Útsýn - 10.11.1945, Side 4

Útsýn - 10.11.1945, Side 4
Bretland lofar að hverfa burtu héðan af landinu með allan herafla sinn jafn- skjótt og flutningi Bandarikjaliðsins er svo langt komið, að hemaðarlegur styrk- ur þess er nægilegur til að verja landið.“--------- Þetta siðasta ákvæði hefur ekki verið haldið, þvi að efns og kunnugt er, er brezkt herlið hér enn þann dag í dag, enda mun ekki hafa verið gengið ríkt eftir því af Islands hálfu, að það hyrfi héðan. öllum Isleridingum er nú orðið það ljóst, að vegna legu landsins, hefur það stórkostlega hernaðarlega þýðingu. En jafn augljóst er hitt, að það eru engan veginn Bandaríkin ein, sem hafa ástæðu til að. láta sig það skipta, hverjir ráða yfir bækistöðvum á Islandi. Ef segja má, að héðan megi „ógna öryggi þjóðanna á vesturhvelinu,1' er það jafn augljóst, að héðan má ógna öryggi þjóðanna á Bret- landseyjum, á Norðurlöndum og yfir- leitt í Norðvestur-Evrópu. Allar þessar þjóðir gætu þvi haft hagsmuna að gæta um það, að ekkert eitt stórveldi hefði aðstöðu til þess öllum öðrum fremur að neyta hemaðarbækistöðva á Islandi sér til framdráttar í friði eða ófriði. Svar Breta. Svar Breta hefur'sætt sömu meðferð og orðsendingar Bandaríkjastjórnar að þvi leyti, að þess hefur hvorki verið gætt sem leyndarmáls, né orðalag þess i þeim atriðum, sem mestu máli skiptir, verið gert kunnugt þingmönnum, svo að þeir geti myndað sér skoðun í málinu. Eru þess vegna, þótt undarlegt sé, uppi tvær skoðanir urg. það, hvemig beri að skilja það. Má þó fullyrða, að svarið tekur af allan vafa um það, að Bretar óska ekki eftir því, að Bandarikin fái £ framtíðinni einkaaðstöðu til að hafa hér bækistöðvar og að þeir gera fast- lega ráð fyrir þvi, að ef um herbæki- stöðvar sé að ræða hér, þá verði það öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, en ekki einstakt stórveldi, sem á sínum tíma fái yfirráð yfir þeim. Allt annað mál er það, að í því millibilsástandi, sem nú ríkir, er engin alþjóðleg stofnun til- búin til þess að fara með gæzlu hern- aðarlegra mikilvægra staða eða yfir- stjóm alþjóðahers, eins og gert er ráð fyrir í samþykktum Öryggisráðsins og víðtækar fyrirætlanir eru uppi um. — Meðan svo stendur á, er það að sjálf- sögðu mál Islendinga einna, hvernig þeir ráðstafa landi sinu, hvort þeir óska heldur að halda sér við gildandi sanm- ÍNNLENDARFRÉTTIR inga, eða gera aðra nýja um leigu á ákveðnum stöðum á landinu til handa einu stórveldanna. En þótt skoðanir séu skiptar um það, hvemig beri að svara óskum Banda- ríkjanna, þá orkar það ekki tvímælis, að mikill meirihluti þjóðarinnar vill, að Islendingar haldi vináttu beggja hinna vestrænu stórvelda, sem urðu fyrst til að viðurkenna islenzka lýðveldið. En það þýðir vitanlega ekki, að hún sé reiðu- búin til að afsala öðru þeirra yfirráða- rétti yfir landi sinu við fyrsta tækifæri, sem býðst, eftir að hún hefur endur- heimt hann. Meðferð málsins. Því verra er það, að öll meðferð þessa máls í höndum núverandi forsætis- og utanríkisráðherra hefur verið þannig, að hún- hefur sætt rökstuddri gagnrýni og vakið óánægju flestra. Og til em menn, sem þykjast vita það með vissu, að það sé eltki aðeins hér á landi, að hún hefur valdið undrun og gremju, Nú er