Víkurfréttir - 23.02.2006, Blaðsíða 26
IÞROTTIRIBOÐI
LANDSBANKANS
Getraunaseðill vikunnar
Áfangar
HITAVEITA
SUÐURNESJAHF
Þorgrímur og félagar hans í HS
vinna margir saman að seðlinum,
en hann segir að samstarfið gangi
yfirleitt vel.
Hjördís Björk skilaði inn
seðlinum fyrir Áfanga og þeir
spáðu Arsenal auðvitað sigri, enda
hennar menn.
1. Blackburn - Arsenal 2 x 2
2. Chelsea - Portsmouth 1 1
3. Charlton - Aston Villa 1 2 1 X
4. Birmingham - Sunderland 1 1
5. Newcastle - Everton 1 1x2
6. Reading - Preston 1 1
7. Watford - Cardiff 1 1
8. Sheff Utd - QPR 1 1
9. Ipswich - Leicester 1 X 1
10. Hull - Wolves X 2 X 2
1 l.Derby - Plymouth 1 x2 X
12. Stoke - Millwall 1 2 1
13. Southampton - Sheff Wed 1 1 X
Sjúkraþjálfun Suðurnesja og SpKef voru hástökkvarar með 11 rétta í 7. leikviku og unnu sína
mótherja en Stuðlaberg heldur fyrsta sætinu með 10 stig.
AÐALFUNDUR
KEFLAVÍK íþrótta- og ungmennafélag
heldur aðalfund sinn 27. febrúar kl. 20:00
í félagsheimili sínu að Hringbraut 108
venjuleg aðalfundarstörf.
Allir velkomnir.
Aðalstjórn KEFLAVÍKUR
íþróttahúsið Njarðvík
Sunnudaginn 26. febrúar
kl. 19:15
UMFN - MíMm
SM ittfll VjT?
Frítt inn
Þóhallur Guðmundsson miðill
verður með skyggnilýsingarfund,
sunnudaginn 26. febrúar kl.20:30 í
húsi félagsins að Víkurbraut 13 í
Keflavík. Húsið opnar kl.20:00.
Aðgangseyrir kr.1000,-
Stjórnin.
Regína og Andrés
| sigruðu á púttmóti |
Regína Guðmundsdóttir og
I Andrés Þorsteinsson sigruðu I
á púttmóti sem haldið var í
Röstinni á dögunum.
| Hitaveita Suðurnesja gaf |
verðlaunin á mótinu.
3. flokkur GRV íslandsmeistarar
GRV hampaði íslandsmeistaratitlinum í innanhússknatt-
spyrnu urn s.l. helgi í 3. flokki kvenna en GRV lék til úr-
slita við Breiðablik og sigraði 4-0 í þeirri viðureign.
Mótið fór fram í Austurbergi í Reykjavík. Sannarlega glæsilegur ár-
angur hjá GRV en 4. flokkur kvenna hafnaði í 7. sæti á mótinu og
var leikið i Mosfellsbæ. 5. flokkur drengja hjá R/V hafnaði í 6. sæti á
íslandsmótinu þar sem leikið var á heimavelli Fylkis í Árbænum.
Lilja og Gunnar Örn stigahæst á Gullmóti KR
Það er óhætt að segja að
árangur sundmanna
ÍRB á Gullmóti KR síð-
ustu helgi hafi verið upp og
ofan.
Yngri sundmenn voru að standa
sig prýðilega þar sem þau
Gunnar Örn Arnarson, Soffía
Klemenzdóttir, María Halldórs-
dóttir, Lilja Ingimarsdóttir og
Salóme Rós Guðmundsdóttir
sigruðu í einni grein eða fleirum.
