Norðurslóð - 27.09.2012, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 27.09.2012, Blaðsíða 6
Bókasafnið á Dalvík Svarfdælsk byggð & bær Tímamót Skírnir Þann 1. sept. var skírður í Tjamarkirkju Jón Armann. Foreldrar hans em Gylfi Heiðar Omarsson og Eydís Osk Jónsdóttir Húsabakka. Þann 1. sept. var skírð í Urðakirkju Sunncfa Sumarrós. Foreldrar hennar em Bryndís Hmnd Brynjólfsdóttir og Dagur Oskarsson, Þverá í Skíðadal Þann 2. sept. var skírð í Dalvíkurkirkju Rakel Sara. Foreldrar hennar eru Guðrún Magnúsdóttir og Atli Þór Friðriksson, Goðabraut 1, Dalvík. Afmæli Þann 16. sept. síðast liðinn varð sjötíu og fimm ára, Hilmar Daníelsson, Kirkjuvegi 23, Dalvík. Þann 19. sept. síðast liðinn varð sjötíu og fimm ára, Sigmar Sævaldason, Mímisvegi 16 Dalvík. Andlát Þann 18. ágúst sl. lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Hermína Þorvaldsdóttir. Hermína fæddist á Víkurbakka á Arskógsströnd, 1926 og ólst þar upp fram á fullorðinsár. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Amason frá Ytri-Haga á Arskógsströnd og Sigríður Þóra Bjömsdóttir frá Nolli í Grýtubakkahreppi. Hermína var næstelst níu systkina, þau em: Reynald, (látinn), Ægir, Hákon, Baldvina, Anna Björg (látin), Björgvin, Alda og Ami. Sem ung kona vann Hermína við þjónustustörf á Akureyri og síðar við símstöðina á Krossum á Arskógsströnd og Dalvík. Hermína kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum Herði Sigfússyni á Dalvík. Þau gengu í hjónaband 1946 og hófú búskap í Bjargi, Hafnarbraut 2 á Dalvík. Böm þeirra eru fjögur: Valur, Asgerður, Sigríður og Leifur. Hermína og Hörður byggðu sér heimili að Goðabraut 16 á Dalvík, árið 1955 og bjuggu þar alla tíð síðan. Utför Hermínu var frá Dalvíkurkirkju 25. ágúst s.l. Þann 1. september s.l. lést á Fjóðungssjúkarhúsinu á Akureyri Margrét Valtýsdóttir, Selárbakka, Árskógsströnd. Margrét var fædd 1926. Foreldrar hennar vom Valtýr Jónsson og Rakel Jóhannsdóttir. Margrét átti lengst af heima á Selárbakka og stundaði þar búskap fyrst með foreldrum sínum og síðar syni sínum OskarHarðarssyni. Margrét flutti til Akureyrar fyrir örfáum ámm. Hún átti við heilsuleysi að stríða síðast liðinn vetur og andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar. Margrét var jarðsungin 11. september frá Stærri-Árskógskirkju. prestur var sr. Hulda Hrönn Helgadóttir. Grjótgl ímufélagið Veggurinn að klárast Uppbygging á innanhús- klifuraðstöðu í Víkurröst á Dalvík sem hófst í vor hefur gengið vonum framar í sumar. Félagsskapur um verkefnið, Grjótglímufélagið, sér um alla fjármögnun og uppbyggingu á klifurveggnum. Eitt aðal markmið verkefnisins er að auka ljölbreytni og afþreyinga möguleika í Dalvíkurbyggð. Félagar Grjót- glímufélagsins leggja áherslu á að í klifri eru menn að glíma við sjálfan sig óháð öðrum, og minni krafa á félagslega fæmi en í mörgum öðrum íþróttum. Að baki félaginu stendur áhugafólk um íþróttina ásamt björgunarsveitinni á staðnum og eru allar framkvæmdir unnar í sjálfboðavinnu. Efni fékkst á mjög hagstæðu verði sem gerði það að verkum að hægt var að fullnýta húsnæðið. Smíðin er nú langt komin og einungis smá frágangur eftir. Hugmyndir eru jafnvel uppi um að halda hluta af Islandsmeistaramótinu í klifri á Dalvík. Nú þarf félagið hins vegar að safna frekari styrkjum til að fjármagna kaup á fleiri klifurgripum, því veggurinn er hálf tómlegur eins og er. Eru þeir sem hafa áhuga á að styrkja verkefnið beðnir að hafa samband við Grjótglímufélagið, Sími: 868 8051 Hádegisfyrirlestrar í vetur Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði mun Bókasafn Dalvíkurbyggðar standa fyrir hádegisfyrirlestrum í Bergi. Fyrsti fyrirlesturinn verður 4. október kl. 12:15-13:00. Þá mun Sveinn Brynjólfsson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Islands kynna lokaverkefni sitt í jarðeðlisfræði við Háskóla Islands. Fyrirlesturinn nefnist: Ahrif veðnrs og landslags á snjóflóð honum loknum mun Sveinn svara Allir eru velkomnir og enginn / Svarfaðardal og nágrenni. og fyrirspurnum á meðan tími leyfir. aðgangseyrir. Kaffihúsið er opið tekur um 30 mínútur í flutningi. Að samkvæmt venju. Dalvíkurskóli Nýtt Comeniusarverkefni gróðurfarsskilyrði ásamt fleiri verkefnum. I þessari viku verður haldinn undirbúningsfundur á Irlandi fyrir vinnu vetrarins og eru Sigríður Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri, og Gísli Bjamason, skólastjóri, fulltrúar skólans á fundinum. Þau munu kynna verkefni og kynningarefni sem nemendur 5. og 6. bekkjar hafa unnið á síðustu dögum. Merkið hér að ofan er framlag skólans ísamkeppni um merki verkefnisins. Nú á haustdögum hóf Dalvíkurskóli þátttöku í Comeniusarverkefni ásamt 7 öðrum skólum í 6 löndum, Irlandi, Finnlandi, Belgíu, Þýskalandi, Slóveníu og Italíu. Verkefnið kallast NIFE-Natural Ideas For Europe og er líkt og nafnið gefur til kynna umhverfisverkefni. Samstarfsskólamir vinna allir sambærileg verkefni og áhersla er lögð á sérkenni og sérstöðu hvers lands t.d. veður og Kosið 20. október Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi að fram fari íbúakosning vegna skipulags í landi Upsa samhliða kosningu um stjórnarskrá þann 20. okt. nk. Kosningin um skipuag er bindandi ef 66% kosningabærra manna taka þátt.. Ein spuming verður á kjörseðli og val um já eða nei við henni. Spurningin er: Vilt þú að frístundabyggðin verði felld út af deiliskipulagi að Upsum. Auglýst eftir IPA-verkefnistillögum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir hugmyndum að IPA-verkefnum á íslandi en markmið þeirra er að undirbúa mögulega þátttöku í uppbyggingarsjóðum ESB komi til aðildar að sambandinu. Auglýst er eftir verkefnum á sviði: > Atvinnuþróunar og byggðamála >■ Velferðar- og vinnumarkaðsmála Til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra. Stefnt er að því að verja þeim til allt að 20 verkefna um allt land á árinu 2013. Verkefni skulu taka mið af „(sland 2020" stefnumörkuninni og vera unnin í samstarfi a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur og að hámarki ein milljón evra. Umsóknafrestur er til 30. nóvember 2012 Frekari upplýsingar um IPA og umsóknargögn eru aðgengileg á slóðinni: www.byggdastofnun.is/ipa — 3 (^Byggðastofnun Utanríkisráðuneytið rannís

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.