komið á annan mánuð síðan orðsending Bandaríkjanna barst honum í hendur. Ef frá er talinn orðrómur um gífurleg fríðindi, sem í boði séu, sem almennt er rakinn til ráðherra og ein- stakra þingmanna stjórnarflokkanna og þá helzt þeirra, sem taldir eru hlynntir leigusamningunum við Bandaríkin, hefur ekkert orð heyrzt frá ríkisstjórninni um þetta mál, þrátt fyrir óskir, sem fram hafa komið innan þingsins um að stjórn- in gefi út opinbera yfirlýsingu um það. Þingmenn hafa heyrzt kvarta yfir þvi, að þeir fái minna að vita um það, en jafnvel mérin utan þingsins. Sýnilega er það ekki tilætlun ríkisstjórnarinnar, að þjóðinni gefist nokkur kostur á að mynda sér skoðun á þvi, hvort óhjákvæmilegt sé að afsaja yfirráðarétti yfir íslenzku landi í hendur einstaks stórveldis og takmarka þannig stórkostlega fullveldi og sjálf- stæði lýðveldisins á fyrsta ári þess. Tillaga forsætisráðherra. Síðustu aðgerðir forsætisráðherra í málinu benda meira að segja til þess, að hann ætlist ekki einu sinni til, að um- ræður fari fram um það á Alþingi, jafn- vel ekki fyrir luktum dyrum, hvemig orðsendingum Bandarikjanna verði svarað. Síðdegis á föstudag síðastliðinn til- kynnti hann formönnum 'þingflokkanna, að hann mundi daginn eftir leggja fyrir flokkana tillögu um svar, og að hann óskaði eftir því, að flokkarnir hefðu tekið afstöðu til hennar innan sólar- hrings og væri þess því vænzt, að þing- meHn færu ekki úr bænum um helgina. Á laugardaginn var tillagan lögð fyrir þingflokkana og miðstjórnir flokkanna. Var það tekið fram, að hún væri frá forsætisráðherra einum, en ekki ríkis- stjórninni i heild. Samkvæmt þvi sem Ú T S Ý N hefur frétt frá áreiðanlegum heimildum, felst það í tillögunni, að svar ríkisstjórnar- innar við orðsendingu Bandaríkjanna, verði að efni til á þessa leið: Islenzka ríkisstjórnin viðurkenn- ir móttöku orðsendinga Banda- rikjanna um herbækistöðvar á Islandi. Á Alþingi var hinn 24. febr. siðastliðinn samþykkt að leita eftir því, að Island yrði tekið í tölu Sameinuðu þjóðanna. Ríkisstjórnin lætur í ljós ánægju sina yfir þvi, að stjórn Banda- ríkjanna hefur tjáð sig fúsa til að styðja að þvi, að svo verði. Ríkis- stjórnin væntir þess, að það drag- ist ekki lengi, að úr þvi geti orð- ið, og .lýsir yfir því, að Island er reiðubúið til að taka á sig þær skuldbindingar, sem því fylgja. iMeð tilvísun til þessa er íslenzka rikisstjórnin reiðubúin til að taka upp viðræður við stjórn Banda- ríkjanna um þessi mál. Undirtektir flokkaima. í engum flokkanna, jafnvel ekki i flókki forsætisráðherrans sjálfs, er ríkj- andi fullkomin ánægja með þetta svar. Til þess ber það of mikinn keim af svörum -"éfréttarinnar í Delphi, sem eins og kuimugt er, orðaði goðsvör sin á þá leið, að skilja mátti þau á tvo vegu. ' Andstöðuflokkur stjórnarinnar, Fram- sóknarflokkurinn, varð fyrstur til að taka afstöðu til tillögu forsætisráðherra. Framsóluiarflokkurinn mun líta svo á, að hún sé algerlega ófullnægjandi sem svar við orðsendingum Bandaríkjanna og þess vegna óviðeigandi. Slíkt svar muni ekki verða sent, án þess að því fylgi skýringar frá utanrikisráðherra, sem flokkurinn hafi ekki aðstöðu til að vita 2

x

Útsýn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.