Víkurfréttir - 23.02.2006, Qupperneq 17
Ef þú telur að
linga i gegnum net ð þ gf hægt að hringja i neyð-
!"uS Wt =<», blattafram.is og M
Barnaheilia, barnaheiH.is.
I tí ■s*t
t5 % 4 H 5 6 / < i 7 1 B [ 8 J 1
■1 T V U 1
H J
jflf/
w éá S ' t
að samfélagið hafi bókstaflega
tekið kipp vegna fréttarinnar.
Hvað varð til þess að Kompás
fór að vinna að þessu máli?
Þessi hugmynd kom upp eftir
að mér barst símtal frá aðstand-
enda 13 ára stúlku sem reynt
hafði verið að tæla í gegnum
msn samskiptaforritið.
Stúlkan hafði verið að ræða við
dreng sem hún hélt að væri 14
ára, en síðar kom í ljós að hann
var 19 ára. Sem betur fer ræddu
foreldrar stúlkunnar við hana
áður en hún hitti manninn.
Hvað kom þér mest á óvart
við vinnslu þáttarins?
Hvað það er ótrúlega mikil eft-
irspurn fullorðinna karlmanna
eftir börnum og unglingum.
Við „bjuggum til” 13 ára stúlku
og settum auglýsingu inn á
vefsíðuna einkamal.is - henni
svöruðu 83 karlmenn og það
sýnir hve eftirspurnin er mikil.
Það kom mér einnig á óvart
hvað þessir karlmenn voru
tilbúnir til að ganga langt; að
hitta stúlkuna á Qölförnum
stöðum, en það tel ég sýna
mjög einbeittan ásetning.
Er þetta málaflokkur semfólk í
landinu, yfirvöld ogforeldrar,
œtti aðgefa meirigaum?
Að sjálfsögðu. Sú staðreynd
að þarna úti séu fullorðnir
menn að reyna að tæla ung-
lingsstúlkur og drengi til sín í
gegnum netið í kynferðislegum
tilgangi er grafalvarlegt mál.
Nú hefur einum aðilanum
sem sýndur var íþœtti
ykkar, verið sagt upp
störfum á sínum vinnustað.
Hvernig snertir það þig?
Við erum mjög sátt við vinnsl-
una á þættinum og hvernig
við myndbrengluðum og radd-
brengluðum mennina sem
við leiddum í gildru. Annað
hef ég ekki að segja um það.
Mun Kompásfylgja þessu
máli eftir, jafnvel með
annarri slíkri úttekt?
Það er aldrei að vita. Viðbrögðin
sem við höfum fengið eru mjög
góð og langflestir eru mjög
ánægðir með vinnubrögðin.
Hvað getaforeldrar og börn
gert tilþess að hindra það
að „barnaperrar” komist í
tceri við börn og unglinga
á veraldarvefnum?
Þeir aðilar sem við ræddum
við í þættinum lögðu allir
áherslu á að foreldrar ræði við
börnin sín um hætturnar sem
leynast i netsamskiptum, s.s.
á MSN og einkamálasíðum.
Þeir lögðu einnig áherslu á
að tölvan á heimilinu væri
alltaf í alrými, þ.e. barnið
sé ekki með hana inni í lok-
uðu herbergi. Það skiptir
semsagt máli að foreldrarnir
viti hvað börnin þeirra geri
í tölvunni, alveg eins og þeir
vilja vita hvað þau geri þegar
þau eru ekki heima hjá sér.
Eins og fyrr greinir þá standa
Suðurnesjamenn, sem og
aðrir landsmenn, í baráttu við
nafnlausa þrjóta sem blekkja
börn og unglinga til samræðis
við sig. Til að tryggja velferð
barna okkar á netinu verðum
við að læra að umgangast
veraldarvefinn af virðingu
og umfram allt fræða börn
og unglinga um netið og þær
hættur sem þar leynast.
Við óskum bikarmeisturum Grindavíkur
hjartanlega til hamingju með titilinnn
og glæsilegan árangur
GRINDAVÍKURBÆR
ÞORBJÖRN FISKANES
Sparlsjóðurinn í Kcflavík
Bikarmeistarar
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VfKURPRÉTTIR I FIAAÁATUDAGURINN 23. FEBRÚAR 20061 17