sem
sumarið hafði liðið án þess að
Pétur dytti af sem er óvenjulegt
í samskiptum hans við íslenska
hrossastofninn. Við enduðum
för okkar að Bakka eða allavega
voru hrossin okkar þar á sunnu-
dagsmorgninum og reiðtygin öll.
Ekki er tilhlýðilegt að rekja
nánar reið okkar og niðurgang í
dalnum. Bæði er að mig brestur
nokkuð minni til að segja skil-
merkilega frá og ekki vil ég segja
lygasögur af því sem gerðist eða
gerðist ekki því það gæti kostað
það að okkur yrði alls ekki boðið
að koma aftur sem við teljum nú
reyndar hæpið hvort eð er.
Ég vil bara þakka kærlega fyr-
ir góðar stundir þar sem gaman
var að vera.
Reynir Hjartarson
Minning
*
Sigurður Olafsson
Fœddur 29. júlí 1916- Dáinn 5. október 2005
Það kom engum á óvart að heyra
lát Sigurðar í Holti. Hann var 89
ára. Hann hafði strítt við hinn ill-
skæða parkinsonsjúkdóm í 20 ár.
Það var seigt í honum því hann
varðist vel og furðulega lengi.
Þar naut hann atfylgis Ástdísar
konu sinnar sem lagði allt sitt lið
í að verja hann sóknum óvinarins
og létta bónda sínum lífið.
I Syðraholti eru húsin hvít
og hreinleikinn og umhirðan
blasa við eins og þau hafa alltaf
gert. Sveitungarnir vissu að bú-
skapurinn þar var allur til fyrir-
myndar. Syðraholtskýrnar voru
með afbrigðum afurðamiklar og
voru hjónin verðlaunuð fyrir það
af Búnaðarsambandinu. Snyrti-
mennskunni var við brugðið.
Kýrnar skínandi hreinar og leið
vel. Ef komið var inn í hlöðu milli
mála var gólfið þar jafnan sópað
og stabbarnir skornir eins og eftir
hallamáli. Líkast arkítektúr í fal-
legri, grænni borg. Á vorin komu
kindurnar út skínandi hvítar á
lagðinn, úthey voru fagurlega
upp borin og á túninu sáust aldr-
ei rök í heyskapartíð. Sigurður
og Ástdís stunduðu fyrirmynd-
arbúskap, þau voru fagurkerar,
búreksturinn var þeim ekki að-
eins bjargræðisvegur, hann var
list. Það fyllti enn frekar upp í
myndina af búskapnum sem list
þegar hjónin komu ríðandi utan
veg á sumarsíðkvöldum á há-
gengum gæðingum sínum með
tiginn makka. Hjónin snyrtilega
búin á baki, gjarnan í hvítum
lopapeysum. Sigurður var bráð-
lipur reiðmaður og á fyrstu kapp-
reiðum Hrings á Ytra-Garðs-
hornstúni var Blesi hans efstur í
flokki klárhesta með tölti.
Umhirðan blasti við, og hún er
bóndans besta hrós. Siggi í Holti
var hins vegar ekki áberandi á
mannamótum svo ég muni. Mér
fannst hann ekki fara mikið af
bæ, ekki meira en hann þurfti.
En ef maður kom inn í hús í Holti
komu í ljós ýmsar hliðar á mann-
inum sem ekki blöstu við hið
ytra. Þá kom líka í Ijós að hann
átti sér fortíð sem um margt var
frábrugðin venjulegu bóndalífi.
Þar gat að líta myndir af Sigurði
á yngri árum stjórnandi kórum.
Og listmunir eftir hann uppi á
veggjum, hillur, fagurlega út-
skornar og málaðar, yfir vegg-
teppum, og í stólum voru púðar
og pullur sem hann hafði teiknað
á myndir og málað.
Fjölskylda Sigurðar kom í
Syðraholt 1931 framan úr Kross-
hóli í Skíðadalsbotni. Þá var
hann 15 ára. Heimili þeirra var
menningarheimili. Orgel var á
heimilinu. Börnin fóru í skóla og
námu nytsamar menntir. Sigurð-
ur fór þó hvergi lengi vel enda
elstur bræðranna og ómissandi
heima. En 25 ára tók hann sig
upp, fór þá til Reykjavíkur og
stundaði orgelnám einn vetur
hjá sjálfum Páli ísólfssyni. Heim
kominn stofnaði hann Karlakór-
inn Svörfuð og stjórnaði honum
nokkur ár. Rúmlega þrítugur fór
hann aftur suður og þá í Handíða-
skólann jafnframt því að stunda
söngkennaranám og kom heim
1947 með söngkennararéttindi
og handíðakennarapróf upp á
vasann. Næstu ár stundaði hann
kennslu við skólana á Olafsfirði,
Dalvík og Árskógi auk skólans
á Grund. Oddhagur var hann og
drátthagur í besta máta og skar
út og málaði hillur og trémuni
og smíðaði skápa og kistla fyrir
fólk. Hann seldi t.d. vegghillur
gegnum búðir á Akureyri. Nytja-
listamaður myndi hann nú kall-
Tímamót
Þann 5. október lést á Dalbæ Sigurður Ólafs-
son Syðra-Holti. Sigurður fæddist á Krosshóli í
Skíðadal þann 29. júlí 1916. Foreldrar hans voru
Kristjana Jónsdóttir f. 1. júlí 1882, lést 25. feb-
rúar 1970 og Ólafur Tryggvi Sigurðsson fæddur
2. mars 1891, lést 3. október 1952, ábúendur
á Krosshóli. Sigurður var við nám í farskóla
í Skíðadal, en farkennslan fór fram á Kóngs-
stöðum og víðar.
