Norðurslóð - 25.11.2015, Qupperneq 5

Norðurslóð - 25.11.2015, Qupperneq 5
Norðurslóð - 5 ÖSP EIOJÁRN SIGRÍDUR THORLACIUS VALOIMAR GUÐMUNDSSON fíM JÓLABOÐ KRISTJÖNU ARNGRÍMSDÓTTUR ,3í* '' a GAMLABIO ■ SUNNUDAGINN 13. DESEMBER KL. 20 JÓLABOÐIÐ VERÐUR STÆRRA (SNIOUM EN NOKKRU SINNI FYRR! AUK KRISTJÖNU KOMA FRAM: SIGRÍÐUR THORLACIUS, VALDIMAR GUÐMUNDSSON OG ÖSP ELDJÁRN. TÓNLISTARSTJÓRI ÖRN ELDJÁRN. MIÐAVERÐ 5.900 KR. MIÐASALA A lix.is XíV Viltu eignast Norðurslóð frá upphafi? Allir árgangar Norðurslóðar frá upphafi 1977 til dagsins í dag eru til í nokkrum eintökum hjá Sigríði Hafstað á Tjörn. Norðurslóð er ómetanleg heimild um sögu, sagnir, vísur, Ijóð, menn og málefni íSvarfaðardal, Dalvík og Árskógsströnd að fornu og nýju. Inn bundið er safnið kjörgripurá hverju heimili. Þeir sem áhuga hafa á að eignast heildarútgáfu Norðurslóðar eða einstaka tölublöð er bent á að hafa samband við Sigríði Hafstað á Tjörn ísfma 4661555. Heildarsafnið kostar kr. 15.000 en einstaka blöð eftir samkomulagi Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið: • Stjórnun og daglegur rekstur fræðslu- og menningarsviðs • Umsjón með fræðslu-, íþrótta-, æskulýðs- og menningarmálum • Áætlanagerð og stefnumótun • Undirbúningur og eftirfylgni mála sem falla undir fræðsluráð og íþrótta- æskulýðs- og menningarráð • Þátttaka í yfirstjórn sveitarfélagsins • Önnur verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfið • Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri skilyrði • Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur • Leiðtogahæfni og lipurð I mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Framúrskarandi þjónustulund • Góð tölvukunnátta • Gott vald á íslensku í ræðu og riti Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og lærdómssamfélag og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar er með því besta sem gerist hér á landi, jafnt sumar sem vetur. Dalvíkurbyggð er heilsueflandi samfélag. Gildi sviðsins eru virðing, jákvæðni og metnaður. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2015. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Þóra Pétursdóttir (thora.petursdottir@capacent.is) og Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) hjá Capacent. capacent Svarfdælskt kanabisbýli Skv frétt frá Lögregluembættinu á Norðurlandi eystra voru sl mánudag gerðar upptækar 58 kanabisplöntur og um 100 grömm af kanabisefnum á bæ í framanverðum Svarfaðardal. 1 sömu aðgerð gerði lögreglan upptæk efni til lyfjaframleiðlu þar eð tilskilin leyfi voru ekki til staðar. Þrír menn voru handteknir í tengslum við málið og sleppt að loknum yfirheyrslum. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu skv. frettatilkynningu á heimasíðu lögreglunnar. Ekki mun vera stunduð önnur landbúnaðarframleiðsla á bænum. Húsabakki Dalvíkurbyggð stefnir á sölu Aðventukvöld í byrjun desember í Dalvíkursókn Aðventukvöld f Dalvíkurkirkju verður 4. desember kl. 20:00. M.a. verður fluttur helgileikur af 6. bekk Dalvíkur- skóla. Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttirflytur hugleiðingu. Aðventukvöld í Tjarnarkirkju verður 11. desember kl. 20:00. Sigrún Stefánsdóttirfjölmiðlafræðingurflyturávarp. Bjarni Th. Bjarnason hefur fyrir hönd bæjarráðs óskað eftir sanikomulagi við Húsabakka ehf um að sveitarfélagið endurgreiði félaginu breytingar innandyra á Húsabakka skv. ákvæði þar að lútandi í ieigusamningi. Samhliða verði gert gagnkvæmt samkomulagi um riftun tíu ára leigusamnings félagsins á húseignum. Sem kunnugt er sagði Dalvíkurbyggð upp leigusamningi félagsins á Húsabakka í nóv. s.l. í því augnamiði að koma fasteignum á Húsabakka út úr bókum sveitarfélagsins. Uppsögninni var síðar frestað til haustsins eftir fundi með stjóm félagsins. I bréfi sem sveitarstjóri sendi stjórn Húsabakka ehf. kemur fram að skoðaðar hafi verið leiðir til að vinna að þessu markmiði í sátt við félagið og eins hvernig félagið gæti hugsanlega eignast húsnæðið. Það iiækir nokkuð málin að ríkið á 30% húseigna á Húsabakka. Eftir viðræður við lögfræðinga og fulltrúa Ríkiskaupa sem sér um sölu fasteigna rikisins sé þó ljóst að bæði ríki og sveitarfélag eru bundin stjórnsýslulögum varðandi sölu eigna. Þvi sé það niðurstaða Sveitarfélagsins að bjóða félaginu að greiða því breytingar innan dyra og rifta samningnum sem setja megi eignimar í söluferli. Stjórn Húsabakka hefur boðað til hluthafafundar þann 2. desember þar sem tekin verður afstaða til tilboðs Dalvíkurbyggðar Bakhjarladálkurinn Þessir styrkja útgáfu Norðurslóðar Dalvíkurbyggð Landsbanki Vélvirki ehf. HUSASMIÐJAN

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.