Útsýn - 10.11.1945, Blaðsíða 18

Útsýn - 10.11.1945, Blaðsíða 18
húsvist eða langvarandi veikindi er að ræða. Þegar sjúkrabætur eru greiddar, eru einnig greiddar fjölskyldubætur með fyrsta baminu. b. Dánarbœtur. Dánarbætur (jarðarfarahjálp) nemur: Ef hinn látni var yngri en 5 ára ..................... kr. 150.00 Ef hinn látni var á aldrinum 6—14 ára .................. — 250.00 Ef hinn látni var yfir 14 ára aldri ..................... — 500.00 5. Slysabætur. Lagt er til, að slysabætur séu fram- vegis greiddar öllum þeim, sem starfa í annarra þjónustu, en nú falla ýmsir launþegar utan laganna, svo sem verzl- unar- og skrifstofufólk og fólk, sem vinnur við landbúnað. Að öðru leyti séu ákvæðin um slysabætur hin sömu og þau eru nú, enda er nýbúið að endur- skoða þau. Þó er lagt til, að ákvæðin um dagpeningana séu samræmd ákvæð- unum um sjúkrabætur. Um hlunnindi þau, sem heilsugæzlan á að láta í té vísast til greinar Jóhanns Sæmundssonar, sem birtast mun í næsta blaði. Allar bótaupphæðir eru miðaðar við vísitölu 274 og er gert ráð fyrir að þær breytist til samræmis við þær breyting- ar, sem verða kunna á vísitölunni. Iðgjöldin. Utgjöld almannatrygginganna eiga að skiptast á hina tryggðu sjálfa, á at- vinnurekendur, sveitarfélög og ríkis- sjóð. Heildartekjuþörf trygginganna er áætluð 75 milljónir kr. á ári og er gert ráð fyrir, að hinir tryggðu beri sjálfir um 26% af þessari upphæð, atvinnurek- endur um 15%, sveitarfélögin um 20%, en rikissjóður um 38%. öll innheimta iðgjalda á að vera hjá innheimtumönnum ríkisins ásamt tekju- og eignaskatti og renna allar tekjur tryggingarina í einn allsherjar tryggingarsjóð. Leiðrétting. I grein Jóns Blöndals um vísitöluna í síðasta blaði átti 2. töluliður á bls. 11 að vera svohljóðandi: „2. Að láta húsaleiguliðinn breytast í sama hlutfalli og liðinn „ýmisleg út- gjöld" í vísitölunni, en hann nær yfir öll önnur útgjöld en matvæli, fatnað, eldsneyti, ljós og húsnæði. Þetta myndi hækka visitöluna um ca. 29 stig.“ Skyldir til að greiða iðgjöld skulu vera allir íslenzkir ríkisborgarar á aldr- inum 16—66 ára að báðum meðtöldum, að undanteknum giftum konifm, en ið- gjöld þeirra telst innifalið í iðgjöldum eiginmanna þeirra. Iðgjöld eru þessi á mánuði: 1 1 I kaup- kaup- sveit- stöðum túnum um kr. kr. kr. Giftir karlar . 40 34 28 Ógiftir karlar 30 26 21 Ógiftar konur 20 ■ 17 14 Undanþegnir iðgjöldum eru þeir, sem hafa tekjur undir ákveðnu lágmarki. aiarkmið almannatrj'gginganna. Markmið almannatrygginganna og þeirra ráðstafana, sem standa í sam- bandi við þær, er að skapa öllum borg- urum þjóðfélagsins félagslegt öryggi. „Megin skilyrðin til þess, að hægt sé að skapa það, sem nefna mætti félagslegt öryggi í víðtækari merkingu, að allir borgarar þjóðfélagsins geti lifað sóma- samlegu menningarlífi, eru þau, að at- vinnuleysinu sé útrýmt' að mestu eða öllu leyti, að sjúkdómum sé haldið í skefjum, að skortmum á brýnustu lifs- nauðsynjum sé bægt burtu, að upp- fræðsla almennings sé svo góð, að hann hafi skilning á því að nota þau tæki- færi, sem þjóðfélagið býður honum til þess að lifa menningarlífi. Það er hugs- aniegt, að eitthvert fólk lifi áfram í vol- æði og óþrifnaði, þótt því séu tryggð- ar nægilegar lágmarkstekjur til þess að lifa sæmilegu lífi.