Þegar Sigurður er á 15. aldursári kaupir faðir
hans Syðra-Holt í Svarfaðardal og keypti Sigurður hlut í jörðinni
á móti honum. Hann vann fyrir sér næstu árinn við landbúnaðar-
störf og vegavinnu en yfir sumartímann vann hann svo að búinu á
Syðra-Holti. Hann hafði mikinn áhuga á tónlist og nam um tíma or-
gelleik hjá Jóhanni Tryggvasyni á Ytra-Hvarfi. Árið 1947 stundaði
hann nám við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík. Sigurður
kvæntist Ástdísi Óskarsdóttur frá Kóngsstöðum. Þeim varð ekki
barna auðið, en tóku í fóstur Jósep Þrastarson, þegar hann var á
fjórða aldursári. Jósep er fæddur þann 31. maí 1958, ókvæntur og
barnlaus, hann býr í Reykjavík.
Sigurður kenndi víða söng og smíðar, m.a. við skólann í Árskógi,
barnaskólann á Ólafsfirði, Unglingaskólann á Dalvík og í skólanum
í Þinghúsinu á Grund. Hann var orgelleikari um nokkurra ára skeið
við Tjarnarkirkju og einnig leysti hann af hina organistana í byggð-
arlaginu ef á þurfti að halda. Hann var söngstjóri Karlakórs Dal-
víkur um tíma og einn af stofnendum hans. Einnig var hann með-
stofnandi að tvöföldum kvartett sem æfði í þinghúsinu á Grund.
Árið 1956 tók Sigurður alfarið við búi í Syðra-Holti. Hann gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið, sat í hreppsnefnd og
ýmsum öðrum nefndum.
Útför Sigurðar var gerð frá Dalvíkurkirkju þann 13. október.
Þann 4. október sl. lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Ester
Jósavinsdóttir fyrrum húsfreyja og bóndi á Másstöðum í Skíðadal.
Ester fæddist á Auðnum í Öxnadal þann 26.
ágúst 1925. Foreldrar hennar voru hjónin Hlíf
Jónsdóttir og Jósavin Guðmundsson. Ester ólst
upp á Auðnum við sveitastörf í stórum systkina-
hópi og naut hefðbundinnar barnafræðslu
þeirra tíma. Sorginni kynntist hún þó snemma,
en faðir hennar andaðist þegar hún var tólf
ára.
Ung byrjaði Ester að fara í vistir og var í
Bakkaseli í Öxnadal er hún kynntist eiginmanni
sínum, Helga Aðalsteinssyni frá Ásgerðarstöðum í Hörgárdal. Bú-
skap sinn hófu þau í Búðarnesi í sömu sveit. Síðan bjuggu þau í
Þrúðvangi við Akureyri og á Fornhaga í Hörgárdal, en eftir það á
Másstöðum í Skíðadal. Þar var heimili þeirra lengst, eða allt til þess
að Helgi lést af slysförum þann 3. nóvember árið 1955. Hún stóð
þá ein eftir með fimm börn, öll innan við fermingaraldur og það
yngsta enn á brjósti, en hélt áfram búskap á Másstöðum og kom
upp börnunum. Hún var góður bóndi og einn af fáum kvenbændum
á landinu. Búskapurinn var henni í blóð borinn.
Börn Esterar og Helga eru: Rósa, hennar maður er Kristján Stef-
ánsson og eru þau búsett í Varmahlíð í Skagafirði; Jósavin Hlífar, til
heimilis í Reykjavík, kona hans er Guðbjörg Róbertsdóttir; Eiríkur
Birkir, hann býr í Svarfaðardal og hans kona er Guðrún Rósa Lár-
usdóttir; Steinunn Aldís, gift Magnúsi Ólafi Einarssyni og er heimili
þeirra á Álftanesi; Ingibjörg Þórunn, eiginmaður hennar er Jósavin
Gunnarsson og eiga þau heima í Litla-Dunhaga í Hörgárdal. Alls
eru afkomendur Esterar 54.