Þessir sundmenn eru allir að
keppa í flokkum 12 ára og yngri
og 13 - 14 ára. Þau Gunnar Örn
og Lilja sigruðu í stigakeppni
einstaklinga í drengja- og meyja-
flokki og Soffía Klemenzdóttir
hafnaði í öðru sæti í stigakeppni
telpna. Það var hins vegar nán-
ast undantekning ef að gullverð-
laun í flokki 15 ára og eldri
höfnuðu hjá íslenskum þátttak-
endum. Sterkir erlendir þátttak-
endur frá Svíþjóð, Danmörku
og Skotlandi sáu um að hirða
flest gullverðlaunin. ÍRB hafn-
aði aldrei þessu vant í öðru sæti
í stigakeppni liða, það var þó
ekki íslenskt sundlið sem sá um
að titillinn hafnaði ekki í Reykja-
nesbæ, heldur hið firnasterka
skoska sundlið Warrender sem
kemur frá Edinbourgh. ÍRB var
með rétt rúmlega helmingi fleiri
stig en næsta íslenska lið.
-eftir Örn Steinar Marinósson
Líkamsrækt er fyrir alla
íkamsræktarstöðvar geta verið frekar
fráhrindandi staðir með öllum sínunt
tækjum og tólum til að puða í og hvert
og eitt þeirra getur gengið frá manni. Þarna
inni er einnig fullt af glæsilegu fólki flottir
strákar og stelpur sem líta út eins og Brad
Pitt og Jennifer Aniston og síðast en ekki síst
taka við massaðir einkaþjálfarar sem öskra
á viðskiptavini sína í þeim augljósa tilgangi
að hvetja þá til dáða. Þegar allt þetta blasir
við hugsar maður „þetta er ekki staður fyrir
mig.“
En raunveruleikinn er allur annar því inni á
þessum stöðvum eru fullt af venjulegu fólki af
öllum stærðum og gerðum sem eiga það eitt
sameiginlegt að vera að reyna að koma sér í
form og eru einkaþjálfararnir til þess að hjálpa
fólki að ná hámarksárangri. Til að gei a æfing-
arnar bærilegar eru koniinn sjónvörp fvrir
framan brennslutækin þannig að hægt er að
horfa á ýmsa þætti eins og Nágranna eða OC á
sama tínia og maður puðar og brennir fitu.
I starfi ntínu sem einkaþjálfari hef ég horft
upp á sania fólkið koma og æfa samviskusam-
lega með góðum árangri ár eftir ár og oft hefur
myndast góður vinskapur meðal þessa fólks.
Öfugt við ofan talda hópa eru það þeir sem
kjósa helst að hafa það náðugt, liggja í sóf-
anuni og horfa á sjónvarpið og nasla eitthvað
gott. Þetta getur gengið í einhvern tíma en að
því kemur að fylgikvillarnir koma í Ijós þ.e.
aukakílóin hrannast upp, úhaldið bregst og í
versta tilfelli getur slíkur lifnaður endað með
kransæðarstíflu. Þegar svona er komið fyrir
þá veltir t'ólk fyrir sér af hverju það hafi ekki
gripið í taumana fyrr. At' hverju þarf alltaf að
vera mála sig út í horn.
Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því
að líkaminn verður ekki ungur að eilífu og það
þarf því að hugsa aðeins lengra en til dagsins
í dag því lífið er ekki bara á milli tvítugs og
þrítugs því það nær einnig til þeirra sent eru
milli fertugs og sjötugs eða eldri.
Það er svolítið kaldhæðnislegt að vera að borga
í lífeyrissjóði til að nota þegar aldurinn fær-
ist yfir en hafa svo ekki heilsu til að njóta
þess þegar sá tími keniur. Hvers vegna ekki að
leggja inn í heilsubankann og njóta vaxtana
seinna í lífinu ef Guð gefur.
Svo eru það börnin okkar.Ég vil að mín börn
líti á mig sem fyrirmynd og vil því kenna þeim
góða siði og líl'svenjur. Það áríðandi að kenna
þeirn að það þarf að hreyfa sig og borða hollan
mat til að fá hraustan líkama og hann tæst
ekki með því að sitja í tölvunni eða horfa á
sjónvarp rnarga tíma á dag. Það er hlutverk
foreldranna að vera góðar fyrirmyndir því það
læra börnin sem fyrir þeim er haft.
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU -www.vf.is- LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!
26 I VfKURFRÉTTIR I ÍÞRÖTTASlÐUR