“ „Skortinum á lífsnauðsynjum má að mestu útrýma með almannatryggingum, ef atvinnuleysinu er haldið í skefjum, og má því segja, að útrýming atvinnuleys- isins sé í rauninni þýðingarmesta for- séndan fyrir því, að takast megi að skapa félagslegt öryggi.“ Ránnsóknir sýna, að skorturinn á lifsnauðsynjum stafar aðallega af því, að hlutaðeigandi he'fur misst getuna til að afla sér tekna, vegna þess að hann getur ekki fengið atvinnu, eða af ein- hverjum öðrum ástæðum. svo sem vegna elli, örorku, veikinda, missis fyrirvinnu o. s. frv., eða vegna þess að telcjurnar voru ófullnægjandi vegna þess, hve fjöl- skyldan var stór, þ. e. vegna ómegðar. „Til þess að útrýma skortinum þarf því að tryggja borgurunum tekjur, þegar þeir missa tekjur sínar af ein- hverjum óviðráðanlegum ástæðum, og tryggja þeim viðbót við tekjumar, þegar um ómegð er að ræða. Þetta á að vera hægt með alhliða tryggingarkerfi." Þetta eru í sem allra stytztu máli sá aðalgrundvöllur, sem tryggingarkerfið byggist á. Tilvitnanirnar eru úr ritinu. Tryggingastofnun ríkisins á að hafa með höndum alla framkvæmd almanna- trygginganna. Skulu þær ná til allra íslenzkra rikisborgara, sem búsettir eru hér á landi, en hlunnindi þau, sem veitt eru oð iðgjöld þau, sem greiða skal, fara auðvitað eftir aldri og öðrum ástæðum í hverju einstöku tilfelli. Erlendar fréttir. Framhald af bls. 13. styrjöld, sem enginn maður (nema ef til vill hér á landi) gerir ráð fyrir, að geti átt sér stað fyrr en eftir 1—2 ára- tugi, mundi ekki enda irieð heimsyfir- ráðum neins stórveldis, heldur með tor- tímingu mannkynsins. Fyrir skömmu komu allmargir rosknir amerískir áhrifamenn saman á fund undir forsæti Roberts fyrrverandi hæstaréttardómara. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að Ör- yggisráð sameinuðu þjóðanna væri al- gerlega óhæft til þess að ráða fram úr vandamálunum á alþjóða vettvangi, vegna neitunarvalds þess, sem hverju hinna 5 stórvelda er fengið þar. Heims- ríki með afmörkuðu en fullkomnu fram- kvæmdavaldi væri eina lausnin og mesta nauðsyn mannkynsins í dag. vélar og hvað annað, sem vera skal, í Hvalveiðar með RADAR. Allir kannast nú orðið við undratækið RADAR, sem hafði úrslitaþýðingu í baráttunni við kafbáta Þjóðverja. Tæki þetta getur bent á kafbáta, skip og flug- vélar og hvað annað, sem vera skal í mikilli fjarlægð. Nú eru Bretar að búa mikinn hval- veiðaflota til veiða í suðurhöfum og verða skipin búin þessum tækjum til þess að finna hvalina. Hvalveiðin er tal- in svo örugg með þessari veiðiaðferð, að hvalveiðamenn telja víst að þeir geti á örstuttum tíma veitt svo mikið af hvöl- um, að nóg lýsi fáist í ársforða af smjör- líki handa Bretum. ' Væri ekki hugsanlegt að hægt yrði að nota RADAR við síldarleit? Ábyrgðarm.: F. R. VALDEMARSSON. 16 ÚTSÝN

x

Útsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.