Árið 1969 brá Ester búi, fluttist til Akureyrar og festi kaup á íbúð
við Norðurgötu 10. Þar var heimili hennar næstu sex árin, en þá hóf
hún sambúð með Zophoníasi Jósepssyni. Heimili þeirra var í Æg-
isgötu 25 og hafa þau Ester og Zophonías þekkst í á fjórða áratug.
Ester var í fullu fjöri fram í andlátið og lést eftir stutt veikindi.
Útför hennar var gerð frá Dalvíkurkirkju þann. 14. þ.m. Hún var
jarðsett í Vallakirkjugarði.
aður. Hann hélt m.a. námskeið í
útskurði fyrir norðlenska barna-
kennara austur á Laugum. Jafn-
hliða þessu var hann organisti í
Tjarnarkirkju og stjórnaði nokkr-
um söngkórum.
Árið 1952 tók hann við föður-
leifð sinni í Syðraholti. Fjórum
árum síðar kvæntist hann Ástdísi
Óskarsdóttur frá Kóngsstöðum.
Það voru samlynd og samhent
hjón með afbrigðum, utan húss
sem innan. Þeim varð ekki barna
auðið. Samt var yfirleitt ekki fá-
sinni í Holti því þar voru jafnan
nokkur sumarbörn sem mörg
hver bundu tryggðir við þau
hjón, og svo ólu þau upp fóstur-
soninn Jósep Hrafn Þrastarson.
Sigurður var ljúfur maður. Hann
hafði örlátt hjarta og oft vissi ég
hann gauka peningum að óvanda-
bundnum börnum og unglingum
ef hann fann eitthvert tilefni til,
jafnvel dálitlum fúlgum.
Um miðja 20. öld var þátt-
taka í ýmsum félögum ómissandi
hluti búskapar hér um slóðir og
Sigurður lagði fram sinn skerf á
því sviði. Hann var m.a. í stjórn-
um Búnaðarfélagsins og Mjólk-
urflutningafélagsins. Hið síðar-
nefnda háði linnulaust hið mikla
stríð að koma mjólkinni í Sam-
lagið eftir vondum vegum árið
um kring. Búhyggindi Sigurðar
komu að góðum notum í þess-
um félögum. Nokkur ár var hann
líka í hreppsnefnd. Um alllangt
árabil vann hann á Sláturhúsinu
á haustin, við fláningu og síðar
sem kjötmatsmaður.
Sigurður var afar samvisku-
samur og ósérhlífinn bóndi.
Líklega gerði hann allharðar
kröfur til söngstjórnar og ann-
arrar listiðkunar og því var það
að hann hætti að mestu að sinna
listagyðjunum eftir að hann tók
við búinu. Ég hugsa að hann hafi
ekki kunnað við neitt hálfkák í
þessum efnum. Svo var það aft-
ur eftir að hjónin drógu saman
búskapinn, eftir að heilsu Sig-
urðar tók að hraka, að hann rifj-
aði aftur upp gamla takta. Ekki
síst málaði hann á tau, púðaver,
áklæði og slíkt. Á seinni búskap-
arárunum skiptu þau hjónin oft
verkum óhefðbundið, Ástdís var
aðalmaður í skepnuhirðingu en
Sigurður fékkst við bakstur og
matargerð ekkert síður en hún.
Stundum saumaði hann út og
fórst mjög vel úr hendi eins og
annað. Einna merkilegast þótti
mér þegar tennur hans höfðu
gamlast og bilað að þá fór hann
til Kjartans bróður síns og læknis
á Seyðisfirði og smíðaði sjálfur
upp í sig nýjar. Eftir að Park-
inson kreppti meira að honum
unnu hjónin saman að skreytilist
á púða, Ástdís teiknaði þá mynd-
irnar en Sigurður málaði. Sjálfur
á ég fagurlega blómum skreyttan
púða frá þeim. Sigurður var lista-
maður í allri sinni gerð. Þannig
bjó hann, þannig hugsaði hann
og þannig lifði hann lífinu. Þann-
ig ætla ég líka að muna hann,
listamanninn Sigurð í Holti.
Þórarinn H jartarson
Fjör í sundinu
SundfélagiðRánhefurstarf-
að samfleytt í sjö ár og
hefur aðsókn á sundæfingar
aldrei verið eins mikil og nú
í haust og hefur iðkendafjöldi
ríflega tvöfaldast. í gegnum
árin hafa að jafnaði 7-8 manns
verið á æfingum. Á nýju starfs-
tímabili hafa að jafnaði 17
manns verið á æfingu en 24
eru skráðir til leiks.