Útsýn - 10.11.1945, Blaðsíða 2

Útsýn - 10.11.1945, Blaðsíða 2
HIN NÝJA ÚTGÁFA ÍSLEN DINGASAGNA Félag manna hér í bæ hefir hafizt handa um útgáfu íslendingasagna. Verður þetta vönduð og mjög ódýr útgáfa. Lögð veröur megináhersla á vandaðan pappír og skýrt letur. Einn kunnasti fornritafræðingur landsins, hr. magister Guðni Jónsson, hefir verið ráðinn ritstijóri útgáfunnar. Þessi útgáfa telur, sem fyr er getið, það vera meginskyldu sí na, og setur metnað sinn í það, að inna útgáfustarfið sem allra bezt af hendi. Ósmekklegar útgáfur íslendingasagna ætti að banna meö lögum. Hver vill eiga slíkan fjársjóð prentaðan á hinn ólíkasta pappír eða innbundinn sitt með hverju móti. Slik sker œtlar þessi nýja útgáfa að forðast. XJm það verður ekki deilt, að einmitt í þessar gömlu sögur hefir þjóð vor sótt þrek sitt, merg og manndáð. Og þeim eigum við fyrst og fremst að þakka sjálfstæði vort og íslenzkt mál. 12 verða bindin í hinni nýjv, útgáfu. Eru þar ekki aðeins allar íslendingasögur, er birzt hafa í eldri heildarútgáf- um, heldur að auki um 25 sögur og þættir, sem öllum þorra manna hljóta að vera nýir og ókunnir. Verður ritinu að forfallalausu skilað til kaupenda fyrir lok næsta árs, fyrir aðeins 300 krónur. Efni og niðurröðun bindanna verður sem hér segir: I. BINDI LANDSAGA OG LANDNÁM íslendingabók Landnámabók Kristni saga Hænsna-Þóris saga Eiríks saga rauða (Þorfinns saga karlsefnis) Grænlendinga saga (Eiríks saga rauða og Grænl. þáttr) Grænlendinga þáttr (Einars þáttr Sokkasonar) II. BINDI Borgfirðingasögur Egils saga Skalla-Gríms- sonar Gunnlaugs saga ormstungu Gísla þáttr Illugasonar Einars þáttr Skúlasonar Sigurðar þáttr borgfirzka Hellismanna saga III. BINDI Snœfellinga sögur og Borg- firðinga Eyrbyggja saga Ævi Snorra goða Bárðar saga Snæfellsáss Víglundar saga Bjarna saga Hítdælakappa Skáld-Helga saga IV. BINDI Breiðfirðinga sögur Laxdæla saga Halldórs þáttr Snorrasonar I Halldórs — Snorrasonar II Þórodds þáttr Snorrasonar Stúfs þáttr Geirmundar þáttr Þorskfirðinga saga (Gull-Þóris saga) Króka-Refs saga Kumlbúa þáttr Bergbúa þáttr Atla saga Ótryggssonar V. BINDI Vestfirðinga sögur Gísla saga Súrssonar Hávarðar saga ísfirðings Fóstbræðra saga Þormóðs þáttr Völsa þáttr Brands þáttr örva Auðunar þáttr vestfirzka Þorvarðs þáttr krákunefs VI. BINDI Húnvetninga sögur I. Grettis saga Ásmundssonar Bandamanna saga Odds þáttr Ófeigssonar Hrafns þáttr Hrutfirðings Hrómundar þáttr halta Þorsteins þáttr skelks VII. BINDI Húnvetninga sögur II. Heiðarvíga saga Kormáks saga Vatnsdæla saga Hallfreðar saga Þorvalds þáttr víðförla Jökuls þáttr Bárðarsonar VIII. BINDI Eyfirðinga sögur og Skag- firðinga Víga-Glúms saga Ögmundar þáttr dytts ok Guunars helmings Þorvalds þáttr tasalda Svarfdæla saga Valla-Ljóts saga Þorleifs þáttr jarlsskálds Sneglu-Halla þáttr Hreiðars þáttr heimska Þórarins þáttr ofsa Þórðar saga hreðu Svaða þáttr ok Arnórs kerlingarnefs Þorgríms þáttr Hallasonar ok Bjarna Gullbrárskálds Þórhalls þáttr knapps Þóris þáttr hasts ok Bárðar birtu IX. BINDI Þingeyinga sögur Ljósvetninga saga Ófeigs þáttr Vöðu-Brands þáttr Reykdæla saga og Víga- Skútu Finnboga saga ramma Þórarins þáttr Nefjólfssonar Stjörnu-Odda dramnur Hrana saga hrings X. BINDI Austfirðinga sögur Þorsteins saga hvíta Vápnfirðinga saga Sörla þáttr Brodd-Helgasonar Þorsteins saga stangarhöggs Þorsteins þáttr uxafóts Hrafnkels saga Freysgoða Droplaugarsona saga Fljótsdæla saga Brandkrossa þáttr Gunnars saga Þiðrandabana Þorsteins saga Síöu-Halls- sonar Þorsteins þáttr Síðu-Halls- sona Draumur Þorsteins Síðu- Hallssonar Þiðranda þáttr og Þórhalls Egils þáttr Síðu-Hallssonar Gull-Ásu-Þórðar þáttr Þorsteins þáttr Austfirðings Þorsteins þátt forvitna Gunnar saga Keldugnúps- fífls XI. BINDI Sunnlendinga sögur I. Njáls saga XII. BINDI Sunnlendinga sögur II. Flóamanna saga Þorsteins þáttr tjaldstæðings Orms þáttur Stórólfssonar Stefnis þáttr Þorgilssonar Harðar saga ok Hólmverja Haukdæla þáttr ísleifs þáttr Steins þáttr Skaftasonar Sighvats þáttr skálds íslendings þáttr sögufróða ívars þáttr Ingimundarsonar Þórarins þáttr stuttfeldar Mána þáttr skálds Ölkofra þáttr Kjalnesinga saga Jökuls þáttr Búasonar Holta-Þóris saga Ármanns saga ER HÉR ALLS UM 110 RIT AÐ RÆÐA, OG KOSTAR HVERT RIT AÐ MEÐALTALI RÚMLEGA KR. 2,70, OG HEFIR EKKERT ÚTGÁFUFÉLAG HÉR Á LANDI GETAÐ BOÐIÐ SLÍK KOSTAKJÖR, MIÐAÐ VIÐ NÚGILD- ANDI VERÐLAG. ___________________________________________________ Mikil tíðindi og einstœð má telja, að útgefendum hefir tekist að útvega. þeim, sem kynnu að óska, tilboð frá einni kunnustu Ég undirrit...... gerist hér með áskrifandi að hinni bókbandsstofu Norðurlanda fyrir kr. 6,00 ísl. hvert bindi í nýju útgáfu íslendingasagna. skinnbandi, og geta kaupendur þá snúið sér beint til bók- bandsstofunnar, ef þeim sýnist. Mun þetta nánar auglýst síðar Nafn Heimili Póststöð Hr. mag. Guðni Jónsson, Pósthólf 523, Reykjavík. Notið tœkifœrið til að eignast dýrmætasta bókmenntasjóð vorn i fállegri, ódýrri útgáfu. TAKMARKIÐ ER: Hin nýja útgáfa íslendingasagna inn á hvert heimili á landinu. — Hún á að vera fyrsta gjöfin til barnsins yðar og besta vinargjöfin. Sendið pantanir yðar í pósthólf 523, Reykjavík íslendingasagna - útgáfan

x

Útsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.